Morgunblaðið - 22.02.2000, Síða 23

Morgunblaðið - 22.02.2000, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ NEYTENDUR ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 23 Hagkaup opnar innan skamms matvöruverslun á Netinu Yöruúrvalið það sama og í Hag'kaupsbúðunum Morgunblaðið/Asdís Jón Björnsson framkvaemdastjóri hjá Hagkaupi segir að í framtíðinni séu möguleikamir óþrjótandi á Netinu, viðskiptavinir geti séð nær- ingargildi innkaupakörfunnar, búið til sinn fasta innkaupalista, valið uppskrift og keypt inn samkvæmt henni og flokkað úr þær vömr sem þeir vilji sjá þegar þeir ætla að kaupa inn á Netinu UM MÁNAÐAMÓTIN mars-apr- íl verður hafín sala á matvörum á Netinu á slóð Hagkaups sem er www.hagkaup.is. Þessi verslunarmáti var reynd- ur um tíma hjá Hagkaupi árið 1995 en Jón Björnsson, fram- kvæmdastjóri hjá Hagkaupi, seg- ir að þá hafi notkun Netsins ekki verið orðin eins almenn og hún er í dag og möguleikarnir verið takmarkaðri. Að sögn Jóns verður farið hægt af stað og fyrstu vikurnar stendur þessi þjónusta íbúum Kópavogs til boða en vörurnar verða afgreiddar í gegnum Hag- kaup á Smáratorgi. „Við munum taka 8-10 vikna aðlögunartíma og að þeim tíma liðnum bjóða upp á þessa þjón- ustu frá öðrum Hagkaupsversl- unum.“ Sá háttur verður hafður á að viðskiptavinir kaupa inn í þeirri Hagkaupsverslun sem er næst heimili þeirra og úrvalið endur- speglar því vöruvalið í viðkom- andi verslun. Hægt að fá heimsent eða sækja Viðskiptavinir velja á Netinu hvenær þeir vilja fá vörurnar heimsendar eða klukkan hvað þeir ætli að sækja þær í verslun- ina. Jón segir að eflaust verði vin- sælustu afhendingartímarnir eftir að vinnudegi lýkur og kannski komist ekki allir að sem vilji með þann afhendingartíma. Það er því hægt að velja afhendingartímann fyrst og kaupa síðan inn. Jón segir að sömu tilboð verði á Netinu og í verslununum en einnig verða sértilboð, eingöngu á Netinu. Myndir verða af öllum tilboðum. Jón segir að þetta sé svipað fyrirkomulag og er hjá Tesco- verslununum í Bretlandi með að vörurnar séu afgreiddar í búðun- um sem eru næstar heimili við- skiptavina en ekki af sameigin- legum lager á einum stað. Hann telur að um tíu starfs- menn muni starfa við þessa mat- vöruverslun á Netinu til að byrja með en dreifingin verður opin frá 10-21 á kvöldin og hægt er að panta vörur á Netinu allan sólar- hringinn. Enn er ekki komið á hreint hver kostnaðurinn verður við að panta matvörur með þessum hætti en Jón segir stefnuna að hafa kerfið einfalt til að halda kostnaði í lágmarki og gera versl- un með þessum hætti aðgengi- lega. Einungis verður hægt að borga fyrir matinn með greiðslu- korti en í framtíðinni verður leit- að leiða til að hægt sé að borga með öðrum hætti líka. Ástæðan fyrir því að ekki er hægt að taka beint af debetkorti er að erfitt er að gefa nákvæmt verð strax við pöntun, t.d. ef pantaðir eru 5 bananar þá þarf að vikta þá og reikna út kostnað. Nákvæm krónutala liggur ekki fyrir við pöntun. Þegar búið er að ganga frá pöntuninni fær viðkom- andi viðskiptavinur á tölvupósti staðfestingu þar sem fram kemur verðið á einstökum vöruliðum, heildarverð og afhendingartími er staðfestur. Óþrjótandi möguleikar Þegar Jón er inntur eftir fram- tíðaráformum segir hann þennan verslunarmáta mjög spennandi. Hann nefnir sem dæmi að þegar fram í sækir geti viðskiptavinir fengið yfirlit um hvað þeir keyptu síðast og þeir eiga að geta fest á innkaupalistann sinn vissa vöruliði sem þeir kaupa alltaf. Þá er fyrirsjáanlegt að við- skiptavinir geti valið uppskrift og beðið síðan um innihald upp- skriftarinnar á innkaupalistann. Hann segir að síðar eigi neytend- ur líka að geta séð næringarinni- haldið í öllu sem þeir eru að kaupa, fituinnihald, kolvetni, prótein og svo framvegis. Þeir eiga að geta flokkað hvaða vörur þeir vilja fá upplýsingar um, hvers konar tilboð þeir vilja fá að vita um og svo framvegis. Dreifingarmiðstöðvar í hverfunum Jón segir að lokum að ef við- brögðin verði góð við þessum verslunarmáta sé ekki úr vegi að dreifingarmiðstöðvum verði kom- ið upp í hverfum og þangað ættu viðskiptavinir síðan að geta sótt vörurnar á færibandi þegar þeir fara heim frá vinnu eða eiga leið fram hjá. Spurt og svarað um skattamál Gera á grein fyrir öllum hlutabréfakaupum Ef fólk á húsbréf þarf þá að færa þau upp með verðbólgustuðli á skattframtalið? Á það sama við um hlutabréf? Þarf að færa þau upp með verð- bólgustuðli? Svar: „Verðbréfaeign skal telja til eignar á nafnverði að viðbætt- um áföllnum vöxtum og verðbót- um á höfuðstól. Upplýsingar um margföldunarstuðla sem nota skal við uppreikning húsbréfa er að finna á bls. 31 í leiðbeiningum. Hlutabréf færast til eignar á nafnverði. Upplýsingar um eign- færslu hlutabréfa er að finna á bls. 30 í leiðbeiningum, lið 3.7.