Morgunblaðið - 17.02.2000, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 17.02.2000, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Formannskjör iiman Samfylkingarinnar Framboðsfrestur rennur út 15. mars FRESTUR til þess að tilkynna framboð til embættis formanns Samfylkingarinnar rennur út 15. mars nk. að sögn Margrétar Frí- mannsdóttur, talsmanns Samfylk- ingarinnar, en fresturinn var ákveðinn á fundi samráðsnefndar Samfylkingarinnar í vikunni. Auk þess var ákveðið á fundinum að stofnfundur Samfylkingarinnar skyldi haldinn fyrstu helgina í maí nk. og að formannskjörið færi aðal- lega fram með póstkosningu. Allir þeir sem eiga aðild að Samfylking- unni eiga þannig rétt á að kjósa for- mann Samfylkingarinnar með póst- kosningu. „Kjörið mun að meginstofni fara fram með bréf- kosningu en skipuð er sérstök kjör- stjórn sem verður gefin heimild til að ákveða að hafa kjördeildarkosn- ingu þyki það ráðlegt í helstu þétt- býliskjördæmunum," segir Magnús Norðdal, formaður framkvæmda- stjórnar Alþýðuflokksins. Þá segir hann að ákveðið hafi verið að kosn- ing um formann fari aftur fram á stofnfundinum hljóti enginn meiri- hluta í kosningunum fyrir fundinn. „Við ákváðum að það væri nauðsyn- legt í fyrsta sinn sem flokkurinn fengi formann að hann myndi njóta ótvíræðs meirihluta fylgis félags- manna. Þannig að ef enginn nær 50% atkvæða eða meira í formanns- kjöri verður kosið milli hinna tveggja efstu á stofnfundinum." Morgunblaðið hafði í gær sam- band við Jóhönnu Sigurðardóttur, Össur Skarphéðinsson og Guðmund Árna Stefánsson og spurði hvort þau hygðust gefa kost á sér í emb- ætti formanns Samfylkingarinnar en þau kváðust ekki enn vera búin að gera upp hug sinn. Ul«»RBWKINS - rniuitur kfínti ■ ■ ■< * \ - ’í jh* i*?r iP Morgunblaðið/Árni Sæberg Ráðgert er að byggja 8 hæðir ofan á Búnaðarbankahúsið og stækka þannig Hótel Esju um 110 herbergi. Hótel Esja stækkað um 8 hæðir FYRIRHUGAÐ er að stækka Hót- el Esju um átta hæðir og auka með því framboð herbergja um 110, en áætlaður heildarkostnað- ur vegna framkvæmdanna er um 900 milljónir króna. Þetta kom fram í samtali Morgunblaðsins við Kára Kárason, framkvæmdastjóra Flugleiðahótela, í gær. Kári sagði, að enn væri ekki ljóst hvort ráðist yrði í fram- kvæmdirnar, þar sem enn ætti eftir að athuga ýmsa þætti, t.d. ætti eftir að reikna út arðsemis- mat og annað slíkt. Hann sagði að þetta væri samt kostur sem menn væru að hugsa um í fullri alvöru og ef ráðist yrði í framkvæmdirn- ar yrði það væntanlega gert í haust og þeim lokið vorið 2002. Kári sagði að ekki yrði byggt ofan á núverandi hótel, heldur væri ætlunin að byggja ofan á húsnæðið, sem stendur við hlið þess, en þar er Búnaðarbankinn til húsa. Ætlunin væri að hafa nýbygginguna í nákvæmlega sama stíl og núverandi hótel. Hann sagði að báðar fast- eignirnar væru í eigu Þyrpingar og ef ráðist yrði í framkvæmdir myndi Þyrping byggja og Flug- leiðahótel síðan leigja húsnæðið. Að sögn Kára er Hótel Esja hagkvæm rekstrareining, en yrði enn hagkvæmari, ef af