Morgunblaðið - 22.02.2000, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Rannsdkn á meintum tollsvikum við innflutning íslenskra hesta til Þýskalands
Búast má við
að málaferli
hefjist í haust
„Ekki einn einasti hestur kostaði það
sem stóð á reikningnum - þeir voru
allir dýrari - undantekningarlaust“
RANNSÓKN tollyfírvalda í Þýska-
landi á meintum tollsvikum á inn-
flutningi íslenskra hesta til Þýska-
lands er að miklu leyti lokið og sagði
Wolfgang Dudda, sem stjómar
rannsókninni í Slésvík-Holtsetalandi,
Mecklenburg, Brandenburg og Ber-
lín, í gær að búast mætti við því að
farið yrði að senda út sektir með vor-
inu og höfða mál vegna tollsvika í
haust. Stærsti þáttur rannsóknar-
innar fer fram í Kiel, en einnig er
meðal annars verið að rannsaka þessi
mál í Oldenburg, Múnster, Köln,
Lindau og Trier
Dudda sagði að hann hefði rann-
sakað innflutning á mörg hundruð
hestum til Þýskalands og rétt verð
hefði ekki verið gefið upp í einu ein-
asta tilfelli.
„Ekki einn einasti hestur kostaði
það sem stóð á reikningnum," sagði
hann. „Þeir voru allir dýrari, undan-
tekningarlaust. Þar var heldur ekki
um að ræða þrjú til fjögur hundruð
mörk (10 til 15 þúsund krónur), held-
ur allt að 375 þúsund mörkum (13,6
milljónum króna) eins og hægt er að
sanna í einu tilfelli.“ Einn kaupandi
hefði að meðaltali greitt milli 40 og 50
þúsund mörk (1,4 til 1,8 milljónir
króna) fyrir hest, þótt uppgefið verð í
tollskýrslum hefði verið þúsund
mörk (36 þúsund krónur).
Vitum hver gegndi hvaða
hlutverki
Dudda sagði að hann hefði þegar
náð saman mestum upplýsingum, en
hann biði enn eftir gögnum frá ís-
landi.
„Hvað varðar mína rannsókn er ég
nú að ljúka við að ganga frá málum,“
sagði hann. „Þar á ég við að senda
annað hvort út sektir eða gefa út
ákærur. Eiginlega vitum við hvemig
hlutirnir gengu fyrir sig og hver
gegndi hvaða hlutverki. Við erum
einnig komnir með yfirsýn yfir
stærstu hneykslismálin og ég tel að á
mínu rannsóknarsvæði í norðaustur-
hluta Þýskalands verði rannsókninni
lokið í sumar og annars staðar í
Þýskalandi undir lok ársins eða á því
næsta.“
Hjá ríkislögreglustjóra furðuðu
menn sig á því í desember að þýsk yf-
irvöld hefðu ekki farið fram á gögn
vegna málsins og sögðu einnig að
ekki hefðu borist gögn frá þýskum
rannsóknaraðilum um rannsókn
þess. Dudda lofaði samstarfið við ís-
lensk tollyfirvöld í þessu máli. Hann
sagði að tvíhliða samkomulag væri
milli íslands og Þýskalands og sam-
kvæmt því ætti tollrannsóknarlög-
reglan í Þýskalandi að snúa sér til
tollyfirvalda á íslandi og það væri
síðan hlutverk þeirra að leita sam-
starfs við lögregluyfirvöld á Islandi.
Hann sagði einnig að yfirlýsingar
um að hann hefði komið tómhentur
til íslands á liðnu ári stæðust ekki.
Hann hefði komið með fulla tösku af
sönnunargögnum, sem þýdd hefðu
verið á íslensku. Sannanir lægju því
fyrir.
„Samstarfið við íslensk tollyfirvöld
var frábært," sagði hann. „Þeir voru
framúrskarandi og gildir einu þótt ég
bíði nú eftir gögnum.“ Hann bætti
við að í því sambandi yrði að hafa í
huga að miðað við Þýskaland væri
mannafli á íslandi takmarkaður og
því væri þolinmæði þörf.
