Morgunblaðið - 17.02.2000, Síða 35

Morgunblaðið - 17.02.2000, Síða 35
34 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000 35 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. TUNGAN, MENN- INGIN OG FJÖL- BREYTNIN PRESTUR innflytjenda, Toshiki Toma, sagði í grein hér í Morgunblaðinu fyrir skömmu að sumir íslend- ingar dýrkuðu tungumálið eins og Guð og kallaði það skurðgoðadýrkun. Þótt ekki sé rétt að hvetja til skurð- goðadýrkunar þá færi betur á því að fleiri Islendingar bæru virðingu fyrir tungu sinni. Það er til að mynda auð- velt að missa trúna á framtíð íslenskunnar þegar hlustað er á sumt það sem malað er í ljósvakamiðlunum. Vond mál- beiting er algeng þar og líka málfátækt og málleti. Orða- forða skortir sem oft er reynt að bæta fyrir með erlendum slettum, jafnvel heilu setningarnar eru hafðar yfir á ensku. Það er og mál manna sem kenna við háskólastofn- anir landsins að þekkingu ungmenna á íslenskri tungu fari mjög hrakandi og raunar hafa samanburðarrannsóknir sýnt þróun í þá átt. Sumir segja að áhyggjur af málfari unga fólksins séu óþarfar, menn hafi alltaf bölsótast yfir því að ungmenni töluðu vont og jafnvel óskiljanlegt hrognamál en í raun væri þetta einungis eðlileg gerjun sem skilaði sér á endan- um inn í málið og auðgaði það. Á það ber hins vegar að líta að gríðarlegar breytingar hafa orðið á umhverfi okkar undanfarin ár. Tækniþróun hefur gert það að verkum að áreiti erlendis frá er meira en nokkru sinni fyrr. Sá heimur sem ungt fólk hrærist nú í er alþjóðlegur sem gerir það að verkum að það er að mörgu leyti auðveldara og þægilegra að falla inn í fjöldann en að rækta sérkenni sín, svo sem þjóðtungu og -menningu. Sökum þessa verður það æ mik- ilvægara að spyrna við fótum og leggja áherslu á verndun tungunnar. Til marks um breytt umhverfi okkar er að Svíar og fleiri Evrópuþjóðir sem hingað til hafa ekki haft miklar áhyggj- ur af stöðu tungu sinnar telja nú fulla ástæðu til að bregð- ast við auknum áhrifum ensku í þjóðlífinu. Gaf sænska málnefndin út yfirlýsingu síðastliðið sumar þess efnis að lögfesta bæri stöðu sænskunnar þar í landi. Hér horfir málið öðruvísi við þar sem Islendingar hafa lengi haldið úti öflugri málverndarstefnu. Hugsanlega er ástæða til að lögfesta stöðu íslenskunnar, meðal annars til að tryggja að hún verði það tungumál sem notast er við í skólum lands- ins að öllu jöfnu. Boð og bönn munu þó duga skammt því ljóst má vera að flæði erlends sjónvarpsefnis inn í landið í gegnum gervihnattasjónvarp verður vart stöðvað, né held- ur notkun á Netinu þar sem enskan ræður einnig ríkjum. Brýnast er því að laga verndarstefnu okkar að breyttu um- hverfi, alþjóðavæðingunni og tæknivæðingunni. Það verð- ur til dæmis gert með því að styrkja gerð íslensks sjón- varps-, net- og tölvuefnis, einkum þess sem höfðar til barna og unglinga, en auðvitað fyrst og fremst með því að efla íslenskukennslu í grunn- og framhaldsskólum. ís- lenskan á og hlýtur að vera grundvallarþáttur í allri menntun íslendinga. Þannig verður að hafa í huga að öll kennsla er kennsla í móðurmálinu, eins og menn vissu í Bessastaðaskóla. Með þessu eru vissulega gerðar miklar kröfur til kennara og þarf að stuðla að því að þeir geti mætt þeim. Það þarf með öðrum orðum að svara áreitinu sem upp- lýsingabyltingunni fylgir fullum hálsi. Það dugar ekki að sitja með hendur