Morgunblaðið - 17.02.2000, Síða 26
26 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Reuters
George W. Bush (lengst t.h.), John McCain og þriðji frambjóðandinn í röðum repiiblikana, blökkumaðurinn Al-
an Keys, í þætti Larry Kings (lengst t.v.), hjá CNN í gær.
Vaxandi hiti í forkosningum repúblikana
Bush sagður vera í
peningavandræðum
Columbiu í S-Karólínu, Washington. AP, AFP.
MIKIL harka er hlaupin í baráttu
helstu frambjóðenda repúblikana,
George W. Bush og Johns McCains, í
forkosninguni vegna forsetakjörsins í
nóvember. I sjónvarpsþætti Larrys
Kings hjá CNN í gær sökuðu þeir
hvor annan um að beita óþverra-
brögðum en mikilvægar kosningar
verða í Suður-Karólínu á laugardag.
Forkosningar voru auk þess í
Michigan í gær.
Blaðið The New York Times segir
að Bush sé þegar búinn að eyða hátt í
50 milljónum dollara í baráttu sína og
geti farið svo að hann verði frambjóð-
andi flokksins en peningaskortur
verði honum síðan fjötur um fót í bar-
áttunni við forsetaefni demókrata
sem líklegt er að verði A1 Gore vara-
forseti.
Bush og McCain reyna báðir ákaft
að höfða til uppgjafahermanna sem
eru hlutfallslega margir í Suður-
Karólínu og þykir McCain standa vel
að vígi þar sem hann er stríðshetja er
sætti pyntingum kommúnista í Ví-
etnamstríðinu. McCain sagðist í gær
óttast að baráttan væri að breytast í
ómerkilegt rifrildi og kvartaði einnig
undan því að prófessor nokkur hefði
sent fólki tölvupóst þar sem McCain
væri sagður hafa eignast böm í lausa-
leik. Stuðningsmenn Bush harðneita
því að eiga nokkurn þátt í framtaki
prófessorsins. Bush hefur á hinn bóg-
inn vísað á bug tillögu keppinautarins
um að þeir hætti báðir að nota ár-
ásarkenndar auglýsingar og sagt að
um hræsni sé að ræða hjá McCain.
Hinn síðamefndi hvatti í gær til
þess að stjómum landa eins og Irak,
Líbýu og Norður-Kóreu, sem væm
að reyna að koma sér upp gereyðing-
arvopnum og flaugum til að nota slík
vopn, yrði steypt. Ef hann yrði forseti
myndi hann „vopna, þjálfa og útbúa“
menn sem tækju að sér þetta verk og
kæmu síðan á lýðræði í löndunum.
„Enski sjúklingurinn“
Bush þykir hafa sama galla og fað-
ir hans, George Bush, fyrrverandi
forseti, og vera gjam á að mismæla
sig, brjóta málfræðireglur eða tjá sig
skringilega. Mun einn af starfsmönn-
um hans hafa kallað hann „Enska
sjúklinginn" af þessum sökum. Ný-
lega rifjaði Bush á fundi upp störf sín
í olíuiðnaði í Texas á yngri ámm og
hvemig sú reynsla hefði mótað skoð-
anir hans. „Eg hef skilning á því
hvemig vexti smáfyrirtækja er hátt-
að. Ég var það sjálfur."
The New York Times segir að
stjómendur kosningabaráttu Bush
reyni nú með öllum ráðum að finna
leiðir til að auka fjárstreymið í sjóði
frambjóðandans. Hann hafi varið 37
milljónum dollara, um 2,8 milljörðum
króna, í fyrstu forkosningamar í
Iowa, einkum hafi féð farið í auglýs-
ingar og rannsóknir á samsetningu
kjósendahópsins. Að auki var 15
milljónum dollara eytt í janúar og
byrjun febrúar en er McCain sigraði
með yfirburðum í New Hampshire
dró úr fjárstuðningi við Bush. Margir
séu orðnir efins um hæfni hans og
skilji ekki hvernig hægt sé að nota
svo mikið af peningum án þess að
sigra.
Fjölmargir hafa notað tækifærið
og sent McCain peninga um Netið,
alls fjórar milljónir dollara en Bush
hefur aðeins fengið hálfa milljón um
Netið. McCain hefur þannig eflst
mjög þrátt fyrir að hann hafi ekki haft
jafn margt fólk og Bush til að starfa
íyrir sig, einkum hefur hagur hans
vænkast eftir sigurinn í New
Hampshire fyrir tveim vikum.
Það er sagt há Bush að margir ein-
staklingar hafi fyrir löngu fullnýtt
sér lagalegan rétt til styrkja hann
með 1.000 dollurum, um 73 þúsund
krónum, sem er hámarkið fyrir þá.
