Morgunblaðið - 02.02.2000, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Þorsteinn Vilhelmsson selur hlut sinn í Samherja
Góður samstarfs-
andi lykilatriði
Arsuppgjör lífeyrissjóðsins Lífiðnar
Hrein raun-
ávöxtun 14%
KAUPÞING hf. hefur keypt 21,6%
hlut Þorsteins Vilhelmssonar og fjöl-
skyldu hans í Samherja hf. og er
kaupverðið rúmir þrír milljarðar
króna, en að sögn Sigurðar Einars-
sonar, forstjóra Kaupþings, voru
bréfin keypt á genginu 10,6.
„Við töldum að fyrirtækið væri
nokkuð áhugavert og ákváðum að
gera Þorsteini tilboð. Þetta hefur í
sjálfu sér skamman aðdraganda, en
okkur hefur verið kunnugt um að
hann gæti jafnvel hugsað sér að selja
hlutinn. Við teljum að við getum
miðlað töluvert stórum hluta fljót-
lega eitthvað áfram, en frá því hefur
ekki verið gengið endanlega,“ sagði
Sigurður.
Engin eftirsjá
Þorsteinn Vilhelmsson segir í yfir-
lýsingu vegna sölu á ríflega fimmt-
ungs hlut sínum í Samherja, að að
baki þeirri ákvörðun liggi ýmsar
ástæður. Þeirra á meðal það viðhorf
að góður samstarfsandi þurfi að
ríkja innan hlutafélaga. Þorsteinn
vill að öðru leyti lítið segja um málið,
en þó að ýmsir möguleikar séu á
framhaldinu, en hann vilji ekkert tjá
sig um þá.
„Það er ekkert sem er fast í hendi,
annað en að ég verð áfram í sjávar-
útvegi, ég þekki ekkert annað. Ég
get ekki sagt að mér sé eftirsjá að
því að yfirgefa Samherja. Þessi
ákvörðun er tekin án eftirsjár, að
öðru leyti en því, að þarna er mikið af
góðum starfsmönnum, sem voru vin-
ir mínir og ég átti dagleg samskipti
við. Þetta er fólk á skrifstofunum,
verkstæðinu, í skipaþjónustunni og
sjómennirnir. Það er aðal eftirsjáin
að þau samskipti minnki. Að öðru
leyti hef ég gert upp hug minn hvað
söluna varðar og er sáttur við þá
ákvörðun," segir Þorsteinn Vil-
helmsson.
Hér fer á eftir yfirlýsing Þorsteins
vegna sölunnar:
Fyrst og fremst
hagkvæmnisjónarmið
„Þar sem ég hef látið af störfum
hjá Samherja og önnur verkefni í
sjávarútvegi verða tímafrek á næst-
unni, tókum ég og fjölskylda mín þá
ákvörðun í dag að selja Kaupþingi
21,6% eignarhluta okkar í Samherja
hf.
Að baki þessari ákvörðun liggja
fyrst og fremst hagkvæmnisjónar-
mið en einnig markast þau af því við-
horfi að góður samstarfsandi þurfi
að ríkja innan hlutafélaga. Það er öll-
um aðilum fyrir bestu að hafa hrein-
ar línur og ég óska stjórn, hluthöfum
og starfsfólki Samherja velgengni á
komandi árum. Ákvörðun okkar um
að selja hlutinn í Samherja er á eng-
an hátt vísbending um að ég sé hætt-
ur afskiptum af rekstri sjávarút-
vegsfyrirtækja. Að undanförnu hef
ég, fjölskylda mín og fyrirtæki okk-
ar, Ránarborg ehf., fjárfest í nokkr-
um sjávarútvegsfyrirtækjum, m.a. í
Hraðfrystihúsinu Gunnvöru, Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna, Fiskeldi
Eyjafjarðar og verður eftir atvikum
framhald á því næstu misseri."
Ekki dæmdir til að
eiga hlut til eilífðar
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, sagði í samtali við
Morgunblaðið að það væri ljóst í sín-
um huga að Kaupþing hf. hlyti að
hafa trú á því sem stjórnendur fyrir-
tækisins væru að gera og að fyrir-
tækið ætti framtíð fyrir sér. Hann
sagði að ágætur andi hefði ríkt innan
Samherja í gegnum árin, en það gæti
þó alltaf komið upp að menn hefðu
mismunandi skoðanir.