í skauti og vona að allt fari á besta veg. Öll arfleifð okkar er í húfi. Með því að sækja fram er hægt að rækta tilfinningu ungs fólks fyrir móðurmálinu og þar með menningararfi sínum, halda lifandi áhuganum á því að varðveita sérstætt og einstakt sjónarhorn okkar á heim- inn. Án sérstöðunnar myndum við standa uppi raddlaus í heimskórnum, það skiptir nefnilega ekki máli hversu vel við tölum erlend tungumál ef við höfum ekkert sérstakt fram að færa. Þetta var í raun það sem Toshiki Toma vildi að Islend- ingar hefðu í huga þegar þeir fjölluðu um tungumálakunn- áttu innflytjenda. Töluvert hefur verið rætt um mikilvægi þess að innflytjendur hljóti góða kennslu í íslenskri tungu. Tungan er lykillinn að samfélaginu og engin von til þess að útlendingur sem sest hér að geti aðlagast og orðið virkur þjóðfélagsþegn nema hann nái sæmilegu valdi á henni. Um þetta eru allir sammála. Toma benti hins vegar á að ein- stakt og fjölbreytt sjónarhorn innflytjenda á íslenskt þjóðfélag skipti meira máli en hvort þeir geta lýst því á góðri eða nánast lýtalausri íslensku. Menning nýbúa er okkur jafn mikill fjársjóður og íslensk menning er heimin- um. Fjölbreytnin hlýtur að auðga. Davíð Oddsson, forsætisráðherra, á viðskiptaþingi Verslunarráðs Islands Ríkið ekki sýnt gott for- dæmi í kjaramálum Gagnverkandi hagsmunir og mismunandi sjónarmið í sjávarútvegi gera það að verkum að svo virðist sem engin sátt geti tekist um eitt eða neitt í þeim efnum nema allir eigi jafnlítið, að því er fram kom í ræðu forsætisráðherra á * viðskiptaþingi Verslunarráðs Islands. Morgunblaðið/Golli Davíð Oddsson forsætisráðherra flutti ræðu á viðskiptaþingi í gær. s Ahuffl á breyttu kerfi í fjármögnun sjúkrahúsa að erlendri fyrirmynd Morgunblaðið/Ásdís Fjárframlög verði tengd umfangi umönnunar Nýtt kerfi við fjármögnun í sjúkrahúsa- rekstri er að ryðja sér til rúms á Norður- löndunum og eru Norðmenn komnir einna lengst í því efni. Jóhannes Tómasson kynnti sér kerfíð og komst að því að for- ráðamenn sjúkrahúsanna í Reykjavík myndu gjarnan vilja sjá það hér. DAVÍÐ Oddsson, forsætisráð- herra, sagði í ræðu á við- skiptaþingi Verslunarráðs íslands í gær að sáttargjörð meðal þjóðarinnar um sjávarútvegsmál yrði að felast í því að þjóðin fyndi með beinum og óbeinum hætti hvemig auð- lindin nýttist henni sem best. Það væri með öðrum orðum ekki hægt að ímynda sér neina sátt aðra en þá sem örugglega væri í þjóðarþágu. „Þegar hagkvæm fiskveiðistjómun leiðir til verðmætasköpunar sem aftur leiðir til fjárfestingar á nýjum sviðum sjávarútvegs er það lagt út á versta veg. Þegar hagkvæm fiskveiðistjómun leiðir til verðmætasköpunar sem aftur leiðir til fjárfestingar á öðram sviðum en í sjávarútvegi er það einnig sérstakt umkvörtunarefni. Verst virðist þó vera ef fé, sem safnast hefur fyrir í öðram atvinnugreinum, er notað til að fjár- festa í sjávarútvegi. Hagsmunimir era svo gagnverkandi og sjónanniðin svo mismunandi að svo virðist sem engin sátt geti tekist um eitt eða neitt nema að allir eigi jafnlítið. Sæl er sameiginleg eymd, var einhvem tíma sagt. í kjölfar atburða undanfarinna vikna hafa reyndar komið fram tillögur sem myndu stuðla að því hratt og mark- visst, yrðu þær að veraleika, að hin um- deildu verðmæti rýmuðu og þrætuepl- ið hyrfi. Slík sátt eymdaiinnar er þó vitaskuld ekki eftirsóknarverð, enda myndi hún ekki