Morgunblaðið - 22.02.2000, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 37
löndum skv. skýrslu um starfsskilyrði
• við réttarbrotum í stjórnsýslu
krifstofa
rumvörp
Morgunblaðið/Ásdís
víð Oddsson forsætisráðherra í ræðustól í gær.
stefnumörkun verði hluti af þeirri end-
urskoðun á lögum um Stjórnarráð Is-
lands, sem ríkisstjórnin hefði heitið að
beita sér fyrir á kjörtímabilinu.
Davíð gerði að umtalsefni eftirlits-
hlutverk Alþingis, einkanlega með hlið-
sjón af stjórnarskrárvörðum fyrir-
spurnarétti þingsins. Sagði hann að í
skýrslunni væri bent á að æskilegt
væri að mörk yrðu dregin um það í
þingskaparlögum hvaða upplýsingar
ráðherra væri heimilt að undanþiggja í
svörum sínum, og vísaði Davíð þar í
þau tilvik þegar ágreiningur rís um það
hversu langt megi ganga í að knýja
fram upplýsingar sem ljóst þætti að
háðar væru þagnarskyldu að öðru leyti.
Tók hann undir þessa ábendingu og
sagðist reyndar telja að ekki mætti
draga öllu lengur að draga einhverjar
slíkar línur.
Loks gerði Davíð grein fyiir þeirri
ábendingu, sem fram kæmi í skýrsl-
unni, að tímabært væri orðið að taka til
endurskoðunar þann kafla almennra
hegningarlaga sem fjallaði um brot í
opinberu starfi. Sagði hann að sér
sýndist næsta sjálfgefið að þessari
ábendingu væri vísað til refsiréttar-
nefndar dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
isins.
Komið verði á fót lagaskrifstofu
eða Iagaráði
Við umi’æðurnar í gær var mikið
rætt um þá hugmynd, sem skýrsluhöf-
undar setja fram, um að komið verði á
fót lagaskrifstofu eða lagaráði sem
fengi það hlutverk að fara
yfír lagafrumvörp. Tóku
flestir undir þetta og m.a.
tengdi Guðjón A. Krist-
jánsson, þingmaður Frjáls-
lynda flokksins, þessa um-
ræðu við deilur um fiskveiðistjórn-
unai’kerfið. Sagði hann ýmsar heim-
ildir í lögum þar að lútandi á skjön við
það sem eðlilegt þætti, t.d. væri búið að
setja 27 bráðabirgðaákvæði við lögin.
Þar að auki hefði Hæstiréttur, og nú
síðast Héraðsdómur Vestfjarða, álykt-
að að hluti laganna stæðist ekki ákvæði
stjómarskrár. Sagði Guðjón að laga-
skrifstofa væri því afar æskileg, svo
tryggja mætti að lög væru almennt
ekki slíkur framskógur.
Páll Pétursson, félagsmálaráðherra
og þingmaður Framsóknarflokks, tók í
sama streng og benti á að hann hefði
þráfaldlega flutt tillögur til þingsálykt-
unar á Alþingi um stofnsetningu laga-
ráðs. Þær hefðu ekki náð fram að
ganga en hann gæti ekki betur séð en
að undir þessa hugmynd væri tekið í
skýrslunni. Gerði hann jafnframt að
umtalsefni stöðu sveitarstjórna og eft-
irlitsskyldu félagsmálaráðuneytisins á
þeim vettvangi stjómsýslunnar.
Þorgerður K. Gunnarsdóttir, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins og formað-
ur allsherjarnefndar Alþingis, sagði
hugmyndina um lagaráð einnig allrar
athygli verða og sagði almennt um
skýrsluna að hún væri liður í yfirferð á
stjórnkerfinu sem þó hefði tekið mikl-
um framförum undanfarin ár. Sagði
Þorgerður einnig að matskenndai’
ákvarðanir væru að ná yfirhöndinni í
stjórnsýslunni og taldi hún það óviðun-
andi. Akvarðanir ætti að taka á grund-
velli fastmótaðra og lögbundinna
reglna. Tók hún ennfremur vel í þá ósk
Jóhönnu Sigurðardóttur að skýrslan
færi til frekari umfjöllunar í allsherjar-
nefnd að lokinni umræðunni.
Eins og aðrir þingmenn fagnaði
Jóhanna því að þessi skýrsla væri nú
komin fram, jafnvel þótt hún hlyti að
teljast nokkuð tyrfin - minnti jafnvel
stundum á kennslubók í
lögfræði. í skýrslunni
væri nefnilega að finna
gagnmerkar tillögur að
því hvernig mætti bæta
stjórnsýslukerfið og
auka réttaröryggi borgaranna, sem og
að bæta eftirlit með starfsemi stjórn-
valda, ekki síst þegar um væri að ræða
tilvik þegar framkvæmdavaldið tæki
ákvarðanir sem byggðust á mats-
kenndum lagaheimildum og stjórn-
valdsfyrirmælum.
