Morgunblaðið - 17.02.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 17.02.2000, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ á uppieið stendur í stað á niðurleið Dolphins Cry Live Maria Maria Santana Other side Red Hot Chili Peppers Sex Bomb Tom Jones Bad Touch Bloodhound Gang Falling Away From Me Korn Starálfur Sigur Rós Okkar nótt Sálin hans Jóns míns 10. Crushed Limp Bizkit 11.1 Learned from the best Whitney Houston 12. Whata girl wants Christina Aguilera 13. Born to make you happy Britney Spears Tin Tin Out & Emma B 15. The Great Beyond REM 16. Break Out Foo Fighters 17. Vínrauðvín Ensfmi 18. Mixed Biznez Beck 19. So Long Everlast Vinsældalisti þar sem þú hefur áhrif! Listinn er óformleg vinsældakðnnun og byggist á vali gesta mbl.is. 0 mbl.is SKJÁRE/NN .......... ÚRVERINU Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Dröfti Sigurðardóttir pakkar loðnu með bros á vör hjá Vinnslustöðinni hf. Loðnustemmning í Eyjum Vestmannaeyjum. Morgunblaðið. LOÐNUFRYSTING hófst í báðum stóru frystihúsunum í Eyjum í gær. Það var eins og gamalt bros hefði tekið sig upp hjá starfsfólk- inu og reyndar taka allir bæjar- búar þátt í stemmningunni, því eftirvæntingin hvort vertíðin tekst eða ekki liggur í loftinu og spurningar hvort loðnan verði nógu stór og hrognafyllingin við- unandi eru spennandi. Það var því létt yfir Stefáni Friðrikssyni, að- stoðarframkvæmdasfjóra Vinnslu- stöðvarinnar hf., þegar Morgun- blaðið náð af honum tali í veðurblíðunni í Eyjum í gær. Hann sagði að frystingin færi vel af stað og á fyrstu vaktinni sem var reyndar aðeins sex klukku- stundir voru fryst 70 tonn af stórri og fallegri loðnu. „Það eru undir 60 stykki í kílói sem er mun stærri Ioðna en við höfum séð undanfarnar vertíðar og hrogna- fyllingin er 17%. Það er því útlit fyrir að fryst verði í allt að viku- tíma ef allt gengur að óskum og náð rúmum 1.000 tonnum,“ sagði Stefán kampakátur. Stefán sagði aðspurður að út- litið með fryst loðnuhrogn væri gott og menn biðu spenntir eftir því að tíðin lagaðist svo ekki verði frátafir á veiðum yfír þennan mikilvæga tíma, sem getur ráðið svo miklu í afkomu fyrirtækjanna. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Starfsstúlkur Vinnslustöðvarinnar hf. setja loðnuna í svokallaða tröllakassa að lokinni frystingu. Stafnbúi til Færeyja Norsk skipa- skrá SKRÁ um norsk fiskiskip er nú komin út hjá norska út- gefandanum Ulustrert Norsk Skipsliste AS. Þetta er 17. út- gáfa bókarinnar og gildir fyrir árið 2000. í norsku skránni eru fískiskip sem eru yfir 15 metrar að lengd. Auk þess eru í bókinni ferjur og farþegaskip í strandsiglingum, fiskflutn- ingaskip, herskip og gæslu- skip, björgunarskip og bátar. Einnig er í bókinni skrá yfir útgerðir skipanna, skrá um einkennisstafi og kallmerkja- skrá. Ljósmyndir eru af langflest- um skipanna og ítarlegar tæknilegar upplýsingar. Skerpla ehf. sér um sölu norsku skipaskrárinnar hér- lendis, m.a. á Netinu; www.skerpa.is. Skráin er 736 bls. og kostar 4.480 krónur. STAFNBÚI, félag sjávarútvegs- fræðinema við Háskólann á Akur- eyri, mun í næstu viku heimsækja sjávarútvegsfyrirtæki í Færeyjum og kynna sér það sem færeyskur sjávarútvegur hefur upp á að bjóða. Stafnbúar fara m.a. í heimsóknir í út- flutningsfyrirtæki, frystihús, fisk- eldi, fiskirannsóknarstofuna, skipa- smiðju, Fiskimálastýrið og líta til útgerðarmanna. Einnig munu Stafn- búar kynna fyrir nemendum í mennta- og verslunarskólum Þórs- hafnar, sem og nemendum fiski- vinnuskólans í Vestmanna, þá mögu- leika sem bjóðast til náms í Háskólanum á Akureyri. Ennfremur munu Stafnbúar athuga hvernig ís- lenskum fyrirtækjum vegnar í Fær- eyjum. Fróðleg heimsókn Arnljótur Bjarki Bergsson, nem- andi í sjávarútvegsfræðum við HA, segir að venjulega sé farið í vísinda- ferðir til sjávarútvegsfyrirtækja hér innanlands. í tilefni þess að nú séu 10 ár liðin frá því kennsla hófst í sjávarútvegsfræðum við HA hafi verið ákveðið að breyta út af vanan- um og halda út fyrir landsteinana. Hann segir að í Færeyjum gefist nemendum kostur á að kynna sér fjölbreytt svið sjávarútvegs og þar ættu nemendumir að geta kynnst ýmsum nýjungum. „Fiskeldi í Fær- eyjum er til dæmis mun öflugra en á íslandi. Færeyingar framleiða um 30 þúsund tonn af laxi á ári en heildar- framleiðsla fiskeldis á Islandi er um 10 þúsund tonn. En að öðru leyti er sjávarútvegur í Færeyjum mjög áþekkur þeim íslenska, þeir fram- leiða á sömu markaði en hafa verið nokkuð öflugir í útflutningi á fersk- um fiski. Við hljótum þannig að geta lært eitthvað af Færeyingum og ég reikna með að hópurinn snúi aftur öllu fróðari um færeyskan sjávarút- veg,“ segir Amljótur Bjarki.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.