Morgunblaðið - 17.02.2000, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000 27
LISTIR
Þórdís sýnir í Ósló
ÞÓRDÍS Elín Jóelsdóttir opnar sýn-
ingu á verkum sínum í IS-Kunst gall-
ery & café í Ósló laugardaginn 19.
febrúar. Þema sýningarinnar er
Samhljómur manns og náttúru og
eru þetta vatnslitaþrykk, unnin á
síðasta og þessu ári. 24 verk verða á
sýningunni sem varir til 9. mars.
Þórdís Elín stundaði myndlistar-
nám á listasviði Fjölbrautaskólans í
Breiðholti og útskrifaðist síðan úr
grafxkdeild Myndlista- og handíða-
skóla íslands vorið 1988. Hún starf-
rækir grafíkvinnustofu ásamt fimm
öðrum listamönnum á Laugavegi 1 í
Reykjavík.
Þetta er 8. einkasýning Þórdísar
en hún hefur einnig tekið þátt í
mörgum samsýningum bæði á ís-
landi og í útlöndum. Hluti sýningar-
innar mun verða til sýnis á heima-
síðu listamannsins frá og með 19.
febrúar á slóðinni http://www.island-
ia.is/—thordisej.
Nær, vatnslitaþrykk eftir Þórdísi Elínu Jóelsdóttur.
Grunnflötur dagsins í dag
TOJVLIST
Salurinn
SÖNGTÓNLEIKAR
Marta Guðrún Halldórsdóttir,
Ingveldur Yr Jónsdóttir, Finnur
Bjarnason og Orn Magnússon fluttu
sönglög eftir aldamótatónskáldin.
SVO virðist, að þörf sé á riti, þar
sem talin eru upp öll íslensk tón-
skáld, ásamt smáæviágrpi og verka-
skrá, því í efnisskrá einsöngstónleik-
anna, sem haldnir voru á vegum
Tónskáldafélags íslands og Evrópu-
menningarborginni Reykjavík, sl.
þriðjudag, í Salnum, vantaði að gerð
væri grein fyrir ævi þriggja ís-
lenskra tónskálda, þeirra Jóhanns Ó.
Haraldssonar, Arna Beinteins Gísla-
sonar og Péturs Sigurðssonar, af alls
20 tónskáldum er voru á efnis-
skránni.
Marta Guðrún Halldórsdóttir hóf
tónleikana með lögunum Svanurinn
minn syngur, eftir Sigavlda Kalda-
lóns, Smaladrengurinn, eftir Jóhann
Ó. Haraldsson og þrjú Ijóð, eftir
Inga T. Lárusson, sem hún söng af
þokka. Finnur Bjamason söng Vís-
an, sem var rituð á laufblað, eftir
Árna Beintein Gíslason. Hann var
skólabóðir Bjarna þorsteinssonar,
nam tónlist í Kaupmannahöfn en lést
þar rétt um aldamótin 1900, á þrí-
tugsaldri. Eftir hann liggja nokkur
lög, sem enn hafa ekki verið flutt ut-
an nefnd Vísa, sem Finnur söng
mjög fallega. Annað lag Finns var
Taktu sorg mína, eftir Bjarna Þor-
steinsson, sem hvað snertir túlkun
var sérlega vel flutt. Aftur á móti var
flutningurinn á Ingjaldr í skinnfeldi,
eftir Arna Thorsteinsson, ekki sann-
færandi. Ingveldur Yr Jónsdóttir
söng Nótt, þekktara sem Nú máttu
hægt um heiminn líða, úr Eiðnum,
eftir Þorstein Erlingsson, síðan Óm
ég heyrði, eftir Sigurð Þórðarson og
síðast Haust, eftir Pétur Sigurðsson.
Þannig skiptust söngvararnir á að
syngja lög eftir Þórarin Guðmunds-
son, Pál Isólfsson, Jón Leifs, Markús
Kristjánsson. Emil Thoroddsen, Ey-
þór Stefánsson, Björgvin Guðmun-
dsson, Jón Laxdal, Sigfús Einars-
son, Þórarin Jónsson og Steingrím
Hall og var flutningurinn í heild
nokkuð góður, sérstaklega skal
nefna Til skýsins, eftir Emil, sem
Finnur söng mjög vel og í sama máta
var Betlikerlingin, eftir Sigvalda, vel
sungin af Ingveldi Ýr og lokalag tón-
leikanna sömuleiðis, en það var
Svanasöngur á heiði, eftir Sigvalda,
er Marta Guðrún söng.
Undirleikari var Örn Magnússon,
er lék vel en hélt sig einum of til hlés,
hefði sem best mátt hafa sig meira í
frammi, eins og hann reyndar gerði í
lögum Jóns Leifs, nema í Vögguvísu
Jóhanns Jónssonar, Þey, þey og ró,
sem er eitt af meistarasmíðum Jóns
Leifs og Marta Guðrún og Örn fluttu
mjög vel og fínlega, svo sem vera ber
í svona viðkvæmu lagi. Þetta munu
vera síðustu tónleikarnir, þar sem
rifjuð eru upp tónverk þeirra er áttu
sinn starfsdag á fyrri hluta 20. aldar
og þrátt fyrir að sum þessara verka
muni enn njóta gistivináttu gleymsk-
unnar, voru nokkur gleymd verk,
sem vöktu athygli og eiga áreiðan-
lega eftir að heyrast enn um sinn.
