Morgunblaðið - 22.02.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 33
Dulúð og stemmning
TðlVLIST
Langholtskirkja
KAMMERTÓNLIST
Kammersveit Reykjavíkur, undir
forustu Rutar Ingólfsdóttur
konsertmeistara, flutti verk eftir
Henryk Górecki.Stjórnandi var
Bernharður Wilkinson. Sunnu-
dagurinn 20. febrúar, 2000
LÆRDÓMUR og kunnátta get-
ur verið þeim, sem auðsveipir eru,
stýrandi og það sem sagt er satt
vera, getur slíku fólki verið óum-
breytanlegur átrúnaður visku og
alvitrunar. í sama stað, er þeim oft
legið á hálsi og kallaðir í besta falli
sérvitringar, sem ekki gangast við
því sem lærðir vitmenn telja rétt-
ast vera. Henryk Górecki er einn
þeirra er hóf sinn feril í sátt við þá
er best vissu og hlaut að launum
verðlaun og viðgang mikinn, mjög
snemma. Eitthvað varð þess vald-
andi, að hann söðlaði um, lagði frá
sér lærdóms reglustikuna, tók að
hlusta efttir annarri óman en hinni
útspekúleruðu, svo að mörgum
þótti nóg um. Slíkar umsöðlanir
hafa átt sér stað á öllum sviðum
lista, í uppgjörinu við „modern-
ismann", sem nú lifir helst sem
skólaspeki og hjá nokkrum sem
„eftirhreytu-modernismi", aðallega
þeim sem telja sig semja „tónlist
framtíðarinnar“. Wagner samdi rit-
gerð um það efni og eins og vera
ber, þá veit enginn hvað morgunda-
gurinn kann að bera í skauti sínu
og allt eins, að „þeir sem fyrstir
fari, verði síðastir“, þá er nýr dag-
ur er að kveldi kominn og gert skal
að daglaunum hvers og eins. verka-
manns“.
Tónleikar Kammersveitar
Reykjavíkur sl. sunnudag í Lang-
holtskirkju, hófust með þremur
stuttum þáttum fyrir strengjasveit,
sem höfundurinn nefnir þrjú verk í
gömlum stíl og eru samin 1963,
sem virðast vera eins konar for-
könnun fyrir seinni verk og það má
heyra eins konar varfærni í með-
ferð tónferlis, rétt eins og hann
sjálfur trúi ekki sínum eigin eyrum.
Þarna getur að hafa hljóðheim, sem
er ákaflega auðheyrður, hverjum
sem er, og voru þessi litlu lög fal-
lega flutt af strengjasveit Kammer-
sveitarinnar. Sautján ár eru á milli
konserts fyrir sembal og strengja-
sveit op. 40 og litlu smáverkanna
og auðvitað gildir ein regla um
listaverk, að þau spanna sviðið allt
frá því stórkostlegasta til þess sem
lélegt getur talist og næsta víst, að
sembal konsertinn er ekki sérlega
áhugaverð tónsmíð sem „sembal-
konsert““, þó ýmislegt sé þar
skemmtilegt til áheyrnar, aðallega
í strengjasveitinni, sem á tíðum
var, hvað rithátt snertir, yfirgnæf-
andi fyrir sembalinn.
Einfalt tónmál verkanna getur
oft verið dáleiðandi langdregið og
það á sannarlega við um minninga-
verkið Good Night op. 63, því að
þar ríkir kyrrðin og er verkið eins
konar viðnám gegn hraða samtím-
ans, þar sem dreymni og óræði ber
fyrir eyru í tímalausu rúmi. Falleg
hljóðmynd er var vel flutt af Marti-
al Nardeau, Önnu Guðnýju Guð-
mundsdóttur, Eggert Pálssyni og
Mörtu Guðrúnu Halldórsdóttir er
söng af látleysi dánarkveðju Hór-
asar til Hamlets.
