Morgunblaðið - 22.02.2000, Síða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 22. PEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Ráðherrasirkus
Blekktur ráðherra strunsaði út
Upphlaup varð á fundi Markaðs- og atvinnumálanefndar Reykjanesbæjar
með þingmönnum, sveitarstjómarmönnum og öðrum hagsmunaöilum um ( ,
tvöföldun Reyk anesbrautar i Eldborg í Svartsengi gær þegarÁmi M. . I'
Sveiattan bara. Þið kunnið ekki einu sinni leikreglurnar, þið eigið ekki blekkja mig.
Það er ég sem á að blekkja ykkur, asnarnir ykkar.
Heimsókn forsetans til
Indlands frestað öðru sinni
FYRIRHUGAÐRI heimsókn Ólafs
Ragnars Grímssonar, forseta ís-
lands, til Indlands hefur verið
frestað um nokkra mánuði. I til-
kynningu frá forsetaskrifstofunni
segir að ástæður frestunarinnar
séu einkum þær að ekki hafi reynst
unnt að skipuleggja þá dagskrá á
sviði verslunar og viðskipta sem
ætluð var innan þess tímaramma
sem heimsókninni var settur í
mars.
Fulltrúar indverskra og ís-
lenskra stjórnvalda vilji að vandað
sé til heimsóknarinnar þar sem um
sé að ræða fyrstu heimsókn forseta
Islands til Indlands.
Þetta er í annað sinn sem heim-
sókn forsetans til Indlands er
frestað, en upphaflega var búið að
tímasetja upphaf hennar 20. mars.
Henni var síðan frestað um viku.
Nú er ljóst að ekki verður af heim-
sókninni fyrr en í sumar eða haust.
Ferðaskrifstofan Samvinnuferð-
ir-Landssýn hafði skipulagt og
auglýst ferð til Indlands á sama
tíma og heimsóknin átti að fara
fram, þ.e. 27. mars til 3. apríl.
Helgi Jóhannsson, framkvæmda-
stjóri Samvinnuferða, sagði að
ákvörðun um frestun forsetaheim-
sóknarinnar hefði engin áhrif á
ferð Samvinnuferða. Margir hefðu
sýnt ferðinni áhuga og því yrði
haldið áfram að bóka í hana.
VICTOR - klæðaskápur úr beykilitu
melamíni. Bioi x H203 x D55 sm.
Einnig fáanlegur f kirsuberjalit.
Hafðu pláss fyrir meira
BLITZ - klæðaskápur úr beykilitu melamíni.
B181 x H197 x D557sm. Einnig fáanlegur í kirsuberjalit.
HUSGAGNAHOLLIN
Bfldshðfði 20 110 Reykjavfk Síml 510 8000 www.husgagnahollin.is
Hjónanámskeið um land allt
Hægtað
læra að
leysa mál
Þórhallur Heimisson
Fræðsludeild
kirkjunnar og séra
Þórhallur Heimis-
son hafa í vetur staðið
fyrir hjónanámskeiðum
víða um land. Þessi nám-
skeið eru ætluð öllum í
hjónabandi og sambúð og
eru að sögn séra Þórhalls
hugsuð til sjálfsstyrking-
ar fyrir pör.
„Yfir þrjú þúsund
manns hafa mætt á þessi
námskeið og þau síðustu
verða í mars í Þorláks-
höfn og í Hruna í Hruna-
mannahreppi,“ sagði Þór-
hallur ennfremur. En
hvert er inntak þessara
námskeiða?
„Það er leitast við að
fara í gegnum þau vanda-
mál sem geta komið upp í
sambúð og hjónabandi og
bent á ýmsar leiðir til að vinna úr
þeim. Einnig skoðum við það dá-
lítið hvað það er að vera karl-
maður og kona, mismun kynj-
anna í samskiptum og hvernig
þau geta nálgast hvort annað og
skilið hvort annað betur. Þetta
eru ekki fyrirlestrar heldur
meira samtalsform þar sem pör-
in eru látin vinna hvert og eitt
með ákveðin verkefni sem tengj-
ast þeirra sambandi.“
-Hvenær hófust þessi nám-
skeið?
