Morgunblaðið - 22.02.2000, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 55
Keppni í tvímenningi á Bridshátíðinni var ekki spennandi
Glæsilegur sigur Magnúsar og Sævars
Morgunblaðið/Amór
Sigurvegarar mótsins ásamt sænsku meisturunum í mótslok, en þessi
pör mættust í lokaumferðinni þá í 1. og 2. sæti. Talið f.v.: Tommy Gull-
berg, Sævar Þorbjörnsson, Magnús E. Magnússon og Lars Anderson.
BRIDSHATIÐ
H « t e 1 L o f 11 e i ð i r
TVÍMENNINGUR
124 pör. 18. til 21. febrúar.
Magnús E. Magnússon og Sævar
Þorbjörnsson sigruðu af öryggi í tví-
menningnum á Bridshátíð sem lauk
síðdegis á laugardaginn. Þeir hlutu
814 stig yflr meðalskor og tæplega
200 stigum meira en næstu pör. Mik-
il barátta var um næstu sæti og mun-
aði aðeins 25 stigum á öðru og sjötta
sæti.
Magnús og Sævar tylltu sér á
toppinn þegar þremur umferðum
var ólokið og þaðan varð þeim ekki
haggað þrátt fyrir að stórstirni bæði
austan og vestan hafs sæktu að
þeim. Svíarnir Peter Fredin og
Magnus Lindkvist náðu öðru sætinu
með góðri skor í síðustu umferðinni
en þeir voru í hörkukeppni við Stein
Willy Andreasson og Svein Pamas.
Guðmundur Páll Arnarson og Þor-
lákur Jónsson hrepptu svo fjórða
sætið og Tommy Gulberg og Lars
Anderson það fimmta, en þeir spil-
uðu lokasetuna við Magnús og Sæv-
ar og riðu ekki feitum hesti frá þeirri
viðureign.
Lokastaða efstu para í mótinu
varð annars þessi:
Magnús Magnúss. - Sævar Þorbjömss. 814
PeterFredin-MagnusLindkvist 628
Stein W. Andreasson - Svein Pamas 616
Guðm. P. Amarson - Þorlákur Jónss. 610
Tommy Gullberg - Lars Anderson 609
Gylfi Baldurss. - Ralph Fisher 603
Ólafur Steinason - Þröstur Ámason 568
George Mittelman - Ralph Katz 538
John K. Schjelderupsen - Dag Jensen 532
Hjördís Eyþórsd. - Curtis Cheek 525
Ágæt útkoma Ólafs Steinasonar
og Þrastar Árnasonar vakti athygli,
en þeir leiddu mótið nokkrar um-
ferðir, eða þar til þeir mættu Magn-
úsi og Sævari. Frá þeirri setu stóðu
Sævar og Magnús upp með þrjá
toppa úr fjórum spilum og tóku for-
ustuna sem þeir héldu til loka. Þetta
var eitt af spilunum í setunni:
Suður gefur, NS á hættu.
Svíarnir Peter Fredin og Magn-
us Lindkvist náðu öðru sæti í tví-
menningnum eftir hörkukeppni.
Norður
♦ 84
v K52
♦ Á9762
+ K85
Vestur Austur
x K953 * ÁDIO
v 9763 v G1084
♦ KDG4 ♦ 8
* 4 + D10972
Suður
A G762
*AD
♦ 1053
+ AG63
Ólafur og Þröstur sátu NS. Þröstur
opnaði á 1 laufi í suður, Ólafur í norð-
ur sagði 1 tígul og Þröstur 1 grand
sem passað var til Magnúsar í aust-
ur. Það gefur sjaldan vel að spila
vörn gegn 1 grandi í tvímenningi og
Magnús ákvað að berjast um bútinn,
sagði 2 lauf.
Þröstur passaði og Sævar taldi
víst að Magnús ætti mótttöku í öðr-
um hvorum háhtnum. Hann breytti
því í 2 hjörtu sem hefðu sennilega
unnist. En Ólafur sagði eðlilega 2
grönd með norðurspilin og þar við
sat.
Sævar spilaði út spaða og Magnús
tók ÁD og spilaði tíunni sem hélt
slag. Hann skipti þá í hjarta og sagn-
hafi stakk upp ás, og spilaði tígli og
gaf Sævari á gosann. Sævar tók þá
spaðaslaginn og fékk á endanum
slag í viðbót á tígul. Spilið var því
einn niður, 100 til AV og nánast
toppur því við nær öll önnur borð
fengu NS að spila 1 grand og vinna
víða með yfirslögum.
Verðlaun fyrir 15 sæti
Til nokkurs var að vinna í mótinu
því veitt voru verðlaun fyrir 15 efstu
sætin. Fyrstu verðlaun voru 3.400
dalir eða um 250 þúsund kr. Önnur
verðlaun, 2.400 dalir, þriðju verðlaun
1.600, fjórðu verðlaun 1.200 dalir og
fór síðan lækkandi niður í 100 dali
fyrir 12.-15. sæti.
Keppnisstjórar voru Sveinn Rún-
ar Eiríksson og Eiríkur Hjaltason,
reiknimeistari var Steingrímur
Gautur Kristjánsson og Stefanía
Skarphéðinsdóttir framkvæmda-
stjóri Bridssambandsins var móts-
stjóri.
