Morgunblaðið - 22.02.2000, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hagnaður Eignarhaldsfélagsins Alþýðubankans hf'. og dótturfélaga 617 milljónir
Besta afkoma fé-
lagsins frá upphafí
Markmið að gera EFA að fjárfestingarbanka
§ Eignarhaldsfélagið Alþýðubankinn hf.
Úr ársreikningi 1999
Rekstrarreikningur 1999 1998 Breyting
Fjánmunatekjur Milljónir króna 702,4 295,0 +131,8%
Fjármagnsgjöld 108,2 101,2 +6,9%
Hreinar fjármunatekjur 594,2 193,8 +206,6%
Rekstrartekjur 21,6 -
Rekstrargjöld 52,2 31,2 +67,3%
Reiknaðir skattar 138,0 38,8 +255,7%
Innleystur hagnaður 425,6 123,9 +243,5%
Breyt. á óinnleystum gengishagnaði 265,3 90,8 +192,2%
Breyting á tekjuskattsskuldbindingu 73,6 1.9
Heildarhagn. til hækkunar á eigin fé 617,0 212,7 +190,1%
Efnahagsreikningur 31.12.99 31.12.98 Breyling
Eignir samtals Milljónir króna 5.348,1 4.886,8 +9,4%
Eigið fé 3.124,4 2.453,6 +27,3%
Skuldir 676,2 683,7 -8,6%
Skuldir og eigið fé samtals 5.348,1 4.886,8 +9,4%
Kennitölur og sjóðstreymi 1999 1998 Breyting
Raunarðsemi eigin fjár 24,6% 9,5%
Eiginfjárhlutfall 58% 50%
Morgunblaðið/Jim Smart
Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri EFA, á kynningarfundi
sem haldinn var í Gerðarsafni í Kópavogi í gær.
HEILDARHAGNAÐUR Eignar-
haldsfélagsins Alþýðubankans hf.,
EFA, og dótturfyrirtækja var 828,3
milljónir króna fyrir skatta á síðasta
ári. Að teknu tilliti til skatta nam
hagnaður til hækkunar á eigin fé 617
milljónum króna. Er þetta besta af-
koma félagsins frá upphafi og hafa öll
tekjusvið félagsins skilað góðum ár-
angri, að því er fram kom á kynning-
arfundi á vegum EFA í gær.
Þar kom einnig fram að stjórn fé-
lagsins mun leggja það til við aðal-
fund að samþykktum EFA verði
breytt og starfssvið þess verði út-
víkkað þannig að það geti starfað sem
fjárfestingarbanki, með sérstaka
áherslu á áhættufjárfestingar. „Við
teljum það nauðsynlegt að hafa heim-
ild til að kalla okkur fjárfestingar-
banka til að geta starfað sem áhættu-
fjárfestingarfélag, hér eftir sem
hingað tíl,“ segir Gylfi Ambjömsson,
framkvæmdastjóri EFA, í samtali
við Morgunblaðið. „Við ætlum hins
vegar ekki að taka upp stofnlánasvið
eða auka útlán mikið.“
Innleystur söluhagnaður hluta-
bréfa meiri en árið áöur
Hagnaður EFA skiptist í 425,2
milljóna króna innleystan hagnað á ár-
inu og 191,7 milijóna króna óinnleyst-
an hagnað vegna hækkunar á markað-
svirði hlutabréfaeignar. Til saman-
burðar var hagnaður til hækkunar á
eigin fé á árinu 1998 212,7 milljónir
króna. Hreinar íjármunatekjur á ár-
inu voru 594,2 miHjónir króna í stað
193,8 milljóna króna árið áður.
Meginskýringin á þessari hækkun
er að innleystur söluhagnaður hluta-
bréfa er mun meiri en á fyrra ári.
Hreinar tekjur af skuldabréfaeign
námu 146,3 milljónum króna og
hreinar tekjur af hlutabréfaeign
námu 447,9 milljónum króna.
Á árinu hóf félagið rekstur á tveim-
ur nýjum sviðum, ráðgjafarsviði og
áhættusjóðasviði, og vom rekstrar-
tekjur þessara sviða 21,6 milljónir
króna. Rekstrarkostnaður nam 52,2
milljónum króna á árinu í stað 31,1
milljónar króna árið áður. Bókfært
eigið fé félagsins í árslok nam 3.124,4
milljónum króna samkvæmt efna-
hagsreikningi að meðtöldu hlutafé að
fjárhæð 1.198,3 milljónir la-óna og
hefur hækkað úr 2.453,6 milljónum
árið áður. Arðsemi eigin fjár var
30,7% á árinu og raunávöxtun 24,6%
og undanfarin 5 ár hefur raunávöxt-
un eigin fjár verið að meðaltali 21,6%.
„Öll tekjusvið okkar skila hagnaði,
bæði í áhættufjárfestíngum og vaxta-
mun. Þetta hefur gerst almennt hjá
fjármálafyrirtækjum og við eram
engin undantekning. Við höfum
breytt félaginu mikið á undanfömum
áram og það skilar EFA góðum
hagnaði á árinu 1999,“ segir Gylfi.
