Morgunblaðið - 22.02.2000, Síða 41

Morgunblaðið - 22.02.2000, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 41 HESTAR 3. Högni Bæringsson á Gjósta frá Stykkishólmi, eig.: Högni Bær- ingsson 4. Benjamín Markússon á Toppi frá Vesturholti, eig. Benjamín Mark- ússon Stigahæsti knapi.: Lárus Á. Hann- esson. Vetrarleikar Andvara á Andvaravöllum Börn: 1. Bergrún Ingólfsdóttir á Muggi frá Kálfholti 2. Iris Þorgeirsdóttir á Gusti 3. Unnur G. Ásgeirsdóttir á Dögg 4. Daníel Gunnarsson á Loka 5. Ásta Harðardóttir á Hrannari Unglingar: 1. Bylgja Gauksdóttir á Kolgrímu frá Ketilsstöðum 2. Hrönn Gauksdóttir á Hrefnu frá Þorleifsstöðum 3. Birgir Olsen á Galsa 4. Margrét S. Kristjánsdóttir á Dreka 5. Hugrún Þorgeirsdóttir á Orku Ungmenni: 1. Ingunn B. Ingólfsdóttir á Kjarna frá Kálfholti 2. Theodóra Þorvaldsdóttir á Kjarki frá Neðra-Bóli 3. Aníta Aradóttir á Valkyrju Kvennaflokkur: 1. Edda S. Þorsteinsdóttir á Hróki 2. Sigrún Sigurðardóttir á Hryðju frá Garðabæ 3. Elva Harðardóttir á Axel 4. Sigrún Erlingsdóttir á Fjalari frá Skeljabrekku 5. Erla G. Gylfadóttir á Hróki Karlaflokkur: 1. Siguroddur Pétursson á Hyllingu frá Hjarðarholti 2. Jón Styrmisson á Grána 3. Jón Ó. Guðmundsson á Vakri frá Ólafsvík 4. Ingimundur Jónsson á Patta 5. Gunnar Hafdal á ísak frá Múla Töltkeppni í Blönduóshöllinni 1. Halldór P. Sigurðsson á Reind frá Efri-Þverá 2. Hjörtur Einarsson á Straumi frá Vogum 3. Jón Kristófer á Djásni frá Blöndu- ósi 4. Herdís Einarsdóttir á Glætu frá Grafarkoti 5. Sigfús Eyjólfsson á Óðni frá Blönduósi Fæðingar- staðirnir fylgi með TIL að fríska upp á minni móts- haldara skal á það minnt að þegar úrslit móta eru send til birtingar á hestasíðu er það sett sem skilyrði að fram komi fæðingarstaður hrossanna. Venjan þegar um íþróttamót er að ræða er að birta nafn knapa, nafn hests, fæðingar- stað og einkunnir. Fyrst einkunn úr forkeppni og þá skástrik og ein- kunn í úrslitakeppni. Atriðin skulu vera í þessari röð. Ef um gæðinga- keppni er að ræða skal röðin vera sem hér segir: Nafn hests, fæðing- arstaður, nafn eiganda, nafn knapa og einkunnir á sama hátt og í íþróttakeppni. Sama á við þegar um úrslit kappreiða er að ræða en þá koma tímar í stað einkunna. Best er að senda úrslitin með tölvupósti á vakr@mbl.is fyrir klukkan 18 á sunnudögum. Omæld síteng- ing við N etið Um sítengingu var fjallað í Mbl. í frétta- greinum í nóv. og grein sem ég reit 8. des. Síð- an hefur hún lítt borið á góma. Jú, drepið var á tih-aun með sítengingu hóps starfsmanna Sím- ans og að HI ynni að sí- tengingu stúdenta. Um símamál er eink- um fjallað í tengslum við merkilegar nýjung- ar í farsímum og furðu- möguleika þeirra. Ekki hef ég séð þess getið í fjölmiðlum að ESB rannsakar verðlagn- ingu farsímanotkunar, einkum vegna hárra farsímagjalda þegar hringt er frá útlöndum til heimalands. Samkeppni í farsíma- notkun hefur leitt til lækkunar sem fyrirtækin bæta sér þannig vel upp. Fréttir frá Bretlandi Kröfur um ómælda tengingu við Netið sem getið var um í fyrri grein leiddi furðu fljótt til þess að megin- símafyrirtækið BT (British Tele- communications) ákvað að gefa kost á ómældri sítengingu. Þannig varð það allt í einu fært sem áður var sagt tæknilega ógerlegt. Fyrirkomulagið