Gagnmerkar til-
lögur til úrbóta í
skýrslunni
George W. Bush sigraði örugglega í prófkjöri
repúblikana í Suður-Karólínu
Reuters
George W. Bush veifar stuðningsmönnum sínum eftir að sigur hans í prófkjörinu í Suður-Karólínu var orðinn
Ijós á laugardagskvöld. Við hlið hans stendur kona hans, Laura Bush.
McCain kennir nei-
kvæðum áróðri um
Livonia, Travers City. AP, Reuters, The Washington Post.
ARÁTTA frambjóðenda
um að hljóta útnefningu
Repúblikanaflokksins sem
frambjóðandi til embættis
forseta Bandaríkjanna virðist hafa
tekið nýja stefnu eftir prófkjör í Suð-
ur-Karólínu sem fram fór á laugar-
dag. Menn eru ekki á einu máli um
það hvernig skýra beri sigur George
W. Bush, ríkisstjóra í Texas, á keppi-
nauti sínum, John McCain, öldunga-
deildarþingmanni frá Arizona, í rík-
inu. I prófkjörinu, sem var opið,
hlaut Bush 53% atkvæða en McCain
42%. Aðrir frambjóðendur fengu
mun minna fylgi og munu að líkind-
um ekki koma frekar við sögu í út-
nefningarslagnum.
„Ef hann er umbótamaður,
er ég geimfari“
Stuðningsmenn McCains hafa
sagt að góður árangur Bush í Suður-
Karólínu sýni að neikvæður kosn-
ingaáróður hans hafi náð til kjós-
enda. Bush hefur hafnað þessari
skýringu og bent á kannanir sem
gerðar voru meðal kjósenda á laug-
ardag. Þær leiddu í ljós að fleiri kjós-
endur töldu að áróður McCains hefði
verið neikvæður en þeir sem álitu að-
ferðir Bush hafa verið ódrengilegar.
McCain tók fyrir viku þá ákvörðun
að beita ekki neikvæðum áróðri í
Suður-Karólínu og var meðal annars
tekin úr umferð sjónvarpsauglýsing
sem stuðningsmenn hans höfðu gert
þar sem sagt er að Bush hagræði
sannleikanum líkt og Clinton forseti.
En í ræðu sem McCain hélt eftir að
úrslitin voru orðin ljós á laugardags-
kvöld réðst hann á Bush og sagði
meðal annars að „skilaboð neikvæðni
og ótta“ hefðu fært honum sigur í
Suður-Karólínu. í gær leitaðist Mc-
Cain við að draga nokkuð úr ummæl-
um sínum á laugardagskvöld sem
skýrendur eru sammála um að hafi
skaðað hann frekar en styrkt.
McCain gagnrýndi Bush í gær fyr-
ir að gefa sig út fyrir að vera um-
bótamann en kannanir meðal kjós-
enda í Suður-Karólínu hafa leitt í Ijós
að meirihluti þeirra taldi að Bush
væri „umbótasinnaði frambjóðand-
inn“. McCain hefur lagt mikla
áherslu á það í kosningabaráttu sinni
að setja þurfi nýjar reglur um fjár-
framlög í kosningasjóði frambjóð-
enda og Bush hefur upp á síðkastið
tekið undir þennan málflutning and-
stæðings síns. McCain hélt því fram í
gær að Bush væri ekki trúverðugur
þegar hann talaði um að gera þyrfti
breytingar á reglum um fjármögnun
framboða. ,Á fimm ára ferli sem rík-
isstjóri í Texas hefur Bush aldrei
lagt til breytingar á reglum um fjár-
mögnun framboða," sagði McCain.
„Ef hann er umbótamaður, er ég
geimfari."
McCain réðst einnig að Bush fyrir
að vera ekki samkvæmur sjálfum sér
þegar hann talaði um að gæta þyrfti
BUSH virðist hafa tek-
ist að tryggja sér sigur í
Suður-Karólínu með því
að höfða til íhaldsamra
kjósenda. Ekki er víst
að sams konar aðferðir
dugi honum til sigurs í
Michigan og Arizona,
þar sem prófkjör eru
haldin í dag.
aðhalds í ríkisútgjöldum. Hann benti
á að opinber útgjöld í Texas hefðu
vaxið um 35% á þeim tíma sem Bush
hefði gegnt embætti ríkisstjóra.
Hafa skipt um hlutverk
Haft er á orði að Bush og McCain
hafi skipt um hlutverk í kosninga-
baráttunni eftir úrslitin í Suður-
Karólínu. Nú virðist sem Bush vilji
einbeita sér að því að kynna stefnu-
mál sín og framtíðarsýn í stað þess
að ráðast að höfuðkeppinauti sínum.
„Mér virðist sem McCain öldunga-
deildarþingmaður vilji verja tíman-
um í að tala um mig og ég vil verja
tímanum í að tala um framtíðina,“
sagði Bush í gær.