Bush ákvað á sínum tíma að þiggja
ekki kosningastyrk frá ríkinu og er
því ekki háður takmörkunum sem því
fylgja, McCain má hins vegar ekki
nota meira en þrjár milljónir dollara í
Suður-Karólínu. Samkvæmt könnun-
um standa keppinautamir tveir nú
jafnt að vígi í Suður-Karóh'nu.
Havel um lærdóma af Kosovo
Evrópa má ekki
vera háð Banda-
ríkjunum
Strassborg. AFP.
VACLAV Havel, forseti Tékklands,
sagði í ávarpi sínu á Evrópuþinginu í
gær að sá lærdómur sem draga
mætti af stríðinu í Kosovo og Bosníu
væri að Evrópa gæti ekki að eilífu
verið háð Bandaríkjunum.
Havel sagði Bandaríkin leiðandi
afl í NATO og að án krafta þeirra
fylgdist alþjóðasamfélagið eflaust
enn með stríðinu í Kosovo án þess að
bregðast við. Evrópa yrði að verða
fær um að bregðast sjálf við slíkum
atburðum. I dag teldist EvrópuSam-
bandið ekki virkur þátttakandi í skip-
an heimsins, ef það reyndist óhæft
um að koma sér saman um mannrétt-
indi, ekki bara á yfirráðasvæði sínu
heldur einnig víðar, sagði Havel, sem
hlaut lof þingmannanna fyrir ræðu
„Það hefði mátt bjarga tugþúsund-
um mannslífa og óhemjumiklum
efnahagslegum gæðum í Kosovo,
Serbíu, Bosníu og Herse-
góvínu...hefði alþjóðasamfélagið
reynst fært um að bregðast fyrr rétt
við.“
Tékkland hefur verið eitt ESB
ríkjanna undanfarin tvö ár og varaði
Havel sambandsins við að fjölga
löndum sambandsins upp í allt að 28
næsta áratuginn. ESB yrði að staldra
við og taka þátt í að endurreisa sið-
menningu margra þessara landa áð-
ur en til þátttöku gæti komið. Þá lof-
aði Havel einingu ESB í viðbrögðum
sínum gegn nýrri ríkisstjórn Austur-
ríkis og sagði nauðsynlegt að verja
þau undirstöðuatriði sem Evrópu-
sambandið byggði á.
Forseti Þýskalands hélt ræðu í Knesset
/
Bað Israela að fyr-
ir gefa Þj ó ð verj um
Jerúsalem. AP, AFP.
FORSETI Þýskalands, Johannes
Rau, sté í gær í pontu í ísraelska
þinginu, Knessct, og bað Israela
að fyrirgefa Þjóðverjum grimmd-
arverk nasista gegn gyðingum á
árum seinni heimsstyrjaldar.
Ræða forsetans er sú fyrsta sem
þýskur þjóðhöfðingi heldur í ísra-
elska þinginu en Rau er þriðji
þýski forsetinn sem heimsækir
Israel.
„Ég bið um fyrirgefningu fyrir
það sem Þjóðveijar hafa gert, fyr-
ir sjálfan mig og kynslóð mína,
vegna barna okkar og barnabarna
sem ég vil sjá við hlið barna ísra-
els í framti'ðinni," sagði forsetinn
meðal annars. Hann sagði einnig
að vegna glæpa nasista yrðu ætfð
sérstök tengsl milli þjóðanna og að
Þjóðverjum bæri skylda til að
miðla þekkingu um helförina til
komandi kynslóða.
Athygli vakti að Rau flutti ræðu
sína á þýsku, þrátt fyrir mótmæli
nokkurra þingmanna sem neituðu
að hlýða á „tungumál nasistanna".
Pinochet sagður ófær
um að koma fvrir rétt
Madrid. AP, AFP, Reuters.
AUGUSTO Pinochet, fyrrum einræðisherra
Chile, er ófær um að koma fyrir rétt vegna heila-
skaða sem hefur áhrif á minni hans og skilning að
því er spænsku dagblöðin ABC og E1 Mundo
greindu frá í gær. Sögðu þau upplýsingamar
byggðar á skýrslu breskra lækna, er samin var
fyrir ríkisstjórn Bretlands.
Læknaskýrslu Pinochet hefur nú dreift til ríkis-
stjóma Spánar, Belgíu, Frakklands og Sviss sem
hafa sjö daga til að ákveða viðbrögð sín.
Spænsku blöðin sögðust hafa náð í eintak af
læknaskýrslu Pinochet, en gáfu ekki upp hvemig.
