Morgunblaðið - 22.02.2000, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Kínverjar reyna að hafa áhrif á
forsetakosningarnar á Taívan
Hóta að beita her-
valdi hafni Taív-
anar sameiningu
Peking, Taipei. AFP.
KÍNVERJAR hertu í gær þrýsting-
inn á stjómvöld á Taívan og hótuðu í
fyrsta sinn að beita hervaldi ef Taív-
anar höfnuðu ítrekað tilraunum til
að sameina Kína og Taívan með
samningum. Fréttaskýrendur sögðu
að markmiðið með þessari hótun
væri augljóslega að hafa áhrif á for-
setakosningarnar á Taívan 18. mars.
„Ef yfirvöld á Taívan hafna, án af-
láts, friðsamlegri lausn á deilunni
um endursameiningu með samning-
um þá sér stjórn Kína sig knúna til
að grípa til allra hugsanlegra að-
gerða, meðal annars valdbeitingar,"
sagði í skýrslu um Taívan sem kín-
verska fréttastofan Xinhua birti í
gær.
Kínversk stjórnvöld hafa hingað
til aðeins hótað valdbeitingu ef Taív-
anar lýsa yftr sjálfstæði, ef erlent
ríki ræðst á eyjuna eða ef hætta sé
talin á „stjórnleysi".
I skýrslunni er einnig farið hörð-
um orðum um Lee Teng-hui, forseta
Taívans, sem er kallaður „skemmd-
arverkamaður" og „vandræðageml-
ingur“. „Undir forystu Lee Teng-hui
hafa yfirvöld á Taívan tekið nokkur
skref í átt að fullum aðskilnaði.“
Lee Teng-hui er ekki í framboði í
kosningunum. Kínverjar skutu eld-
flaugum í tilraunaskyni á siglinga-
leiðir við Taívan fyrir forsetakosn-
ingarnar árið 1996 og talið var að
markmiðið hefði þá verið að hræða
kjósendur til að hafna Lee. Sú til-
raun mistókst og Lee var kjörinn
forseti í fyrstu lýðræðislega forseta-
kjörinu á Taívan.
Eykur ekki líkur á stríði
Fréttaskýrendur og vestrænir
stjómarerindrekar í Kína sögðu í
gær að hótun Kínverja væri ætlað að
hafa áhrif á forsetakosningarnar á
Taívan eftir tæpan mánuð. Þeir
töldu hana þó ekki auka líkumar á
stríði.
„Þetta er slóttugur leikur af hálfu
kínversku stjórnarinnar þar sem
hún eykur þrýstinginn á frambjóð-
endurna án þess að segja of mikið.
Ólíkt forsetakosningunum 1996 er
þetta miklu betri aðferð en að skjóta
eldflaugum. Þetta eykur vissulega
pólitíska þrýstinginn en alls ekki lík-
umar á hernaðaraðgerðum," sagði
vestrænn stjómarerindreki í Pek-
ing.
Þrír helstu frambjóðendumir í
forsetakosningunum em Chen Shui-
bian, forsetaefni stjórnarandstöðu-
flokksins Lýðræðislega framfara-
flokksins, sem er hlynntur sjálf-
stæði, Lien Chan, varaforseti Taív-
ans og forsetaefni stjómarflokksins,
Kuomitang, og James Soong, óháður
frambjóðandi. Þeir hafa allir sagt að
þeir vilji auka samskiptin við Kína
en styðja þá afstöðu Lees að líta beri
á samningaviðræður milli Kína og
Taívans um hugsanlega sameiningu
sem viðræður tveggja jafnrétthárra
ríkja.
„Svo virðist sem Kínveijar vilji
senda kjósendum á Taívan þau skila-
boð að þeir láti það ekki viðgangast
að lýst verði yfir sjálfstæði og vilji
ekki að Chen Shui-bian verði kjörinn
forseti," Joseph Wu, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Alþjóðamálastofnun-
ar Chengchi-háskóla. Hann kvaðst
þó telja að tilraunin til að hafa áhrif
á kosningarnar myndi misheppnast,
líkt og fyrir fjómm áram.
Jiang Zemin
orðinn óþolinmóður
David Zweig, sérfræðingur í mál-
efnum Kína við Vísinda- og tæknihá-
skóiann í Hong Kong, sagði að Jiang
Zemin, forseti Kína, legði mikið
kapp á að leysa deiluna og vildi að
sín yrði minnst sem leiðtogans er
tryggði endursameiningu Kína og
Taívans. Hótunin í gær virtist benda
til þess að þolinmæði hans væri að
bresta og að margir leiðtogar
kommúnistaflokksins óttuðust að
Taívan væri að renna þeim endan-
lega úr greipum.
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 27
Nýttu
plássið
betur
Finnurðu allt
hinnurou ant
650^-^týnirðu einhverju?
UMBOÐS- OG HEILD VERSL UN
SUNDABORG 1 SÍMI: 568 3300
I www.straumur.is I
TVyggðu fjölskyldunni
tvöfalt öryggi
- með Lífís líftryggingu
og sjúkdómatryggingu
Dragðu það ekki að veita þeim sem treysta á þig meira öryggi.
Með Lífis Ifftryggingu og sjúkdómatryggingu kemur þú í veg fyrir tekjumissi i
kjölfar erfiðra veikinda eða fráfalls sem gæti ella kippt stoðunum undan fjártiagi
fjölskyldu þinnar. Þannig vemdar þú betur þá sem þér þykir vænt um og tryggir
fjölskyldunni tvöfalt öryggi.
Hafðu samband strax í sima 560 5000 og kynntu þér málið.
Lifís - fjárhagsvernd fyrir lífið.
m**'
Líftrygging
Sjúkdómatrygging
LANDSBRÉF HF. VtonfWnWÉMShA'TO
Landsbanki íslands og Vátryggingafólag íslands bjóða fjárhagsvernd fyrir Iffiö
Útgofandi Lffls Kftrygginga og sjúkdómatrygginga er Lfftryggingafélag islands hf.