Þátttaka í prófkjörinu í Suður-
Karólínu var meira en tvöfalt betri
en fyrir fjórum árum og fjöldi
óflokksbundinna tók þátt. Alls
greiddu nálægt 600.000 manns at-
kvæði í prófkjörinu. Eins og staðan
er nú hefur Bush 61 kjörmann að
baki sér en McCain 14. Eftir er að
kjósa um 1.975 kjörmenn. Frambjóð-
andi þarf að minnsta kosti að hafa
1.034 kjörmenn að baki sér til að
hljóta útnefningu flokksins.
Stuðningsmenn McCains höfðu
spáð því að góð þátttaka í prófkjör-
inu kæmi sér vel fyrir McCain en svo
reyndist ekki vera. Kjósendur í Suð-
ur-Karólínu eru almennt taldir vera
íhaldsamir og fastheldnir á kristileg
gildi og er Bush sagður hafa gert
mikið til að höfða til þeirra. Út-
göngukannanir sem gerðar voru
meðal kjósenda á laugardag benda
til þess að tveir þriðju hlutar þeirra
kjósenda sem telja sig kristna hefð-
arsinna hafi kosið Bush en einn þriðji
þeirra McCain. Fylgi Bush meðal
repúblikana var mun meira en fylgi
McCains. Kannanir sýna að meira en
þrír af hverjum fjórum kjósendum
Bush sögðust vera repúblikanar en
einungis tveir af hverjum fimm
þeirra sem kusu McCain.
Óvissa um útkomuna í
Michigan og Arizona
I dag fara fram prófkjör í tveimur
ríkjum, Michigan og Ai’izona. Sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun Reut-
ers-fréttastofunnar, sem birt var
síðla á sunnudag, er mjög mjótt á
munum milli Bush og McCains í
Michigan en flestir virðast búast við
að McCain hafi sigur í Arizona. Sam-
kvæmt könnun Reuters hefur Mc-
Cain tveggja prósentustiga forskot á
Bush í Michigan meðal þeirra kjós-
enda sem taka afstöðu. í könnuninni
voru óákveðnir kjósendur spurðir
um það að hvorum frambjóðendanna
þeir hallast. Ef svör þeirra eru tekin
með í reikninginn verður útkoman sú
að fylgi frambjóðendanna er jafnt.
44%.
Talið er að sú áhersla sem Bush
lagði á að laða til sín fylgi frá íhald-
sömum kjósendum í Suður-Karólínu
muni ekki nýtast honum í Michigan.
Skýrendur hafa meðal annars bent á
að heimsókn Bush í Bob Jones-há-
skólann í Suður-Karólínu, sem sagð-
ur er fóstra hefðbundin gildi krist-
inna mótmælenda og andúð á
kaþólskum, verði vart til að auka
honum fylgi meðal íbúa í ríkinu. Stór
hluti íbúa Michigan eru kaþólskir.
Bush hefur varið sig með því að
benda á að bróðir hans og ríkisstjóri í -
Flórída, Jeb Bush, sé kaþólskur.
Stuðningsmenn Bush hafa undan-
farna daga lagt hart að sér í kosn-
ingabaráttunni í Arizona en almennt’
er talið að McCain muni fara þar með
sigur af hólmi, enda í vissum skiln-
ingi heimavöllur hans þar sem hann
er annar tveggja öldungadeildar-
þingmanna ríkisins.
Fyrir báða frambjóðendur varðar
þó mestu hver útkoma þeirra verður
í prófkjörum sem haldin verða 7.
mars næstkomandi. Þá verður kosið
í 12 ríkjum, þeirra á meðal í fjöl-
mennasta ríkinu, Kaliforníu.
Forskot Bush minnkar
Fylgismenn McCains hafa meðal
annars viljað skýra ósigur hans í
Suður-Karólínu með vísan til þess
hve miklu meiri fjármuni Bush hafi
til ráðstöfunar í kosningabaráttunni.''
Hins vegar hefur forskot Bush að
þessu leyti minnkað nokkuð síðustu
vikur.
Bush er sagður hafa varið um 50
milljónum Bandaríkjadollara í kosn-
ingabaráttu sína fram til þessa. Það
jafngildir rúmlega 3,5 milljörðum ís-
lenskra króna. í lok janúar er talið að
um 20 milljónir dollara hafi verið í
kosningasjóðum Bush, um 1,4 millj-
arðar króna, en ljóst er að hann hef-
ur varið miklu fé í kosningabarátt-
una síðan þá.
McCain hafði aðeins um 342.00Q.
dollara til ráðstöfunar í upphafi mán-
aðarins, jafnvirði um 24 milljóna ís-
lenskra króna. En eftir sigur hans í
prófkjörinu í New Hamsphire-ríki
hefur hann náð að safna gríðarlegum
fjármunum og hefur framboð hans
nú samkvæmt upplýsingum stuðn-
ingsmanna jafnvirði 568 milljóna
króna til ráðstöfunar. ,