vara lengi. Af tvennu illu tel ég núverandi ósætti vera betra,“ sagði Davíð. Hann sagði að sér væri ekki Ijúft, en á hinn bóginn skylt, að viðurkenna að ríkisvaldið hefði ekki gengið á undan með góðu fordæmi í kjaramálum. Reynt hefði verið að beita nýju verklagi við útfærslu þeirra kjarasamninga sem þegar hefðu verið gerðir og hefðu reyndar einir og sér verið skynsamleg- ir og farin sú leið að láta stofnanimar sjálfar fylla út í meginrammann. Svo hefði hins vegar farið að rammarnir hefðu ekki verið virtir og fjölmargar stofnanir farið langt út fyrir þær fjár- heimildir sem löggjafinn hefði ætlað þeim. Annað sem einnig hefði dregið úr stemmningunni í aðdraganda kjara- samninga væra vaxtarverkir vegna ört stækkandi efnahagslífs þjóðarinnar um margra ára skeið. Megi þar nefna verð- bólgukipp og ýmsa yfimýtta fram- leiðsluþætti í hagkerfinu. Bráðnauðsynlegt að kynda ekki undir „Vonandi draga samningsaðilar þann lærdóm af stöðunni sem upp er komin, að nú sé bráðnauðsynlegt að kynda ekki undir. Þvert á móti þurfi að verja það kaupmáttarstökk sem laun- þegar hafa tekið á undanfómum áram, og leggja grann að áframhaldandi kaupmáttarbata. Verður að treysta því að á vettvangi opinberra samninga tak- ist í þetta sinn að gæta hins sama, þótt þeir sem þar takast á virðist telja að al- menn efnahagslögmál eigi síður við í opinberam rekstri en á almenna mark- aðnum,“ sagði Davíð. Hann sagði að verðbólgan hefði sem betur fer ekki haldið áfram að aukast á undanfömum vikum, en því fari þó fjarri að við séum komin fyrir vind í verðlagsmálum. Þvert á móti þuifi að gæta sérlega vel að á næstunni. Enn séu vísbendingar um að olíuverð og fasteignaverð muni ýta vísitölunni upp, þótt flestir hafi talið að það væri komið í hámark. Þá kom fram hjá forsætisráðherra að ríkisstjómin væri að undirbúa að auka enn skattfrelsi lífeyrisspamaðar til þess að ýta undir almennan spamað í landinu, en það væri auk nýlegrar vaxtahækkunar Seðlabankans og víkk- unar á vikmörkum gengisins hluti sam- ræmdra aðgerða. Samhliða myndar- legum afgangi á ríkissjóði og bindingu fjár með sölu ríkisfyrirtækja væri þess- um aðgerðum ætlað að slá á verðbólgu- væntingar og þýðingarmikið væri að aðrir opinberir aðilar ynnu með en ekki á móti ríkinu í þessum efnum. Forsætisráðherra gerði peninga- stefnuna einnig að umtalsefni og sagði að atvinnulíf framtíðarinnar í landinu myndi ætíð bera merki þeirrar peningastefnu sem rekin væri. Sagði hann þá skoðun að tengja beri krónuna evranni hafa ekkert með skynsemi að gera og að ef evran væri gjaldmiðill hér væri verðbólga miklum mun meiri en hún er nú. Innviðir hagkerfis okkar séu í grandvallaratriðum frábragðnir því sem er á meginlandinu og sjávarútveg- ur sé enn undirstöðuatvinnugreinin, þó fleiri stoðir séu sem betur fer óðum að styrkjast. Staðbundin áföll hér á landi, sem aldrei sé hægt að fyrirbyggja full- komlega myndu þess vegna magnast ef evran væri hér gjaldmiðill. Þar sem kaupmáttur gæti ekki minnkað fyrir meðalgöngu gengis yrði eitt af þrennu að gerast: í fyrsta lagi að nafnlaun yrðu lækkuð með handafli, en nánast óhugs- andi væri að slíkt gengi eftir í lýðræðis- ríki. í öðra lagi að fjöldi fólks flyttist frá landinu með tilheyrandi erfiðleikum og sársauka. I þriðja lagi væri sá mögu- leiki fyrir hendi að Evrópusambandið styrkti okkui- um háar fjárhæðir og tæki okkur