„Þau hófust 1996 í Hafnar-
fjarðarkirkju, ég byrjaði á þessu
þegar ég kom heim frá Svíþjóð
og fyrst ætlað ég að hafa eitt á
vorin og eitt á haustin en vegna
mikillar eftirspurnar varð að
fjölga námskeiðunum. Þau hafa
verið haldin á hverju ári síðan í
Hafnarfjarðarkirkju og í vetur
varð það úr vegna óska og fyrir-
spurna frá prestum úti á landi að
tengja námskeiðin við fræðslu-
deild kirkjunnar og bjóða upp á
þau í söfnuðum landsins. Það eru
prestar á hverjum stað sem óska
eftir námskeiðinu, annast skrán-
ingu og sitja sjálfir námskeiðið,
eftir námskeiðin er boðið upp á
einkaviðöl fyrir þá sem það vilja
og þá eru það prestar á hverjum
stað sem annast viðtölin."
- Teldir þú ástæðu til að koma
svona námskeiðum inn í fram-
haldsskólakerfið okkar?
„Nei, það geri ég ekki, þetta er
ætlað fyrir hjón eða fólk í sam-
búð og þau byggja á þátttöku
beggja maka og því eru þau ekki
heppileg fyrir einstaklinga. Það
hafa komið fram fyrirspurnir frá
einstaklingum en við höfum ekki
getað tekið þá inn á námskeiðin."
- Virðist þér meiri þörf fyrir
svona námskeið í þéttbýli en í
sveitum?
„Nei, alls ekki, það virðist alls
staðar vera sami áhuginn og mér
virðist búseta ekki hafa áhrif á
spurningar og þátt-
töku. Það virðast alls
staðar vera svipuð
vandamál á ferðinni og
áhyggjur og auðvitað
líka gleði og gaman.“
-Eru þessi námskeið tii að
hjálpa þeim sem eru í skilnaðar-
hugleiðingum?
„Þau eru ætluð öllum, bæði
þeim sem eiga við vandamál að
stríða og líka þeim sem vilja
styrkja það sem gott er. Þetta
byggist allt á þeirri vinnu sem
fólkið vinnur sjálft og tekur mið
af aðstæðum þess. Þess vegna er
ekki um fyrirlestra að ræða held-
► Þórhallur Heimisson fæddist í
Reykjavík 30. júlí 1961. Hann
lauk stúdentsprófi 1981 frá
Menntaskólanum á Laugarvatni
og kandítatsprófi í guðfræði frá
Háskóla Isiands 1988. Hann vígð-
ist til Langholtskirkju í Reykja-
vík 1989, var í framhaldsnámi í
Svíþjóð til 1996 og var jafnframt
prestur í sænsku kirkjunni. Hann
var kosinn prestur við Hafnar-
Ijarðarkirkju 1996 og er þar enn.
Þórhallur er kvæntur Ingileif
Malmberg, sjúkrahúspresti á
Landspitalanum í ReyHjavík, og
eiga þau þrjár dætur.
ur samtöl.“
- Hver eru helstu vandamálin
sem fólk ber upp á þessum nám-
skeiðum?
„Þau eru alls staðar þau sömu,
það er tímaleysi og samskipta-
leysi, fjarlægð og ákveðinn doði í
sambúðinni vegna þessa."
-Hvað er hægt að gera í
þessu?
„Við reynum að hjálpa fólki að
forgangsraða verkefnum og
kenna fólki að gefa sér tíma fyrir
hvort annað og sambandið."
- Telur þú að það skorti undir-
búningin undir sambúð og hjóna-
bönd hér á landi?
„Já, ég held að oft sé fólk full-
fljótt til að taka upp sambúð og
geri sér ekki almennilega grein
fyrir hvað það felur í sér. Þetta
einkennir okkur ef miðað er við
t.d. Norðurlandaþjóðirnar hinar.
Við hefjum sambúð og lífsgæða-
kapphlaup fyrr en gerist í ná-
grannalöndunum. Það þyrfti að
undirbúa ungt fólk miklu meira
en gert er fyrir lífið, þar með tal-
ið hvað sambúð feli í sér, hvað
það þýði að eignast börn og að
taka á sig þá ábyrgð sem fjöl-
skyldu fylgir."
- Virðast fjármál vera undir-
rót margra vandamála?
„Ef samband er gott
og traust þá tekst fólki
að vinna sig í gegnum
sjúkdómatímabil, fjár-
málaerfiðleika og ann-
að sem lífið krefst af
okkur að leysa. Fjármálaerfið-
leikar eða aðrir erfiðleikar eru
ekki forsenda sambúðarslita, það
eru frekar vandkvæði í sjálfu
sambandinu - sem stenst svo
ekki þegar gefur á bátinn.
Reynslan sýnir að það má hjálpa
fólki í þessum málum og ég vil
hvetja fólk til að leita sér aðstoð-
ar fyrr en seinna ef erfiðleikar
koma upp í sambandinu.
Fólk ætti að
leita aðstoðar
fyrr en seinna