Morgunblaðið - 22.02.2000, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 22.02.2000, Qupperneq 36
36 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. FYRIRTÆKIOG ÍSLENZK TUNGA * AN ISLENZKRAR tungu og menningar verður ekkert ís- lenzkt þjóðríki til. Þá höfum vjð horfið í þjóðahafið án þeirra sérkenna, sem gera okkur að íslendingum. Ábyrgð nú- tímamanna er því mikil við að tryggja, að komandi kynslóðir tali og riti íslenzku, sjálft móðurmálið. Það getur þó ekki gerzt nema því aðeins að allur almenningur skilji málið. Það er forsendan. Þetta er tíundað hér, af þeim sökum að í Morgunblaðinu sl. sunnudag birtist grein um það hrognamál, sem talað er á virkjunarsvæði Landsvirkjunar við Vatnsfell og starfsmenn þar nefna sjálfir „fjalla-íslenzku“. Þetta mál er eins konar ís- lenzkuskotin enska og er notað jöfnum höndum af yfirmönn- um sem starfsmönnum almennt. Ástæðan er sú, að allar teikn- ingar og leiðbeiningar eru á ensku, sem önnur útboðsgögn, og fundargerðir eru ritaðar á ensku. Það merkilega er, að ís- lenzkt byggingafyrirtæki er verktakinn við Vatnsfell og starfsmenn nær allir íslenzkir. Verksalinn er Landsvirkjun, sem er í opinberri eigu. Hvað væri þá eðlilegra en íslenzka væri þar í heiðri höfð, ekki sízt þar sem yfirmenn hafa lýst því, að þeim leiðist að hlusta á mörg hundruð landa sína tala þetta hrognamál, sem minnir einna helzt á „þjóðtunguna" á Bahamaeyjum! Við unnum bug á prentsmiðjudönskunni, jafn- vel flámælinu, og megi öll „fjalla-enska“ fara sömu leið. Það verður að grípa í taumana, svo Islendingar geti talað eigin tungu í eigin landi í störfum fyrir íslenzkan verktaka hjá íslenzku fyrirtæki. Skýringar Landsvirkjunar á þessu ástandi eru ekki fullnægjandi. Nái móðurmálið ekki yfir tækniorð má ástunda nýyrðasmíð, sem svo vel hefur gefizt undanfarna ára- tugi. Aðlögunarhæfni tungunnar í þeim efnum er eitt af ein- kennum hennar. Hins vegar er ástæða til að taka fram, að fleiri fyrirtæki eiga við þennan vanda að stríða en Landsvirkjun. Fyrir all- mörgum árum sagði Morgunblaðið frá því, hvers konar tungumál væri talað í flugstarfsemi. Á síðustu árum hefur hið sama gerzt, þar sem tölvur koma við sögu. Mörg tölvuforrit, sem fyrirtæki og einstaklingar nota, eru á ensku og þá hneigj- ast starfsmenn til þess að tala tungumál, sem að verulegu leyti er enskuskotið. Það geta því margir litið í eigin barm og ástæðulaust að kasta grjóti úr glerhúsi. fslenzk fyrirtæki þurfa að vera reiðubúin að leggja í kostn- að við nýyrðasmíð og þýðingar á vinnuplöggum til að tryggja notkun tungunnar. Það á við öll íslenzk fyrirtæki. Þau þurfa að leggja metnað sinn í stuðning við móðurmálið, annars miss- um við tengslin við arfleifðina. Arfinn er rótlítill og fýkur um allt. Viljum við verða rótlaus þjóð, einkennalaus óþjóð? Eða vilja menn kannski að tvær þjóðir búi í landinu; að önnur tali „fjalla-íslenzku“, hin móðurtunguna? Þá yrði stutt í stétta- skiptinguna margumtöluðu. HÁSKÓLANÁM FYRSTA háskólaþingið var haldið sl. laugardag að frumkvæði menntamálaráðheiTa. Þar kom fram að mikil grózka væri á sviði háskólamenntunar hérlendis og mikil fjölbreytni í boði fyrir nemendur. Á skömmum tíma hafí allri aðstöðu til háskólanáms verið