Morgunblaðið - 22.02.2000, Qupperneq 45

Morgunblaðið - 22.02.2000, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 45 j UMRÆÐAN ESB-stuna úr Alþingi Evrópusambandið, ESB, efndi núna í febrúar til einnar ríkj- aráðstefnunnar enn. Ríkjaráðstefnur ESB eru ígildi stjórnar- skrárendurskoðunar. Þær standa jafnan nokkuð lengi og eru kenndar við borgirnar þar sem skrifað er undir nýjan sáttmála. A síðustu fjórtán ár- um hefur í fjórgang verið boðað til ríkja- ráðstefnu: Lúxemborg 1986, Maastrict 1992, Amsterdam 1997 og Nice 2000. Þjóðríki sem fjórum fjórtán árum efndi til skrárendurskoðunar kreppu. Páll Vilhjálmsson sinnum a stjórnar- væri í Stjórnarskrár eru grund- vallarlög sem annað laga- og reglu- verk byggist á. Þegar endurskoða þarf grundvöllinn á fárra ára fresti er það óræk sönnun fyrir djúpristu ósætti þeirra sem aðild eiga. Ósætti aðildarríkja ESB um grundvöll sambandsins á sér margar skýringar. ESB er ekki lýðræðislegur vettvangur almenn- ings 15 aðildarríkja. Sambandið var stofnað af stjórnmála- og við- skiptaelítu meginlandsríkjanna í stríðsþreyttri Vestur-Evrópu fyrir hálfri öld. Framkvæmdastjórn ESB hefur séð um daglegan rekst- ur Evrópuhugmyndarinnar og ver- ið borgaraleg útgáfa af fulltrúaráði ítalskrar mafíu þar sem fyrirmenn- in tilnefna handlangara sína til að véla um völd og áhrif bakvið luktar dyr. Vinsældir kaupir fram- kvæmdastjórnin sér með útdeil- ingu þurfalingsstyrkja þvers og kruss um Evrópu. Sundhallir og félagsmiðstöðvar í krummaskuðum víða um álfuna eru merktar ESB og afhjúpa að sannfæring sem ekki býr í hug og hjarta þegnanna verður að grópa í málmskilti á opinberar byggingar. Til að koma sér upp lögmæti tjaslaði ESB saman Evrópuþingi sem almenningur kýs til. Þingið er svotil valdalaust og kosn- ingarnar eru regluleg- ur farsi í aðildarríkj- unum þar sem trúðar, fasistar og fífl ná betri árangri en hversdaglegir stjórn- málamenn. Kjörsókn er eftir því, víðast vel undir þrjátíu pró- sentum. Endrum og sinnum daðra ís- lenskir stjórnmálamenn við ESB- aðild, flestir með heimilisfestu í Al- þýðuflokknum. Nú síðast kemur stuna frá Þórunni Sveinbjarnar- dóttur, þingmanni Samfylkingar- innar, sjá Mbl. 17. feb., sem vill að- ildarumsókn strax. „Eyrir því eru augljósar og gildar ástæður sem frjálslyndir stjórnmálamenn og kjósendur um alla álfuna hafa fylkt sér um,“ segir þingmaðurinn eftir að hafa þulið upp valin atriði úr regluverki ESB. Með sama lestri og Þórunn er hægt að finna mann- réttindum stað í stjórnarskrá Þriðja ríkisins. Trúarsannfæring þingmannsins er óumdeild en hvorki kemur fram skilningur á tilgangi ESB né á stöðu Islands í evrópsku samhengi. Þeir atburðir sem helst eru tengd- ir stofnun ESB hafa gagnólíka merkingu hér. Fyrri heimsstyrjöld færði okkur fullveldi og sú seinni lýðveldi. Varla er það tilviljun að því fjær sem þjóðir standa valda- miðjunni í Brussel landfræðilega, menningarlega og pólitískt því tregari eru þær til fylgilags við ESB? Bretar hafna sameiginlegum gjaldmiðli, Norðmenn inngöngu og Islendingar hafa málið ekki á dag- skrá. Þær þjóðir sem banka upp á hjá ESB leita að öryggi og efna- hagslegri velmegun. Endrum og sinnum, segir Páll Vilhjálmsson, daðra íslenskir stjórnmálamenn við ESB-aðild. Undirritaður tók þátt í því að koma Þórunni á lista Samfylking- arinnar á Reykjanesi í vetur leið vitandi um fortíð hennar í íslensk- evrópskum ungmennasamtökum um ESB-aðild en taldi að Þórunn myndi láta af gelgjunni á þingi. Hvort nú sé fullreynt skal ósagt en vinsamlegt væri af Þórunni að láta vita í tæka tíð fyrir næstu kosning- ar hvar hún stendur. í aðdraganda síðustu kosninga sagði hún ekki múkk um ESB. Höfundur er fulltrúi. Fjárfestar athugið! Öll almenn verðbréfaviðskipti með skráð og óskráð verðbréf. yáVerðbréfamiðlunin Annarhf verðbréf Löggilt óháð fyrirtæki í verðbréfaþjónustu • Aðili að Verðbréfaþingi íslands • Suðurlandsbraut 46 • Sími : 