Morgunblaðið - 17.02.2000, Síða 60
60 FIMMTUDAGUR 17. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Frá A-0
Drag-kvðld verður haldið á Spotiight iaugar-
dagskvöld þar sem Paul Oscar and His Super Duper
Team of Drag Queens koma fram.
laugardagskvöld er
tecknokvöld með dj.
Tommy Hellfire.
Húsið opnað kl. 23.
Aðgangur ókeypis.
■ KRINGLUKRÁIN
Þeir Rúnar Júlíusson
og Sigurður Dag-
bjartsson leika
fímmtudags-, föstu-
dags- og laugardag-
skvöld. A sunnudags-
kvöld leikur GR.
Lúðvíksson.
■ KRISTJÁN IX.,
Grundarfirði A laug-
ardagskvöld leikur
hljómsveitin Undryð.
■ LEIKHÚSKJALL-
ARINN Á fóstudags-
og laugardagskvöld
verður Geir Flóvent
nýi diskótekarinn í
búrinu með það allra
besta í danstónlistinni.
■ ÁLFOSS FÖT BEZT Hljómsveit-
in Ljósbrot áður hljómsveitin Blístró
sér um danstónlistina fóstudags- og
laugardagskvöld.
■ ASGARÐUR, Glæsibæ Hljóm-
sveitin KOS leikur fyrir dansi föstu-
dagskvöld. Húsið opnað kl. 22. Á
laugardagskvöld er harmonikud-
ansleikur frá kl. 22. Félagar úr Har-
monikufélagi Reykjavíkur leika fyrir
dansi. Á sunnudagskvöld er dans-
leikur með Caprí-tríó frá kl. 20.
Leiksýningar miðv. og föstud. kl. 14
og sunnudaga kl. 17.
■ BRASSERIE BORG Fimmtudags-
kvöldið 17. febrúar verður djass-
kvöld þar sem Sigurður Flosason og
félagar leika. Kynnt verður ferða-
áætlun Samvinnuferða-Landsýnar.
Nýútkominn bæklingur liggur
frammi. Einn gestur vinnur ferð fyr-
ir tvo til London á Ronnie Scott’s.
Boðið verður upp á fordrykk sem er
innifalinn í aðgangseyri sem er 1.000
kr. Sérstakur matseðill í tilefni
kvöldsins. Kynnir kvöldsins er Anna
Björk Birgisdóttir.
■ BREIÐIN, Akranesi Hljómsveitin
Papar leika föstudagskvöld.
■ BROADWAY Á fóstudagskvöld
verður sýningin Laugardagskvöld á
Gili þar sem ýmsir listamenn koma
fram, m.a. Álftagerðisbræður, Raggi
Bjama og Öskubuskur. Lúdó sextett
og Stefán leika fyrir dansi. Á laugar-
dagskvöld er Bee Gees-sýning þar
sem fímm strákar flytja þekktustu
lög Gibb-bræðra. Danssveit Gunn-
ars Þórðarsonar leikur fyrir dansi
ásamt söngstjömum Broadway.
■ CAFÉ AMSTERDAM Á fóstu-
dags- og laugardagskvöld leika
Bjarni Tryggva & Company rokk til
morguns.
■ CAFÉ ROMANCE Breski píanó-
leikarinn Frankie Flame leikur öll
kvöld. Hann leikur einnig iyrir mat-
argesti Café Óperu.
■ CATALINA, Hamraborg
Félagamir Svensen, Hallfunkel og
Perez leika föstudags- og
laugardagskvöld.
■ DUBLINER Hljómsveitin Fiðr-
ingurinn leikur fóstudags- og laug-
ardagskvöld.
■ DUGGAN, Þorlákshöfn Diskótek-
ið og plötusnúðurinn Skugga-Bald-
ur leikur laugardagskvöld ásamt
léttklæddum list-danskonum. Að-
gangseyrir 1.000 kr.
■ FJARAN, Vestmannaeyjum Á
laugardagskvöld leikur hljómsveitin
Papar.
■ FJÖRUKRÁIN Fjaran: Á fóstu-
dags- og laugardagskvöldum leikur
Jón Möller rómantíska tónlist lyrir
matargesti. Fjörugarðurinn: Vík-
ingasveitin leikur íýrir þorragesti.
Dansleikur á eftir.
■ GAUKUR Á STÖNG Á fímmtudag-
skvöld leikur hljómsveitin Dead Sea
Appie og á föstudagskvöld hljómsveit-
in Klamedía-X. Á laugardagskvöld
verður surfpönk með Man og Astr-
oma? Hljómsveitin er að ljúka Evróp-
ureisu sinni á Gauknum. Að auki
verða Kanada og dj. Late Beach ás-
amt leynigestum. Á mánudagskvöld
leikur modaljasshljómsveitin Við-
fjarðarundrin en hljómsveitina skipa:
Guðmundur Pétursson, gítar, Eðvarð
Lárusson, gítar, Þórður Högnason,
bassi og Birgir Baldursson, trommur.