hreytt, horfíð hafí verið frá þröngri háskólastefnu, breiddin hafí verið stóraukin og dýpt námsins aukizt jafnt og þétt. Bjöm Bjarnason menntamálaráðherra ávarpaði háskólaþing í upphafi þess. Hann sagði að íslenzkir háskólar kepptu ekki aðeins innbyrðis, heldur og við erlenda skóla og vinnumarkaðinn um at- hygli og áhuga fólks á öllum aldri. Æ fleirum yrði ljóst, að mennt- un væri bezta leiðin til að njóta sín í samtímanum. Flestir væru í háskóla til þess að þeim vegnaði betur á hinum almenna vinnu- markaði, hinir væru færri, sem hefðu að markmiði að sinna vís- inda- og fræðastarfí, en þeim fjölgaði einnig jafnt og þétt. „At- vinnuleysi meðal háskólamenntaðs fólks er óþekkt hér í landi okkar um þessar mundir og þörfin fyrir fleira vel menntað fólk er víða mikil. Skilningur á því að góð menntun eigi að njóta sín í launaumslaginu fer einnig vaxandi og kjaraviðræður snúast ekki einungis um beinar launahækkanir, heldur einnig um úrræði til betri menntunar,“ sagði menntamálaráðherra. Háskólum hefur fjölgað á undanförnum árum. Sumum fannst sú þróun íhugunarverð í upphafí og drógu í efa að svo fámennt þjóðfélag gæti staðið undir fleiri háskólum en Háskóla Islands. Reynslan hefur hins vegar sýnt, að það var vel ráðið að fjölga há- skólum. Háskólinn á Akureyri er skýrt dæmi um þau víðtæku áhrif, sem háskóli getur haft á umhverfí sitt. Starfsemi hans hef- ur átt ríkan þátt í að efla viðspyrnu Eyjafjarðarsvæðisins gagn- vart höfuðborgarsvæðinu. Samvinnuháskólinn hefur getið sér gott orð á því afmarkaða sviði, sem hann starfar, og Háskólinn í Reykjavík hefur farið vel af stað. Það er gagnlegt að efna til slíkra umræðna, sem fram fóru á há- skólaþingi. Þær verða háskólamönnum hvatning til nýrra átaka. Vonandi. Meiri hnökrar á íslenskri löggjöf en annars staðar á Norður stjórnvalda, eftirlit með starfsemi þeirra og viðurlög Sérstök lagas fari yfír lagaf Davíð Oddsson forsætisráðherra gerði þing- heimi í gær grein fyrir skýrslu um starfs- skilyrði íslenskra stjórnvalda, eftirlit með starfsemi þeirra og viðurlög við réttarbrotum í stjórnsýslu. Davíð Logi Sigurðsson fylgdist með umræðum á Alþingi. HUGMYNDIR um lagaráð eða lagaskrifstofu, sem hefði það hlutverk að fara yfir lagafrumvörp áður en þau eru lögð fyrir Alþingi, í því skyni að kanna hvort lagatæknilegir hnökrar séu á þeim og tryggja að þau séu ekki í andstöðu við ákvæði stjórnarskrár, fengu góðar undirtektir við umræður á Alþingi í gær um skýrslu forsætisráð- herra um starfsskilyrði stjórnvalda, eftirlit með starfsemi þeirra og viður- lög við réttarbrotum í stjórnsýslu. Fram kemur m.a. í skýrslunni að mun meiri hnökrar séu á íslenskri löggjöf en á löggjöf annars staðar á Norðurlönd- unum. Davíð rakti í upphafi máls síns að- draganda þess að efnt var til gerðar þessarar skýrslu en Jóhanna Sigurðar- dóttir, þingmaður Samfylkingar, flutti ásamt fleirum þingsályktunartillögu á sínum tíma um bætt siðferði í opinber- um rekstri. Tillagan var samþykkt á Alþingi í júní 1998 með þeirri breyt- ingu, sem forsætisráðherra beitti sér fýrir, að úr yrði almenn úttekt á starfs- skilyrðum stjómvalda, eftirliti með starfsemi þeirra og viðurlögum við réttarbrotum í stjórnsýslunni. Engin tengsl yrðu hins vegar