Lokaverk tónleikanna var Klein-
es Requiem fur eine Polka, op. 66,
og er það samið fyrir píanó og 13
hljóðfæri. í þessu verki leikur Gór-
ecki með andstæður blæbrigða og
stefja en tónmálið er ávallt einfalt
og gegnsætt, alheyranlegt öllum,
þó á stundum sé lopinn einum of
langt teygður, svo oft jaðrar við slit
hans, þ.e. að formið brotni í parta,
þó þegar öllu er á botninn hvolft,
skilji allir sáttir og hafi haft af
gaman nokkurt. Kammersveitin lék
mjög vel undir stjórn Bernharðs
Wilkinsonar og náði oft þeirri dul-
úð og stemmningu, sem verk þessa
sérstæða skálds eru svo Jmungin af.
Jón Asgeirsson
Þeir kóngar
vildu verða
KVIKMYNDIR
Sambí6in Álfabakka,
Kringlubíó, Nýja bfó
á Akureyri «g
Stjörnubfð
ÞRÍR KÓNGAR
„THREE KINGS“ ★ ★★
Leiksljórn og handrit: David O.
Russell. Aðalhlutverk: George
Clooney, Mark Wahlberg Ice Cube,
Spike Jonze, Nora Dunn, Jamie
Kennedy. Warner Bros. 1999.
BANDARÍSKA spennumyndin
Þrír kóngar er kannski þetta sjald-
gæfa fyrirbrigði frá Hollywood
sem einsetur sér að skemmta
áhorfendum en hefur jafnframt
eitthvað fram að færa. Sögusviðið
er Flóabardagi og myndin segir frá
nokkrum bandarískum hermönn-
um sem ætla að ræna gulli Sadd-
ams Husseins í eyðimörkinni en
höfundur myndarinnar, David O.
Russell, er ekki aðeins að búa til
ævintýramynd heldur deilir hann
harkalega á framgöngu Banda-
ríkjamanna með Bush forseta í far-
arbroddi þegar hann lýsir stöðu
þeirra íraka sem gerðu uppreisn
gegn Saddam fullvissir um að Bush
héldi það loforð að þeim yrði komið
til aðstoðar. Ekkert varð úr þeim
fagurgala og írakarnir fá að gjalda
þess.
Þannig er myndin bæði pólitísk
ádeila og eins konar póstmódern-
ísk útgáfa af Hetjum Kellys, sem
sýnd var við mikinn fögnuð í Gamla
bíói á áttunda áratugnum (sællar
minningar). Nokkri áræðnir her-
menn komast að því að Saddam
geymir gullforða sem hann stal frá
Kúveitum. Þeir herja á staðinn og
hafa uppi á gullinu en kynnast í
leiðinni uppreisnarmönnunum og
meðferð íraskra hermanna á þeim
og geta ekki annað en skipt sér af
þótt búið sé að semja um vopnahlé.
Russell segir þessa sögu með
miklum bravúr að mestu með
handmyndavélum sem gefa yfir-
bragð fréttamynda CNN. Hann
myndskreytir samræður og jafnvel
hugsanir persónanna og munar
ekki um að sýna hvað það er ná-
kvæmlega sem gerist anatómískt
þegar byssukúla skellur á líkaman-
um. Hann hefur lært sitthvað að
þessu leyti af Oliver Stone og jafn-
vel Martin Scorsese en brúkar
tæknina myndinni mjög til fram-
dráttar. Hún á mjög vel við það
leikhús fáránleikans sem rekið er í
eyðimörkinni þar sem verður
árekstur tveggja menningarheima
í fullkominni óreiðu. Russell fellur
ekki í þá svart/hvítu Rambógryfju
að gera hermenn Saddams skilyrð-
islaust að vondu köllunum; það
fæðist ákveðinn skilningur á því
hvað þeir hafa mátt þola.
Hasarinn er gegndarlaus. Það er
ekki dauð mínúta í allri myndinni.
Russell hefur fengið ágætt lið sér
til aðstoðar. George Clooney er
reffilegur leiðtogi hópsins, nær al-
veg hættur að muldra ofan í bring-
una á sér. Mark Wahlberg er einn-
ig stórgóður sem sálin í hópnum og
Ice Cube fyllir út í þrenninguna al-
varlegur og valdsmannslegur.
Þrír kóngar eru fín skemmtun.
Myndin er á margan hátt óþægileg
á að horfa einmitt vegna þess að
hún er ekki einasta léttmeti heldur
vekur mann til umhugsunar um
fáránleika stríðsins og þau sak-
lausu fórnarlömb sem alltaf verða
verst úti.