Félagið greiði ekki arð
EFA er eitt af þeim félögum á VÞÍ
sem hefur haft hæsta arðgreiðslu-
hlutfallið að markaðsvirði, að sögn
Gylfa. Nú ber svo við að stjóm félags-
ins leggur til við aðalfund að ekki
verði greiddur arður til hluthafa fé-
lagsins. Gylfi segir ástæðuna fyrir
þessari tillögu margþætta. „Hluta-
bréf EFA era skráð á VÞÍ og við telj-
um mikilvægt að arðstefna skráðra
hlutafélaga sé fyrirsjáanleg og þekkt
og leiði ekki tÖ óvissu við verðlag-
ningu hlutabréfanna á markaði," seg-
ir Gylfi. Einnig segir hann mikilvægt
að verið sé að færa ákvörðunina um
að minnka markaðsvirði hvers eign-
arhluta í félaginu til einstakra hlut-
hafa, sem í stað þess að fá greiddan
arð geti selt hluta bréfa sinna á mark-
aði. Félagið mun vegna þess setja á
fót, í samstarfi við aðra fjármálast-
ofnun, virka viðskiptavakt með hluta-
bréf félagsins. Gylfi segir ekki ákveð-
ið hvaða fjármálastofnun það verði.
I þriðja lagi era flestir hluthafar
félagsins aðilar sem fjárfesta mun
meira en þeir innleysa á ári hverju,
að sögn Gylfa. Akvörðun um minnk-
un eða stækkun á markaðsvirði eigna
í félaginu ræðst því ekki af greiðslu
arðs heldur heildarsamsetningu
eignasafna þeirra.
Breytt fjárfestingarstefna
spennandi fréttir
Á kynningarfundi EFA í gær kom
einnig fram að félagið mun færa sig
yfir í enn áhættumeiri fjárfestingar
en hingað til, þ.e. leggja fjármagn í
þróun fyrirtækja og stofnun þeirra,
svokallað íyrsta stig áhættunnar.
Fjárfestingar EFA hafa hingað til
verið að meginhluta á stigi 2 og 3 þar
sem era fjárfestingar í óskráðum og
skráðum félögum og verða það
áfram, að sögn Gylfa, en við bætast
auknar fjárfestingar í fyrirtækjum á
þróunarstigi.
Þórhildur Einarsdóttir hjá grein-
ingardeild Kaupþings, segir afkomu
EFA í samræmi við væntingar Kaup-
þings að öllu leyti. „EFA nýtur góðs
af hækkunum á hlutabréfamarkaði á
árinu.“ Þórhildur segir það áhuga-
verða breytingu í starfseminni að
stjóm áformi að EFA verði fjárfest-
ingarbanki. „Félagið mun færa sig
enn meira yfir í áhættufjárfestingar
sem era spennandi fréttir fyrir þá
sem huga að stofnun fyrirtækis." Á
kynningarfundi EFA í gær kom fram
að félagið hyggst bæta samband við
hluthafa með skýrri fjárfestingar-
stefnu og aukinni virkni á markaði og
Þórhildur segir spennandi að fylgjast
með félaginu á þessu ári.
NAMSTEFNA STJÓRNUNARFÉLAGS ÍSLANDS FIMMTUDAGINN 24. FEBRÚAR
NETVIÐSKIPTI
Enn betri markaðsstfórnun - ekki missa af lestinnil
Fimmtudagur, 24. febrúar ki. 09:00-12:30 á Hótel Sögu
Leiðbeinandi: Alan Melkman
Alan Melkman er vel þekktur ráðgjafi á sviöi markaðs- og starfs-
þróunarmála. Melkman sem er verkfrœðingur og viöskiptafræðingur aö
mennt, er framkvæmdastjórl ráögjafafyrirtækisins Market Dynamics Ltd. í
Bretlandi. Hann hefur starfað sem ráögjafi í yfir 30 ér um heim allan og á
fjölmörgum markaössvaaðum. Meðal viöskíptavina Melkman eru Unilever,
Electrolux.Walt Disney Intemational, BBC, Cap Gemini, Dow Chemicals,
London Stock Exchange, Management Centre Europe, Hawksmere og
Eimskipafélag (slands.
Inntak:
Griðarlegur vöxtur er nú á flestum svlöum netviöskipta, allt stefnlr I aö
flestar vörutegundir og þjónusta verði innan skamms fáanlegar á netinu.
Upplýsingar verða aðgengilegar og markaöir veröa nær „fullkomnir", þ.e.
framboð og eftirspum munu stjóma verðmyndun. Milliliöir milli endakaupenda og frumseljenda munu
hverfa og beintenging mun komast á.
Sem dæmi hefur Ford nú (samstarfi við Oracle hug á aö koma upp rafrænni kauphöll þar sem birgjar
þein-a geta boðið hráefni og vörur til framleiöslu og reksturs. Samskonar áform eru uppi hjá General
Motors.