þannig að sér. „Ég geri ekki ráð fyrir að nokkram þyki þessir kostir vera fýsilegir. Höfum hugfast, hvað þarf að gilda um tvö eða fleiri svæði, ef ákjósanlegt á að vera að nota þar sama gjaldmiðil. Annað hvort þurfa hagkerfi svæðanna að vera samstiga um alla fyrirsjáanlega fram- tíð, eða að fólk flytjist afar auðveldlega á milli svæðanna, nema hvort tveggja sé. Velgengni hins bandaríska hagkerf- is og gjaldmiðils þess byggist meðal annars á því að staðbundnar uppsveifl- ur eða niðursveiflur innan Bandan'kj- anna leiða til þess að fólk færir sig ein- faldlega á milli, jafnvel um langan veg innan þessa stóra ríkis, án þess að þykja tiltökumál, enda býr þjóðin við eitt tungumál. Þótt íslendingar séu landkönnuðir í eðli sínu og reyni jafn- framt að taka vel á móti gestum, sé ég hins vegar ekki fyrir mér að hversdags- legt muni þykja að flytja sig frá Turku til Tálknafjarðar, eða frá Þorlákshöfn til Þessalóniku, eftir því sem stendur á fyrir þorski, síld og loðnu. Á hinn bóg- inn gerir það ríkar kröfur tfi íslenskrar hagstjómar að búa við sjálfstæða mynt. Kollsteypur fortíðar og óvarfær- in meðferð ríkisfjármála er mikil ógnun og áhætta sem við getum ekki lengur leyft okkur að taka,“ sagði Davíð. Hann sagðist margoft hafa sagt að ekki væri hægt að útiloka aðild íslands að Evrópusambandinu um ókomna tíð, ekki síst ef sambandið þróaðist í átt til opins og náins viðskiptasambands, en í átt frá pólitísku sambandsríki. „Um þessar mundir er þó ekkert sem þrýstir á aðild íslands, enda hneigist samband- ið nú í þveröfuga átt við okkar hags- muni. Émbættismannakerfi Evrópu- sambandsins og sú reglusetning sam- bandsins sem ekki tengist viðskiptum og innri markaðinum verður sífellt fyr- irferðarmeiri í aðildarríkjunum. Æ víð- feðmara verður hið pólitíska inngrip sambandsins í þætti sem fram til þessa hafa verið hluti lýðræðislegs ákvörðun- arferlis aðildarríkjanna, t.a.m. í skatta- og velferðarmálum. Smærri ríki sam- bandsins hafa sífellt minni áhrif á sín mál og manna færri lykilstöður á veg- um þess. Hin fljótfæmislegu viðbrögð ráðherraráðs Evrópusambandsins við kosningum og stjómarmyndun í Aust- urríki kristalla vel þessi síauknu af- skipti og hafa fært þau á nýtt og áður óþekkt plan. Meginskýringamar sem utamfidsráðherrar Þýskalands og Bretlands gáfu á þeirri aðgerð voru ekki hin ógeðfelldu pólitísku sjónarmið formanns annars stjómarflokksins í kynþáttamálum, heldur var áherslan á að sá væri andvígur stækkun Evrópu- sambandsins og auknu samranaferli. Því væri ekki hægt að samþykkja í Brassel að flokkur hans tæki þátt í rík- isstjóm í Austurríki." Aldrei undanþága frá sameigin- legri sjávarútvegsstefnu Davíð bætti því við að núverandi og fyrrverandi leiðtogar ESB hefðu marg- oft tekið fram við íslenska ráðamenn að Island myndi aldrei fá varanlega und- anþágu frá sameiginlegri sjávarútvegs- stefnu sambandsins. Þá sé enginn fótur fyrir þeirri fullyrðingu að framkvæmd ÉES-samningsins gangi ekki nógu vel og samningurinn sé jafnvel að daga uppi. „Mér þykir því einsýnt að næstu ár sé hag okkar best borgið með víð- tækum viðskiptum og samskiptum við Evrópusambandið á grandvelli EES- samningsins. Þannig getum við nýtt sérstöðu okkar í sjávarútvegi, á vinn- umarkaði, og að hluta til í skattamál- um, tii að bæta samkeppnisstöðu lands- ins. Um leið tel ég kjörið að nýta legu okkar í