Morgunblaðið - 02.02.2000, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 27
ERLENT
Wiranto neitar
að segja af sér
Jakarta, Davos. AP, AFP.
AP
Wiranto hershöfðingi og Wahid forseti. Wahid segist þegar hafa fundið
eftirmann Wirantos í embætti öryggismálaráðherra.
FORSETI Indónesíu, Abdurrahman
Wahid, fór í gær fram á að Wiranto
hershöfðingi segði af sér ráðherra-
embætti í stjóm landsins vegna
ásakana um að hann bæri ábyrgð á
mannréttindabrotum á Austur-Tím-
or. Wiranto varði hins vegar gerðir
sínar sem yfirmaður indónesíska
hersins á Austur-Tímor og sagðist
ekki ætla að segja af sér að svo
stöddu.
Skýrsla rannsóknarnefndar á veg-
um Indónesíustjómar, sem birt var á
mánudag, sakar Wiranto og 32 aðra
foringja í hemum um að hafa stutt
vígasveitir á Austur-Tímor sem
myrtu og pyntuðu hundmð aðskiln-
aðarsinna þar síðastliðið haust. Wir-
anto, sem notar aðeins eitt nafn,
gegnir nú embætti ráðherra öryggis-
mála en var æðsti yfirmaður hersins
meðan ógnaröldin ríkti á A-Tímor.
Wahid forseti, sem staddur er á
ferðalagi um Evrópu og Mið-Austur-
lönd, kvaðst mundu fara fram á af-
sögn Wirantos þegar hann sneri
heim á ný eftir um tvær vikur. Hann
sagðist þegar hafa fundið eftirmann
Wirantos en upplýsti ekki hver hann
væri.
Grimmdaræðið á Austur-Tímor
hófst í kjölfar þess að meirihluti
íbúanna samþykkti aðskilnað frá
Indónesíu í allsherjaratkvæða-
greiðslu þar 30. ágúst síðastliðinn.
Ibúar sem studdu áframhaldandi yf-
irráð Indónesíu í landinu hófu þá
árásir á sjálfstæðissinna sem leiddu
til þess að á þriðja hundrað manns
voru myrt og fjórðungur úr milljón
flúði til Vestur-Tímor og nærliggj-
andi eyja. Skýi-slan sem birt var á
mánudag sýnir að herinn átti aðild að
morðum, pyntingum og nauðgunum
sem vígasveitirnar frömdu á óbreytt-
um borgurum.
„Reyndum að stilla til friðar“
Hópur á vegum Sameinuðu þjóð-
anna birti einnig á mánudag skýrslu
um átökin á A-Tímor. í niðurstöðu
hennar segir að mannréttindabrotin
„hefðu ekki verið möguleg nema
vegna virkrar aðildar indónesíska
hersins og Utneskju og samþykkis
æðstu yfirmanna hans.“
Wiranto varði í gær hendur sínar
og sagði að hershöfðingjamir hefðu
reynt að stilla til friðar og að nefndin
hefði gleymt því að herinn tryggði að
allsherjaratkvæðagreiðslan á A-Tím-
or gat farið friðsamlega fram. „Eins
og þið vitið, höfum við [þ.e. herinn]
hvatt til þess að gert yrði friðarsam-
komulag á A-Tímor eftir að þeir [þ.e.
íbúarnir] höfðu barist hver við annan
í meira en 20 ár. Við höfum líka ætíð
hvatt menn til að leggja niður vopn,“
sagði Wiranto á fréttamannafundi í
Jakarta í gær.
Wiranto minntist einnig á þátt
hersins í því að sjá til þess að at-
kvæðagreiðslan 30. ágúst gat farið
óhindrað fram. „Við tryggðum ör-
yggi um 4.000 útlendinga, frétta-
manna, eftirlitsmanna og starfs-
manna Sameinuðu þjóðanna í meira
en fjóra mánuði og enginn var drep-
inn.“
Orðrómur hefur verið á kreiki und-
anfarnar vikur um að herinn hyggist
ræna völdum í Indónesíu. Ástæðan
er sögð vera viðleitni stjómvalda til
að draga úr áhrifum hersins í indón-
esískum stjómmálum og samfélagi,
m.a. með því að draga yfirmenn hans
fyrir rétt vegna atburðanna á A-Tím-
or. Wahid forseti neitaði í gær því að
nokkuð væri hæft í þessum orðrómi
og opinber talsmaður hersins hefur
áður sagt að herinn muni styðja
ákvarðanir stjómvalda í málinu.
T1LB0ÐSDAGAR A VETRARSTANDSETTUM BÍLUM
ix^^ÍVetpapski
e%/ufrf»r Ylirtainir Vtorl/
orm
Fáðu þér notaðan bíl, tilbúinn í veturinn,
á betra verði á Kuldakasti í Bílalandi!
r
r' |Qb lan idi
L uu OÍlQf Jk
Grjóthálsi 1 • 575 1230
Virka daga 9-18
Laugardag 10-16