Morgunblaðið - 17.02.2000, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 17.02.2000, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000 57 I DAG Arnað heilla ^7A ÁRA afmæli. Næst- I \/ komandi sunnudag 20. febrúar, verður sjötug Valgerður Samsonardótt- ir, Mýrum I, Patreksfirði. Eiginmaður hennar er Hafliði Ottósson. Þau hjónin taka á móti vinum og ættingjum nk. laugar- dag, 19. febrúar, á Rabba- bar, Patreksfirði, kl. 16-19. BRIDS IJmsjún Oiiðiiiunilur Páll Armirson BANDARÍSKA sveitin tók fjótlega völdin í úr- slitaleiknum við Brasilíu á HM og leiddi með 102 IMPum gegn 65 eftir tvær lotur. En það var ekki tómur dans á rósum. Meckstroth og Rodwell máttu teljast heppnir að sleppa skað- laust út úr þessu spili í fyrstu lotunni, þegar þeir flæktust upp á fimmta þrep í slemmuleit: Austur gefur; AV á hættu. Norður ♦ 965 *G8762 ♦ 10 *9874 Vestur Austur *G -HD843 »AK109 v D543 ♦ K984 ^32 +D532 +G106 Suður +AK1072 ♦ ADG765 +AK I lokaða salnum spiluðu Brasilíumenn fjóra spaða og tóku tíu slagi. Það var meiri stígandi í sögnum í opna salnum: Eftir sterka laufopnun Meckstroths í suður og átta sagnhringi lauk sögnum á óvinsælum og hættulegum stað - í fimm spöðum. Gabriel Chagas var í vestur of lyfti hjartaás, sem Meckstroth varð að trompa. Austur á nú jafn- mörg tromp og því er sagnhafi í stórhættu á að missa vald á spilinu. Meckstroth tók á tígulás og trompaði tígul. Fór svo heim á trompás og fékk gosann undir frá Chagas. Gosinn gat verið frá DG, sem var fínt, en ef hann var stakur, þá mátti ekki gefa slag á tígul. En Meckstroth fann rétta mótleikinn: Hann spilaði tíguldrottningu og trompsvínaði þegar vestur lét lítinn tígul. Branco í austur trompaði og stytti sagnhafa með hjarta. En Meckstroth átti krók á móti því bragði. Hann trompaði tígul með níu blinds og það var sama hvað Branco gerði. I reynd yfirtrompaði hann og spilaði hjarta, en sagn- hafi gat trompað, tekið á spaðakóng og lagt upp. Ellefu slagir og einn harð- sóttur IMPi í plúsdálkinn. f7A ÁRA afmæli. í dag, I V/ fimmtudaginn 17. febrúar, verður sjötugur Helgi Veturliðason, mál- arameistari, Tröllaborgum 2, Reykjavík. Eiginkona hans er Anna Kristjánsdótt- ir. Þau eru að heiman í dag. 7 A ÁRA afmæli. í dag, t) U fimmtudaginn 17. febrúar, verður fimmtugur Gylfí Sigurðsson, húsa- smiðameistari. Eiginkona hans er Ásta Reynisdóttir, handavinnukennari. Þau hjónin taka á móti gestum á morgun, föstudaginn 18. febrúar, á efstu hæð í vest- ari turninum í verslunarmið- stöðinni Firði kl. 20. Með morgunkaffinu WAr 9C5 Hvenær skiptirðu síð- ast um vatn, Margrét mín? ítm jUV-iare- Þetta er ekta há- karlauggasúpa, væni MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnu- dagsblað. Samþykki af- mælisbarns þarf að fylgja afmælistilkynningum og/ eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netf- angið ritstj @mbl.is. Einning er hægt að skrifa : Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík LJOÐABROT ALFTIRNAR KVAKA Bráðum er brotinn bærinn minn á heiði - Hlýtt var þar stundum, - hann er nú í eyði. Man ég þá daga. Margt var þá á seyði. Ungurégundi úti í varpa grænum. - Horfði á reykinn hverfa fyrir blænum. - Þar heyrði ég forðum þytinn yfir bænum. Fuglar þar flugu, - frjálsir vængir glóðu. Lokkandi súgur lyfti blárri móðu. Það voru svanir, - söngfuglamir góðu. Margs er að minnast. Margt er enn á seyði. - Bleikur er varpinn, - bærinn minn í eyði. Syngja þó enn þá svanir frammi á heiði. Jóhíinnes úr Kötlum. STJORNUSPA cftir Franccs Ilrakc VATNSBERI Afmælisbam dagsins: Pú ert ákveðinn og stefnufastur og lætur fátt standa í vegi fyrir því að þú náir takmarki þínu. Hrútur (21. mars -19. apríl) Það er nauðsynlegt að krydda mál sitt kímni. Það má halda áheyrendum við erfiðustu efni, ef þeim er gefið tilefni til að hlægja öðru hverju. Naut (20. apríl - 20. maí) Það má margt gera sér til upplyftingar án þess að kosta til þess miklum fjármunum. Sýndu hagsýni en vertu um leið tilitssamur við þig og þína. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Afl Græðgi er ljótur ávani.Þótt margir hlutir séu eftirsóknar- verðir, ferst heimurinn ekki, þótt þú komir ekki höndum yfir þá. Njóttu þess sem er. Krabbi (21. júní - 22. júlí) Það eru þessir mörgu smáu hlutir sem á endanum skapa frið og ró. Njóttu þess sem þú hefur áorkað. Láttu öfund annarra engin áhrif hafa á Þig-____________________ Ljón (23. júlí - 22. ágúst) M Það fara fáir í fötin þín þessa dagana. Reyndu samt að halda ró þinni, þótt mikið gangi á. Þú hefur burði til að komast í gegn um verkefnið. Meyja (23. ágúst - 22. sept.) (SSL Reyndu að mynda stuðnings- hóp til þess að hrinda í fram- kvæmd þeim áætlunum, sem þú hefur um störf í þágu sam- félagsins. Margar hendur vinna léttverk. Vog m (23. sept. - 22. október) fiþ A Láttu það ekki hafa áhrif á þig, þótt fólk í kring um þig sé með uppsteyt og læti. Fyrr en síðar nær það tökum á að- stæðunum og þá er allt í góðu aftur. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.) "wE Þú getur verið öðrum gott fordæmi með æðruleysi og dugnaði. Þú þarft ekki að vera með neinn bægslagang; vertu bara þú sjálfur. Það skilar sér. Bogmaður m ^ (22. nóv. - 21. des.) ffaO Reiknaðu ekki með að þú vitir öll viðbrögð annarra fyrir- fram. Það getur komið þér í koll og reynzt afdrifaríkt upp á áframhaldandi samstarf. Steingeit (22. des. -19. janúar) 4K Þeir eru margir sem öfunda þig af þvi að fá tækifæri til þess að einbeita þér að skemmtilegu verkefni. Enga sektarkennd! Njóttu þess bara! Vatnsberi (20. jan.r -18. febr.) CSfö Fljótfærni getur komið sér illa. Það er meira virði að leysa verkefni sín sómasam- lega af hendi, en rubba þeim frá svo aðrir þurfi að klára þau. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) Gættu þess að dragast ekki inn í deilur annarra. Það mun verða tekið eftir afstöðu þinni og þér til hróss, þegar allt fellur í Ijúfa löð á ný. Stjömuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Barnamyndatökur á kr. 5000,00 Vegna mikillar aðsóknar er tilboðið framlengt Ljósmyndastofan Mynd, sími 565 4207. Ljósmyndastofa Kópavogs, sími 554 3020. Utsölulok 70% afsláttur Gðttt JOHA STOMMER SlMI 553 3366 G L Æ S B Æ f^>n FASTEIGNA if t=LJ MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 570 4500, FAX 570 4505 OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL. 9-18. Netfang: http://habil.is/fmark/ Bakkasel - tvær íbúðir Fallegt 242 fm endarað- hús, sem er kjallari og tvær hæðlr auk 20 fm bílskúrs. Á aðal- hæð eru forstofuherb., gesta wc, eldhús og saml. stofur. Uppi eru þrjú herbergi og ný endurnýjað baðherbergi. í kjallara er sér 3ja herb. íbúð. Hús í góðu ástandi að utan. Verð 17,9 millj. Kambasel Mjög vandað 180 fm raðhús á tveimur hæðum með innb. bílskúr. Húsið, sem er með vönduðum innréttingum og gólfefnum, skiptist í gesta wc, hol, eldhús, saml. stofur, 3 herbergi auk forstofuherb., nýl. flísal. baðherb. og þvottaherb. Möguleiki á 60 fm í risi. Áhv. byggsj.-2,1 millj. Veghús - frábært útsýni Nýkomin í sölu góð 101 fm 4ra herb. íbúð á 10. hæð í lyftuhúsi. Þvottahús í íbúð. Stór- kostlegt útsýni. Stæði í bílskýli. Verð 12,5 millj. Digranesheiði - Kópavogi Góð 60 fm 2ja-3ja herb. íbúð á jarðhæð með sérinng. í þríbýli. Nýlegt gler. Falleg ^ræktuð lóð. Laus strax. Verð 6,9 millj. ► Fljótandimeik 4 gerðir ► Stiftmeik ► Kökumeik ► Púðurmeik Allir andiitsfarðarnir | MP* Í eru ofnæmisprófaðir, p /jmf vítamínbættir og með Um góðri vörn. Þú færð farða sem hentar lfa^_ þinni húðgerð og þínum þörfum. Guðrún Edda förðunarmeist- ari, veitir faglega róðgjöf og býður upp ó förðun í snyrtivörudeild Hagkaups Kringlunni : fimmtudag, föstudag og laugardag. ÆK www.marbert.com
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.