Morgunblaðið - 02.02.2000, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 31
LISTIR
Ljóðasleppingar
BÆKIIR
Ljóð
BÓK í MANNHAFIÐ
láttu hana ganga
Ljóð 13 skálda.
Nykur. 2000 - 77 bls.
ÞAÐ er hreint ekki svo fráleit hug-
mynd að varpa Ijóðabók út í mann-
hafið í þeirri von að hún berist frá
manni til manns. Út á því reginhafi
heldur tilviljunin um stjómvölinn
og það er aldrei að vita að hvaða
ströndu bókin berst. Þetta gerir
skáldahópur með fulltingi Bónus-
verslanakeðjunnar og nefnir Bók í
mannhafið.
Það er að mörgu leyti létt yfir
þessari bók, skáldskapurinn sum-
part fullur af krafti og leikgleði.
Sumt í honum kallast á við þau
skáld sem nefndu sig listaskáldin
vondu og þóttu fyndin og félagsleg
enda þótt félagslega rýnin í þessari
bók sé takmarkaðri. Athyglinni sé
fremur beint að einstaklingnum í
samfélaginu. Viðfangsefnin og
kveðskaparmátinn eru þó keimlík.
Þrettán höfundar eiga ljóð í bók
þessari, sumir nokkuð þekktir og
aðrir eiga vafalaust eftir að setja
mark sitt á ljóðaheiminn. Athygli
vekur hversu ófeimnir þeir eru við
að spreyta sig á ýmsum ljóðform-
um. Þannig er að finna tilraunir við
sonnettur. Þannig er með Sonnett-
una af C. J. fógru eftir Sigtrygg
Magnason. En C. J. þessi mun
vera strandvarðagella túlkuð af
Pamelu Anderson. Gerður Kristný
fer í fótspor 19. aldar skálda þegar
hún yrkir um Hallgerði langbrók
og Bergþóru úr Njálssögu. Niður-
staðan um Hallgerði er að líf henn-
ar hafi verið „líkt og slitinn / lokkur
í gömlum boga“. Neyslusamfélagið
er höfundunum hugleikið og öll
velferðin og ofgnóttin sem kannski
hvílir á fremur veikum grunni. At-
hyglisvert finnst mér hvemig Sig-
urbjörg Þrastardóttir nálgast
þetta umhverfi.
Eg er inni í ávexti og mér finnst hann
fádæma safaríkur þarf að strjúka drop-
ana af vörunum öðru hvequ þykir betra
að sleikja út um til að missa ekki af
neinu ét mig áfram hring eftir annan og
alltaf er kjötið eins og blóðugt og þetta
aldin er heimurinn eins og ég vil hafa
hann en innan tíðar hlýt ég að fyrirhitta
kjamahúsið og tekur hýðið þá hægt og
sígandi að skreppa saman.
Tækniheimurinn kann að virka
þrúgandi stundum finnst Berg-
sveini Birgissyni í kvæðinu Stund-
um og segir „Stundum / langar
mig hreinlega / til að losa um bind-
ið / og slökkva á tölvunni...“ Það er
að sönnu ekki tilþrifamikil upp-
reisn gegn tæknisamfélaginum en
svipaðan tæknihrylling er að finna
í ljóðum Sindra Freyssonar: „Sím-
inn spilaði upphafsstef eftir Bach /
- hrollkalt, ískalt, helkalt - “.
Kvæði hans era úr bók sem hann
nefnir Harði kjarninn sem vísar
vafalaust til þeirrar vélrænu tón-
listarstefnu samtímans sem kallast
hardcore en vísar einnig til hörku
nútímans. Þessi heimur er líka
heimur lífsflótta og myrkurs. Það
má glögglega sjá í ljóðum Mar-
grétar Lóu Jónsdóttur en tvö
þeirra fjalla um sjálfsvíg, eða í hin-
um sundurlausu kvæðum Steinars
Braga sem raunar leita eftir birt-
unni í ástinni en fjarlægjast hana
jafnóðum: „...því fleiri sérstakar
vímur sem bjóðast með innblásn-
um lýsingarorðum eða laumulegu
hvísli á homi kókaínheróínecstacy
því fleiri lengdargráður því fleiri
baugar í andlitum fólksins í kring-
um mig því fleiri hnit hef ég fundið
til að staðfesta þig sem miðpun-
ktinn ástin mín kjaftæði ég hata
þig-“
Bók í mannhafið er kærkominn
litadropi í hversdagsgrámann. Ef
ég man rétt gefa litlir litadropar
furðumikinn lit sé þeim blandað í
málningu. Ég hygg að þessi bók sé
slíkur dropi. Kveðskapurinn er
raunar dálitið misjafn og mis-
áhrifamikill en sumt er í bókinni
býsna vel gert og umfram allt er
bókin vitni þess að enginn doði ríki
í ljóðaheiminum. Nú er bara að
vita hvar eintakið sem ég hefi á
milli handanna lendir.
Skafti Þ. Halldórsson
Útvarp á nýrri öld
Vegleg útvarpsþáttahá-
tíð verður haldin í Há-
skólabíói 2.-5. febrúar á
vegum menningarborg-
ar og RUV.