kallast „BT Surftime" og kostar kr. 812-4000/mán. Þetta fer í þá átt sem Times krafð- ist í átakinu „Free the Net“ ásamt hreyfingunni „CUT“. Vonir Breta vöknuðu um að þeir færu héðan í frá sömu leið og Bandaríkjamenn í net- málum. Án tillits til klukku megi versla á vefnum, lesa bækur og tím- arit og taka þátt í upplýsingasam- félaginu af alefli. Ekki voru þó allir ánægðir, sögðu að 4000 kr. væri tvisvar sinnum hærri upphæð en gerðist í Bandaríkjum NA. Þyrfti því að herða lokaátakið. í Bretlandi er samkeppni á þessu sviði. Snemma í þessum mánuði bauð kapalfyrirtækið Telewest þeim 4.5 millj. heimilum er það þjónar upp á „SurfUnlimited". Það þýðir ómæld- an netaðgang með mótaldi allan sól- ai-hringinn, alla daga. Sú takmörkun er að samband rofnar ef notkun ligg- ur niðri í meira en 30 mín. Netteng- ingin kostar kr. 1200/mán. Þessi ákvörðun virðist hvorki mik- il né merkileg. Þarna gerði sam- keppnisaðili nákvæm- lega það sem almenn- ingur krafðist og hafði sýnt fram á að væri mögulegt. En fleira gerðist. BT fellur í verði Eins og gefur að skilja er mikið fjallað um BT, þetta lang- stærsta símafélag Bretlands, ekki síst í sambandi við umræðu um Netið. I byrjun mánaðarins féllu hluta- Eggert bréf fyrirtækisins um Ásgeirsson 25%. Svo slæmt var það að fyrirtækið ákvað að fækka starfsliðinu um 3000, til að draga úr kostnaði, en þegar hafði því fækkað úr 241 þús. í 137 þús. frá því að fyrirtækið fór á markað fyrir 15 árum. Verðmæti þess hafði vaxið mjög hluthöfum til gleði. En fyrir- tækið stóð sig ekki sem skyldi, þrátt fyrir (eða vegna) stærðina. Síma- málastjórn reyndi, með litlum árangri þó, að hafa hemil á fyrirtæk- www.mbl.is ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR Innréttingar Fn' teiknlvinna og tilboösgerö #Fríform I HÁTÚNI 6A (i húsn. Fönix) SÍMI: 552 4420 NYTT-NÝTT Ný sterk fljótandi bíótínblanda flSTunc FREMSTIR FYRIR GÆÐI Fjarskipti Þá fyrst ná þjóðir tökum á nýrri viðskiptatækni, segir Eggert Asgeirs- son, er þeir koma sér upp samskiptakerfí þar sem Netið nýtist til fulls. inu til að samkeppni fengi notið sín. Allt kom fyrir ekki. Kapal- og far- símafyrirtækin tóku sinn toll. Fólk missti trú á fyrirtækinu. Kvartanir urðu háværar m.a. vegna mikils grobbpósts til notenda. Framtíð fyr- irtækisins er því dökk og þeir eiga um sárt að binda sem eiga hlutabréf í fyrirtækinu. „BT Surftime“ bíður sennilega lægri hlut fyrir tilboði Telewest. Líklegt er að kapalfyrir- tækin taki innan tíðar höndum sam- an. Þau hafa mörg tækni á sínu valdi sem tekur fram breiðbands- og ADSL-tækninni, sem BT byggir framtíð sína á. Fleiri raunir steðja að fyrirtækinu. Þýskaland og Japan Þróunin heldur áfram. Deutsche Telecom býður nú ómælda síteng- ingu við Netið fyrir um kr. 3700/mán. Japanh- virðast líka vera að beygja sig fyiir ómældri netnotkun. Verð þein’a mun verða kr. 2700/mán. Var raunar ekki fyrr en viðskiptaráðu- neyti og stórfyrirtæki þrýstu á NTT, meginsímafyrirtæki landsins, að fyr- irtækið tók sinnaskiptum. Þá hafði það einnig áhrif að eina ferðina enn var landið sakað um fyrirkomulag sem hindraði viðskipti. Þótt NTT hafí lengi staðið gegn framfórum á þessu sviði er nú talið að fyrirtækið sjálft muni fleyta rjómann af