Morgunblaðið - 17.02.2000, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 17.02.2000, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR t Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, HULDA KRISTÍN ÞORVALDSDÓTTIR, Hrafnístu, Reykjavík, áður til heimilis á Laufásvegi 12, Stykkishólmi, lést á Landspítalanum þriðjudaginn 15. febrúar. Ársæll Baldvinsson, Elín Gunnarsdóttir, Leifur Guðmundsson, Pryanganie Guðmundsson, Jenny Lind Bragadóttir, Unnar A. Guðmundsson, Eiríkur Ottó Bragason, Sóley M. Magnúsdóttir, Sigurður Þ. Bragason, Kristján Bragason, Klara Ólöf Sigurðardóttir, Hildur Þ. Bragadóttir, Einar Pálsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÞORSTEINN HELGI BJÖRNSSON, Gunnólfsgötu 4, Ólafsfirði, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mánu- daginn 14. febrúar. Jarðsungið verður frá Akureyrarkirkju miðviku- daginn 23. febrúar kl. 13.30. Hólmfríður Magnúsdóttir, Magnús Þorsteinsson, Erla Bára Gunnarsdóttir, Björn Þorsteinsson, Sylvía Kimwoin, Eiriksína Þorsteínsdóttir, Bessi Skírnisson, Anna Freyja Eðvarðsdóttir, Karl G. Þórleifsson, afabörn og langafabörn. t Systir okkar, ÓSK JÓNA ÞÓRÐARDÓTTIR, Skjóli, áðurtil heimilis í Hólmgarði 13, Reykjavík, andaðist miðvikudaginn 16. febrúar. Þórður Þórðarson og Gísli Þórðarson. + Okkar ástkæri faðir og sonur, JÓN INGIBERG SVERRISSON, Aðalgötu 12, Stykkishólmi, verður jarðsunginn frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 19. febrúar kl. 14.00. Gísli Kr. Jónsson, Ólöf Guðbjörnsdóttir og aðrir aðstandendur. + Hjartkær móðir okkar, HÓLMFRÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR frá Urriðaá, Dvalarheimili aldraðra, Borgarnesi, lést þriðjudaginn 15. febrúar. Fyrir hönd vandamanna, börnin. + Ástkær fósturbróðir minn, SIGURÐUR HELGI ÞORLÁKSSON, frá Bolungarvík, til heimilis á Tryggvagötu 6, sem lést að morgni mánudagsins 14. febrúar, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni á morg- un, föstudaginn 18. febrúar, kl. 13.30. Inga Guðbjörg Ingólfsdóttir, Haukur Ólafsson og fjölskyldur. LA UFEY JAKOBSDÓTTIR + Laufey Jakobs- dóttir fæddist í Reykjavík 20. ágiíst 1917. Hún lést á Hrafnistu í Hafnar- firði, 11. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Borg- hildur Thorarensen, f. 24. júlí 1897 á Smáhömrum, Steingrímsfirði, d. 23.1. 1996, og Jakob Thorarensen, skáld, f. 18. maí 1886 á Fossi í Hrútafirði, d. 26.4. 1972. Laufey á eina systur, Elínborgu, f. 16.9. 1920 í Reykjavík. Laufey giftist 26. maí 1945 Stefáni G. Sigurðssyni, kaup- manni í Hafnarfirði, f. 21.9. 1911, d. 29.5. 1988. Fyrri kona hans var Elínborg Matt- hildur Sigurðardótt- ir, d. 1937, þau eignuðust tvö börn, Sigríði og dreng sem dó þriggja mánaða. Börn Lau- feyjar og Stefáns eru: 1) Elínborg Matthildur, maki Sí- mon Kjærnested, börn þeirra eru Guðmundur, Stefán og Brynjar. 2) Borg- liildur. 3) Sverrir, börn hans eru Svav- ar Þór, Laufey og Stella. 