Morgunblaðið - 02.02.2000, Page 37
MORGUNB LAÐIÐ
___________________________MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 37
UMRÆÐAN
Reiknum út rætur
verðbólg'unnar
Á UNDANFÖRNUM
árum hefur verðbólga
verið lítil sem engin hér á
landi. Því hafa margir
freistast til að halda að
verðbólgudraugurinn
hafi endanlega verið
kveðinn niður. Samstilltu
átaki stjómvalda, at-
vinnurekenda og laun-
þega hefur verið þakkað-
ur sá árangur. Á allra
síðustu misserum hefur
þó ýmislegt gerst sem
bendir til þess að draugsi
sé að rakna úr rotinu.
Brýnt er að bregðast við
því ruski með aðgerðum
sem duga. Forsenda íyrir
því er að menn ráðist að rót vanda-
málsins en ekki aðeins að afleiðingum
þess.
Hver vakti drauginn? Sjálfsagt má
deila um svarið við þeirri spurningu
og sökudólgamir era öragglega fleiri
en einn. í stað þess að benda á mat-
vöraverslunina og kenna henni um
hvernig komið er væri ráðamönnum
t.d. hollt að líta aðeins í eigin barm.
Hver hefur verið afleiðing þess að
eigið fé bankanna var aukið haustið
1998? Svarið er aug-
Ijóst, þeir lánuðu
meira og þenslan
jókst í kjölfarið. Hvað
hefur gerst á almenn-
um vinnumarkaði eft-
ir að stjómmálamenn
hleyptu í gegn vera-
legum hækkunum
launa opinberra
starfsmanna þrátt
fyrir viðvaranir hag-
fræðinga? Jú, með
þeim hækkunum
hófst launaskrið sem
fyrirtækin fá vart
staðið undir. Matvara
hefur vissulega
hækkað á síðustu
mánuðum en hún hefur þó hækkað
minna en tryggingar, kostnaður við
fasteignir o.fl. Með því að kenna fá-
keppni á matvörumarkaði um hækk-
anirnar er verið að draga athyghna
frá meginatriðum málsins og skapa
ýmsum framleiðendum og innflytj-
endum skálkaskjól til hækkana í
trausti þess að matvöraversluninni
verði kennt um. Skortur á samkeppni
í mikilvægum framleiðslugreinum,
innflutningstakmarkanir, stjórn-
Heildsöluvísitala
Ef umræða um rætur
verðbólgu á að komast á
vitrænan grunn, segir
Jón Asgeir Jóhannes-
son, verður að taka hér
saman heildsöluvísitölu
eins og í öðrum löndum.
valdsaðgerðir - eða aðgerðaleysi - í
aðdraganda kosninga á sl. ári, fá-
keppni í flutningum og mun fleiri slík
atriði era verðbólguvaldar sem
stjórnvöld kjósa að líta framhjá.
Heildsöluvísitala
verði reiknuð
Á síðustu 12 mánuðum hafa mikil-
vægir mat- og drykkjarvöruframleið-
endur hækkað verð á framleiðslu-
vöra sinni um u.þ.b. 10% og má þar
nefna Mjólkursamsöluna, Osta- og
smjörsöluna, Sól-Víking hf., Vífilfell
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Háskóli íslands?
NÝVERIÐ var nafni
Viðskiptaháskólans í
Reykjavík breytt í Há-
skólinn í Reykjavík.
Vora nefndar fyrir því
ýmsar ástæður, ein
þeirra var, að mig
minnir, efnislega sú að
nýtt nafn myndi festa
ímynd þessa háskóla
betur í sessi sem fram-
sækinnar menntastofn-
unar. Háskóla sem byði
upp á það besta í sífellt
harðnandi samkeppni á
alþjóðlegum grundvelli.
Þegar ég heyrði
fréttina í útvarpi var
rektor Háskólans í
Reykjavík spurð að því hvort hún
vænti viðbragða frá Háskóla íslands
og taldi hún það frekar líklegt. Ég
hugsaði með mér eftir fréttina að
þetta væri sennilega rangt hjá rekt-
omum þar sem Háskóli Islands heit-
ir jú því nafni og hefur, eftir því sem
mér skilst, heitið því býsna lengi.