við- skiptunum sem vaxa munu í kjölfar- ið. Þar eins og annars staðar. Notandinn Því miður er umræðu um Netið komið svo að notendasjónarmið eru ekki í hávegum höfð. Lítt er rætt um verðlag og útgjöld sem þeir verða fyrir sem nota þurfa Netið í daglegu lífi sínu, námi og störfum, og greiða úr eigin vasa. Umræðan kafnar í tækni og sölumennsku. Sítenging er vaxandi í landinu. Er þá ekki aðeins átt við stúdenta HÍ og starfsmenn Landssímans. Margir sem nota Netið í fyrirtækjum eru sí- tengdir. Er undir hælinn lagt hvort starfsmenn nota tengingar í starfi í einkaþágu. Vitaskuld er slík notkun óæskileg, bæði vegna starfsins og einkalífsins. Það truflar á báða bóga, kemur engan veginn að fullu gagni. Kostnaður hindrar því útbreiðslu Netsins og eflingu viðskipta. Netið kemur að litlu haldi nema menn hafí tíma og ró til að afla upp- lýsinga og vinna úr þeim. Við bóka- kaup hljóta menn fyrst að leita upp- lýsinga um hvar bókina er að finna, hvar verðið er hagstætt, ganga frá pöntun og fylgjast með henni. Ef ferðalög eru undirbúin á Netinu tek- ur það, ef vel á að takast, allmikinn tíma. Tímaspamaður er tæpast af slíkum viðskiptum í byrjun en miklir viðbótarkostir. Um gagnasöfnun og -vinnslu er öðru máli að gegna, flókin gestaþraut, sem eðli málsins sam- kvæmt tekur tíma. Fjölgar þeim við- fangsefnum sem Netið gerir mögu- leg og erfitt var eða ómögulegt áður nema stofna til mikils kostnaðar. Kannski er það í viðskiptum sem byltingin á sér stað. Við notum margvíslega furðutækni til að ganga frá viðskiptum í nýjustu tegundum farsíma. Allt er undh’ tölvum og net- tengingu komið; vinnu sem þar á sér i stað þótt endahnútinn megi binda í 1 farsíma. Að lokum Án þess að ná tökum á viðskiptum á Netinu verða menn illa staddir. Bylting er í sjónmáli ef menn hafa vald á tækninni og fyrirtækin stilla sína strengi saman. Margar þjóðir líta þennan þátt sem undirstöðu efnahagsframfara, jafnaðar og jafn- réttis. Þá fyrst ná þjóðir tökum á nýrri viðskiptatækni er þeir koma sér upp samskiptakerfi þar sem Netið nýtist > til fulls. Forysta þjóðarinnar gerir sér von um að selja Landssímann háu verði. Vafalaust reynist það svo ef fyrir- tækinu auðnast að svara kalli tímans. Kannski kemur rafmagnskerfið samkeppninni til bjargar með sí- tengingu og fleiri framförum í sam- skiptatækni. Ef svo fer, sakar ekki þótt útlend fyrirtæki kaupi síma- kerfið eins og það leggur sig. Annars ekki. Höfundur er verkefnastjóri é Með pennann að vopni gegn mannréttindabrot- um í löndum syðri Afríku Vertu með - ai3@visir.is Þvottavélar fyrir vélahluti Tilboð í mars Já simi kó sf. 564 1819 á. Til hammgju Skagfirðingar Við óskum skíðadeild Tindastóls og öðrum skíðamönnum ó landinu til hamingju með nýtt skíðasvæði. 1200 metra löng Leitner spjaldalyfta tryggir öryggi og þægindi skíðafólks. Langar brekkur, staðsettar í sunnanverðum Tindastól með fögru útsýni yfir Skagafjörð, henta jafnt byrjendum og þeim sem lengra eru komnir. Hi ..y., . % : >v%. t *: VV\ V ; Geisiöflugur Leitner LH500 snjótroðari með fjöltönn skapar gestum svæðisins öruggar rastalausar skíðabrekkur. ístraktor LEITNER UMBOÐIÐ Á ÍSLANDI SMIÐSBÚÐ 2 - GARÐABÆ - SlMI 5 400 800

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.