við einstök mál sem komið hefðu upp. Skipaði forsætis- ráðherra nefnd þá um haustið til að vinna skýrsluna, og laut hún forystu Páls Hreinssonar, dósents við laga- deild Háskóla Islands. í ræðu sinni í gær kvaðst Davíð hljóta að vekja athygli á því að starfs- skilyrði stjórnvalda hefðu undanfarin fimmtán ár tekið stórstígum framför- um. Nægði þar að vísa til stofnunar embættis umboðsmanns Alþingis og setningar stjórnsýslu- og upplýsinga- laga. Engu að síður hefði hann talið að með úttekt sem þessari mætti draga fram þær forsendur, sem nauðsynlegt væri að lægju fyrir, til að skynsamleg umræða gæti farið fram um starfsemi og stjórnkerfi hins opinbera. Davíð fór því næst yfir helstu efnis- atriði skýrslunnar en nefndin, sem hana vann, lauk umfjöllun um hvem þátt könnunar sinnar með ábendingum um annmarka, sem hún rakst á í yfir- ferð sinni, og leiðir sem færar kynnu að vera til úrbóta. Eru þær af ýmsum toga, og snerta bæði starfshætti stjórn- valda og þá umgjörð sem starfsskilyrð- um þeirra er búin af hálfu Alþingis. Ýmis vandamál tengjast mats- kenndum heimildum Eins og fram kom í máli Davíðs er í skýrslunni m.a. fjallað um þær laga- reglur sem stjómvöld móta ákvarðanir sínar á. Er þar um að ræða fastmótaðar reglur annars vegar og matskenndar heimildir hins vegar og sagði Davíð að ágreiningur hefði eink- um risið um meðferð matskenndu heimild- anna. Réttilega væri bent á það í skýrslunni að ýmis vandamál tengdust beitingu matskenndra heim- ilda og ekki væri til nein einföld lausn á þeim. Hins vegar væri bent á ýmis úrræði í skýrslunni sem miðuðu að því að draga úr þeim erfiðleikum sem fylgi mats- kenndri ákvarðanatöku og auka um leið réttaröryggi almennings. „Þar er m.a. bent á ýmis hollráð sem frum- varpasmiðum og löggjafanum er rétt að hafa hugföst þegar lagasetning er undirbúin og eins þegar hún er til með- ferðar hér á Alþingi," sagði Davíð. í skýi-slunni er vakin athygli á að ört vaxandi tilflutningi verkefna til sveitar- félaga þurfi að fylgja betur eftir, bæði við undirbúning lagasetningar í því skyni og af hálfu stjórnvalda. Sagði for- sætisráðherra að sérstaklega væri bent á að sveitarstjórnum hefði ekki gengið sem skyldi að setja og birta eig- in reglur í þeim tilvikum sem lög mæltu svo fyrir. „I því sambandi er fullrar athygli verð sú tillaga, sem fram kemur, um að tímabært sé að endurskoða lög um birtingu laga og stjórnvaldafyrirmæla með það fyrir augum að gera sveitar- stjómum kleift að birta slíkar reglur á sérstökum miðlægum gagnagrunni, sem væri aðgengilegur öllum að kostn- aðarlausu," sagði Davíð. Þessi hug- mynd væri út af fyrir sig m.a. í sam- ræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um málefni upplýsingasamfelagsins og það verkefni að koma upp sérstakri heima- síðu þar sem hægt verði að nálgast á einum stað allar skriflegar réttarheim- ildir. Fleiri „meinbugir" á lögum en annars staðar á Norðurlöndum í skýrslunni er ennfremur bent á að umboðsmaður Alþingis geri á hverju ári athugasemdir við svokallaða „mein- bugi“ á lögum í mun fleiri tilvikum en þekkist annars staðar á Norðurlönd- um. Kemur fram að 45 slíkar athuga- semdir hefðu verið bornar upp vegna fyrstu tvö þúsund málanna sem hann fékk til