fram- kvæmdunum yrði. Hann sagði að mjög mikilvægt væri fyrir Flug- leiðahótel að vera í fararbroddi í uppbyggingu ferðamannaiðnaðar- ins á Islandi og þess vegna væri verið að skoða þennan möguleika. Dollarar voru inn- heimtir sem krónur HLUTI af viðskiptavinum Icemart- verslunarinnar á Keflavíkurflugvelli fékk á dögunum sent innheimtubréf, vegna þess að þeir voru ekki skuld- færðir á sínum tíma íyrir allri þeirri fjárhæð sem þeir höfðu verslað íyrir. Ástæðan er sú að af tæknilegum ástæðum umreiknaði afgreiðslukassi í versluninni ekki dollara yfir í krón- ur þegar greitt var með debetkorti, sem varð þess valdandi að upphæð eins og 100 dollarar fór til Reikni- stofu bankanna sem 100 krónur í stað þess að upphæðin væri í kring- um 7.000 krónur. Þetta átti sér stað á tímabilinu nóvember 1998 til september 1999. Logi Úlfarsson, framkvæmdastjóri Icemart, segir að mistökin hafi kom- ið í ljós þegar viðskiptavinur benti á að hann hefði tvisvar sinnum verið rukkaður um of lága upphæð. Að sögn Loga áttu mistökin sér einungis stað þegar notuð voru Maestro-debetkort og gerðist þetta bara í einum afgreiðslukassa af tíu í versluninni. Yfirleitt var um lágar fjárhæðir að ræða á hvern viðskipta- vin og þess vegna áttuðu menn sig ekki á mistökunum í tæpt ár. Upphæðin, sem þannig var ekki færð til innheimtu, nemur fast að tveimur milljónum króna á þessu 11 mánaða tímabili. Logi segir að nú þegar sé búið að innheimta megnið af þeirri upphæð. Hann segir við- skiptavini hafa brugðist vel við þessu, enda fjárhæðir yfirleitt smáar og ekki nema eðlilegt að leiðrétta þessi mistök. BÍIA UPPHÆKKANIR! Upphækkanir fyrir flestar gerðir bifreiða Útsölustaðir: Bílanaust og bifreiðaumboðin. Malmsteypan kaplahrauni 5 TTT’T T X V\4 220 HAFNARFJÖRÐUR IlLLLil 111. SÍMI 565 1022 FAX 565 1587 Sigurður Kári Kristjánsson, formaður SUS, á fundinum í gær ásamt Guðrúnu Ingu Ingólfsdóttur og Einari Erni Olafssyni. Tillögur ungra sjálfstæðismanna Islenska ríkið verði skuld- laust árið 2003 SAMBAND ungra sjálfstæðismanna (SUS) kynnti í gær tillögur sínar um að greiða upp allar skuldir íslenska ríkisins á næstu þremur árum með það m.a. að markmiði að losa kom- andi kynslóðir undan vaxtabyi-ði nú- verandi skuldahala. Þá er markmiðið með tillögunum að draga úr núver- andi þenslu í hagkerfinu, stuðla að lækkandi vaxtastigi og auka sam- keppnishæfni atvinnugreina þjóðar- innar að því er fram kom í máli Sig- urðar Kára Kristjánssonar, for- manns SUS, er hann skýrði frá tillögunum á blaðamannafundi í Iðnó ígær. I stuttu máli ganga tillögur ungra sjálfstæðismanna út á aðhald í ríkis- fjármálum annars vegar og sölu á eignum ríkisins sem eru í samkeppni við einkaaðila hins vegar. Með því telja þeir að hægt verði að ná 174 milljörðum króna í lok kjörtímabils- ins sem nota megi til þess að greiða niður skuldir íslenska ríkisins. Þær skuldir segja þeir vera 173 milljarða um þessar mundir og því verði ís- lenska ríkið skuldlaust árið 2003 verði farið að hugmyndum þeirra. „Við teljum að hér sé einstakt tækifæri