4) Hrefna Magdalena, börn hennar eru Krislján Geir og Sindri Péturssynir. Utför Laufeyjar fer fram frá Ilafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Það er komið að því að kveðja ömmu okkar í Hafnarfirði, Laufeyju Jakobsdóttur. Fyrir um það bil tíu árum kom í ljós að amma hafði hinn illræmda sjúkdóm Alzheimer. Okkur í fjöl- skyldunni varð þetta ljóst eftir að Stefán afi lést. Fyrstu árin háði þetta ömmu ekki svo mikið og við nutum þess að heyra sögurnar hennar ömmu í Hafnarfírði - stundum oft. En okkur fannst alltaf jafnvænt um og gaman að heyra þær. En fátt er svo með öllu illt að eigi boði nokkuð gott. Við bræðurnir höfum hálfpart- inn verið skikkaðir til að kaupa sígarettur í Fríhöfninni í hvert skipti sem við höfum komið til landsins. Eitt af því sem gerist með Alzheimer sjúklinga er að þeir verða gleymnir. Fyrir nokkrum árum þá fórum við bræðumir að taka eftir því að sígar- ettumar hrönnuðust upp. Við voram því mjög fegnir þegar amma fór að gleyma að reykja! Amma var mikil spilamanneskja og það var hún sem kenndi okkur að spila brids. Það var oft setið frameft- ir í fjölskylduboðum á sunnudögum við spilamennsku. í nokkur ár hittist fjölskyldan hjá afa og ömmu í miðri viku til þess að spila brids. Amma hafði gott skopskyn og hafði gaman af því að spauga með okkur strák- ana. Það var ekki hvað síst glettnin í Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Svemr Olsen, Sverrir Eínarsson, útfararstjóri útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringinn. www.utfararstofa.ehf.is/ www.mb l.is ömmu sem gerði spilakvöldin skemmtileg og oft var mikið hlegið. Eftir því sem árin færðust yfir ömmu, þá var eitt af því sem aldrei var frá henni tekið, það var góða skapið og húmorinn. Elsku amma, við viljum þakka þér alla þá ást og umhyggju sem þú gafst okkur. Megir þú hvíla í friði. Að lok- um látum við fylgja ljóð, sem afi Jak- ob orti til þín, þegar þú varst lítil stúlka og hefur ekki verið birt áður. Blessað litla bamið mitt, bæðiásumrinogvetri leggji Guð á lánið þitt ljós frá eigin setri. Senn er komið sólarlag svartanáttfærvaldið þú hefur verið þæg í dag þú mátt eiga spjaldið. (Jakob Thorarensen.) Þínir dóttursynir Guðmundur, Stefán og Brynjar Kjærnested. Laufey æskuvinkona mín er látin. Við höfðum verið vinkonur í 76 ár. Þegar ég var að alast upp á Frí- kirkjuveg 3 voru svo til engin íbúðar- hús í grenndinni og þráði ég mikið að eignast vinkonu. Ur því rættist þeg- ar ég var sex ára, því þá byggði Jak- ob Thorarensen skáld hús á Skál- holtsstíg 2A, beint fyrir ofan Fríkirkjuna. Hann átti tvær dætur, Laufeyju sem var jafnaldra mín og Elínborgu þriggja ára. Við Laufey kynntumst fljótlega og varð hún því fyrsta vinkona mín. Má segja að við höfum verið óaðskiljan- legar þegar við vorum börn og ung- lingar. Vorum við í sama bekk í Mið- bæjarbamaskólanum og sátum alltaf saman. Að vísu skildi leiðir okkar að nokkru þegar Laufey fór í Biómabúðtn öarðsKom v/ Possvogski^kjugaKð Sími: 554 0500 Gróðrarstöðin ^ wff mnm ♦ Hús blómanna Blómaskreytingar við öll tækifæri. Daiveg 32 Kópuvogi sími: 564 24H0 Verslunarskólann en ég í Mennta- skólann, en vináttan hélst áfram. Laufey var góðum námsgáfum gædd og bókhneigð. Hún var mjög einbeitt og dugleg. Síðar fór hún til Englands í eitt ár til að læra ensku. Auk þess lærði hún hraðritun, sem var fremur fátítt á þeim tíma. Eftir að hún kom heim bauðst henni starf hjá 0. Johnson & Kaaber sem einka- ritari forstjóranna, Ólafs Johnson og Arents Claessen. Stóð hún sig þar með stakri prýði. A sama tíma vann ég á Bæjar- skrifstofunum