„Þó svo að menn séu eigendur í
Samherja þá eru þeir ekki dæmdir
til að eiga þann hlut til eilífðar. Ég
reikna með því að Þorsteinn Vil-
helmsson starfi fyrst og fremst að
vettvangi sjávarútvegs í framtíðinni
og muni nýta sína fjármuni til þess
að fjárfesta annars staðar í sjávar-
útvegi og það fylgja honum ekkert
nema góðar óskir í því. Ég reikna
með því að það séu einhveijir að
kaupa sig inn í fyrirtækið og það
hlýtur að koma í ljós fyrr eða síðar
hverjir það eru, en ég reikna þó með
því að Kaupþing eigi einhvern hlut í
þessu áfram,“ sagði Þorsteinn Már.
Líeyrissjóðurinn Lífiðn skilaði 14%
hreinni raunávöxtun fyrir árið 1999
samkvæmt endurskoðuðu ársupp-
gjöri sjóðsins sem nú liggur fyrir en
hrein raunávöxtun sjóðsins nam
5,1% á árinu 1998. Meðalraunávöxt-
un frá stofnun sjóðsins er 9,7%.
Avöxtunin skýrist fyrst og
fremst, að því er segir í fréttatil-
kynningu, af mikilli hækkun á inn-
lendri og erlendri hlutabréfaeign
sjóðsins svo og 17% lækkun heild-
arkostnaðar á milli ára.
Heildareignir h'eyrissjóðsins
námu 14,5 milljörðum króna í árs-
lok 1999 en voru 11,3 milljarðar
STJÓRN Kögunar hf. hefur sam-
þykkt að nýta heimild til að auka
hlutafé fyrirtækisins um 15 milljónir í
því skyni að kaupa 90% hlut í Verk-
og kerfisfræðistofunni (VKS). Heim-
ildin var veitt á aðalfundi Kögunar í
síðustu viku.
Gunnlaugur Sigmundsson, for-
stjóri Kögunar, segist vonast til þess
að stjóm Verðbréfaþings íslands taki
skráningarlýsingu Kögunar fyrir á
fundi sínum í lok febrúar og I kjölfarið
fái Kögun hlutabréf sín skráð á VÞI.
„Skráningarlýsing er tilbúin frá okk-
króna í árslok 1998. Eignaaukning
sjóðsins nemur því um 28% á milli
ára.
Iðgjaldatekjur Lífiðnar á árinu
1999 námu 951 milljón króna og
jukust um 15% á milli ára. Greiddar
voru um 126 milljónir króna á árinu
1999 í lífeyri en lífeyrir sem hlutfall
af iðgjöldum er 13,3%. í fréttatil-
kynningunni segir að árið 1999 sé
besta ár í þriggja ára sögu Lífiðnar.
A síðasta ári greiddu 4.594 félag-
ar til sjóðsins. Aðildarfélög Lífeyr-
issjóðsins Lífiðnar eru Rafiðnaðar-
samband íslands og Matvæla- og
veitingasamband Islands.
ar hendi og komin til Kaupþings. Þeg-
ar Kaupþing hefur afgreitt hana fer
hún til stjómar Kögunar og að því
loknu til stjórnar Verðbréfaþingsins,“
segir Gunnlaugur.Kaupþing hefur
þegar keypt 45% hlut í VKS og þegar
skipti á bréfum Kögunar og VKS fara
fram fer hluti af bréfum Kögunar til
Kaupþings, að sögn Gunnlaugs. „Við
höfum gert samkomulag við Kaup-
þing um að þau hlutabréf fari í al-
menna og víðtæka dreifingu með það
að markmiði að fjölga hluthöfum í
Köguní 1500-2000.“
Kaup Kögunar á
VKS samþykkt
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Kælitækjaverksmiðjan Thermo Plus opnar söluskrifstofu í Bretlandi
Stefna á
markað í 12
löndum fyrir
árslok
Frysti- og kælivélar frá Thermo PIus Europe hafa þegar verið seldar tii
stórverslananna Tesco, Sainsbury’s og Iceland í Bretlandi. Frá vinstri
Kristinn Jóhannesson, framkvæmdastjóri framleiðslusviðs, Tom Ros-
eingrave framkvæmdastjóri og John Ireland, framkvæmdastjóri sölusviðs í
Bretlandi.