Þess vegna væri varla viðbragða að
vænta frá þessari virðulegu stofnun
sem hefur svona virðulegt nafn, Há-
skóli íslands, háskóli allrar þjóðar-
innar að nafninu til.
En grunur rektorsins var réttur.
Háskóli Islands brást snöggt við,
ekld síst miðað við aldur og fyrri
störf eins og stundum er sagt, þess-
ari nafnbreytingu var mótmælt harð-
lega, og rektor Háskóla íslands taldi
þetta geta skert ímynd Háskóla Is-
lands erlendis. Gaf hann jafnvel svo-
lítið í skyn að Háskólinn í Reykjavík
væri ekki alveg alvöru háskóli, bara
sýnishom af háskóla ef ég skildi hann
rétt en það er ekkert víst að ég hafi
skilið hann rétt.
Öllu gamni fylgir
nokkur alvara
I tilefni af þessum tíðindum rifjaði
ég upp að fyrir nokkrum árum kynnti
ég hugmynd fyrir fulltrúum frá Há-
skóla Islands um stofnun rannsókn-
ar- og þróunarseturs á ísafirði þar
sem reyna átti að fá Háskóla íslands
til að taka þátt. Á einu kynningar-
blaðinu stóð „Háskólinn í Reykjavík"
en átt var við Háskóla íslands. Var
þetta til aðgreiningar frá Háskólan-
um á Akureyri. Fulltrúar Háskólans
gerðu kurteislega athugasemd við
þessa nafngift og sögðu stofnunina
heita Háskóla íslands sem að sjálf-
sögðu var leiðrétt með það sama. Það
má alveg Ijóstra því upp núna, þar
sem engmn nenmr
sennilega að lesa þessa
grein, að það var með
vilja gert að hafa nafnið
„Háskólinn í Reykja-
vík“. Það var til að und-
irstrika þá tilfínningu
sem bærðist hið innra
með manni að þótt Há-
skólinn væri kenndur
við ísland gæti orðið
erfitt að ná smástarf-
semi á hans vegum út á
ís„land“. Nú segir ein-
hver sem er kominn
alla leið hingað í lestrin-
um að það sé óþarfi að
vera að hlaða undir
landsbyggðina með því
að flytja starfsemi til hennar frá höf-
uðborgarsvæðinu. Best að taka fram
að ég trúi þeim sem segja að ekki eigi
Nafnbreyting
*
Háskóli Islands á ekki
svo mikið sem að velta
fyrir sér nafnbreytingu
Viðskiptaháskólans,
segir Halidór Hall-
dórsson, heldur leyfa
þeim skóla að nota það
nafn sem enginn var
hvort eð er að nota.
að setja starfsemi á vegum ríkisins út
á land og segi eins og þeir að það er
bara kostnaður fyrir ríkið því sam-
fara, best að hafa þetta allt í Reykja-
vík það kostar ríkið ekki neitt, borgar
með sér ef eitthvað er. Þeir hljóta að
hafa rétt fyrir sér vegna þess að störf
á vegum ríkisins spretta ekki upp út
á landi, væntanlega vegna þess að
það kostar peninga þar en ekki í
Reykjavík.
í alvöru talað
Það er engin starfsemi á vegum
Háskóla íslands komin á ísafjörð
ennþá, utan einhver endurmenntun-
arnámskeið í fjarkennslu frá Reykja-
vík. Okkur var vel tekið af fulltráum
stofnunarinnar og tráum því enn að
einhver áhugi sé þar fyrir hendi og að
lokum muni eitthvað gerast. Nú
finnst mér vera tækifæri fyrir Há-
skóla íslands að nýta þau tímamót
sem eru vegna fyrrgreindrar nafn-
breytingar og undirstrika að hann er
Háskóli Islands með því að setja upp
starfsemi á nokkrum lykilstöðum á
landinu. Koma með þeim hætti meira
að atvinnulífinu í landinu og styðja
við það og um leið við starfsemi sína
með því að taka þátt í þróunar- og
rannsóknarstarfsemi úti á landi.
