Morgunblaðið - 22.02.2000, Page 13

Morgunblaðið - 22.02.2000, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 1 3 HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ Jákvæð reynsla af gerð 30 km hverfa í Reykjavík Slysum hefur fækkað og hraðinn minnkað Reykjavík GÓÐUR árangur hefur náðst í fækkun slysa í kjölfar þess að gerð hafa verið svokölluð 30 km hverfi í Reykjavík, en umferðarslysum hefur fækkað í þeim fjórum 30 km hverfum borgarinnar sem gerð voru árið 1996 og 1997. Frá því að leyfílegur hámarkshraði í hverfun- um var lækkaður í 30 km, ásamt öðrum ráðstöfunum, hefur þar orð- ið eitt minniháttar slys, en á hverju ári urðu samanlagt fjögur slys á ári fyrir breytingar í þessum fjórum hverfum. Þar af var rúm- lega þriðjungur alvarleg slys. Árið 1996 voru gerð tvö 30 km hverfi. Annars vegar Lækirnir sem afmarkast af Sundlaugavegi, Sæbraut og Dalbraut, og hins veg- ar Hlíðar vestan Lönguhlíðar. Ari síðar voru útbúin tvö hverfi til við- bótar í þessu skyni; Teigar sem af- markast af Sundlaugavegi, Reykjavegi, Sigtúni og Rringlu- mýrarbraut og síðan Hlíðar austan Lönguhlíðar og sunnan Miklu- brautar. Baldur Grétarsson hjá umferð- ardeild borgarverkfræðings segir að samanlagt hafi orðið um 4 um- ferðarslys að meðaltali innan þess- ara hverfa síðustu fimm ár fyrir framkvæmdir og þar af meira en þriðjungur alvarleg slys. Þá er átt við umferðaróhapp þar sem ein- hver slasast, eignatjón eitt og sér er ekki talið með. Að sögn Baldurs eru þessar tölur þó aðeins vísbend- ingar um minnkandi slysatíðni, þar sem að reynslutíminn eftir breyt- ingar spannar aðeins fáein ár. Hins vegar er reynslan á þessum stutta tíma í samræmi við það sem átt hefur sér stað í Bretlandi í slíkum hverfum. 30 km hverfum fjölgað Þegar hverfum hefur verið breytt í 30 km hverfi er leyfilegur hámarkshraði lækkaður í 30 km, sett eru upp svokölluð „hlið“ við innakstur í hverfin. í því felast ýmsar aðgerðir til að minna öku- menn rækilega á að þeir eru að fara inn í hverfi með 30 km há- markshraða og jafnframt því eru settar hraðahindrandi aðgerðir inni í hverfunum. Baldur segir að ekki séu endilega allar hraðahindr- anir settar upp fyrsta árið, en menn reyni að læra af reynslunni og bæta við hindrunum þar sem þörf krefur. I fyrstu tveimur hverfunum voru nokkrar götur hafðar án innri að- gerða til að meta hvaða lækkun á hraða mætti ná fram með hliðun- um eingöngu. Niðurstaðan varð sú að hraðinn lækkaði og hlutfall þeirra sem óku á 40 km hraða eða hægar jókst verulega. Eftir upp- setningu hverfanna er jafnframt orðið raunhæft fyrir lögregluna að taka á hraðakstri, þar sem ekki þarf lengur að láta ökumenn í friði þar til 60 km hraða er náð. Munur á slysahættu Talsverður munur er á slysa- hættu eftir því hvort að ekið er á 30 km hraða eða 50 km hraða. Þeg- ar ekið er á 30 km hraða eru lík- urnar 10% á því að gangandi veg- farandi látist við ákeyrslu, en við 50 km hraða eru líkurnar orðnar um 85% á því að vegfarandi látist við ákeyrslu. Þar að auki aukast möguleikar ökumanna verulega á því að forða slysi ef ekið er hægar. Hverfum með 30 km