Ljóst er að þær breytlngar sem að ofan eru nefndar munu hafa mlkil áhrtf á stjórnsklpulag fyrirtækja, sér
í lagi ytri deildir svo sem innkaupa- og markaösdeildir. Hvert veröur hlutverk markaösstjóra og
starfsmanna markaös- og söludeilda í þessu nýja umhverfi? Hvernig geta fyrirtæki nýtt netviöskipti til
nýrra landvinninga?
Alan Melkman mun fjalla um stöðu viöskiptavinarins og tengsl fyrirtækja vlö viösklptavini á tímum
netviöskipta. Elnnig hvemig þróa megl vinnuferta sem leiða til spamaðar, veltuaukningar og bættrar
samkeppnisstöðu.
Efni:
• Mælanleiki í viðskiptasamböndum
• Viöskiptatengsl og þróun þeirra
• Áhrif Internetsins á markaös- og söluferia
• Rafræn viðskiptl
TAKMARKAÐUR SÆTAFJÖLDI
- TRYGGDU ÞÉR SÆTINÚNAI
Fyrir hverja:
Alla sem koma að sölu og markaösmálum, sölustjóra, markaösstjóra,
innkaupastjóra, starfsmannastjóra og alla þá sem hafa áhuga á aö
kynna sér þaö nýjasta á sviöi rafrænna viöskipta.
SFÍ verö: 15.900.-
Almennt verð: 21.900.-
Inntfaliö: Námsgögn og léttar kaffiveitingar
A
Stjórnunarfólag
Islands
Skráning og nánari upplýsingar: / 533 4567 og www.stjornun.is
Íslandssími orðinn
hluthafi í Línu.Neti
Lagningu ljósleiðara á höfuðborgarsvæðinu lokið í árslok
Eiríkur Bragason, framkvæmdastjóri Línu.Nets,
og Eyþór Arnalds, framkvæmdastjóri fslandssíma.
ÍSLANDSSÍMI hefur keypt
12,3% hlut í Línu.Neti, eða 30
milljónir að nafnverði, og lét í
staðinn öll hlutabréf í dóttur-
fyrirtæki sínu, Gagnaveitunni.
Hlutafé Línu.Nets var aukið
um þessa upphæð og er nú
tæpar 250 milljónir.
Islandssími festi nýverið
kaup á Gagnaveitunni sem sér-
hæfir sig í örbylgjutengingum
fyrir fyrirtæki og stofnanir.
Salan á Gagnaveitunni til
Línu.Nets felur í sér aukið
samstarf fyrirtækjanna
tveggja, með skýrri verka-
skiptingu og td aukinnar hag-
ræðingar fyrir báða aðila, að
því er fram kemur í fréttatil-
kynningu.
Eyþór Arnalds, framkvæmda-
stjóri Íslandssíma, segir að með
samningi Línu.Nets og Islandssíma
sé samstarf fyrirtækjanna innsiglað
þar sem Lína.Net sér um tengingar
en Íslandssími um þjónustu, bæði á
sviði örbylgju- og ljósleiðarasam-
bands. Eyþór segir bréf Gagnaveit-
unnar, sem Íslandssími greiddi fyrir
eignarhlutinn í Línu.Net, 100-200
milljóna króna virði. Islandssími
mun áfram bjóða upp á örbylgju-
tengingar um gagnaflutningskerfi
Línu.Nets. Fyrirtækin hafa frá því í
sumar unnið að lagningu Ijósleiðara-
nets um höfuðborgarsvæðið sem þau
nota til gagnaflutninga. Nú hefur
orðið að samkomulagi að hraða henni
til muna, m.a. vegna mikillar eftir-
spurnar frá fyrirtækjum í Smára-
hverfi í Kópavogi. Stefnt er að þvi að
ljúka lagningu um höfuðborgar-
svæðið í lok þessa árs, ári á undan
áætlun, að því er fram kemur í til-
kynningu.
Að sögn Eiríks Bragasonar,
framkvæmdastjóra Línu.Nets,
er aðkoma Íslandssíma fyrsti
áfanginn í því að stækka hlut-
hafahóp fyrirtækisins. Lína.-
Net eignast Gagnaveituna að
öllu leyti, að meðtöldum við-
skiptasamningum hennai'.
Gagnaveitan hefur m.a. verið
með starfsemi á Akureyri og
að sögn Eiríks er það mikill
áfangi fyrir Línu.Net að hefja
starfsemi utan höfuðborgar-
svæðisins. „Það sem við sækj-
umst nú eftir er að samkeppn-
in við Landssímann verði enn
hnitmiðaðri en áður. íslands-
sími og Lína.Net eru að taka
saman höndum og bjóða víð-
tæka þjónustu með örbylgju- og ljós-
leiðaratækni."
Fram til þessa hefur Orkuveita
Reykjavíkur verið eini hluthafinn i
Línu.Neti en nýlega var samþykkt
að gefa starfsmönnum kost á að fjár-
festa í félaginu fyrir 10 milljónir að
nafnvirði. Nú er lokið hlutafjárútboði
meðal starfsmanna og bárast tilboð
frá 281 starfsmanni, alls að upphæð
um 40 milljónir króna. Áætlað er að
meðalhlutur hvers kaupanda verði
35.587 krónur að nafnvirði.