miðju Atlantshafi til að treysta tengslin við Norður-Ameríku samhliða EES-samstarfinu, og bæta meðal ann- ars aðgang okkar að sameiginlegum markaði NAFTA umfram það sem tollabandalag ESB getur boðið upp á,“ sagði Davíð. Hann gerði einnig að umtalsefni ís- lenskan verðbréfamarkað, sem væri bamungur en í öram vexti. Sífellt fletri heimili í landinu taki þátt á þessum markaði þó í mismiklum mæli sé. Það sé jákvæð þróun sem stjórnvöld hafi markvisst ýtt undir. Markmiðið sé að sem stærstur hluti þjóðarinnar eigi þannig aðild að atvinnurekstri í ein- hverri mynd. Mikilvægt sé þó að fag- menn minni leikmenn á að hlutabréf hækka ekki alltaf í verði heldur lækka stundum. Varast beri að draga upp þá mynd af hlutabréfamarkaðnum að hann sé eins konar eilífðarvél sem sí- fellt skapi aukinn auð. Eigum ýmislegt ólært „Hinn öri vöxtur viðskipta með bréf af ýmsu tagi hefur einnig leitt í ljós að við eigum ýmislegt ólært. Ekki þá svo mjög í flóknum fræðum fjármálanna, þar er hæfileikafólk okkar fljótt að læra. Fremur þurfum við að taka á okkur rögg á hálu svelli freistinganna, þegar stórar fjárhæðir streyma allt í kringum okkur og hagsmunasköranin er hvarvetna. Ég hóf á síðasta ári að ræða um siðferði á fjármálamarkaði. Fram kom að tiltekið fyrirtæki ráð- lagði viðskiptavinum sínum að selja ákveðin bréf jafnharðan og þau vora keypt fyrir þá. Ekki er neitt við það að athuga, heldur hitt að kúnnamir vora ekki upplýstir um, að það væri fyrir- tækið sjálft sem ætti lífið að leysa við að kaupa sömu bréf af þeim eða öðram. Síðar margfölduðust þessi bréf í verði. Öll önnur fyrirtæki á markaðnum höfðu einmitt ráðlagt viðskiptavinum sínum á gagnstæðan veg en þama var gert,“ sagði Davíð. „Þetta var óvenju skýrt dæmi um vafasama viðskiptahætti. Þó er það enginn allsherjardómur yfir því fyrir- tæki. Önnur fjármálafyrirtæki hafa heldur ekki algerlega hreinan skjöld í viðskiptasögu sinni. Víða má finna grá svæði í starfseminni undanfarin miss- eri. Sú almenna umræða sem átt hefur sér stað um verklagsreglur, innherja- viðskipti, undanþágur, upplýsingagjöf og siðgæði á fjármálamarkaði hefur staðfest að ekki sjást allir fyrir í fjár- málavafstrinu. Vonandi leiðir umræðan til þess að fyrirtækin, og þeir starfs- menn sem era í lykilstöðu og bera þyngstu siðferðisbyrðina, hagi störfum sínum hér eftir þannig að yfir vafa sé hafið. Hitt væri verra ef afleiðingin yrði einungis kattarþvottur, vegna ein- faldra atriða sem í hámæli hafa komist. Verst af öllu væri ef almennrar tor- tryggni færi að gæta á markaðnum. Þá gæti góður árangur og mikil uppbygg- ing farið fyrir lítið á skömmum tíma,“ sagði hann ennfremur. HVERT prósent í rekstri yf- ir 20 milljarða króna sjúkrahúsakerfis lands- manna kostar ekki minna en 200 milljónir króna. Framlög ríkis- sjóðs til heilbrigðisstofnana hafa auk- ist talsvert undanfarin ár og virðist því ómaksins vert að fylgjast vel með breytingum á hverju prósenti. Víða erlendis hafa framlög til sjúkrahúss- þjónustu nú verið tengd sjúklingun- um sem sjúkrahúsin sinna. Hafa sjúklingar verið flokkaðir í ákveðna hópa, kostnaður reiknaður út og greitt samkvæmt því. Stjórnendur sjúkrahúsanna í Reykjavík hafa bent á nauðsyn þess að kanna hvort fara megi aðra leið í fjármögnun sem þýtt gæti betri stjórn á fjármálunum. Þannig sam- þykkti stjórn Sjúkrahúss Reykjavík- ur ályktun þess efnis