Arnaldur Indriðason
Gerrit
Schuil
Rannveig Fríða
Bragadóttir
Hádegis-
tónleikar
í Operunni
RANNVEIG Fríða Bragadóttir
mezzo-sópran og Gerrit Schuil
píanóleikari flytja lög eftir Schubert
á hádegistónleikum í Islensku óper-
unni á morgun, miðvikudag, kl.
12.15 og standa þeir yfir í 30 mínút-
ur.
Rannveig Fríða er fastráðin við
óperuna í Frankfurt og Gerrit Schu-
il stjórnar um þessar mundir óper-
unni Lúkretía svívirt eftir Benjamin
Britten, sem sýnd er í Islensku óp-
erunni. Rannveig Fríða syngur
hlutverk Lúkretíu. Aðrir söngvarar
eru Finnur Bjarnason, Emma Bell,
Ólafur Kjartan Sigurðarson, Sig-
urður Skagfjörð Steingrímsson, Jan
Opalach, Hrafnhildur Björnsdóttir
og Anna Sigríður Helgadóttir.
Sýningum fer senn að ljúka og
eru tvær sýningar eftir af óperunni.
Nyjar plötur
• NÝLEGA kom út hljómplata
þar sem Halldór Haraldsson leik-
ur á píanó sónötur eftir Schubert
og Brahms en það eru nú liðin um
fimmtán ár frá því að síðast var
gefin út hljómplata með leik hans.
Á hljómplötunni leikur Halldór
Sónötu í B-dúr D960 eftir Franz
Schubert og Sónötu í f-moll op. 5
eftir Johannes Brahms. Halldór
ritar sjálfur textann í bæklinginn
sem íylgir útgáfunni en hann er
prentaður á íslensku, dönsku,
ensku og þýsku.
Halldór stundaði píanónám hér
heima og í London við Konung-
legu akademíuna. Hann hefur
haldið einleikstónleika víða um
heim, leikið fjölda konserta með
Sinfóníhljómsveit íslands og tekið
virkan þátt í
kammermúsík,
þannig var hann
einn stofnenda
Tríós Reykja-
víkur.
Halldór hefur
alla tíð verið
mjög virkur í fé-
lagsmálum tónl-
istannanna en
hann stofnaði
íslandsdeild EPTA (Evrópu-
samband píanókennara) og var
formaður samtakanna um árabil.
Hann var einnig forseti Evrópur-
áðsEPTAárið 1985-6.
Útgefandi er Polarfonia Class-
ics ehf. en Japis sér um dreifing-
una. Verð: 2.199 kr.
BÓKASALA
i januar
Böð Var Titill/ Hðfundur/ Utgatandi
Almanak Háskólans - 2000/ / Háskóli íslands
Líkami fyrir lífið/ Bill Phillips og Michael D’Orso/ Hvítt og svart
Englar alheimsins/ Einar Már Guðmundsson/ Mál og menning
Leggðu rækt við sjálfan þig/ Anna Valdimarsdóttir/ Forlagið
Almanak Þjóðvinafélagsins - 2000// Hið íslenska þjóðvinafélag
Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk/ Peter J. D’Adamo/ Leiðarljós
Híbýli vindanna/ Böðvar Guðmundsson/ Mál og menning
Sjálfstætt fólk/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell
Panorama ísland/ Páll Stefánsson/ lceland Review
Einstakir flokkar; ÍSLENSK OG ÞÝDD SKÁLDVERK
1 Englar alheimsins/ Einar Már Guðmundsson/ Mál og menning
2 Híbýli vindanna/ Böðvar Guðmundsson/ Mál og menning
3 Sjálfstætt fólk/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell
4 íslandsklukkan/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell
5 Salka Valka/ Halldór Kiljan Laxness/ Vaka-Helgafell
6 Snorra Edda/ Snorri Sturluson/ Mál og menning
7 Afródíta/ Isabel Allende/ Mál og menning