Dudda sagði að við rannsókn máls;
ins væri fólki skipt í þrjá flokka. í
fyrsta lagi væru þeir, sem með glæp-
samlegum hætti hefðu gerst sekir
um tollsvik á Islandi og í Þýskalandi.
Þetta fólk yrði dregið fyrir rétt í
haust og í síðasta lagi í upphafi næsta
árs.
Síðan kæmu þeir, sem tekið hefðu
við hrossum í Þýskalandi og hefðu
vitað að ekki var allt með felldu, en
hefðu ákveðið að gera ekkert í því.
Þeir gætu átt von á því með vorinu að
fá sektir. Að lokum væru þau tilfelli
þar sem menn hefðu sjálfir gefið sig
fram og þá yrðu þeir einfaldlega látn-
ir greiða vangoldinn skatt.
Ekki yrði látið til skarar skríða
gegn þeim, sem aðeins tengdust inn-
flutningi á einum eða tveimur hest-
um.
í Þýskalandi eru reglumar þannig
að refsa má fyrir skattsvik fimm ár
aftur í tímann, en krefja um greiðslu
vangoldins skatts 10 ár aftur í tímann
frá þeim tíma, sem rannsókn hófst.
Grunur í 20 ár
Dudda sagði að hann gæti ekki
greint frá því hvemig sú rannsókn
sem nú stendur yfir hefði hafist: „En
svo mikið get ég sagt að þetta hefur
staðið yfir í 20 ár og við höfum vitað
af því, þótt ekki hafi verið hægt að
aðhafast neitt. Eg ræddi við fyrrver-
andi tollrannsóknarmann, sem nú er
sestur í helgan stein, og hann sagði
að við hefðum reynt að komast inn í
þetta mál frá 1979, en það hefði ekki
verið hægt að sanna neitt. Það var
meðal annars vegna þess að af hálfu
ykkar yfirvalda [á íslandi] vom
stimplar settir á skjöl, sem ekki
fengu staðist. En þegar við viljum
sanna eitthvað verðum við að hafa
sönnun. Hana gátum við ekki fengið
þar til nú. Þetta vita tollembættis-
menn á íslandi jafn vel og við.“
Dudda kvaðst vera þess fullviss að
íslensk yfirvöld hefðu orðið af jafn-
miklum tekjum og þýsk; ef ekki meiri
þar sem skattar á Islandi væm
hærri.
„Hestarnir vom seldir á hundrað
þúsund krónur hver að því er sagt
var og það fær enginn hest fyrir slíka
upphæð,“ sagði hann og bætti við að
aðeins í þeim málum, sem hann væri
að rannsaka væri um að ræða tvær
milljónir marka, en samanlagt mætti
gera ráð fyrir 12 milljónum marka,
sem dregin hefðu verið undan í
Þýskalandi. í Þýskalandi væm gjöld-
in 18%, en á íslandi um 26%. Menn
gætu því reiknað sjálfir um hvaða
upphæðir væri að ræða fyrir íslensk
yfirvöld.
Dudda sagði að ein ástæðan fyrir
því að nú væri spilaborg tollsvikar-
anna að hrynja eftir að hafa verið í
sigti tollyfirvalda í tvo áratugi sú að
nýir menn hefðu komið til starfa með
reynslu af skipulagðri starfsemi af
þessu tagi.