í Pósthússtræti en hún í Hafnarstræti, svo stutt var á milli, enda hittumst við oft í hádeg- inu og stundum þrisvar á dag, eftir vinnu og á kvöldin, en alltaf höfðum við nóg að tala um. Laufey var sér- staklega skemmtiiegur félagi. Um tíma höfðum við báðar mikinn áhuga á þjóðmálum og fórum stund- um á Alþingi til að hlusta á umræður þar, sérstaklega ef var eitthvað spennandi, t.d. eldhúsdagsumræður. Eg var í Bandaríkjunum í rúm tvö ár á stríðsárunum og héldum við Laufey þá stöðugu bréfasambandi, þótt bréfin væru oft tvo mánuði á leiðinni, því allt var endurskoðað. Gleymi ég því ekki hve Laufey var hugulsöm við foreldra mína, heim- sótti þau í hverri viku og lét þau allt- af vita, ef hún fékk bréf frá mér. Þegar ég kom heim frá Bandaríkj- unum hafði ég kynnst eiginmanni mínum, Einari Egilssyni frá Hafnar- firði. Var Laufey þá búin að kynnast öðrum Hafnfirðingi, Stefáni Sigurðs- syni, sem síðar varð eiginmaður hennar. Giftum við okkur báðar 1945 með mánaðar millibili og það er mán- uður á milli elstu dætra okkar. Laufey flutti til Hafnarfjarðar, þar sem hún bjó æ síðan. Þá hittumst við sjaldnar, enda báðar uppteknar við heimilið, en vináttuböndin rofn- uðu ekki. Hjónaband Laufeyjar og Stefáns var mjög farsælt og eignuð- ust þau fjögur elskuleg börn. Auk þess var Sigríður, dóttir Stefáns frá fyrra hjónabandi, á heimilinu. Meðan börnin voru að vaxa úr grasi sinnti Laufey aðeins heimilinu, sem hún gerði af stakri prýði, enda var hún fyrirmyndar húsmóðir. Þeg- ar bömin vom komin á legg hóf hún störf á Skattstofu Reykjanesum- dæmis og reyndis þar sem fyrr frá- bær starfskraftur. Stefán lést árið 1988 og var öllum harmdauði. Nokkru eftir lát Stefáns seldi Laufey íbúð sína í Hafnarfirði og keypti sér raðhús við Hrafnistu. Þar bjó hún samt ekki nema rúmt ár því þá var heilsan farin að gefa sig og flutti hún inn á Hrafnistu, síðast á sjúkradeild, þar sem hún dvaldi til æviloka. Sjúkdómsferill Laufeyjar er búinn að vera langur, en hún hafði lengst af fótavist. Hún virtist alltaf ánægð, þegar maður heimsótti hana og kvartaði aldrei, sagði alltaf að sér liði vel, jafnvel þegar ég heimsótti hana tæpri viku áður en hún dó. Það fylgir því mikill söknuður að sjá á bak æskuvinkonu sinni, en minningamar em allar bjartar og ég er þess fullviss að hvíldin var kær- komin. Eg votta fjölskyldu Laufeyjar innilega samúð. Margrét Thoroddsen. Kveðja frá Sjálfstæðiskvenna- félaginu Vorboða í Hafnarfírði. I dag er við kveðjum Frú Laufeyju Jakobsdóttur, minnumst við starfa hennar með virðingu og þökk. Lauf- ey var ein af þeim konum sem tilbún- ar eru að vera í forystu og leiða hóp kvenna til góðra verka. Það gerði hún með sanni og farsæld þegar hún sinnti formennsku í Sjálfstæðis- kvennafélaginu Vorboða. Aður átti Laufey sæti í stjóm fé- lagsins ásamt setu í fulltrúaráði sjálfstæðisfélaganna í Hafnarfirði um árabil. Með störfum sínum lagði Laufey sitt af mörkum til þeirrar kröftugu starfsemi sem einkennt hefur félagið frá stofnun þess. Sjálf- stæðiskvennafélagið Vorboði þakkar ánægjulega samleið og samstarf. Við vottum fjölskyldu Laufeyjar okkar innilegustu samúð. Blessuð sé minn- ing Laufeyjar Jakobsdóttur. Valgerður Sigurðardóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.