Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
-
Kona sækir þvottavatn í úthverfi Maputo, höfuðborgar Mósambík. Flóðið var tekið að sjatna.
Morgunblaðið/RAX
Þjóðvegur að Maputo fór í sundur í flóðunum. Við veginn sést hálft hús.
Hópur drengja að leik við skemmdan bfl í úthverfi Maputo eftir fellibyl
sem gekk nýlega yfir borgina.
var ófremdarástand að algjöru
neyðarástandi," segir Þórir.
Rauði kross íslands hefur lagt
eina milljón króna til hjálparstarfs í
Mósambík og Þróunarsamvinnu-
stofnun íslands ákveðið að leggja
landsfélagi Rauða krossins í Mós-
ambík til hálfa milljón króna.
Maputo. Reuters.
BÚIST var við, að fellibylurinn El-
ine kæmi inn yfir Mósambík í dag og
hann yki þá enn á hörmungar lands-
manna, sem þeir glíma nú við mestu
flóð í landinu í 40 ár. Hafa meira en
300.000 manns misst heimili sín af
völdum þeirra.
Veðurfræðingar í Mósambík
segja, að mikil upphitun sjávar í
Mósambík-sundi hafi valdið felli-
bylnum, og Veðurstofan í Suður-
Afríku sagði í gær, að bylurinn væri
þá þegar farinn að valda miklu úr-
felli með ströndinni, á milli Beira og
Vilanculos, og væri að eflast. Um
síðustu helgi fór hann yfir Madag-
askar þar sem nokkrir menn týndu
lífi og þúsundir manna urðu heimil-
islausar.
Búist var við, að Eline kæmi fyrst
inn yfir Inhambane-hérað í Suður-
Mósambík og Gaza-héraði og ná síð-
ar einnig til Sofala-héraðs um mitt
landið. Fór bylurinn yfir með 25 km
hraða á klukkustund og vindhraðinn
var um 120 km á klst. Hafa verið
gefnar viðvaranir til allra skipa og
þeim skipað að halda tafarlaust til
næstu hafnar.
Vatnsflóð og
jarðsprengjur
Gífurlegar rigningar hafa verið í
sumum héruðum Mósambíks síð-
asta hálfa mánuðinn. Eins og fyrr
segir eru meira en 300.000 manns
heimilislaus en ekki er vitað hve
margir hafa týnt lífi. I fjölmiðlum
segir, að þeir séu að minnsta kosti
67, en trúlega eru þeir miklu fleiri.
Hafa flóðin skolað með sér miklu af
jarðsprengjum, sem komið var fyrir
í borgarastyrjöldinni í landinu, en
hún stóð í 16 ár og lauk 1992.
Talsmenn Matvælaaðstoðar Sam-
einuðu þjóðanna, WFP, sögðu í gær,
að verið væri að auka flutninga á
hjálpargögnum til landsins. Ætluðu
Bam í búðum fyrir flóttamenn af flóðasvæðunum. Flóttafólkið hafðist
við í skóla og verksmiðju í Maputo.
t.d. Frakkar að senda fleiri og
stærri flugvélar á vettvang til að að-
stoða herþyrlur frá Suður-Afríku
við hjálparstarfíð. Er WFP búið að
safna allmiklum matarbirgðum,
lyfja og tjalda í borginni Palmeira,
sem er 90 km fyrir norðan höfuð-
borgina, Maputo.
Óttast farsóttir
' Joaquim Chissano, forseti Mós-
ambík, var á fundi með ráðherrum
ríkisstjómarinnar í fýrradag og var
búist við, að hann myndi fara fram á
enn meiri aðstoð erlendra ríkja.
Ljóst er, að tjón á mannvirkjum,
vegum, brúm og íbúðarhúsnæði, er
gífurlegt og óttast er, að flóðin valdi
farsóttum, t.d. malaríu og kóleru.
Þórir Guðmundsson, upplýsinga-
fulltrúi Rauða kross Islands, og
Ragnar Axelsson, ljósmyndari
Morgunblaðsins, eru nýkomnir
heim úr leiðangri til Mósambík. Þeir
fóru um höfuðborgina Maputo og
aðeins út fyrir hana, eða eins langt
og færð leyfði, en vegasamgöngur á
svæðinu eru meira eða minna í
lamasessi vegna flóðanna.
Að sögn Þóris hafa um 100.000
íbúar Maputo þurft að flýja heimili
sín vegna flóðanna. Margir væru
innlyksa og væri nú verið að reyna
að bjarga þeim með þyrlum og flytja
á öruggari svæði. Þórir segir
ástæðu til að óttast farsóttir, þar
sem neyzluvatn hefur spillzt. Nú
þegar hefðu um 100 manns farizt úr
kóleru í Mósambík og nágranna-
löndunum.
„Ef þessi fellibylur skellur yfir
eins og spáð er, þá verður það sem
Búist við fellibylnum Eline inn yfír Mósambík í dag
I kj ölfar mestu
flóða í 40 ár