ArnórG. Ragnarsson
GuðmundurSv. Hermannsson
V Spilakvöld Varðar
Hið árlega áramótaspilakvöld Varðar verður haldið í Súlnasal
Hótels Sögu sunnudaginn 27. febrúar kl. 20.30.
Glæsilegir spilavinningar að vanda.
Meðal annars: Utanlandsferðir, bækur, matarkörfur o.fl.
Aðgangseyrir kr. 700.
Allir velkomnir,
Vörður - Fulltrúaráð
sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík.
FUIMOIR/ MAININFAGNAÐUR
Guomundur Runólfssdn hf
Aðalfundur
Aðalfundur Guðmundar Runóifssonar
hf., verður haldinn föstudaginn 3. mars
nk. kl. 14.00, í húsakynnum félagsins á
Sólvöllum 2, Grundarfirði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
FELAG
ELDEI
BORGARA
Aðalfundur
Aðalfundur Félags eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni verður í Ásgarði, Glæsibæ, sunnu-
daginn 27. febrúar nk. kl. 14.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
F-E-B
Aðalfundur BÍF
Aðalfundur Bandalags íslenskra farfugla verður
haldinn í Farfuglaheimilinu, Sundlaugavegi 34,
105 Reykjavík, mánudaginn 6. mars kl. 20.00.
Venjuleg aðalfundarstörf.
AUGLÝSINGA
STYHKIR
Auglýsing um styrki úr
Fræðslusjóði brunamála
í samræmi við reglugerð nr. 138/1993, skv.
24. gr. laga nr. 41/1992, er hér með auglýst
eftir umsóknum um styrki úr Fræðslusjóði
brunamála.
Fræðslusjóður brunamála starfar innan Bruna-
málastofnunar ríkisins. Markmið sjóðsins er
að veita þeim, sem starfa að brunamálum,
styrki á sviði brunamála. Sjóðurinn greiðir
styrki til rannsókna- og þróunarverkefna,
námskeiðsgjöld, ferða- og dvalarkostnað, laun
á námsleyfistíma og styrki vegna námskeiða
og endurmenntunar.
Auk styrkja til stakra verkefna mun sjóðurinn
á þessu ári styrkja yfirmenn slökkviliða til að
sækja námskeið, sem Brunamálastofnun skipu-
leggur í samvinnu við þjálfunarmiðstöðvar
slökkviliða erlendis. Styrkirtil námskeiðanna
verða veittir viðkomandi slökkviliðum og skulu
slökkviliðsstjórar sækja um fyrir hönd þeirra
manna, sem þeir hyggjast senda á námskeiðin.
Umsóknir um styrki skal senda Brunamála-
stofnun ríkisins, Laugavegi 59, 101 Reykjavík,
fyrir 10. mars, 2000 merktar: „Fræðslusjóður
brunamála."
Athygli skal vakin á því, að ef styrkur er ekki
nýttur innan tveggja ára frá veitingu hans, fell-
ur styrkveitingin úr gildi.
Nánari upplýsingar um styrkveitingar og starf-
semi sjóðsins veitir Steinar Harðarson verk-
fræðingur. Upplýsingar um yfirmannanám-
skeiðin veitir Guðmundur Haraldsson, skóla-
stjóri.
Sími Brunamálastofnunar er 552 5350,
fax 552 5413, netfang brs@brs.is.
Stjórn Brunamálastofnunar ríkisins.
KEIMNSLA
Grænmetisnám-
skeið Sólveigar
Ekkert ger og enginn sykur
Framhaldsnámskeið sunnudaginn 5. mars
kl. 10—16. Lærið að útbúa lítið hlaðborð.
Námskeiðið er einn dagur og kostar 6.000 kr.
Tekið er á móti skráningum á skrifstofu Græns
kosts í síma 552 2607 frá kl. 8.00—11.30.
Almennt námskeið 12. mars kl. 10.00—16.00.
IMámskeiðin eru haldin í Matreiðsluskólan-
um okkar, Bæjarhrauni 16, Hafnarfirði.
Grunnnámskeið:
Atferlismeðferð
fyrir börn með einhverfu
2. og 3. mars 2000, kl.9-16
í Gerðubergi
Ætlað aðstandendum barna með einhverfu og
þeim sem með þeim vinna. Gert er ráð fyrir að
þátttakendur hafi setið grunnnámskeið um
einhverfu eða fengið sambærilega fræðslu.
Meðal efnis: Helstu hugtök og aðferðir atferlis-
greiningar, rannsóknaniðurstöður á árangri,
innihald og framvinda meðferðar.
Skráning 21.-25. febúar,
kl. 9-12 ísíma 564 1744
Netfang: fraedsla@greining.is
Upplýsingar einnig á heimasíðu: www.greining.is
KENNSLA
Söngnámskeið
fyrir unga sem
aldna, laglausa
sem lagvísa,
hóptímar/
einkatímar.
Námskeiðin
hefjast 9. mars.
Símar 699 2676. 568 7111.
Söngsetur
islhrr Hcslgu
BolhoTil «. 165 Revkjavík.
FÉLAGSLÍF
□ HLÍN 6000022219 IVA/
□EDDA 6000022219 11 - 7
I.O.O.F. Rb. 1 = 1492227-
□ FJÖLNIR 6000022219 III
Aðaldeild KFUK,
Holtavegi
Fundur í kvöld kl. 20.30.
Kynning á systradögum í um-
sjá Ástu Jónsdóttur.
Allar konur velkomnar.
mbl.is
Stjórnin.