Morgunblaðið - 17.02.2000, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 17.02.2000, Qupperneq 2
2 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Islandsbanki hf, kaupir hlutabréf í Landsbanka Islands hf. V er ður selt til viðskiptavina Vinsæll skafl í Vest- urbænum SNJÓSKAFLAR eru ekki jafn- vinsælir hjá öllum, en yngsta kyn- slóðin kann samt yfirleitt alltaf vel að meta stóra skafla. I Vesturbæn- um er ekki mikið um brekkur þar sem börn geta rennt sér á snjóþot- um og því nýtur stór skafi við Mela- skóla mikilla vinsælda um þessar mundir. Þar er jafnan margt um manninn, enda fátt sem jafnast á við góða „salibunu" í snjónum. ÍSLANDSBANKI hefur á síðustu dögum keypt umtalsverðan hlut í Landsbanka íslands en stærstu viðskiptin fóru fram á þriðjudag. Þá keypti bankinn 100 milljónir króna hlutafjár að nafnvirði á genginu 4,9 og er markaðsvirði þeirra viðskipta því um 490 milljónir króna. Ásmundur Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Islandsbanka, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að bréfin sem Islandsbanki hefði keypt yrðu seld áfram til viðskipta- vina bankans enda hefði ekki verið tekin stefnumarkandi ákvörðun af hálfu bankans um að hann yki hlut sinn í Landsbankanum. Ásmundur sagði að þegar væri búið að fá kaupendur að hluta bréfanna. Mikil viðskipti hafa verið með bréf Landsbankans undanfarna daga. Á þriðjudag námu viðskiptin 796 milljónum króna, sem eru lang- mestu viðskipti sem hafa verið með eitt félag á einum degi til þessa. Að auki námu utanþingsviðskipti með bréfin rúmum 320 milljónum króna. Því var samtals um 1,1 milljarður hlutafjár að markaðsvirði sem skipti um eigendur í þessum við- skiptum eða um 3,3% af áætluðu markaðsverðmæti Landsbankans. Gengi hlutabréfa Landsbankans endaði á þriðjudag í 5,0, sem var 7,1% lækkun frá deginum áður. I gær, miðvikudag, námu heild- arviðskipti með bréfin rúmum 204 milljónum króna á VÞÍ, þ.a. voru tvenn viðskipti fyrir 50 milljónir króna að markaðsvirði hvor um sig eða 10 milljónir að nafnvirði, önnur á genginu 5,0 og hin á 5,05. Loka- gengi dagsins var 5,03, sem er um 0,6% hækkun frá deginum áður. Morgunblaðið/Ásdís Drög að sauðfjársamningi til umfjöllunar hjá ríkisvaldinu Bændur vilja auka bein- greiðslur um 250 milljónir SAMNINGANEFND bænda óskar eftir því að í nýjum búvörusamningi verði kveðið á um að beinar greiðslur rikisins til sauðfjárbænda nemi 1.900 milljónum kr. á ári. Er það 250 millj- ónum kr. hærri fjárhæð en samn- inganefnd ríkisins hefur boðið. Drög að samningum milli ríkisins og bænda um starfsskilyrði sauð- fjárframleiðslunnar næstu sjö árin eru nú til umfjöllunar hjá ríkisvald- inu. Sauðfjárbændur fá 1.480 milljón- ir kr. á ári í beinar greiðslur frá rík- inu samkvæmt núgildandi samningi sem rennur út um næstu áramót. Þær fjárhæðir eru miðaðar við vísi- tölu neysluverðs frá 1995. Miðað við hækkun vísitölunnar síðan samsvar- ar stuðningurinn um 1.650 milljónum kr. nú og það munu fulltrúar ríkisins hafa haft umboð til að bjóða. Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka íslands, segir að bændur telji eðli- legra að stuðningurinn miðist við þró- un launa en miðað við hækkun launa- vísitölunnar samsvarar stuðningur- inn frá 1995 um 1.900 milljónum kr. nú. Kveðst hann ekld vita hvort ríkis- stjómin mun fallast á þessi sjónar- mið. Greitt út á framleiðslu í stað ærgildis I samningnum er einnig gert ráð íyrir breytingum á viðmiðun við út- deilingu beinna greiðslna til bænda. Ari segir að framleiðsla kindakjöts á árunum 1976 til 1978 sé grunnur stuðningsins við einstaka bændur samkvæmt núgildandi