Morgunblaðið - 17.02.2000, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Kvörtunar- og upp-
lý singaþj ónusta
N eytendasamtakanna
N eytendasamtökin
starfrækja öfluga
kvörtunar- og upplýs-
ingaþjónustu þar sem
neytendur geta fengið
upplýsingar um laga-
legan rétt sinn. Einnig
geta neytendur fengið
aðstoð við að ná fram
rétti sínum með form-
legri meðferð kvörtun-
armála. Þessi aðstoð
er innifalin í árgjaldi
félagsmanna en aðrir
greiða málsskotsgjald.
Félagsmönnum stend-
ur auk þess til boða
viðtal hjá lögfræðingi
án endurgjalds. Mál
þau sem kvörtunarþjónustan fæst
við eru afar fjölbreytt og það er
fátt sem Neytendasamtökin láta
sig ekki varða sé um að ræða
ágreining milli neytenda og selj-
enda. Þessi þjónusta er vel nýtt af
félagsmönnum og hefur árangur af
starfi hennar verið afar góður.
Kvörtunarþjónustan hefur á hverju
ári milligöngu um að leysa nokkur
hundruð ágreiningsmál í gegnum
aðalskrifstofu sína í Reykjavík og
skrifstofur á Akureyri og Isafirði.
Hlutlaus sáttaaðili
Hinn góða árangur kvörtunar-
þjónustunnar má helst þakka
starfsreglum hennar. Við meðferð
kvörtunarmála er lögð á það
áhersla að sjónarmið beggja aðila
komi fram og sem mestar upplýs-
ingar liggi fyrir um málið. Neyt-
endasamtökin starfa því sem hlut-
laus sáttaaðili og hefur það sýnt sig
að seljendur og framleiðendur
virða milligöngu Neytendasamtak-
anna í langflestum tilvikum. Selj-
endur og fyrirtæki hafa auk þess í
auknum mæli frumkvæði að því að
setja sig í samband við samtökin til
að leysa úr ágreiningi milli þeirra
og neytenda.
Ódýr lausn mála
Að leita réttar síns fyrir dómstól-
um getur verið afar kostnaðarsamt
og margir veigra sér við því þótt
þeir telji að á sér hafi verið brotið.
Þetta á einkum við í smærri málum
þar sem neytandinn sér fyrir að
kostnaðurinn við að leita réttar síns
yrði hærri en krafa hans. Því er af-
ar mikilvægt að fyrir hendi sé
kvörtunarþj ónusta
eins og sú sem Neyt-
endasamtökin reka.
Þangað geta neytend-
ur leitað með deilumál
sín og fengið úrlausn,
ókeypis ef um félags-
menn er að ræða, ann-
ars með því að greiða
kvörtunargjald.
Kvörtunar- og
úrskurðarnefndir
Til að tryggja enn
betur ódýra og skjót-
virka leið fyrir neyt-
endur til að ná fram
úrlausn deilumála
sinna við seljendur
hafa Neytendasamtökin í samvinnu
við önnur félög og hagsmunaaðila
sett á stofn sex kvörtunar- og úr-
skurðarnefndir. Þessar nefndir eru
kvörtunarnefnd Neytendasamtak-
anna og Félags íslenskra ferða-
skrifstofa sem fjallar um ágreining
Þjónusta
Ljóst er, segir
Telma Halldórsdóttir,
að starfsemi samtak-
anna er afar mikilvæg
fyrir neytendur.