„ÞETTA er sjálfstæð hátíð sem
Reykjavík menningarborg ásamt
Ríkisútvarpinu stendur sameigin-
lega að,“ segir Jón Hallur Stefáns-
son, útvarpsmaður einn skipuleg-
gjendanna. Ásamt honum hafa Jón
Karl Helgason og Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson unnið að undirbúningi.
„Dagskráin fer öll fram í Há-
skólabíói og þar verða leiknir út-
varpsþættir og höfundar þeirra
ræða um vinnu sína og möguleika
útvarpsins til ýmiss konar þátta-
gerðar. Til þæginda fyrir þátttak-
endur verður textum varpað á
tjald. Við höfum fengið góða gesti
erlendis frá og þar er helst að nefna
Gyrrid Listuen, Piers Plowright og
Barbro Holmberg sem eru meðal
fremstu þáttagerðarmanna útvarps
í veröldinni í dag og hafa þau öll
hlotið ýmiss konar viðurkenningar
á ferli sínum. Ég vil einnig benda
sérstaklega á málstofu sem við efn-
um til í samvinnu við Endurmennt-
unarstofnun HÍ undir stjórn þeirra
Piers Plowrights og Barbro Holm-
berg. Þau munu kynna gerð heim-
ilda- og fléttuþátta með hljóðdæm-
um. Þátttökugjald er ekkert og
aðeins þarf að skrá sig. Þetta er
tækifæri sem enginn ætti að láta
fram hjá sér fara.
Á mánudeginum 31. janúar verð-
ur tekið forskot á sæluna með út-
sendingu á Rás 1 kl. 23.00 á Harri
Huhtamahki, Amazon sem er frum-
skógahljóðverk úr smiðju finnskra
galdramanna.
Dagskrá hátíðarinnar er að öðru
leyti sem hér segir.
Þriðjudagur
HÁSKÓLABÍÓ:
19:00 Setning.
20:00 Brot úr íslenskum þætti
Stefáns Jónssonar.
Einn af sérstökum gestum hátíð-
arinnar, norska þáttagerðarkonan
Gyrid Listuen, kynnir þátt sinn En
surrebuk pa stjernehimmelen.
Þessi spennandi og fjörugi þáttur
segir frá lífi Sten Erik Holstad,
sem er með Downseinkenni. Norð-
menn hafa náð sérlega góðum tök-
um á gerð heimilda og fléttuþátta á
undanförnum árum, þeir hafa rak-
að til sín verðlaunum og fyrir þenn-
an þátt fékk Gyrid Listuen Prix
Europa verðlaunin árið 1997.
Jocelyn Pook, Between the ears.
Jocelyn Pook samdi meðal annars
tónlistina fyrir kvikmynd Ku-
bricks Eyes Wide Shut. Hér er hún
með verk á mörkum tónlistar og
fléttuþáttar þar sem hún notar
upptökur úr símsvaranum sínum.
RÁS 1: Helen, Ardelius, Normal-
torgsdramat. I þessum sænska
þætti er rifjuð upp söguleg gísla-
taka og bankaránstilraun í Stokk-
hólmi árið 1973. Nokkrar af pers-
ónum þeirrar sögu líta til baka, en
þátturinn hefst á kostulegu símtali
eins gíslanna og Olof Palme, þáver-
andi forsætisráðherra Svíþjóðar.
Miðvikudagur
HÁSKÓLABÍÓ
16:00 Endurteknir þættir frá
þriðjudagskvöldi
20:00 Lisbeth Jessen, Hvorfor
ringede hun ikke? Þessi danski
þáttur hlaut fyrstu verðlaun í Prix
Italia samkeppninni árið 1996. Við
heyrum af sifjaspellum og misnotk-
un, en sagan fær óvæntan endi.
Sérstakur gestur hátíðarinnar,
hin finnsk-sænska Barbro Hom-
berg kynnir margverðlaunaðan
þátt sinn Gettóið í Feneyjum.
RÁS 1:
Kaye Montley, How far is it to
Babylon...? Ljóðrænn og hljóðrænn
þáttur um hringekjur.
Fimmtudagur
HÁSKÓLABÍÓ
16:00 Endurteknir þættir frá
miðvikudagskvöldi
20:00 Richard Dinker, Det er
bara i perfil som jag er kroat. Ný-
legur sænskur þáttur eftir ungan
mann sem fjallar um þjóðerni og
„identítet“. Gott dæmi um persónu-
legan heimildaþátt, þar sem út-
varpið er notað til að grafast fyrir
um sínar eigin rætur.
Einn af gestum hátíðarinnar,
Bretinn Piers Plowright, kynnir
nýlegan heimildaþátt sinn um
bandarískan blúsleikara, auk brota
úr eldri þáttum sínum.
RÁS 1:
Gyrid Listuen: Selfportrett med
mikrofon. Annar þáttur eftir
norska gestinn okkar. Við fylgj-
umst með leit hennar að hinum eina
rétta.