í fyrra og er þar bent á þá leið að fjármagnið fylgi sjúklingnum. Þá benti fjárlaganefnd á það við afgreiðslu síðustu fjárlaga að kanna þyrfti við afgreiðslu næstu fjárlaga hvernig breyta mætti fjár- mögnunarkerfi sjúkrahúsa á íslandi. Fastar fjárveitingar gallaðar Fjármögnun sjúkrahúsa hefur hér- lendis byggst á föstum fjárveitingum og aukafjárveitingum þegar svo ber undir að stefnt hefur í halla. Er þá miðað við rekstrarkostnað nokkurra síðustu ára og uppfært samkvæmt verðlagsbreytingum. Gall- inn við þetta kerfi er sá að erfitt er að breyta fjár- framlagi til samræmis við örar breytingar í sjúki’a- húsarekstri sem verið hafa síðustu árin. Sem dæmi um þetta má nefna að innlögnum á bráðadeildir sjúki-ahúsanna í Reykjavík hefur fækkað mjög allt frá 1991 og fram undir þetta, legudagar era mun færri og fækkað hefur verið sjúkrarúmum. Á móti kemur að þjónusta göngu- deilda hefur aukist þar sem unnt er að framkvæma ýmsar aðgerðir og rann- sóknir án innlagnar og hluti þjónust- unnar hefur flust á læknastofur utan spítala. Forráðamenn sjúkrahúsa hafa ítrekað bent á þá staðreynd að við þessar breytingar hafa mál þróast þannig að sjúklingar sem leggjast á spítalana era nú veikari en áður var. Kostnaður við meðferð hvers sjúkl- ings hefur því farið vaxandi. Nefna má einnig sem dæmi að ýms- ar aðgerðir er unnt að gera með mun skemmri innlögn en áður var. Sjúkl- ingurinn er því kominn mun fyrr til heilsu og getur tekið upp störf sín á ný. Spítalinn hefur hins vegar kostað mun meira til, notað dýr einnota efni við aðgerð og því er hagnaður hans enginn. Sjúklingurinn og samfélagið spara en sjúkrahúsið verður að kosta meira til. Kostnaður betur skilgreindur Á síðari áram hefur allur kostnaður sjúkrahúsa við aðgerðir og meðferð sjúklinga verið mun nánar skilgreind- ur. Þannig hafa orðið til upplýsingar um hvað ákveðnar aðgerðir kosta í heild, þ.e. aðgerðin sjálf, lega á spítala eftir aðgerð, lyfjakostnaður og um- önnun þann tíma. Þessi vitneskja gef- ur stjórnvöldum og forráðamönnum sjúkrahúsa betra færi á að fylgjast með rekstrinum og gerir þau betur í stakk búin til áætlanagerðar. Víða erlendis hefur ver- ið tekin upp sú skipan á fjárveitingum til spítala að sjúklingum er skipt í hópa, kostnaður við þá reiknaður út og fé til þjónust- unnar veitt í samræmi við það. Bandaríkjamenn voru einna fyrstir til að taka upp þess konar greiningar- tengda hópa eða sjúkdómaflokkun eins og hugtakið verður kallað hér. Á ensku er þessi flokkun kölluð „diagn- osis related groups“, DRG, og er sú skammstöfun notuð á Norðurlöndun- um þar sem heilbrigðisyfirvöld hafa verið að fikra sig inn á þessa braut. Nærri 500 flokkar sjúkdóma Kerfið er í stóram dráttum þannig að búnir hafa verið til nærri 500 flokk- ar sjúkdóma og í hverjum þessara 500 eru síðan nokkrir undirflokkar. Þeir taka einkum til líkamlegra sjúkdóma en ekki hafa enn verið skilgreindir flokkar fyrir til dæmis geðsjúkdóma eða öldranarsjúkdóma. Sjúkrahúsið skráir greiningu sjúklinga og þjón- ustu og fær fjárframlög á grundvelli þessarar skráningar. Gerð er ákveðin rekstraráætlun sem fjárveitingar árs- ins byggjast á og síðan era reikningar gerðir upp í árslok. Miðað er við til- tekinn sveigjanleika og greiðir sjúkrahús til baka ef umfang þjónust- unnar hefur verið minna en áætlanir gerðu ráð fyrir en fær frekari fjár- veitingu hafi