Nýta sér líka tækifærin sem felast í
tækninni, fjarvinnsla, fjarfundir,
fjarkennsla. Ég tel að Háskóli Is-
lands eigi ekki svo mikið sem velta
fyrir sér nafnbreytingu Viðskiptahá-
skólans heldur leyfa þeim skóla að
nota það nafn sem enginn var hvort
eð er að nota. Vonandi gengur Há-
skólanum í Reykjavík sem best í
samkeppninni og Háskóli íslands
taki hraustlega á líka í þeirri sam-
keppni. Hluti af því að ná sérstöðu og
samkeppnisstöðu er að gera hlutina
öðravísi en venjan er. Ein aðferðin til
að gera hlutina öðravísi er að færa
hluta af starfseminni út á land og
hefja nýja sókn með okkur sem búum
þar.
Það er ýmis starfsemi á vegum rík-
isins út á landi. Hlutfallslega er hún
þó mest í höfuðborginni, sem er í
sjálfu sér eðlilegt. Ríkið getur fjölgað
störfum úti á landi, sérstaklega látið
ný störf koma þangað. Ég verð var
við sífellt meiri vilja til þess að þetta
verði gert. í stefnuyfirlýsingu ríkis-
stjórnarinnar er kveðið á um að
fjölga beri störfum á vegum ríkisins
úti á landi og tryggja betur búsetu
þar. Einnig að auka skuli háskóla-
menntun úti á landi. Það er gott að
vita af stefnu ríkisstjórnarinnar í
þessu máli því landsbyggðin þarf á
nýrri sókn að halda í atvinnumálum.
Fjölgun starfa á vegum ríkisins er
eitt af mörgu sem þar mun hjálpa til.
Mikilvægast er að sjálfsögðu að við
sem búum úti á landi vinnum sjálf að
bættri framtíð en jöfnun tækifæra er
hlutverk ríkisvaldsins og það skilur
og viðurkennir það hlutverk sitt með
því að setja fram stefnu í málefnum
landsbyggðar.
Það er ákveðinn ferskleiki yfir Há-
skólanum í Reykjavík. Kannski hann
hafi betur í samkeppninni og verði sá
Háskóli sem kemur að störfum og
uppbyggingu með okkur sem búum
úti á landi. Þá geta Háskóli Islands
og Háskólinn í Reykjavík ef til vill
skipt á nöfnum?
Höfundur er bæjarstjdri
ísafjarðarbæjar.
Halldór
Halldórsson
ehf. og Ölgerðina Egil Skallagríms-
son ehf. Það er útilokað að kaupmenn
taki þessar hækkanir allar á sig.
I umræðum um rætur verðbólgu
eram við eftirbátar annarra þjóða.
Þetta sést best á því að á Islandi er
einungis tekin saman svokölluð
neysluvísitala (Consumer Price Ind-
ex - CPI) og mælir hún breytingar á
neysluverði til neytenda. I öllum
löndum sem við berum okkur saman
við er einnig tekin saman heildsölu-
vísitala (Producer Price Index - PPI)
og nota þjóðlöndin hana m.a. til þess
að meta rætur verðhækkana. Yfir-
leitt hækkar PPI nokkram mánuðum
á undan CPI og gefur því nokkra vís-
bendingu um þróun neysluvöraverð-
lags. Ef umræða um verðbólguna og
rætur hennar á að færast yfir á vit-
rænan grann verðum við að fá vísi-
tölu af þessari gerð í notkun hér á
landi eins fljótt og auðið er.
Stuðst er við rangar tölur
Á dögunum var því haldið fram í
fjölmiðlum að smásöluverð innfluttra
matvæla hefði hækkað um 9,4% síð-
ustu 12 mánuði. Þetta varð tilefni æs-
inga í fjölmiðlum og samsæriskenn-
inga um fákeppni á matvörumarkaði.
Ekki leið á löngu þar til talan vai- leið-
rétt og var nú komin niður í 7,8%.
Samkvæmt athugunum Baugs, sem
unnin var upp úr tölum Hagstofunn-
ar, er rétta talan hins vegar um 6%.
Því fer fjarri að samkeppni á mat-
vöramarkaði sé að minnka. Stærri
einingar keppa grimmar. Menn
syrgja naumast þá tíma þegar versl-
anakeðjur vora undir stjórn ævin-
týramanna eða alls engri stjórn eins
og Mikligarður heitinn. Hver æth
hafi borgað 700 milljóna kr. gjaldþrot
þeirrar keðju eða 300 milljóna króna
gjaldþrot annarrar keðju, nefnd
Grandarkjör? Svarið liggur í augum
uppi. Neytendur borguðu brásann.