til að greiða niður allar skuldir íslenska ríkisins með mjög einföldum aðgerðum sem kosta ekki stjórnvöld miklar fórnir til dæmis í velferðarmálum eða á öðrum svið- um,“ sagði Sigurður Kári m.a. er hann greindi frá tillögunum, sem hann sagði unnar í samráði við ýmsa sérfræðinga m.a. innan Seðlabanka Islands. Þegar ungir sjálfstæðismenn tala um aðhald í ríkisfjármálum í tillögum sínum eiga þeir m.a. við frestun framkvæmda hjá hinu opinbera. Auk þess eiga þeir m.a. við að atvinnu- vegirnir fái að leiða launaþróunina í landinu og að stöðva beri aukningu útgjalda til velferðarmála. „Eftir því sem fólk hefur það betra því minni hlýtur þörfin fyrir aðstoð frá hinu op- inbera að vera,“ útskýrði Sigurður. Hann greindi frá því að verði farið að þessum tillögum ungra sjálfstæð- ismanna gæti afgangur á ríkissjóði numið 80 milljörðum króna það sem eftir lifði kjörtímabilsins. Einkavæðing Símans og bankanna Eins og fyrr greindi ganga hug- myndir ungra sjálfstæðismanna einnig út á sölu þeirra ríkiseigna sem eru í samkeppni við einkaaðila og eiga þeir þar við sölu á hlut ríkisins í viðskiptabönkunum, þ.e. Búnaðar- banka Islands og Landsbanka Is- lands, sem og sölu ríkisins á Lands- síma íslands. Telja þeir brýnt að bankarnir og Síminn verði einka- væddir á yfirstandandi kjörtímabili og segja að samkvæmt markaðnum liggi fyrir að söluhagnaður vegna bankanna geti numið 40 milljörðum króna og söluhagnaður vegna Sím- ans geti numið um 70 milljörðum króna. Samanlagt yrði söluhagnað- urinn vegna þessa um 110 milljarðar króna en að frádreginni bókfærðri eign yrði hagnaðurinn alls 174 millj- arðar króna. Með þessu telja ungir sjálfstæðis- menn að íslenska ríkið geti orðið skuldlaust undir lok kjörtímabilsins eins og fyrr sagði en jafnframt telja þeir að með þessu verði styrkum stoðum skotið undir áframhaldandi hagsæld á íslandi. Sigurður Kári greindi frá því að tillögumar hefðu verið kynntar þing- mönnum og ráðherrum Sjálfstæðis- flokksins og sagði hann að þar hefðu þær hlotið góðar undirtektir. Fiskeldi í Tálknafírði Viðræður um kaup Tálkna á VIÐRÆÐUR standa yfir um kaup útgerðarfélagsins Tálkna ehf. á fiskeldisstöðinni Eyraeldi ehf. í Tálknafirði af Eyrasparisjóði á Patreksfirði. Eyrasparisjóður yfirtók eignir þrotabús Þórslax hf. á árinu 1995. Sparisjóðurinn hefur síðan rekið stöðina en auglýst hana reglulega til sölu. Hilmar Jónsson spari- sjóðsstjóri segir að á þessum tíma hafi verið unnið að breytingum á rekstrinum, bleikjueldi tekið upp í stað laxeldis, og fyrirtækið sé nú Eyraeldi orðið vel rekstrarhæft. Jafnframt hafa í stöðinni verið gerðar tilraun- ir með eldi á sandhverfu. Útgerðarfélagið Tálkni ehf. ger- ir út Bjarma BA og er Níels Ár- sælsson skipstjóri eigandi þess á móti Básafelli. Fyrirtækið mun kaupa eignir Eyraeldis, físk, mannvirki og tæki og reksturinn. Hilmar Jónsson kveðst eiga von á að hægt verði að ganga frá sölu eignanna á næstu dögum þannig að Tálkni taki við rekstrinum um næstu mánaðamót.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.