starfsemin verið meiri. Ávinningurinn við kerfið er meðal annars sá að fjárframlögin eru í betra samræmi við veitta þjónustu, hvorki of né van. Hægt er að fylgjast mun nánar með öllum kostnaði og bera saman kostnað við einstaka þætti frá einum tíma til annars og meta þróun- ina og bera sjúkrahúsin saman, inn- anlands og milli landa. Hægt er að kanna hvort notuð era of dýr lyf, hvort sjúklingar séu sendir í of miklar rannsóknir og þar fram eftir götunum. Meðal galla við kerfið má nefna að sjúkdómaflokkunin er stundum ekki nógu sértæk. Þannig gæti þurft að grípa til ýmissa hliðarráðstafana eða aðgerða við sjúkling sem aðeins á að taka úr botnlangann eftir að hann hefur verið greindur með botnlanga- bólgu. Vegna vanda sem upp koma í aðgerðinni eða fylgikvilla gæti því þurft að sinna sjúklingnum mun meira og hann því orðið „dýrari“ en sjúkdómaflokkunarkerfið segir til um. Nefna má þó að kerfið er að vissu leyti sveigjanlegt og gerir í ákveðnum tilvikum ráð fyrir að sjúklingur geti flust milli flokka. Þá má nefna að sjúklingaflokkarnir eru mjög misdýr- ir. Þeir sem þurfa á þjónustu heila- og taugaskurðlækninga að halda eru til dæmis sex sinnum dýrari en þeir sem koma á háls-, nef- og eyrnadeildir. Talið er að kostnaður við meðalsjúkl- , ing hérlendis sé kringum 400 þúsund krónur. Taka má kerfið upp í áföngum í Noregi var ákveðið að taka upp sjúkdómaflokkunarkerfið árið 1995 og því hrint í framkvæmd um mitt ár 1997. Danir, Svíar og Finnar hafa einnig verið að taka það í upp. í Nor- egi var fyrsta árið fjórðungur fjár- veitinga til sjúkrahúsdeildanna sem féll undir kerfið með þessum nýju for- merkjum, 40% árið eftir og í fyrra var fjárveiting þeirra til helminga föst fjárveiting en hinn helmingurinn í samræmi við afköst eftir framan- greindu kerfi. Segja má því að fjár- veiting eftir þessu sjúkdómaflokkun- arkerfi sé því eins konar afbrigði' þjónustusamnings þar sem samið er um greiðslur í hlutfalli við tiltekin af- köst. Talið er að slíkir þjónustusamn- ingar eigi betur við í rekstri öldrunar- deilda og hjúkranarheimila. Síðustu 10 árin hefur sjúklinga- flokkunarkerfið Medicus verið í notk- un á Sjúkrahúsi Reykjavíkur en það metur hjúkrunarþarfir sjúklinga og hjúkranarálag á hlutlægan hátt. Einnig er hægt að tengja saman hjúkranarþarfir og kostnað. Nýta má gögn úr þessari sjúklingaflokkun til að mæla breytingar á álagi og er eink- um unnt að styðjast við þetta kerfi við gerð þjónustusamninga á sviði endurhæfingar og öldranarlækninga. ,• Áhugi hjá stóru sjúkrahúsunum I samtölum við nokkra forráða- menn sjúkrahúsanna kom fram að mikill áhugi er fyrir að sjúklinga- flokkunarkerfið verði tekið upp hér- lendis. Er sú skoðun uppi bæði á Landspítala og Sjúkrahúsi Reykja- víkur og var komin fram áður en sam- eining spítalanna var ákveðin. Tals- verð vinna er þó framundan áður en hægt er að taka upp kerfið og Ijóst er einnig að notkun þess fylgir talsvert umstang og vinna vegna nákvæmrar1'- og ítarlegrar skráningar. Forráða- menn spítalanna hafa tjáð þennan áhuga sinn í ráðuneytum heilbrigðis- mála og fjármála og bíða viðbragða. Vonast þeir til að hefja megi af alvöru undirbúning og jafnvel koma kerfinu á í einhverjum mæli við gerð næstu fjárlaga. Aukin vinna vegna mikillar skráningar Er eins konar afbrigði þjón- ustusamnings

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.