Stefnuföst og vel rekin fyrirtæki eins
og Bónus og Hagkaup urðu fyrir
hækkunum frá birgjum sem lifðu af
gjaldþrotahrinuna.
En aftur að draugnum. Ef menn
myndu nú kynna sér málið þá hefur
álagning í matvöruverslun ekki verið
að hækka. Öðru nær. Með mikilli
hagræðingu eins og stofnun Baugr?..
hf. hefur verið unnið gegn þvi að
hækka vöraverð. Miklar hækkanir á
launum, húsnæði og margvíslegri
þjónustu hafa dunið á versluninni að
undanfömu. Hugsunin á bak við fyr-
irtæki eins og Baug hf. er að stærð
skapi hagræðingu. Máli skiptir hvort
vara er keypt milliliðalaust í heilum
gámum eða aðeins eitt bretti í einu af
millilið sem leggur meira á en smá-
salinn. (Könnun Baugs gerð í júlí í
fyrra leiddi í ljós að heildsalar búa við
25-27% meðalálagningu í matvöra.)
Wal-Mart-verslanakeðjan hefur
verið byggð upp á sömu forsenduni
Stærð og lækkun á vöraverði er til
komin vegna milliliðalausra við-
skipta. Fyrirtæki eins og Baugur hf.
era undirstaða þess að neytendur á
íslandi fái búið við sambærilegt vöra-
verð og sambærilegar verslanir og
tíðkast í nágrannalöndum okkar.
Ekki má vera dýrara að reka heimili
á íslandi en í þeim löndum sem við
keppum við, t.d. í fiskútflutningi.
Hlutur stjórnvalda
liggur eftir
Stjómvöld geta hjálpað til við að
lækka matvöraverð. Þau geta brotið
upp og aukið samkeppni í landbúnaði
með því að rýmka innflutningstolla á
mjólkurvöram og ostum. Þar búunÁ
við við algjöra einokun. Þá mætti
stórlækka verð á kjötvöram með því
að lækka ofurtolla sem gera ekkert
nema viðhalda framlegðarlitlum bú-
um, t.d. í sauðfjárrækt, þar sem ríkis-
valdið heldur uppi óhagræði með
styrkjakerfi sem er löngu úrelt. Svo
lengi sem ekki verða gerðir verð-
bólgukjarasamningar verður mat-
vöraverslunin áfram einn besti vinur
stjómvalda til að halda niðri verð-
bólgu.
Höfundur er forstjóri Baugs.
Srrnr DALE C VRNEGIE*
*h- Þjálfun
Féík - ,4 nmgur-Hagm&ður
KYNNINGARFUNDUR
miðvikudag ki. 20.30 á Sogavegi 69
DALE CARNEGIE®
NÁMSKEIÐIÐ HJALPAR ÞÉR AÐ:
♦
♦
♦
♦
♦
Verða hæfah í starfí
Fyllast eldmóði
Verða betrí i mannlegum samskiptum
Auka sjálfstraustið
Verða betrí ræðumaður
♦ Setia þér markmið
♦ Stjórna áhyggjum og kvída
Hvað segja þátttakendur:
: I; Nomskeidid kwadi mér
aé a ótta.r
:: m 1 byjjija upp sjallsíraast
| og öwköi eldmédinn a
! ieik oq starfi.
Sigþóira Bnlsiifrsiictfh.
Namskeidiö h«fur gelsd
mér tækifaers tsS ad
ódSast stytk til kjoltfor
tíáaigigcrf véitt mér
sálorró og andlegf
oryggi asamt stjorn ö
ahyggjum og kvsda.
frfrnjf Smith.
Þ®ó sem tsamskssdid
gol mér »r; Örvggars
IramkomUf betri tjón-
ingo, aukna veihðon og
kenndi mér od vlrkja
ðymóðinn. hetur.
Cordar Istgþótsson.
hetta némskeid hefur
veltt m«r aukið sjjalfs-
traust ag Öruggari
fromkomu. Sefið mér
styrk til ad sigrast á
ahyggjam.
ímm Iíavkvr Beigascst.
5812411
STJORNUNARͻi:<iHhMiM
SOGAVEGi 69 - 108 REYKJAVIK - SIMi 58! 2411