samningi. í drögum að nýjum samningi sé lagt til að meira tillit sé tekið til raunveru- legrar kindakjötsframleiðslu ein- stakra búa. Miðað er við framleiðslu undanfar- in þrjú ár auk þess sem hluti bein- greiðslnanna verður veittur út á framleiðslu þar sem viðhöfð er gæða- stýring samkvæmt tilteknum reglum. Gildi gömlu ærgildisviðmið- unarinnar minnkar því við gildistöku nýja samningsins. Ári segir að þetta sé gert í anda þeirrar hugsunar að beina stuðningnum sem mest til þeirra sem framleiða afurðimar. Samninganefndin hefur farið þess á leit við ríkisvaldið að það veiti sauð- fjárbændum aðstoð við að hætta bú- skap. Ari Teitsson segir að þá aðstoð yrði væntanlega að veita með því að greiða ákveðna fjárhæð á hvert ær- gildi í greiðslumarkinu, til dæmis 15 til 18 þúsund krónur. Telur hann að þörf sé á að minnka greiðslumarkið um nálægt 10% með þessum hætti og segir rætt um að það gerist innan þriggja ára. Ekki er gert ráð fyrir að bændum verði heimilt að kaupa eða selja kvóta innbyrðis. Sveinbjörn Eyjólfsson, formaður samninganefndar ríkisins, segir að ennþá sé verið að vinna í samningun- um og treystir sér ekki til að svara því hvenær niðurstöðu sé að vænta. Hópur ráðherra fjallar um málið fyrir hönd ríkisstjómarinnar, auk land- búnaðarráðherra em forsætisráð- herra, utanríkisráðherra og fjármála- ráðherra í hópnum. Að lokinni umfjöllun í ríkisstjóm og hjá þing- flokkum hennar þarf að leita laga- heimildar fyrir gerð samningsins. Ari segir brýnt að niðurstaða fáist sem fyrst, bændur þurfi að vita stöðu sína áður en þeir ráðist í áburðarkaup fyrir vorið en þá séu teknar raun- verulegar ákvarðanir um framleiðslu næsta árs. Akstur í eðalvagni vinsæl af- mælisgjöf FÆRST hefur í vöxt á síðustu ámm að eðalvagnar, eða „limos- ínur“ séu teknar á leigu við margvísleg tækifæri. Talsvert er um að slíkir vagnar séu pant- aðir sem afmælisgjöf og segir Ragnar Ólafur Magnússon, eig- andi Glæsivagna, að margir for- eldrar panti bíla í afmælisveisl- ur og bjóði krökkunum á rúntinn. Þá em það aðallega krakkar á aldrinum 9-12 ára sem fá að njóta þess að aka um stræti og torg í glæsivögnum og upplifa eitthvað sem þau hafa ekki kynnst áður, nema í kvik- myndum. Vinsælt meðal nemenda Eldri nemendur í gmnnskól- um og framhaldsskólanemend- ur nýta sér einnig óspart að mæta með viðhöfn á dansleiki í eðalvagni, eftir að búið er að sækja dömuna með rós í hendi. Þessir dansleikir kallast „rósa- böll“ og tíðkast meðal 13-15 ára nemenda gmnnskólanna, að sögn Sigvalda Gunnarssonar eiganda Eðalvagnaþjónustunn- ar. Einnig taka krakkamir bíl saman til að rúnta um og mæta síðan á skólaballið. Að sögn Sigvalda em einnig brögð að því að eldra fólki séu gefnar ferðir í eðalvagni. Þá er fólk komið í vandræði með að finna gjöf og ákveður að bjóða þeim eldri á rúntinn í eðalvagni, sem þeir hafa aðeins séð til- sýndar áður. „Það er mjög skemmtilegur akstur, líkt og að keyra brúðhjón," segir Sigvaldi. Útlendingar í útsýnisferðum Að öðm leyti segja þeir Sig- valdi og Ragnar að fólk panti eðalvagna við ýmis tækifæri. Margir panti slíkan vagn til að komast til og frá Keflavíkur- flugvelli, til að komast á árshá- tíðir, í brúðkaup, út að borða o.s.frv. Einnig nýti margir út- lendingar sér þessa þjónustu og aki jafnvel að Gullfossi og Geysi og til Þingvalla í útsýnisferðir. *■ « *■ ■ dag Með Morgunblaðinu i dag er dreift tímaritinu 24-7. Útgefandi: Alltaf ehf. Ábyrgðarmaður: Snorri Jónsson. 4SfjPlM ÍÞR&mR Ekki uppi á borðinu að leysa Þórð frá störfum / B1 Arnar ræðir við forráðamenn Anderlecht í Belgíu / B2 Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.