Morgunblaðið - 02.02.2000, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
MIÐVIKUDAGUR 2. FEBRÚAR 2000 43
samkvæmt heimsfræði Nýals og ekki
að efa, að tekið hafi verið á móti hon-
um með kostum og kynjum, sem einni
af fáum hetjum samtímans, sem berst
fyrir sannleikann og réttum skilningi
á tilveru og tilgangi lífs í alheimi.
Það er ekki að efa að Þorsteinn
verður þar fremstur meðal jafningja
og mun taka virkan þátt í þeim stóra
hópi nýalssinna sem kominn er til
framlífs og vinna íslenskri heimspeki
brautargengi af öllum þeim krafti
sem þeir geta.
Þorsteinn myndaði líkama á ann-
arri jörð samtímis og lífið fjaraði út í
þeim gamla, eða eins og prestarnir
segja: af jörðu ertu kominn og af
jörðu skaltu aftur upp rísa.
Við eina af sólum veraldarrúmsins
hvarfast hnöttur sem fóstra mun Þor-
stein um ókomin ár, á leið hans og
okkar allra til óendanlegs þroska,
hnetti af hnetti.
Það er mikil eftirsjá að Þorsteini
og liðsinni hans til áframhaldandi
kynningar á heimsfræði Nýals.
Ég þakka fyi'ir að hafa kynnst hon-
um og eldmóði hans um framgang
málefnisins, en jafnframt hlakka ég
til að starfa með honum við þessar
nýju og betri aðstæður er hann býr
nú við.
Við hjónin viijum votta aðstand-
endum hans okkar innilegustu sam-
úð.
Atli Hraunfjörð.
Við sem höfðum þekkt Þorstein
Guðjónsson lengi vissum að hann var
mikill dugnaðarmaður. Hann fékk
berkla ungur að árum og varð fyrir
miklum skaða af þeim skæða sjúk-
dómi. En það var hans eðlishreysti að
þakka, hvemig honum tókst að lifa
svo lengi, þrátt fyrir sína fötlun, og
vinna stórvirki í heimspekilegri hugs-
un og ritstörfum.
Þorsteinn las Nýal, rit dr. Helga
Pjeturss, ungur að árum. Hann
hreifst mjög af vísinda- og heimspeki-
kenningum Helga, og gerðist fljótt
einn öflugasti málsvari þeirra.
Hann var einn af stofnendum Fé-
lags Nýalssinna, var lengi formaður
þess félags, og var ávallt í fararbroddi
að vekja athygli á kenningum dr.
Helga um líf í alheimi, sambandið
miili manna bæði hér á jörð og milli
hnattanna. Einnig að lífið sé komið til
vegna tilgeislunar frá því meginafli,
sem hefur skapað og þróað alla til-
veru og líf í alheimi. Lífið hafi síðan
þróast áfram fyrir náttúruval, en hið
skapandi afl hafi ávallt verið drif-
kraftur þróunai'innar.
Þorsteinn samdi nokkrar bækur,
smærri rit og fjölda greina, sem birt-
ust í dagblöðum og tímaritum. Einnig
ritstýrði hann bókinni Málþingi ís-
lendinga, sem er safn greina um Ný-
al, dr. Helga Pjeturss og íslenska
heimspeki, eftir marga af vitrustu
mönnum þjóðarinnar.
Nýyrðið málþing náði skjótri út-
breiðslu, enda var Þorsteinn snjall ís-
lenskumaður og góður rithöfundur.
Þorsteinn vann einnig stórvirki
þegar Nýall var geftnn út að nýju fyr-
ir nokkrum árum og verður það starf
seint full þakkað.
Hann var einnig góður málamaður
og skrifaði tvær bækur á ensku, en
gaf einnig út tímaritið Huginn og
Muninn sem hann sendi áhugasömu
fólki víða um lönd. Bréfaviðskipti átti
hann við fjölda manna víða um heim,
og þar átti hann marga trygga vini.
Þorsteinn var unnandi forn-
sagnanna og hins foma átrúnaðar.
Hann vildi halda tryggð við allt það
besta í hinni fornu trú norrænna
manna, en hann var einnig fylgismað-
ur þess sem gott er í kenningum
kristninnar og öðrum trúarbrögðum.