Þau vitnuðu hins vegar í bresku læknana sem
rannsökuðu Pinochet í síðasta mánuði og sögðu
þeir heilaskemmdir hans fara vaxandi. Pinochet
væri líkamlega fær um að vera viðstaddur réttar-
höld en ekki andlega þar sem hann ætti erfitt með
að skilja og eins svara spumingum, m.a. vegna
minnisleysis.
Blöðin birtu það sem þau sögðu þýðingu á út-
drætti skýrslunnar sem breskur dómstóll úr-
skurðaði á þriðjudag að Jack Straw, innanríkis-
Utdráttur úr lækna-
skýrslunni birtur í
spænskum fjölmiðlum
ráðherra Bretlands, yrði að veitaSpánverjum og
öðmm þeim þjóðum sem farið hefðu fram á fram-
sal Pinochet aðgang að.
Straw hafði áður neitað að upplýsa innihald
skýrslunnar sem hann kvað vera trúnaðarmál, en
hann hafði sagt hana kveða Pinochet ófæran um að
svara til saka í réttarhöldum og því hefði hann hug
á að veita einræðisherranum fyrrverandi írelsi.
Lögfræðingar Pinochets bmgðust illa við frétt
spænsku dagblaðanna og leka læknaskýrslunnar,
en jafnaðarmenn sem em í stjórnarandstöðu á
Spáni, hafa hvatt Abel Matutes, utanríkisráðherra
Spánar, til að útskýra hvemig á því standi að
fjölmiðlar komust yfir skýrsluna.
Haft hefur verið eftir einum talsmanna Baltasar
Garzon, spænska dómarans sem fór fram á fram-
sal Pinochet haustið 1998, að lekinn kæmi að öllum
líkindum frá ríkisstjórnum Chile og Spánar. Inni-
hald skýrslunnar styddi þá skoðun ríkisstjórnanna
að leysa ætti Pinochet úr haldi og var haft eftir
chileska dagblaðinu La Tercera að ríkistjóm Chile
hefði afhent dagblaðinu úrdrátt úr skýrslunni.
Krafist nýrrar læknisrannsóknar
Búist er við að læknaskýrslan verði skoðuð
vandlega af lögfræðingum Garzons til að kanna
hvort gmndvöllur sé í spænskum lögum fyrir að
Pinochet verði færður fyrir rétt. Þá kann Garzon
einnig að krefjast nýrrar læknisskoðunar, dæmi
hann núverandi skýrslu ófullnægjandi. Fjölskyld-
ur franskra fórnarlamba stjórnar Pinochet hafa
þegar farið þess á leit við Elisabeth Guigou, dóms-
málaráðherra Frakka, að hún krefjist nýrrar
læknisskoðunar á einræðisherranum fyrrverandi.
Pinochet hefur verið í stofufangelsi í Bretlandi
síðan haustið 1998, en hann er sakaður um að bera
ábyrgð á dauða og hvarfi þúsunda stjórnarand-
stæðinga í Chile í stjómartíð sinni 1973-1989.
AP
Johannes Rau, forseti Þýska-
lands, í pontu á israelska þing-
inu, Knesset.
Forseti þingsins, Abraham Burg,
sagði hins vegar að ekki skipti
máli á hvaða tungumáli ræðan
væri haldin, heldur hver það væri
sem flytti hana. „Rau hefur lengi
verið þekktur fyrir að vera einn af
bestu vinum fsraels,“ sagði Burg.
Rau viðurkenndi i' ræðu sinni að
kynþáttafordóma væri enn að
finna í þýsku samfélagi. „Að loka
augunum fyrir því væri hættulegt
og rangt,“ sagði forsetinn en bætti
við að gyðingum færi nú fjölgandi
í Þýskalandi á ný og væru orðnir
órjúfanlegur hluti af samfélaginu.
Hann tók einnig sérstaklega
fram að Evrópubúar væru stað-
ráðnir f að viðhalda í álfunni sam-
félagi byggðu á frelsi, lýðræði og
virðingu fyrir mannréttindum og
grundvallarhugmyndum réttarrík-
isins. „Evrópa mun ekki líða einu
ríkja sinna að draga þetta í efa,“
sagði Rau og vísaði þar greinilega
til Austurríkis þar sem ríkisstjórn
meðjþátttöku Frelsisflokksins
(FPO) var nýlega mynduð. Jörg
Haider, formaður Frelsisflokksins,
hefur meðal annars látið í ljós að-
dáun á atvinnustefnu Adolfs Hitl-
ers.
80 af 120 þingmönnum voru við-
staddir ávarp þýska forsetans og
klöppuðu þeir að þvf loknu. Fyrr
um daginn hafði Rau heimsótt Yad
Vashem-safnið í Jerúsalem, sem
reist var til minningar um fórnar-
lömb helfararinnar.