Á þriðjudagskvöld er Stefnumót 23 og
á miðvikudagskvöld leika BP og þeg-
iðu KK sem er djamm-session kvöld
með Bjögga Ploder, Einari Rúnars,
Tomma Tomm og KK.
■ GULLÖLDIN Um næstu helgi
leikur hljómsveitin Jón forseti til kl.
3 bæði kvöldin. Boltinn í beinni og
QfÁp o QfíA Itt*
■ KAFFI AKUREYRI Á fímmtu-
dagskvöld leika þau Elvar Braga og
Harpa Steingríms. Á föstudags-
kvöld er Elli í diskótekinu og á
laugardagskvöld leika þau Sigga
Beinteins og Grétar Örvars.
■ KAFFILEIKHÚSIÐ Á laugar-
dagskvöld koma þeir KK og Magnús
Eiríksson úr skápnum en þeir félag-
ar hafa ekki verið að spila undan-
fama mánuði. Tónleikamir hefjast
kl. 21 og kvöldverður kl. 19.30.
■ KLAUSTRIÐ Á fimmtudagskvöld
leikur Hljómsveit Þorsteins Eiríks-
sonar (Hljómsveit Steina Kruma)
frá kl. 21.30 til 23.30. Hljómsveitina
skipa: Þorsteinn Eiríksson, tromm-
ur, Sigurbjörn Árni Eyjólfsson,
saxafónn, Sveinbjörn Jakobsson,
gítar og Gunnar H. Pálsson, bassi. Á
■ LIONSSALURINN, Auðbrekku,
Kópavogi Áhugahópur um línudans
verður með dansæfíngu
fimmtudagskvöld. Elsa sér um tónl-
istina. Allir velkomnir.
■ MÓTEL VENUS, Borgarfirði Á
laugardagskvöld leikur hljómsveitin
Sixties ásamt nýbyrjuðum söngvara
Jóhannesi Eiðssyni og gítarleikar-
anum Svavari Sigurðssyni.
■ NAUSTIÐ Opið alla daga. Þorra-
matur frá 21. janúar. Reykjavíkur-
stofa bar og koníaksstofa, Vestur-
götu, er opin frá kl. 18. Söng- og
píanóleikarinn Liz Gammon frá
Englandi leikur.
■ NAUSTKRÁIN Hljómsveitin
Upplyfting leikur föstudags- og
laugardagskvöld.
■ NJÁLSSTOFA, Smiðjuvegi 6 Á
föstudags- og laugardagskvöld leik-
ur Njáll úr Víkingband létta tónlist
íyrir eldra fólkið.,
■ NÆSTI BAR Á miðvikudagskvöld
leika og syngja þau Pálmi Sigur-
hjartarson og Berglind Björk frá kl.
23
■ NÆTURGALINN Þau Hilmar
Sverrisson og Anna Vilhjálms leika
og syngja föstudags- og laugardags-
kvöld. Húsið opnað kl. 22.
■ ORMURINN, Egilsstöðum Á
föstudagskvöld verður 50’s og 60’s
rokk-kvöld og á laugardagskvöld
verður haldið kvennakvöld frá kl.
20. Boðið verður upp á fordrykk.
M.a. verður upplestur, Herra Ormur
krýndur, undirfatasýning, skart-
gripasýning, erótískur listdans,
söngatriði o.fl. Staðurinn verður lok-
aður karlmönnum til miðnættis.
Bjössi Hall leikur fram eftir nóttu.
500 kr. inn eftir miðnætti.
■ PÉTURS-PUB Á fóstudags- og
laugardagskvöld leikur tónlistar-
maðurinn Rúnar Þór. Opið til kl. 3.
Boltinn í beinni og stór á 350 kr.
■ PIZZA 67, Eskifirði Á laugar-
dagskvöld leika Jónas sólstranda-
gæi og Róbert Dans. Ókeypis inn
fyrir miðnætti. Miðaverð 500 kr.
■ SJALLINN, Akureyri Hljóm-
sveitin Greifarnir leika laugardag-
skvöld.
■ SKOTHÚSIÐ, Keflavík Hljóm-
sveitin Todmobile leikur laugardag-
skvöld en dansleiknum var frestað
síðustu helgi vegna veðurs. Þeir til
aðstoðar verður dj. rex. Forsala í
Hljómalind. Miðaverð 1.500 kr. í for-
sölu og 2.000 kr. við innganginn.