Grunnatriði í þeirri heimspeki, sem
honum var svo kær er, að vísindunum
er ætlað að várpa ljósi þekkingar á
viðfangsefni trúarbragðanna en alls
ekki að varpa rýrð á þau.
Nú mun Þorsteinn vera kominn
með heilbrigðan líkama og sterk
lungu endurlíkamnaður á annarri
jörð. Það er í samræmi við það sem
kirkjunnar menn segja að við séum af
jörðu komin og munum af jörðu aftur
upp rísa.
Við samstarfsmenn Þorsteins í Fé-
lagi Nýalssinna þökkum honum langt
og ánægjulegt samstarf.
Páll Ragnar Steinarsson,
Þorlákur Pétursson.
MAGNI
GUÐMUNDSSON
+ Magni Guð-
mundsson fædd-
ist í Stykkishólmi 3.
ágúst 1916. Hann lést
á Hrafnistu 24. jan-
úar siðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Guðmundur Jónsson
frá Narfeyri, útgerð-
arstjóri, og kona
hans Guðrún Einars-
dóttir. Faðirinn var
af Hjaltalíns-ætt, en
móðirin af ætt Högna
prestaföður, fædd að
Ártúnum í Rangár-
vallahreppi. Systkini
Magna: Steinar, byggingafræð-
ingur; Kristján, brúarsmiður;
Nanna, húsfreyja; Gunnlaug, hús-
freyja; Lárus, skipstjóri, öil látin.
Hálfsystkini Magna, móðirin
seinni kona Guðmundar, Kristín
Vigfúsdóttir frá Brokey: Þóra,
Atli, bæði látin, Guðrún húsfrevja.
Magni kvæntist árið 1944 Ásu
Hjartardóttur Ögmundssonar,
bónda og hreppstjóra í Álfatröð-
um, og konu hans Kristínar
Helgadóttur. Þau eignuðust þijú
böm: Guðmund Magnús, Hjört
Ögmund og Kristúiu. - Fyrir hjú-
skap ól Anna B. Böðvarsdóttir
Magnússonar, bónda og hrepp-
stjóra að Laugarvatni, honum
dóttur, Bergljótu að nafni.
Ása og Magni skildu eftir lið-
lega 20 ára hjónaband 1965. Hall-
fríður Kolbeinsdóttir, fv. banka-
gjaldkeri, annaðist heimili hans á
Winnipeg-ámnum. Árin 1983-
1988 var hann í hjúskap með Janet
Shelagh, f. Brown, frá Glasgow.
Barnabörn Magna em 14 og
barnabarnabörn fjögur.
Magni ólst upp í Stykkishólmi,
en dvaldi sumar hvert á höfuðbóli
í nærliggjandi Helgafellssveit frá
sjö ára aldri til fermingar. Hann
sótti Menntaskólann á Akureyri
og brautskráðist þaðan vorið
1937, lauk prófi í forspjallsvísind-
um frá Háskóla íslands vor 1938,
sigldi síðan til Frakklands og
lagði stund á viðskiptafræði við
skóla í París tengdan Sorbonne
Við Magni Guðmundsson vorum
málvinir um árabil eftir að við kynnt-
umst fyrir u.þ.b. tuttugu árum. Sím-
inn var okkar samskiptatæki.
Ég varð þess fljótt áskynja að
persónueinkenni hans voru skýr og
duldust ekki. Hann var ekki steyptur
í neitt meðalmannsmót. Hann átti
ekki auðvelt með að laga sig að
straumlínuformi stofnanakerfisins.
Honum hætti til að ganga götu ein-
farans.
Hann var afar vandur að virðingu
sinni, að vera frjálsborinn maður.
Hann var staðfastur unnandi pers-
ónufrelsis í orði og athöfn. Óháður
vildi hann vera. Þess háttar frelsis-
skilningur á lítið skylt við þá auð-
valdsfrjálshyggju sem nú breiðir úr
sér um alla heimsbyggðina og hefur í
leiðinni lagt undir sig frelsishugtakið
og gert það að engu. Magni vai’ fé-
lagshyggjumaður í góðum skilningi
þess orðs, „vinstrisinnaður" eins og
hann orðaði það sjálfur í mín eyru,
en hvergi flokksbundinn, það ég best
veit. Það hefði ekki hentað honum.