afgreiðslu og þess getið til sam- anburðar að þetta séu fleiri mál en um- boðsmaður danska þingsins hefði feng- ist við og snerta „meinbugi" á lögum allt frá því að það embætti var stofnað árið 1954. „Ástæður þessa eru m.a. raktar til þess að lagafrumvörp eru hér ekki yfir- farin með samræmdum og skipulegum hætti með tilliti til ýmissa lagatækni- legra atriða og hvort valdheimildir þeirra samræmist ákvæðum stjómar- skrár. Undir þetta get ég tekið og hef fyrir mitt leyti fullan hug á að bæta þar um betur,“ sagði forsætisráðherra í gær. Setja skýrsluhöfundar fram þá hug- mynd í þessu sambandi að komið verði á fót lagaskrifstofu eða lagaráði sem fengi það hlutverk að fara yfir laga- frumvörp og kanna m.a. hvort ein- hverjir lagatæknilegir hnökrar eru á þeim, sem og hvort frumvörp séu sam- rýmanleg ákvæðum stjómarskrár. í þeim kafla skýrslunnar, þar sem vikið er að siðareglum fyrir opinbera starfsmenn, sagði Davíð þá niðurstöðu athygl- isverða að slíkai' reglur kæmu ekki nema að tak- mörkuðu gagni, nema þær væru sérstaklega sniðnar að aðstæðum starfsmanna á hverju sviði stjórnsýsl- unnar fyrir sig. „Alrnennar siðareglur fyrir alla opinbera starfsmenn em með öðram orðum líklegar til að vera of al- mennar til að nokkurt hald sé í þeim,“ bætti hann við. Ný siðferðisleg álitaefni Stórstigar fram- farir undanfarin fimmtán ár komi auk þess stöðugt upp og því sé bent á það í skýrslunni að vænlegra kunni að vera til árangurs að auka færni ríkisstarfsmanna til að fást við vandamál af siðferðilegum toga með menntun og þjálfun í að takast á við slík mál, heldur en að setja þeim reglur á þessu sviði. Sjálfstæðum stjórnsýslu- nefndum fjölgað mikið Davíð kvaðst telja það athyglisverð- ast við þriðja kafla skýrslunnar, sem fjallar um stjórnsýslukerfið og eftirlit með starfsemi stjórnvalda, að hann sýndi fram á hvemig þingræði og lýð- ræðislegt stjórnskipulag og stjómar- hættir væra beinlínis undir því komnir að stjórnkerfið sé byggt upp á þann hátt að ráðherrar fari með yfirstjórn stjórnsýslunnar, hver á sínu sviði. Fjallaði hann í kjölfarið um þá hefð að fella tiltekin verkefni eða verksvið innan stjórnsýslunnar að hluta eða í heild undan yfirstjórn ráðhema og fela þau í hendur sjálfstæðra stjórnvalda, ýmist stofnana með þingkjörnar stjórnir eða sjálfstæðra nefnda. Fælist það í sjálfstæði þeirra, að þær væru undanskildar eftirlits- og boðvaldi ráð- herra, nema lög heimiluðu annað sér- staklega. „Því miður er það svo,“ sagði Davíð, „að reynslan sýnir að ráðherr- um þykir þægilegt að koma hluta af valdi sínu til sjálfstæðra nefnda og úrskurðaraðila til að firra sig óþægileg- um verkum og ábyrgð. Þingið ætti að gæta þess að ráðherrar komi sér ekki undan því að axla til fulls ábyrgð með því að fella slíkar sjálfstæðar stjórnir eða ráð inn í þau framvörp sem þeir flytja." Davíð sagði ennfremur að skýrslu- höfundar bentu réttilega á það að sjálf- stæðum stjórnsýslunefndum hefði síð- ustu árin fjölgað mikið, án þess að séð yrði að nein heildarstefnumörkun byggi þar að baki. Hvettu þeir til að mótuð yrði framtíðarstefna um þróun stjómsýslukerfisins. Sagði forsætis- ráðhema að hann teldi einboðið að slík
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.