neytenda og ferðaskrifstofa, kvört-
unarnefnd Neytendasamtakanna
og Félags efnalaugaeigenda sem
fjallar um ágreining neytenda við
þvottahús og efnalaugar, úrskurð-
arnefnd Neytendasamtakanna,
Húseigendafélagsins og Samtaka
iðnaðarins sem fjallar um ágreining
vegna þjónustu iðnaðarmanna og
iðnfyrirtækja, kvörtunarnefnd
Neytendasamtakanna, Kaup-
mannasamtaka Islands og Samtaka
samvinnuverslana sem fjallar um
ágreining neytenda og seljenda
vöru, úrskurðarnefnd um viðskipti
við fjármálafyrirtæki sem fjallar
um ágreining neytenda og fjár-
málafyrirtækja og úrskurðarnefnd
í vátryggingamálum sem fjallar um
ágreining neytenda og vátrygg-
ingafélaga. Þær fjórar fyrst nefndu
hafa aðsetur hjá Neytendasamtök-
unum. í nefndunum sitja fulltrúar
beggja deiluaðila og er formaður
þeirra löglærður og tilnefndur af
því ráðuneyti sem nefndin heyrir
undir. Til að leggja mál fyrir nefnd-
irnar þarf neytandinn að greiða
kvörtunargjald sem er á bilinu
1.000 til 10.000 krónur. Fallist
nefnd á kröfur neytandans að öllu
eða einhverju leyti fær hann mál-
skotsgjaldið endurgreitt. Úrskurð-
ur nefndarinnar útilokar aldrei rétt
neytandans til að fara með málið
fyrir dóm.
Öflug Neytendasamtök -
þinn hagur
Neytendasamtökin eru einu sam-
tökin hér á landi sem vinna að
hagsmunum neytenda almennt.
Auk þess að reka árangursríka
kvörtunar- og upplýsingaþjónustu
standa samtökin fyrir öflugu verð-
lagseftirliti, útgáfu Neytendablaðs-
ins, veita mikilvægar upplýsingar á
heimasíðu sinni www.ns.is, og sinna
almennri hagsmunagæslu fyrir
neytendur. Það liggur því í augum
uppi að starfsemi samtakanna er
afar mikilvæg fyrir hinn almenna
neytanda. Stjórnvöld hafa hins veg-
ar sýnt starfsemi samtakanna lítinn
skilning og eru þau því að lang-
stærstum hluta rekin fyrir félags-
gjöld öfugt við systursamtök á öðr-
um Norðurlöndum. Neytenda-
samtökin eru því afar háð
félagsmönnum sínum og ættu flest-
ir neytendur að sjá hag sinn í því
að vera í samtökunum.
Höfundur er lögfræðingur
Neytendasam takanna.
Bókhaldskerfi
KERFISÞRÓUN HF.
Fákafeni 11 > Sími 568 8055
http://www.kerfisthroun.is/
Telma
Halldórsdóttir
FIMMTUDAGUR17. FEBRÚAR 2000
Við bjóðum Apótek Hringbrautar
velkomin hóp söluaðila Stendhal
á Islandi.
í dag og á morgun
föstudag frá kl. 15-18
Glæsilegir kaupaukar
fylgja með kaupum á
Stendhal vörum.
Apótek Hringbrautar
Hringbraut 119 - S. 511 5070
'<*r
Opið daglego
kl. 10-18,
laugardaga
kl. 10-14
Oáunn
tískuverslun
v/Nesveg, Seltjan
Sími 561 1680
gardeur- buxur fóst í þremur skúlmlengdum (stuttar, venjulegur og síðar)
www.mbl.is
iokkískautai
Reimaði
Stærðir 37-4
Veri
Áður kr. 5L3£
Nú kr. 6.52
Listskautar: Vinil
Ú Hvítir: 28-44. Svartir: 33-46
_Stærðir 28-36
Áður kr.A&fff
kr. 2.941.
5ir 37-46
r .4x689
r. 3.282
Hokkiskautar:
Smelitir
Stærðir 36-46
utar:
29-41
Verð:
Áður kr. /W089
Nú kr. 3.492
Listsk;
Leður
Hvítir:
Stærðir 31-41
Verð:
Áður kr.jBÆ4T
Nú kr. 4.374.
Svartir:
Stærðir 36-45
Áður kr.£^74
Nú kr. 4.532
Opið laugardaga frá kl. 10-14
Skeifunni 11, sími 588 9890
Barnaskautar
(Smelluskautar)
Stærðir 29-36
Verð:
Áður kr.3Æ69
Nú kr. 2.792