En húmanistinn og hagfræðingurinn
Magni Guðmundsson var rakinn
andstæðingur óhefts kapítalisma.
Sú var tíðin að Magni Guðmun-
dsson var ungur og eldhress
kaupsýslumaðm' í Reykjavík, eink-
um þekktur fyrir eftirsótt veitinga-
hús sitt á Laugavegi 28. Þangað
lagði margur leið sína. A yfirborðinu
gat manni komið í hug að hann hefði
á þeim ái-um sómt sér ágætlega í
Junior Chambers og fallið í kramið í
hugsjónaveröld „Verzlunarskólans“.
En þess háttar ímyndanir um lífsvið-
horf og skoðanir hans um þjóðfélags-
mál áttu sér enga stoð. Þótt
kaupsýsla lægi vel fyrir honum, átti
hann sér önnur áhugaefni og hug-
sjónamál.
Um aldarfjórðungsskeið frá ung-
um aldri var hann framkvæmda-
stjóri fyrirtækja, viðurkenndur
veturinn 1938-39.
Deildinni var lokað,
þegar seinni heims-
styijöld braust út um
mánaðamótin ágúst/
september sama ár
og sneri Magni þá
heim.
Honum bauðst
þátttaka í veitinga-
rekstri vorið 1940 og
varð það ásamt inn-
flutningsverslun að-
alstarf hans næsta
aldarfjórðung. Hann
fór í framhaldsnám
til Kanada 1944 og
tók kandidatspróf í hagfræði og
stjórnvísindum við McGill-háskóI-
ann í Montreal 1946. Við fimm-
tugsaldur réðst hann til opinberr-
ar þjónustu, fyrst á Hagstofu
íslands, síðan hjá Seðlabanka og
þá í ráðuneytum. Hann hélt áfram
hagfræðinámi í Kanada 1972 og
hlaut doktorsgráðu í þeirri grein
við Manitoba-háskóla í Winnipeg
1977 með ríkisfjármál og pening-
asljórn að sérgreinum. Jafnhliða
náminu kenndi hann við háskól-
ann og tók að sér verkefni fyrir
fylkisstjórnina, hvort tveggja
hlutastarf. Honum bauðst fullt
starf hjá Hagráði Kanada í Ott-
awa 1978-79, en ákvað haustið
1979 að snúa heim endanlega til
fyrri starfa hjá ráðuneytum og
ríkisstjórnum hérlendis við hag-
könnun og ráðgjöf.
Magni Guðmundsson byijaði
snemma að skrifa greinar í blöð
og tímarit, einkanlega Morgun-
blaðið. Þær fjölluðu um ýmis eftii,
en eftir 1946 aðallega um efnhags-
mál. Jafnframt hélt hann gjarnan
útvarpsfyrirlestra, oftar en ekki
þátt um daginn og veginn. Helstu
ritverk hans eru þessi: Þættir um
efnahagsmál 1968, Sljórn fyrir-
tækja 1972, Hagfræði og stjóm-
mál 1984, Líf og landshagir 1991.
Þess utan er fjöldi ritgerða fyrir
íslensk sljómvöld og kanadísk.
Útför Magna fer fram frá
Dómkirkjunni í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
kaupsýslumaður. En um fimmtugs-
aldur hætti hann allri kaupsýslu. Þá
urðu afdrifarík umskipti í lífi hans.
Þau þurftu ekki að koma neinum á
óvart sem þekktu marglyndi Magna
Guðmundssonar. Þess er að minnast
að jafnframt fyrirtækjarekstri þegar
á ungum aldri lagði hann á sig há-
skólanám og lauk BA-prófi í hag-
fræði og stjómmálafræði frá kana-
dískum háskóla 1946, en áður hafði
hann stundað nám í viðskiptafræði í
Frakklandi fyrii’ stríð (1937-1939)
og bjó að því námi þegar þar að kom.
Síðar lauk hann doktorsprófi í hag-
fræði frá Manitobaháskóla í Winni-
peg.
Allt sýnir þetta hversu dugandi
maður hann var og afkastamikill, ef
hann tók til hendi.
Hitt er annað að ekki stóðu honum
opnar vellaunaðar stöður í stofnana-
veldinu á íslandi, þegar honum lá á.