Föstudagur
HÁSKÓLABÍÓ
16:00 Endurfluttir þættir
20:00 Tvíhöfði gefur dæmi um ís-
lenska leið til að búa til öðruvísi út-
varp.
Gyrid Listuen, Tradlös og til-
gjengelig, stuttur þáttur til höfuðs
farsímum.
Cristoph Schlingensief, Camp
sans frontiers. Þýskur þáttur eða
útvarpsleikrit eftir einn óþekkasta
strákinn í þýskum bókmenntum.
Við fylgjumst með yfirgengilegri
útvarpssöfnun fyrir stríðshrjáða á
Balkanskaganum. Raunveruleik-
inn og afskræming fjölmiðlanna er
efniviðurinn í þessari kröftugu og
grimmu satíru sem gengur út yfir
öll mörk velsæmis, en lendir þar á
kunnuglegum slóðum.
Laugardagur
14:00 Kari Hesthamar, Till kom-
unen skil dykk at. Verðlaunaþátt-
urinn frá Prix Europa 1999 kom frá
Noregi. Hann fjallar um hjón sem
hafa verið gift í 65 ár þegar samfé-
lagið ákveður að skilja þau að og
baráttu konunnar til að leiðrétta þá
ákvörðun.
Afhent verðlaun í útvarpsþátta-
samkeppni Útvarps 2000.
16.15 Hátíðinni lýkur svo með
pallborðsumræðum í Lögbergi um
útvarp á nýrri öld. Stefán Jón Haf-
stein, Eiríkur Hjálmarsson, Þor-
gerður Gunnarsdóttir sitja á palli
og Ævar Kjartansson stýrir um-
ræðum sem sendar verða út beint á
Rás 1.
Veg(g)ir á Kjarvalsstöðum
Lok og upphaf
VERKI Hlyns Hallssonar lýkur fimmtudaginn 3. febrúar
kl. 18 í miðrými Kjarvalsstaða. Verkið ber yfirskriftina
„Dagbók“ og hefur listamaðurinn ritað dagbók á 24
metra langan vegg sl. þrjár vikur. Hlynur er fyrstur í röð
sex listamanna sem taka þátt í sýningarverkefninu „Veg
(g)ir“.
Framkvæmd verkefnisins byggir á tveimur megin-
þáttum; annars vegar að veita listafólki tækifæri til að
vinna úr hugmyndum sínum á eða út frá stórum fleti og
hins vegar að leyfa gestum safnsins að fylgjast með þró-
un hvers listaverks frá upphafi til enda.
Framkvæmdin vísar með sterkum hætti til hverful-
leika lífs og listar. Að loknu sérhveiju sýningartímabili
verður framlag hvers listamannsins fjarlægt eða hulið á
bak við nýtt lag af málningu, sem um leið verður undirlag
þess sem næst kemur á veginn, þannig á sér stað viss
tæming um leið og ákveðin hringrás er leidd áfram.
Á fimmtudaginn mun Hlynur Hallsson kynna dagbók-
arverk sitt og hugleiðingar um það. Við sama tækifæri
mun Daði Guðbjömsson kynna hugmyndir sínar og áætl-
anir en hann er næsti listamaður sem vinnur á vegg
miðrýmis Kjarvalsstaða.
Yfírlýsing Daða
„Bæði vegir og veggir hafa komið fyrir á myndum sem
ég hef málað síðustu tvo áratugina og því finnst mér
spennandi að fá tækifæri til að vinna að verki í stóru
formi sem tengir þessi tvö myndefni saman með jafn
markvissum hætti og hér á sér stað,“ segir Daði Guð-
bjömsson í yfirlýsingu sinni.
„Listin er að mínu áliti úrvinnsla hugsunarinnar og því
verður það aldrei neitt einfalt sem kemur út úr þeirri
vinnslu sem hin endanlega afurð, listaverkið sjálft.
Listin er manninum einnig mikilvægt hjálpartæki við
misvel heppnaðar tilraunir hans til að skilja hluti og fyr-
Morgunblaðið/Sverrir
Daði Guðbjörnsson við veg(g)inn góða
á Kjarvalsstöðum.
irbrigði á þeim vettvangi sem stundum er kallaður
„Raunveruleiki“.
Ég hef ákveðið að við vinnslu þessa verkefnis komi
fram viss aðferðafræði sem ég nota almennt við mína list-
sköpun. Hún felst í því að fyrst eru málaðir ákveðnir hlut-
ar verksins á nokkuð raunsæislegan hátt, líkt og hug-
mynd sem kemur listinni sjálfri ekkert við; hin víddin í
verkinu verður síðan „hin listræna sýn„ sem verður mál-
uð á þann hluta veggjarins sem eftir verður þegar búið er
að leiða heildina saman eftir veginum annars vegar og
veggnum hins vegar.“
á heima
Electrolux
í Húsasmiðjuimi
HÚSASMIDJAN
0] Electrolux
• Þvottavél
• 850 snúninga
• 4,5 kg.
• Sérstakur
ullarþvottur
• Fjölþætt
hitastilling
• Einföld og sterk
Sími 525 3000 • www.husa.is
NÝTT NÝTT NÝTT var að koma til landsins frá Mexikó (MB)