568 10 20 www. Netvers VasHhuDi A L H L i O A VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR 1 Fjárhagsbókhald > Sölukerfi I Víðskiptamanna kerfi i Birgðakerfi I Tilboðskerfi I Verkefna- og pantanakerfi i Launakerfi I Tollakerfi Vaskhugi ehf. Síðumúla 15 - Sími 568-2680 Stimpilklukkukerfi SKERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 • Simi 568 8055 http://www. kerf isthroun. is/ visindamonnum? Vissir þú að fjöldi bóka og vísindagreina hefur veriö skrifaður um KYOUC kaldþroskuðu hvítlauksafuröina af vísindamönnum sem hrifist hafa af gagnsemi hennar. Ennfremur hafa yfir 120 staðfestar vísindarannsóknir á KYOLIC veriö birtarí viðurkenndum tímaritum f líffræöi, læknisfræði og næringarfræði. Krabbameinsstofnun Bandarikjanna og Ríkisháskóii Pennsylvaníu voru styrktaraðilar ab vísindaráðstefnu 15.-17. nóv. 1998 þar sem kynntar voru nýjustu rannsóknir á KYOLIC. Skoðaðu rannsóknirnar á netinu: www.kyolic.com Bheilsuhúsið mælir meö KYOUC Dreifing: Logaland ehf. i\LLT TIL RAFHITUNA Fyrír bimiii - siiNierhús - fyrirtehi ELFA-OSO hitakútar og túbur Ryðfríir kútar með áratuga frábæra reynslu. Stærðir á lager: 30—50—80—120—200 og 300 lítra. Getum útvegað stærðir frá 400—1.000 lítra. Blöndunar-, öryggis- og aftöppunarlokar fylgja. Ennfremur bjóðum við hitatúbur frá 6—1200 kW og elektróníska vatnshitara fyrir vaska og handþvott. ELFA-VÖSAB olíufylltir ofnar Fallegir, einstaklega jafn og þægilegur hiti, engin rykmengun, lágur yfirborðshiti. Thermostatstýrðir. Kapall og kló fylgja. Stærðir á lager: 400-750-800 og 1.000 W. Hæð: 30 eða 60 sm. Getum einnig útvegað tvöfalda ofna. HAGSTÆTT VERÐ! Einar Farestveit&Co.hf. HdJmörft 50 tíra Intersport m jr aik mm jr m -m- skioagongumotið fyrir alltt fiölskyldutiq Þann 27. febrúar verður haldið skíðagöngumót fyrir almenning í Heiðmörk. Lagt verður af stað frá Borgarstjóraplani. Keppt verður í karla- og kvennaflokki, 16 ára og eldri, og drengja- og stúlknaflokki, 16 ára og yngri. Mótið hefst ki. 13.30 og þurfa þátttakendur að vera komnir klukkustund fyrir þann tíma. Mótið er fyrir alia, byrjendur sem lengra komna. INTERSPORT mun veita verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum fiokki. Að auki fá aliir keppendur þátttökuskjai með skráðum tíma. Markmiðið með mótinu er að ná til allrar fjölskyldunnar og að kynna Heiðmörk sem skíðagöngusvæði. Skráning ferfram í versiuninni VINTERSPORT. Á staðnum og á netfanginu vignirs@mi.is Ekkert þátttökugjald. Boðið verður upp á heitt kakó frá Swiss Miss. Skógrcektarfélag Reykjavíkur Innes Reykjavík menningarborg Evrópu árið 2000 Þín frístund - Okkar fag VINTERSPORT Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is Aöalfundur islenska Hugbúnaöarsjóösins verður haldinn að Hótel Loftleiðum, Þingsal 1-4, miðvikudaginn 1. mars 2000 og hefst kl. 14:00. Dagskrá: 1. Aðalfundarstörf samkvæmt 4.06. gr. samþykkta félagsins. 2. Tillögur til breytinga á samþykktum. 3. Tillaga um kaup félagsins á eigin hlut samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga. 4. Önnur mál sem eru löglega upp borin. Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðalfundi skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti, eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu endurskoöenda munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, aö Laugavegi 77, Reykjavík, hluthöfum til sýnis sjö dögum fyrir aðalfund. Til þess aö hafa atkvæðisrétt á fundi skal hluthafi hafa veriö skráður i bækur félagsins í síöasta lagi 8 dögum fyrir fundinn. í byrjun fundar skal athuga hvort fundarmenn hafi rétt til aö sitja fundinn og greiða atkvæði, samkvæmt 2. mgr. 4.07. gr. í samþykktum félagsins. Atkvæöaseölar og önnur fundargögn veröa afhent viö upphaf fundarins. Reykjavík, 21. febrúar 2000 Stjórn íslenska Hugbúnaöarsjóösins hf. íslenski Hugbúnaöarsjóöurinn hf. * jr
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.