Síður en svo.
Þótt gáfumaður væri og athafna-
samur að eðlisfari, átti hann oft örð-
ugt uppdráttar um að hljóta þau
störf sem honum var lagið að vinna
og lágu á sérsviði hans. Magni náði
ekki eyrum þeirra sem mestu réðu.
Varla verður því neitað, að Magna
Guðmundssyni var ekki gefið það
hæfi til aðlögunar að starfsumhverfi,
sem auðveldar meðalmönnum að-
gang að kjötkötlum kerfisins. Hann
dró því aldrei lengsta stráið þegar
úthlutað var vegtyllum og verkefn-
um handa hagfræðilærðum mönnum
í landinu. En á móti kom að hann
hélt frelsi sínu, sem honum var svo
umhugað um: Að vera einskis manns
þý eða fótaþurrka. Með láti hans er
mikill öldungur að velli lagður.
Ég á góðar minningar um Magna
Guðmundsson, og um margt fóru
þjóðfélagsskoðanir okkar saman.
Vandamönnum hans sendi ég hug-
heilar samúðarkveðjur.
Ingvar Gíslason.
t
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, fósturfaðir,
sonur og bróðir,
GUÐNI SIGURBJARNASON
lögreglumaður,
Arnarsmára 28,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans sunnu-
daginn 30. janúar.
Þorgerður Bergvinsdóttir,
Björk og Arndís Guðnadætur,
Guðbjartur Kristinsson,
Sigurbjarni Guðnason, Jóhanna Jakobsdóttir,
Sigurborg Sigurbjarnadóttir, Pétur P. Johnson,
Marta Lilja Sigurbjarnadóttir, Garðar Sigursteinsson,
Edda Sigríður Sigurbjamadóttir,
Hanna Birna Sigurbjarnadóttir, Reynir Steinarsson,
Hörður Sigurbjarnason, Erna Guðlaugsdóttir,
Elísabet Sigurbjarnadóttir, Kristján Sverrisson
og aðrir ástvinir.
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐNÝ LAXDAL,
Lindasíðu 2, Akureyri,
áður húsfreyja á Syðri-Grund,
Grýtubakkahreppi,
er lést á Kristnesspítala sunnudaginn 30. janúar,
verður jarðsungin frá Laufáskirkju föstudaginn
4. febrúar kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á líknarstofnanir.
Sævar Magnússon, Guðný Hallfreðsdóttir,
Helgi Laxdal, Guðrún Jóhannsdóttir,
Kristjana Magnúsdóttir, Friðrik Rúnar Gíslason,
Jóhanna Magnúsdóttir, Tryggvi Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og langalangafi,
BJÖRN INGI STEFÁNSSON
fyrrverandi kaupfélagsstjóri,
Grandavegi 47,
Reykjavík,
andaðist á Grensásdeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur aðfaranótt mánudagsins 31. janúar.
Stefán Björnsson, Gyða Guðbjörnsdóttir,
Helga Björnsdóttir, Stefán Ágústsson,
Sveinn Björnsson,
Örn Björnsson, Þórdís Vilhjálmsdóttir,
Jón Björnsson, Svana Júlíusdóttir,
Þórdís Björnsdóttir, Stefán Sæmundsson,
barnabörn, barnabarnabörn
og langalangafabarn.
t
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
MAGNÚS S. BERGMANN
skipstjóri
frá Fuglavík,
Kirkjuvegi 11, Keflavík,
lést á Landspítalanum laugardaginn 29. janúar.
Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn
5. febrúar kl. 13.30.
Pátmfríður A. Bergmann,
Vignir Bergmann, Jónína Hoim,
Alberg Bergmann, Eva Carlsen,
Gylfi Bergmann, Helga Jóhannesdóttir
og barnabörn.
t
Ástkær faðir okkar og tengdafaðir,
TORFI SIGURÐSSON
frá Bæjum,
Grensásvegi 52,
Reykjavfk,
andaðist á gjörgæsludeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur mánudaginn 31. janúar.
Ragnheiður Torfadóttir, Sigurður Kr. Finnsson,
Ingibjörg Sara Torfadóttir, Guðmundur Pálmason,
Rún Torfadóttir Smith, Murray Smith.