Það er einmitt sh'k upprifjun sem er
nauðsynleg, því margar ástæður
aðrar en gæðamat, valda því að verk
eru ekki flutt og má í því sambandi
benda á söngverk Arna Beinteins
Gíslasonar, sem enn hafa ekki verið
flutt, nema Vísan. Eitt lag eftir Árna,
er í Islensku söngvasafni, nr. 129 í II.
hefti, Vindamir þjóta, nokkuð breytt
frá því sem það er í handriti Árna.
Þessi tónleikaröð, þar sem flutt
var kórtónlist, kammermúsík og ein-
söngslög, er merkilegt framlag hjá
Tónskáldafélagi Islands og í anda
þess, að numið sé staðar og litið yfir
farin veg, þegar Reykjavík ásamt
öðrum borgum, gegnir hlutverki
menningarborgar Evrópu, því í
þessum arfi er að finna grunnflöt
þess, sem er tónlist dagsins í dag.
Jón Ásgeirsson
-------*_*_«-----
Listaleikur
í Galleríi
Nema hvað
LISTALEIKUR Rósu Sigrúnar
Jónsdóttur og Gallerís Nema hvað á
Skólavörðustíg hefst 18. febrúar kl.
20:00 og stendur til 27. febrúar.
Sýningargestum gefst kostur á að
svara nokkrum léttum spurningum í
tengslum við sýninguna og gerast
þannig þátttakendur í listaleiknum.
27. febrúar verður dregið úr réttum
svörum og vinningshafi eignast mál-
verk.
Nýjar bækur
• NORRÆNARráðleggingar um
næringarefni er nú komin út á ís-
lensku. Hún er ætluð stúdentum og
öðrum þeim sem áhuga hafa á nær-
ingarfræði.
Ráðleggingar um næringarefni
byggjast á vísindalegri þekkingu um
æskilega samsetningu fæðisins og
neyslu næringarefna. Þær eru þann-
ig fræðilegur grunnur almennra
leiðbeininga um hollt mataræði og
henta vel fyrir skipulag á samsetn-
ingu fæðis sem viðheldur heilsu og
kemur í veg fyrir sjúkdóma, segir í
fréttatilkynningu.
Norrænar ráðleggingar um nær-
ingarefni ganga út frá þeim aðstæð-
um sem fyrir eru á íslandi og í
Skandinavíu hvað varðar mataræði,
heilsufar og tíðni sjúkdóma. Þær
hafa að markmiði að stuðla að bættri
heilsu almennings í þessum löndum.
Útgefandi er Háskólaútgáfan.
Bókin er237bls. íkilju. Verð: 2.100
kr.
-------LH---------
Nýjar bækur
• FITUSNAUTT og freistandi -
150 ótrúlegar uppskriftir að girni-
legum fitusnauðum réttum er eftir
Sue Kreitzman.
í fréttatilkynningu segir að í bók-
inni séu uppskriftir að auðveldum
nútímalegum réttum, hefðbundum
uppáhaldsmat og fitusnauðum út-
gáfum af réttum frá fjarlægum
heimshomum. Upplýsingar um nær-
ingargildi og ljósmyndir fylgja
hverri uppskrift.
Höfundurinn er verðlaunahöfun-
dur sem hefur áhuga á fitusnauðu
fæði og heilsusamlegum lifnaðar-
háttum.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 168 bls., unnin í Englandi.
Bókin er bók mánaðarins í febrúar
og kostar 1.990 kr., en hækkar í
2.990 kr. 1. mars.
S AP
Osamræmi einnar
hugmyndar
SÝNIN GARGESTUR í Singapore
Art Museum skoðar hér verk ástr-
alska listamannsins Chen Yan Yin,
sem gert er úr fölnuöum rósum,
leiðslum sem notaðar eru við nær-
ingargjöf og nálum sem liggja á
líkkistulaga kassa.
Verkið ber heitið „DISCREP-
ANCY btw ONE IDEA,“ sem má út-
leggja sem Ósamræmi milli einnar
hugmyndar. Það er hluti af „Rose
Crossing“-sýningunni, þar sem 13
ástralskir listamenn leiða saman
hesta sína.
Leitaðu nánari upplýsinga í síma
570 1200H^ j
Viðskiptavinir Verðbréfastofunnar uppskáru vel á árinu
sem leið en þá hækkaði Heimssjóður Carnegie í Luxemborg
um 56%. Morgan Stanley hlutabréfavísitalan hækkaði um
23,5% og Norðurlandasjóðurinn gaf 44,9% ávöxtun.
Carnegie er eitt stærsta og virtasta verðbréfafyrirtæki Norður-
landa og annast Verðbréfastofan um málefni sjóða Carnegie
á íslandi.
VERÐBREFASTOFAN
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík Sími 570-1200
SPINNING- 0G ÞREKHJÓL í mörgum gerðum ásamt mesta úrvali
landsins af allskyns þrek- og æfingatækjum. Aðeins topp-merki.
ÞREKHJÓL 105p
Þrekhjól sem kemur þér í gott form.
Polar-púlsmælir, stöðugt ástig,
kasthjól, fullkominn tölvumælir.
c
Stærð: L. 115 x br. 61 x h. 110 RAÐGREIÐSLUR
ÖRNINN0*
STOFNAÐ1925
- ÞREKTÆKJADEILD -
Skeifan 11, sími 588-9890