Eimskip
selur Detti-
foss
EIMSKIP hefur gengið frá sölu á
skipi sínu, m/s Dettifossi. Kaupandi
er þýska skipafélagið BAUM, í Nor-
denham.
Söluverð skipsins er 249 milljónir
króna og er söluhagnaður áætlaður
rúmlega 120 milljónir króna.
Að sögn Þórðar Sverrissonar,
framkvæmdastjóra flutningasviðs
Eimskips, er þessi sala liður félags-
ins í því að yngja upp skipaflota sinn.
Aðspurður um hvort Eimskip
hyggist kaupa annað skip í stað
Dettifoss segir Þórður að tvö skip
hafi í fyrra verið tekin á þurrleigu
sem koma í stað Dettifoss.
„Annað þeirra var Selfoss, sem við
fengum í maí, og hitt Mánafoss, sem
kom í desember síðastliðnum," bætti
hann við.
Dettifoss varð hluti af flota Eim-
skips árið 1991, en skipið var smíðað
árið 1982 í Þýskalandi. Burðargeta
þess er um 7.700 tonn.
Allt fram á síðasta ár var skipið í
siglingum fyrir Eimskip milli Islands
og Evrópu, en frá þeim tíma hefur
það verið í leiguverkefnum erlendis.
------f-f-4------
Kaupþing kannar
opnun útibús I
New York
KAUPÞING hf. er að kanna mögu-
leika á því að opna útibú I New York
á þessu ári. Sigurður Einarsson,
forstjóri Kaupþings, vildi í samtali
við Morgunblaöið ekki tjá sig hvar
'máliö væri á vegi statt, en sagði
það í sjálfu sér ekki vera leyndar-
mál að stefna Kaupþings hafi um
alllangt skeiö veriö að auka umsvif
sín erlendis. „( Bandaríkjunum er
stærsti fjármálamarkaður heimsins
með um 50% af öllum hlutabréfum
og það gæti því út af fyrir sig verið
freistandi að gera eitthvaö þar, en
á þessu stigi vil ég ekki tjá mig
frekar um málið," sagði Sigurður.
FRYSTI- og kælitækjaverksmiðjan
Thermo Plus Europe á íslandi hf.,
sem staðsett er í Reykjanesbæ, hef-
ur opnað söluskrifstofu í Bretlandi.
Félagið stefnir að þvi að koma sér
upp söluskrifstofum í allt að tólf
löndum fyrir lok þessa árs, sagði
framkvæmdastjóri félagsins, Tom
Roseingrave, á blaðamannafundi í
nýrri verksmiðju fyrirtækisins í gær
þar sem framleiðsla kæli- og frysti-
tækja undir vörumerkinu Thermo
Plus Europe er nú að komast í gang.
Tækin verða ætluð bæði fyrir flutn-
ingabíla og kæligeymslur og verða
framleidd í ýmsum stærðum og út-
gáfum.
Stefnt að hálfs
milljarðs veltu
í fréttatilkynningu frá félaginu
segir að sölumál gangi vel í Bret-
landi og hafi þegar verið gerðir
samningar um sölu á frysti- og kæli-
tækjum til stórra breskra verslun-
arkeðja á borð við Sainsburýs,
Tesco, Iceland og fleiri.
Búist er við að velta fyrirtækisins
muni nema um hálfum milljarði
króna á þessu ári, og að útflutningur
hefjist í lok febrúar. Gert er ráð fyr-
ir því að starfsmönnum hér á landi
fjölgi úr um 20 í um 50 talsins.
Éramleiðslan er í um 1.000 fermetra
húsnæði, en hús við hliðina hefur
verið leigt einnig. Það er um 1.400
fermetrar og er stefnt að því að það
verði tekið í notkun síðar á árinu.