Þrír eða fjórir útflytjendur
á Islandi
„Ég starfaði til dæmis áður við að
rannsaka skipulagt sígarettusmygl
frá Rússlandi," sagði hann. „Það ger-
ir manni kleift að komast aðeins bet-
ur inn í hugsunarhátt afbrotamanns-
ins. Þeir, sem áður unnu að þessu,
vom vel að sér um skjalasvik af öðr-
um toga. En þama var um skipu-
lagða starfsemi að ræða. Á íslandi
vom þrír eða fjórir útflytjendur, sem
í samstarfi við nokkra bændur, sem
vildu ekki borga tekjuskatt, skiptu
við ákveðinn aðila í Þýskalandi. í
þessu umhverfi gilti einu þótt ég vildi
fá hest og flytja inn með eðlilegum
hætti var það ekki hægt vegna þess
að þessir þrír aðilar sáu til þess að
verðið var alltaf hundrað þúsund
krónur. Ef til vill hefði ég eftir nokk-
ur skipti getað sagt að nú vildi ég
þetta ekki lengur, en það hefði þá
verið of seint því að með því að fá allt
í einu dýrari hesta hefði ég dregið að
mér athyglina. En þessir þrír útflytj-
endur á Islandi skrifuðu alltaf sama
reikninginn, sama hvað hesturinn
kostaði í raun, og sendu í símbréfi
hingað og þýskir embættismenn
tollafgreiddu í samræmi við það. Við-
takandi hestsins gat ekkert gert og
þetta var erfitt að sanna.“
íslenskir hestar, argentínskir
og rússneskir
Innflutningur á íslenskum hestum
hefur ekki aðeins verið til rannsókn-
ar í Þýskalandi undanfarið. Mikið
hefur verið um innflutning á hestum
frá Rússlandi til landsins með þess-
um hærri og reyndar hafa yfirvöld í
Frakklandi og á Bretlandi til rann-
sóknar innflutning á tollsvikum í
sambandi við innflutning á argen-
tínskum hestum, sem notaðir eru til
að spila póló.
Dudda sagði að sama aðferð væri
notuð við innflutning á argentínskum
og rússneskum hestum. 50 þúsund
hrossum hefði verið smyglað frá
Argentínu og hefði þeim öllum verið
gefið sama andvirði í innflutnings-
gögnum, líkt og gert var við íslensku
hestana.
Hann hefur einnig verið að rann-
saka innflutning rússneskra hesta og
sagði hann að sú rannsókn væri að
mörgu leyti einfaldari en á innflutn-
ingi íslenskra hesta. Uppgefið sölu-
verð á rússnesku hestunum hefði
verið 800 til 1.000 mörk (30 til 37 þús-
und krónur). Meginmunurinn á þess-
um málum væri sá að á Islandi hefði
allur útflutningurinn farið í gegnum
ákveðna aðila, en því hefði ekki verið
þannig farið í Rússlandi.
Jarðeðlisfræðingur á Raunvísindastofnun um Yellowstone
„Ekkert ofureld-
gos yfirvofandi“
EKKERT bendir til þess að svokall-
að ofureldgos sé að hefjast í Yellow-
stone-þjóðgarðinum í Wyoming í
Bandaríkjunum að sögn Magnúsar
Tuma Guðmundssonar, dósents í
jarðeðlisfræði við Háskóla Islands. Á
forsíðu Morgunblaðsins í fyrradag
var fjallað um eldgosahættuna í þjóð-
garðinum og vitnað í breska dag-
blaðið The Daily Express. í greininni
var sagt að eldgos á þessum slóðum
myndi geta valdið miklum hörmung-
um um allan heim og að Breska jarð-
fræðifélagið hefði nokkrar áhyggjur
af stöðu mála.
„Hún vakti nú svolítið forvitni mína
þessi frétt svo ég grennslaðist aðeins
fyrir um þetta og athugaði hvort það
væri eitthvað nýtt á seyði,“ sagði Magn-
ús TumL „Ég hlustaði á erindi í haust,
þar sem meðal annars var talað um
mælingar á landrisi og sigi í Yellowstone
og í því kom ekkert fram sem benti til
þess að eldgos væri í aðsigi, þannig að ég
var svolítið hissa þegar ég sá fréttma."
Magnús Tumi sagði að Yellow-
stone væri mjög frægur staður jarð-
fræðilega.