hámarks- hraða var að tillögu borgarráðs fjölgað hinn 1. febrúar sl. Þessi nýju 30 km hverfi eru sex talsins: Brúnir, Vogar, Gerði austan Rétt- arholtsvegar, Hörgsland og botn- langar, Mýrar og Hagar og Melar. Morgunblaðið/Jim Smart Sigurður Geirdal bæjarstjóri og Sigurrós Þorgrfmsdóttir, formaður leikskólanefndar, fylgdust með þegar Bjarki Rúnar, Brynja, Arndís og Sturla á Stubbaseli tóku fyrstu skóflustunguna að nýjum leikskóla ásamt Ás- dísi Ólafsdóttur aðstoðarleikskólastjóra og Unni Stefánsdóttur leikskólastjóra. Bráðum kemur nýr leik- skóli Kópavogur BÖRN í leikskólanum Skólatröð tóku fyrstu skóflustunguna að nýjum leikskóla á mótum Kópa- vogsbrautar og Urðarbrautar á fostudag. Áformað er að nýi leik- skólinn taki til starfa fyrir árslok. Að sögn Sesselíu Hauksdóttur, leikskólafulltrúa í Kópavogi, verður nýi leikskólinn rúmlega 600 fermetra hús og þar verður pláss fyrir 86-88 börn samtímis á fjórum deildum. Leikskólinn mun rísa á lóðinni þar sem fyrir er Stubbasel, deild í heilsuleikskól- anum Skólatröð. „Þarna er mjög skemmtilegt umhverfi, mikið af trjám og það verður reynt að halda því sem náttúrulegustu og reka þarna náttúruvænan og vistvænan leik- skóla,“ sagði Sesselia. Sesselía sagði að þörf væri fyrir nýja leikskólann því biðlistar væru eftir leikskólaplássum í bænum enda fjölgar fbúum þar jafnt og þétt. Nýi leikskólinn verður byggður eftir sömu teikningu Sveins ívars- sonar og leikskólinn Núpur í Núpalind, sem tekinn var í notkun um áramótin. Morgunblaðið/Arni Sæberg Afmælis- dans í Folda- skóla Reykjavík MIKIÐ var um dýrðir í Foldaskóla á föstudaginn á opnu húsi í tilefni af 15 ára afmæli skólans. Kennt var samkvæmt stundaskrá en haldnar ýmsar uppákomur, sýn- ingar og kynningar á skólastarfinu. Foreldrar og aðrir velunnarar skólans komu í heimsókn og fylgd- ust með starfinu, horfðu á sýningar bekkjanna og fengu sér kaffisopa. LjósmjTidari Morgunblaðsins var á ferðinni þegar börn úr 1. bekk sýndu dans undir stjórn Heiðars Ástvaldssonar. Borgarstjóri segir höfuðborgarhlutverk borgarinnar birtast í útgjöldum til félagsþjónustu Reykjavík Bilið stærra en það ætti að vera INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri í Reykjavík, segir að höf- uðborgarhlutverk Reykjavíkur skýri m.a. mikinn mun á framlögum borg- arinnar og nálægra sveitarfélaga til félagsþjónustu. I borginni búi 38% landsmanna en 47% aldraðra íslend- inga. Hins vegar fyndist henni að bilið milli framlaga borgarinnar og ann- arra sveitarfélaga á svæðinu stærra en það ætti að jafnmikið og hún segir að því hafi oft verið haldið fram að fólk af öllu höfuðborgarsvæðinu leiti eftir félagsþjónustu til Reykjavíkur. I Morgunblaðinu nýlega var birtur samanburður á skatttekjum sveitar- félaganna á höfuðborgarsvæðinu og útgjöldum þeirra til nokkurra fjár- frekustu málaflokka, miðað við út- gjöld á hvern íbúa. Sá samanburður leiddi í Ijós að framlög Reykjavíkur til félagsþjón- ustu eru mun hærri en framlög ann- arra sveitarfélaga á svæðinu. Fram- lögin á hvem borgarbúa nema 41.827 krónum en það sveitarfélag sem næst stendur, Seltjamarnes ver 27.636 kr. til málaflokksins á hvem íbúa. Lægst era framlög Bessastaðahrepps, 14.423 kr. á íbúa, og Garðabæjar, 17.746 kr.