Kristinn Jóhannesson, sem ný-
lega var ráðinn framkvæmdastjóri
framleiðslusviðs fyrirtækisins, sagði
að nýir starfsmenn yrðu þjálfaðir til
þeirra starfa sem þeim er ætiað að
sinna, og er það stefna fyrirtækisins
að greiða hærri iaun en sem nemur
þeim samningsbundnu launatöxtum
sem í gildi eru. Einnig yrði frammi-
staða og geta starfsmanna metin og
laun látin hækka eftir henni.
í tilkynningunni segir að forráða-
menn félagsins séu bjartsýnir á ör-
an vöxt í framtíðinni, og byggist það
á fyrrnefndum sölusamningum og
umfangsmiklum markaðsrannsókn-
um, en búist er við 10% aukningu
viðskipta með kælitæki í heiminum
á hverju ári. Einnig kemur fram að
tækin uppfylla ströngustu umhverf-
iskröfur.
Kæli- og frystitækin sem fram-
leidd verða af Thermo Plus byggjast
á tækni sem þróuð hefur verið af
kanadíska fyrirtækinu Masseau
Refrigeration, og hefur verið undir-
ritaður samningur um afnot af
einkaleyfum og vörumerkjum kana-
díska fyrirtækisins.
Stefna á hlutabréfamarkað
innan þriggja ára
Á blaðamannafundinum sagði
Tom Roseingrave að fyrir um tveim-
ur til þremur árum hefði verið tekin
sú ákvörðun hjá Masseau Refrigera-
tion, sem hefur alls um 100 starfs-
menn í Kanada, að stefna á Evrópu-
markað, þó að fyrst þyrfti að aðlaga
vöruna að þeim markaði. Hann
sagði að upphaflega hefði verið
stefnt að því að setja upp fram-
leiðslu tækjanna í öðru landi en Is-
landi, en áhugi hafi verið nægur hér
og sú trú að þetta verkefni gæti
gengið vel á Islandi. Nú væri vöru-
þróun lokið með íslenskri hönnun að
hluta, sem og skipulagning sölu-
mála, og væri sölustarfsemi að fara í
gang.
Hann sagðist einnig hafa trú á því
að fyrirtækið myndi fara á innlend-
an hlutabréfamarkað innan þriggja
ára, og njóta þar velgengni.
Tom Roseingrave sagði í samtali
við Morgunblaðið að tækin sem
framleidd eru af Thermo Plus hafi
samkeppnisforskot í Evrópu vegna
þess að þau eru í grunninn hönnuð
fyrir Norður-Ameríkumarkað þar
sem hitasveiflur í umhverfi eru mun
meiri en í Evrópu. Einnig er fram-
leiðslan hér á landi hagkvæm kostn-
aðariega.
John Ireland er framkæmdastjóri
sölusviðs í Bretlandi þar sem fjórir
menn starfa, og hefur hann 22 ára
reynslu í kælitækjaiðnaðinum, þar
af átta ár í Mið-Austurlöndum.
Hann segir að vegna langrar
reynslu hafi tekist að ná fljótt og vel
sambandi við háttsetta aðila hjá áð-
ur nefndum verslanakeðjum, og því
hafi salan til þeirra farið vel af stað.
Eins segist hann horfa vongóður til
Mið-Austurlanda varðandi síðari
tíma tækifæri, vegna sinnar fyrri
reynslu af því svæði, en þar er tals-
verð þörf fyrir kælibúnað til að
halda matvælum köldum.
Tom Roseingrave segir að heild-
arfjárfesting í verksmiðju Thermo
Plus nálgist nú 150 milljónir króna,
en búist sé við að við þá tölu bætist
þegar stærra húsið verði tekið í
notkun. Að hans sögn eiga Islend-
ingar um 85% hlut í Thermo Plus
Europe á íslandi hf. og eru helstu
hluthafar Sjóvá-Almennar, Kaup-
thing Luxembourg S.A., Hitaveita
Suðurnesja, Eignarhaldsfélag Suð-
urnesja og Fiskiðjan hf. Meðal er-
lendra hluthafa er Tom Roseingrave
lang-stærstur og á hann mestan
hluta þeirra 15% sem erlendir hlut-
hafar eiga.
t
I
I