8 Hundarnir í Riga/ Henning Mankell/ Mál og menning
9 Alkemistinn/ Paulo Coelho/ Mál og menning
10-11 Ég heiti Henry Smart/ Roddy Doyle/ Vaka-Helgafell
10-11 Parísarhjól/ Sigurður Pálsson/ Forlagið
ÍSLENSK OG ÞÝDD LJÓÐ
1 Eddukvæði/ Gísli Sigurðsson sá um útgáfuna/ Mál og menning
2 Hávamál-Ýmis tungumál/ / Guðrún
3 Spámaðurinn/ Kahlil Gibran/ Muninn
4 Sálmabók isl. þjóðkirkjunnar/ Róbert A. Ottósson valdi/ Skálholtsútgáfan
5 Gimsteinar: Ljóð 16 höfunda/ Ólafur Haukur Árnason valdi/ Hörpuútgáfan
ISLENSKAR OG ÞYDDAR BARNA- OG UNGLINGABÆKUR
1 Tarzan og Terka/ Walt Disney/ Vaka-Helgafell
2 Gæsahúð 3: Gula geimskipið/ Helgi Jónsson/ Tindur
3 Allt um tröll/ Brian Pilkington/ Mál og menning
4 HandaGúndavél/ Guðrún Helgadóttir og Freydís Kristjánsdóttir/ Vaka-Helgafell
5 Engan asa Einar Áskell/ Gunilla Bergström/ Mál og menning
6 Landnámsmennirnir okkar/ Stefán Aðalsteinsson/ Mál og menning
7 Ertu skræfa Einar Áskell?/ Gunilla Bergström/ Mál og menning
8 Kleinur og karrí/ Kristín Steinsdóttir/ Vaka-Helgafell
9-10 Ómögulegir foreldrar/ Brian Patten/ Æskan
9-10 Stjarnan hennar Láru/ Klaus Baumgart/ Mál og menning
ALMENNT EFNI OG HANDBÆKUR
1 Almanak Háskólans - 2000/ / Háskóli Islands
2 Líkami fyrir lífið/ Bill Phillips og Michael D’Orso/ Hvítt og svart
3 Leggðu rækt við sjálfan þig/ Anna Valdimarsdóttir/ Forlagið
4 Almanak Þjóðvinafélagsins - 2000/ / Hið íslenska þjóðvinafélag
5 Rétt mataræði fyrir þinn blóðflokk/ Peter J. D’Adamo/ Leiðarljós
6 Panorama ísland/ Páll Stefánsson/ lceland Review
7 Síðustu dagar Sókratesar/ Platón/ Hið íslenska bókmenntafélag
8 íslensk matarhefð/ Hallgerður Gísladóttir/ Mál og menning
9 Fólk á fjöllum/ Ari Trausti Guðmundsson og Pétur Þorleifsson/ Ormstunga
10 Heimur kvikmyndanna/ Ritstj. Guðni Elísson/ Forlagið
ÆVISÖGUR OG ENDURMINNINGAR
1 Einar Benediktsson-ll/ Guðjón Friðriksson/ Iðunn
2-3 Á hælum löggunnar-Sveinn Þormóðss./ Reynir Traustason/ Islenska bókaútgáfan
2-3 Einar Benediktsson-I/ Guðjón Friðriksson/ Iðunn
4 Sagnaþættir/ Tómas Guðmundsson/ Mál og menning
5 Jónas Hallgrímsson/ Páll Valsson/ Mál og menning
Bókabúðir sem tóku þátt í könnuninni
Höfuðborgarsvæðið:
Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi
Bókabúð Máls og menningar, Síðumúla
Bókabúðin Hlemmi
Bókabúðin Mjódd
Bóksala stúdenta, Hringbraut
Eymundsson, Kringlunni
Penninn-Eymundsson, Austurstræti
Penninn, Kringlunni
Bókabúðin Hamraborg, Kópavogi
Penninn-Eymundsson, Hafnarfirði
Utan höfuðborgarsvæðisins:
Bókabúð Keflavíkur, Keflavík
Bókval, Akureyri
Kaupfélag héraðsbúa, Egilsstöðum
KÁ, Selfossi
p. ,-r\ r\ 1'fC
•> .-"X
''y f Jrk
4'
Samantekt Félagsvísindastofnunar á sölu bóka í janúar 2000 Unniö fyrir Morgunblaðiö,
Félag Islenskra bókaútgefenda og Félag bóka- og ritfangaverslana. Ekki eru taldar meö þær
bækur sem seldar hafa verið á mörkuöum ýmiss konar á þessu tímabili, né kennslubækur.