■ SPOTLIGHT Á fimmtudagskvöld
verður dj. Droopy og á fóstudag-
skvöld verður þemað: Ótrúlega
skemmtilegt. Á laugardagskvöld
verður Drag-kvöld þar sem fram
koma Paul Oscar & His Team og
Super Duper Drag Queens. Palli sér
um tónlistina allt kvöldið. Þeir sem
mæta í dragi fá frítt inn og smá
glaðning.
■ STÚKAN, Ncskaupstað Á föstu-
dagskvöld leika Jónas sólstranda-
gæi og Róbert Dan. Ókeypis inn fyr-
ir miðnætti. Miðaverð 500 kr.
Kvikmyndahátíðin í Berlín
Jeanne Moreau
heiðruðfyrir
ævistarf sitt
Franska stórstjarnan Jeanne Moreau er
heiðursgestur á Berlinale-hátíðinni og
hlaut um síðastliðna helgi Gullbjörninn
fyrir æviverk sitt. Rósa Erlingsdóttir
var viðstödd afhendinguna og horfði á
myndina Mademoiselle frá árinu 1965.
„ÉG ELSKA birni, sérstaklega þá
sem eru úr gulli“, sagði Moreau
þegar hún tók við verlaunagripn-
um. Þá skellti hún gripnum fyrst
upp á vinstri öxl og þaðan rak-
leiðis sigurviss á höfuð sitt. Von
Moritz de Hadeln, forseti kvik-
myndahátíðarinnar í Berlín, veitti
Moreau viðurkenninguna og sagði
ævistarf hennar standa fyrir allt
það sem Berlinale reyndi að
Ieggja áherslu á; fegurð, ungdóm
og Evrópu. „Hátíðin okkar á fyrst
og fremst að vera evrópsk. Ferill
Jeanne Moreau er dæmi um
margbreytileika evrópskar menn-
ingar og hún er lifandi goðsögn
evrópsks kvikmyndaiðnaðar."
’ Á kvikmyndahátíðinni eru
sýndar fjórtán myndir sem
spanna nær fimmtíu ára leikferil
Moreau.
Vona að ég sé metsölubók
Goðsögnin Jeanne Morau hefur
á fimm áratugum starfað að gerð
kvikmynda. Heimsfrægð öðlaðist
hún eftir myndina „Jules og Jim“
(1961/62) sem Francios Truffaut
leikstýrði. Hún þakkar fyrir sig á
tveimur tungumálum, ensku og
frönsku: „Á ensku því það er mál
móður minnar og á frönsku því
það er mál föður míns.“ Sjarmi
þessarar konu er svo mikill að
hann er næstum því áþreifanleg-
ur í Berlinale-Palast. „I kvöld
ætlaði ég að segja eitthvað mjög
merkilegt, en allan daginn er ég
búin að svara sömu spurningun-
um og er einfaldlega úrvinda af
þreytu en jafnframt ólýsanlega
hamingjusöm. Að vita af myndun-
um mínum á hátíðinni neyðir mig
til að líta um öxl. Ég sé líf mitt
sem þykka bók. Ég fletti og get
ekki hætt því, aftur og aftur
minnist ég allra þeirra sem ég
kynntist á þessum ferli. Ég vona
að ég sé metsölubók," sagði Jean-
ne Moreau, augsýnilega mjög
snortin, og bætti við: „Þessi verð-
laun eru til allra þeirra sem ég
hef unnið með.“
Á blaðamannafundi fyrr um
daginn sagði hún að vinur henn-
ar, leikstjórinn Roger Vadim,
væri nýlátinn og að hún myndi
biðja fyrir honum. Þar að auki
sagði hún viðstöddum frá sínu
næsta verkefni. Hún leikstýrir
kvikmynd eftir handriti Jean
Renoir, sem hann skrifaði fyrir
hana árið 1971 en gafst aldrei
tækifæri til að mynda. Hlutverkið
sem var skrifað fyrir Jeanne Mor-
eau er leikið af yngstu stjörnu
Frakka um þessar mundir,
Juliette Binoche.
í samanburði við evrópskar
kvikmyndir nútímans er Madem-
oiselle, sem sýnd var á hátíðinni,
óvenjuleg mynd. Hún hefur ekki
enn misst neistann sem hneyksl-
aði bíógesti árið 1965.
Hún skilur eftir spurningar hjá
áhorfandanum, spurningar sem
hver og einn finnur ólík svör við.
Eiginleiki sem gerir kvikmynd
þess virði að horfa á hana.
Franska leikkonan Jeanne Moreau I
myndinni „La Notte“ frá árinu 1960.
Reuters
Jeanne Moreau tyllti gullna birninum á öxl sér.