Heitur reitur eins
og fsland
„Þetta er heitur reitur, eins og til
dæmis Hawai og ísland,“ sagði
Magnús Tumi. „Munurinn á íslandi
og Yellowstone er hinsvegar sá að
Yellowstone er inni í miðju megin-
landi og þar er jarðskorpan annarrar
gerðar og miklu þykkari en hér og
við þær aðstæður geta myndast mjög
stór kvikuhólf.
Vitað er um þrjú mjög stór eldgos í
Yellowstone, miklu stærri en þau
eldgos sem við þekkjum. Það elsta
varð fyrir um 2 milljónum ára, en í
því komu um 2.500 rúmkflómetrar af
efni upp, sem er svona eins og 150
sinnum meira en í Skaftáreldum.
Næst gaus í Yellowstone fyrir um 1,2
milljónum ára og síðasta gos var fyr-
ir um 600 þúsund árum.
Ég held að það bendi ekkert til
þess að svona eldgos sé yfirvofandi
og þó að bent hafi verið á það að um
600 þúsund ár hafi liðið á mflli gosa,
þá er ekki hægt að álykta út frá því
að gos sé yfirvofandi. Þá má geta
þess að Yellowstone-svæðið er eitt-
hvert besta vaktaða eldfjallasvæði í
heiminum. Þar eru stöðugar GPS-
mælingar og aðrar mælingai- í gangi,
þannig að mjög náið er fylgst með
landbreytiungum eins og þeim sem
gætu verið forboði eldgoss. Hér á
landi er ekki fylgst eins vel með
neinu eldfjalli, það er helst að Mýr-
dalsjökull komist nálægt því eftir að
vöktun var hafin þar síðasta haust.“
Um aðild Breska jarðfræðifélags-
ins að málinu sagði Magnús Tumi:
„Breska jarðfræðifélagið tók að-
eins saman skýrslu, þar sem fjallað
er um það hvers konar áhrif svona
risaeldgos hefði í dag. I því felst hins-
vegar enginn spádómur um það að
svona stórgos sé yfirvofandi.“
Andlát
OTHAR
ELLINGSEN
OTHAR Edwin Elling-
sen, fyrrverandi for-
stjóri Verslunar O.
Ellingsens hf., er látinn
92 ára að aldri. For-
eldrar Othars voru
Marie Ellingsen frá
Kristiansund í Noregi
og Othar P.J. Elling-
sen, skipasmiður og
kaupmaður í Nord-
krokö í Namdalen í
Noregi.
Othar fæddist í
Reykjavík 27. maí
1908. Hann varð gagn-
fræðingur frá MR 1925
og stundaði verslunar-
nám við Myklands
Handelskole í Þrándheimi 1927-
1928. Frá 1925-1936 var hann
starfsmaður við Verslun O. Elling-
sen og forstjóri frá 1936 til 1992.
Hann var í stjórn Hvals hf. og einn
stofnenda 1947, einn stofnenda
Steypustöðvarinnar 1947 og Trygg-
ingar hf. 1951. Othar var í stjórn
Verslunarráðs íslands 1951 til 1978
og í stjórn Nordmannslaget í
Reykjavík 1933, for-
maður 1935, 1956,
1957 og 1961. Hann
var varaformaður
stjórnar Skíðafélags
Reykjavíkur 1930-
1934. Othar var í
skólanefnd ísaksskóla
1952 til 1962, fulltrúi
Reykjavíkurborgar
við byggingu Isaks-
skóla um tveggja ára
skeið. Hann var for-
seti Rotaryklúbbs
Reykjavíkur 1966.
Othar var norskur
ræðismaður 1957 og
norskur aðalræðis-
maður 1974. Hann
hlaut riddarakross St. Olavsorð-
unnar 1968, Det norske Kommand-
örkorset 1987 og stórriddarakross
hinnar íslensku fálkaorðu 1992.
Eftirlifandi eiginkona Othars er
Sigríður Steingrímsdóttir Elling-
sen og eiga þau saman fjögur eftir-
lifandi börn. Með fyrri eiginkonu
sinni, Ástu Láru Jónsdóttur, átti
Othar eftirlifandi dóttur.
Othar Edwin
Ellingsen.