“ Er hækkun á gengi hlutabréfa skattlögð eða kemur hún í Ijós þegar bréfin eru seld? Hversu langan tíma hefur maður til að fjárfesta á ný án þess að sölu- hagnaður verði skattlagður? „Hlutabréfin færast til eignar á nafnverði, en hækkun á gengi þeirra kemur til skattlagningar við sölu. Hagnaður af sölu hluta- bréfa telst mismunur á söluverði og kaupverði. Hafi hlutabréfin verið keypt 1997 eða síðar skal við útreikninginn við kaupverðið áframreiknað. Við ákvörðun á kaupverði hluta- bréfa sem keypt voru 1996 eða fyrr má velja milli þess að nota upphaflegt kaupverð, framreiknað með verðbreytingarstuðli til árs- loka 1996, eða jöfnunarverðmæti. Ef söluhagnaður ársins er hærri en kr. 3.151.875 hjá ein- staklingi eða kr. 6.303.750 hjá hjónum, er heimilt að fara fram á frestun á skattlagningu þess sem umfram er um tvenn áramót frá söludegi. Söluhagnaður undir þessum mörkum kemur strax til skattlagningar á framtali söluárs án heimildar til frestunar. AUar upplýsingar um kaup eða sölu hlutabréfa er að finna á eyðu- blaðinu RSK 3.09 og í leiðbeining- um á bls. 24.“ Þarf að tiunda öll hlutabréfa- kaup á skattframtali jafnvel þó þau séu ekki meira virði en um 5.000 krónur? „Gera skal grein fyi-ir öllum hlutabréfakaupum á skattfram- tali. Hægt er að nota eyðublaðið RSK 3.10.“ • Lesendurgeta komið með fyrir- spurnir varðandi skattskýrslugerð, en frestur til að skila skattframtali er 28. febrúar næstkomandi. Spurn- ingum lesenda verður svarað hérá neytendasfðu og það er Hrefna Ein- arsdóttir starfsmaður hjá ríkis- skattstjóra sem svarar fyrirspurnum lesenda. QQQS Change is out - Charge is in k J2 Á Ray Jutkins slaer í gegn hvar sem hann kemur. Með ræðusnilld sinni, orðaleikjum og eldmóði nær hann óskiptri athygli gesta sinna og veitir þeim innblástur, hvatningu og ómælda skemmtan. Á þessum fyrirlestri mun Ray meðal annars fjalla um breyttar og auknar kröfur markaðsins og markhópanna Change is out - Charge is in. Hvernig „árásin" eða áhlaupið hefur tekið við sem aðaláhersla í stað áherslunnar á sífelldar breytingar. Einnig fræðir hann okkur um gæða- og þjónustu- stjórnun á 21. öldinni Quality & Service Customer Care into the 2 Ist Century og margt fleira. Það verður enginn svikinn af fyrirlestri sem er framreiddur af Ray Jutkins. Dagskrá 25. febrúar 9.00-9.30 Afhending ráðstefnugagna 9.30-9.40 Ráðstefnan sett. Ingólfur Guðmundsson.formaður ÍMARK 9.40-11.30 Ray Jutkins Quality & Service Customer Care into the 21 st Century (Gæða- og þjónustustjórnun) 11.30- 13.00 Hádegisverður á Radisson SAS Hótel Sögu. Gunnar Kristjánsson, forstjóri SÍF, segir frá markaðsstarfi fyrirtækisins 13.00-16.00 Ray Jutkins Change is out - Charge is in (Árós 2000). Albert Benatar President of Nordic Region McCann Erickson New media, market trends, who profits? (Framtiðin i gagnvirkri miðlun) 16.30- 18.00 Athyglisverðustu auglýsingar ársins (AAÁ) 18.00-19.00 Léttar veitingar í anddyri í boðiThule Fyrirtækjakynning og sýning ◄ Þátttökugjald er 15.900 kr. fyrir félaga (ÍMARK og 21.900 kr. fyrir aðra. Innifalinn er hádegisverður, kaffiveitingar og vegleg fundartaska. Þátttökugjald má greiða með VISA eða EURO. Til að fá aðgöngumiða á félagsverði þarf við- komandi að hafa greitt félagsgjöld (MARK. Unnt er að greiða félagsgjöld við skráningu eða við innganginn. Nánari upplýsingar og skráning á skrifstofu (MARK I síma 511 4888 og 899 0689. Einnig má tilkynna þátttöku með því að skrá sig á heimasíðu: www.imark.is eða senda tölvupóst: imark@imark.is Athugið að tilkynna þátttöku sem fyrst þar sem sætafjöldi er takmarkaður.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.