áíbúa. 37% íbúa en 47% aldraðra „Það, sem kemur svo augljóslega fram ef maður horfir á útgjöldin til fé- lagsþjónustunnar og menningar- mála, er þetta höfuðborgarhlutverk Reykjavíkur. Sem höfuðborg höldum við uppi miklu fjölbreyttara menning- arstaríi, sem er þá fyrir landsbyggð- ina alla, heldur en almennt gerist og gengur í sveitarfélögum. Sama má segja um félagsþjónustuna. Við bjóð- um upp á fjölþættari félagsþjónustu heldur en almennt gerist og gengur. Að ýmsu leyti hefur Reykjavík dregið til sín fólk alls staðar að af landinu, sem, af heilsufarslegum eða félags- legum ástæðum, vill vera í námunda við þessa þjónustu. Til marks um það má benda á að í Reykjavík búa yfir 38% landsmanna en hér búa 47% aldraðra. Bara það segir sína sögu og ég held að það sama eigi við um ýmsa aðra hópa. Það hefur t.d. verið bent á það af formanni Félags einstæðra foreldra að Reykjavíkurborg sé eina sveitarfélagið sem bjóði einstæðum mæðram upp á starfsmenntun og styrki þær í gegnum félagsþjónustu til þess. Það gerir hugsanlega að verkum að þær sæki hingað frekar en þær mundu ella gera,“ segir borgar- stjóri. En má álykta sem svo að önnur sveitarfélög vanræki uppbyggingu eigin félagsþjónustu og vísi sínu fólki til Reykjavíkur þegar það þarfnast slíkrar þjónustu? „Nú vil ég ekki dæma um það,“ sagði borgarstjóri. „Ég hugsa, að ef litið er til minni sveitarfélaga úti á landi, sé fjölskyldunetið þéttriðnara en hér og samfélagshjálpin meira fólgin í því að maður hjálpar manni; það þurfa ekki endilega allir að leita til opinberra stofnana. Það hugsa ég að sé skýringin ef horft er á lands- byggðina í heild. En hins vegar fynd- ist manni að það ætti ekki að vera svona mikið bil milli Reykjavíkur annars vegar og stærri sveitarfélag- anna á höfuðborgarsvæðinu hins veg- ar. Þvi hefur svo sem oft verið haldið fram að fólk af öllu svæðinu leiti dálít- ið til Reykjavíkur." Betur skilgreind þjónusta „Við höfum verið með meira af fé- lagslegu leiguhúsnæði en önnur sveitarfélög. Við tókum fyrr upp húsaleigubætur en önnur sveitarfé- lög. Við erum með mjög ákveðnar reglur sem skilgreina rétt fólk til fjár- hagsaðstoðar, þannig að félagsþjón- ustan er kannski betur skilgreind hér en annars staðar. Við leggjum metn- að í að vera með gott öryggisnet en um leið passa að það sé ekki misnot- að,“ sagði Ingibjörg Sólrún. Borgin veitir líka mun hærri fram- lög til menningarmála á hvem íbúa en önnur sveitarfélög og borgarstjóri rakti að ofan að þar birtist sérstaða Reykjavíkur sem höfúðborgar. „Við eram að reka hér söfn, sem þjóna öllu landinu, við rekum Árbæjarsafnið, fjölmörg bókasöfn, ljósmyndasafn og styrkjum Borgarleikhús, sem þjónar öllum. Við leggjum fram fé til Sinfón- íuhljómsveitarinnar, sem þjónar líka landinu öllu, og styrkjum margvís- lega menningarstarfsemi á vegum annarra hér í borginni. Þama birtist höfúðborgarhlutverk Reykjavíkur," sagði borgarstjóri.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.