Morgunblaðið - 17.02.2000, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR17. FEBRÚAR 2000 63
1001
DIGITAL
MAGNAÐ
BÍÓ
/DD/ síiy"
l.aiimavcf>i 94
^Sw^-PIXAR
Sýnd kl. 5, 7 og 11. ísl. tal.
Sérstök lokuð forsýning
á BICENTENNIAL MAN
Lokuð forsýning kl. 9.
BEINASAFNARINN
OENZKL WASHINGTON
.jm. ANGELINA JOLIE
* THEBONE
COLLECTOR
Sýnd kl. 9 og 11.05. B. i. 16
Sýnd kl. 5. B.i. 16.
sjáið allt um BICENTENNIAL MANá www.5tjornubio.is
Grillmatur og blús á Amigos í kvöld
Blúsinn er eilífur
VINIR Dóra spila Texas-tregatónlist á veit-
ingastaðnum Amigos í kvöld fyrir matar-
gesti sem munu að vonum snæða grillmat
þar sem yfirskrift kvöldsins er „Barbeque
og blús“.
Tónleikarnir hefjast kl. 22 og eru þeir
fyrstu á dagskrá hjá nýstofnuðum lista-
klúbbi Amigos, þar sem hugmyndin er að
bjóða upp á nýja og spennandi TexMex-rétti
og menningartengda viðburði einu sinni í
mánuði. í kvöld er ætlunin að endurskapa
Texas-stemmninguna: „Blúsinn er vinsæll í
Bandaríkjunum og sérstaklega í Texas og
það er mjög algengt að boðið sé upp á grill-
mat á blússtöðum þar,“ segir Dóri.
Vel kunnugir blúsnum
Dóri er Halldór Bragason, jgítarleikari og
söngvari, og vinir hans eru Asgeir Óskars-
son trommuleikari, Jón Ólafsson, sem leikur
á bassa, og Guðmundur Pétursson gítarleik-
ari. Þeir hafa ekki spilað í bænum í meira en
eitt og hálft ár og segir Halldór að vegna
fjölda áskorana sé löngu kominn tími til að
láta í sér heyra.
„Hljómsveitin öll hefur farið þrisvar í tón-
leikaferð til Bandaríkjanna, og við spiluðum
m.a á Chicago Blues Festival 1993 og er eina
erlenda blúshljómsveitin sem hefur spilað
þar,“ segir Halldór. „Við lékum líka fyrir
mörgum árum í Texas á Anthone’s-klúbbn-
um sem er mjög frægur blúsklúbbur og þar
kynntumst við Texas-blúsnum og munum
leika eitthvað af honum í kvöld.“
Halldór segir Texas-blúsinn einstakan
hvað taktinn snerti sem „svingi“ mjög sterkt
og að mjög margir frægir blúsarar komi ein-
mitt frá Texas; Johnnie Winter, T-Bone
Morgunblaðið/Þorkell
Vinir Dóra leika Texas blús og annan á
veitingastaðnum Amigos í kvöld.
Walker og Janis Joplin sem er frá Austin.
„En við ætlum líka að spila blús úr öllum
þeim áttum sem við höfum orðið fyrir áhrif-
um frá, en við spiluðum mikið á árum áður
með erlendum blúskörlum og þekkjum
þetta út og inn,“ segir Halldór Bragason að
lokum.
★./_
★
★
★
>M5=553^75 ALVQBUBfd! ŒDolby
====.==, 8TAFR/atfF
==:== = HLJÓBKHRaí UV
— —— — — ÖLLUMSÖLUMI 1
7 TILNEFNINGAR TIL
ÓSKARSVERÐLAUNA
BESTA MYNDIN
BESTI LEIKARI [ AÐALHLUTVERKI
(RUSSELL CROWE)
BESTA LEIKSTJÓRN
(MICHAEL MANN)
BESTA MYNDATAKA
BESTA KLIPPING
BESTA HUÓÐ
BESTA HANDRIT
'AL PACINO RUSSELL CROWEI
AMichaelMannFam
THE INSIDER
Sannleikurinn getur verið lífshættulegur
DHN/l l. WASHINGTON
#%\NGEUNA JOUi:
BEINASAFNARINN
THEyBONE
COBEECTOR
Sýnd kl. 4.40, 6.50, 9 og 11.15.
B. i. 16.
Djass, matur og ferðalög á Borginni
Oformlegt og skemmtilegt
TRÍÓ Sigurðar Flosasonar mun leika djass-
tónlist á Hótel Borg í kvöld fyrir matargesti,
en tríóið skipa ásamt honum Matthías Hem-
stock trommuleikari og Þórir Baldursson sem
leikur á Hammond-orgel. Verður boðið upp á
sérstakan matseðil útbúinn af þessu tilefni.
Húsið verður opnað kl. 20 og verður ferða-
áætlun Samvinnuferða-Landsýnar kynnt og
er Anna Björk Birgisdóttir kynnir kvöldsins.
Auk þess mun einn heppinn gestur vinnaferð
fyrir tvo til London á Ronnie Scott’s djass-
klúbbinn þekkta.
Aðgengilegt úrval djasstónlistar
„Ég verð með tríó og við ætlum að spila
fjölbreytta og skemmtilega djasstónlist,“
segir Sigurður. „M.a. leikum við lög af
plötunni minni, Himnastiganum, sem kom
út fyrir jólin. Hún seldist upp, svo það er
vonandi að þeir þúsund manns sem eiga
plötuna komi að hlusta á okkur. En við ætlum
að spila eitthvað af fönkdjassi líka, þannig að
yfir heildina verður þetta mjög breitt og frek-
ar aðgengilegt úrval af djasstónlist á óform-
legan en skemmtilegan máta.“
Sigurður segir samsetninguna á tríóinu
klassíska og var hún fyrir og eftir 1960 mjög
algeng og þótti hagstæð af fjárhagslegum
ástæðum.
Tnókarlarnir
vorukátiráæfíneu.
•mart
„Þá var mikið af Hammond-böndum, bæði
tríóum og kvartettum, og einmitt mjög oft.
með trommum og sax og gítar ef það var
kvartett,“ útskýrir Sigurður. „En okkur
finnst þetta mjög skemmtilegt „sánd“ og Þór-
ir er svo flottur á Hammondinum að það er
mjög gaman að prófa þetta.“
|>i<IEI3| /7^77