Morgunblaðið - 22.02.2000, Síða 58

Morgunblaðið - 22.02.2000, Síða 58
58 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Grettir Hundalíf Ljóska Ferdinand Farðu þér hægt. /2-2/ BREF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Mengum meira, göngum minna!!!! Frá Þorkeli Ágústi Óttnrssyni: ÞAÐ mætti halda að einkunnarorð Reykjavíkurborgar væri: „Mengum meira, göngum minna!“. Alla vega er ekki hægt að skilja skilaboðin öðru- vísi ef litið er á gangstéttir borgar- innar þessa dagana. Það er segin saga að um leið og snjóar í borginni er hafíst handa við að ryðja akbraut- ir og er raunar ekkert nema gott um það að segja. Hins vegar er vandinn sá að gangstéttir reka alltaf lestina (vegna fárra moksturstækja fyrir gangstéttir) þannig að þær eru ófær- ar öllum þeim sem ekki hyggja á fjallaklifur, þar með taldir aldraðir, foreldrar með barnavagna, hjól- reiðafólk og fatlaðir. Þetta væri e.t.v. ásættanlegt ástand ef ekki bættist við að snjónum af akbrautunum er mokað upp á gangstéttimar þannig að oft þarf maður að velja á milli þess að klifra hátt í mannhæðar háa snjóruðninga eða hætta sér út á ak- braut og eiga þar með á hættu að verða fyrir bíl. Sem dæmi er enn (16. feb.) á efsta hluta Nóatúns (milli Skipholts og Háteigskirkju) tveggja metra hár ruðningur á gangstétt- inni,! heilum 5 dögum eftir að hið mikla fannfergi byrjaði. Þá loksins þegar gangstéttir eru mokaðar er því oftast sleppt að þrífa snjóskafla við gatnamótin þannig að ef maður vill komast yfir götur þarf maður að byrja á því að klöngrast yf- ir mittisháan snjóhrygg áður en maður getur lagt út á akbrautina. Þegar yfír akbrautina er komið bíður manns svo annar eins fjallagarður til að komast aftur upp á gangstéttina hinu megin. Ofan á þetta bætist að yfirleitt er haldið áfram að skafa og þrífa akbrautimar og er snjórinn af þeim því samstundis aftrn- kominn á gangstéttimar. Það segir sig sjálft að aldraðir, fatlaðir, hjólreiðafólk og foreldrar með barnavagna geta ekki komist leiðar sinnar við slíkar að- stæður. Lengi vel var ég bíllaus þar sem ég var staðráðinn í því að vera fyrir- mynd hvað varðar þær nútímakröfur samfélagsins um að ferðast á vist- vænan hátt. Eg fór allar mínar leiðir Hlustar barnið þitt? Vitinn Rás 1 • Kl. 19.00 www.ruv.is/vitinn á hjóli eða gangandi. Stöku sinnum tók ég strætó en sá ferðamáti var orðinn svo dýr að ég sparaði mér þau þægindi. En ég gafst upp og keypti mér bíl. Astæðan var einföld. Stóran hluta vetrar vom gangbrautir borg- arinnar ófærar. Eg gat ekki komist út með dætur mínar í bamavagni og ekki gat ég hjólað nema þá með því að hætta mér út á akbrautimar, en hver sá sem hefur hjólað í einhvem tíma veit hve hættulegt það getur verið. Hraðinn á þeim er mjög mikill og ef maður dettur af hjólinu (sem ekld er óalgengt í hálku) þarf ekki að spyrja að leikslokum. Sjálfur er ég hvorki fatlaður né aldraður en báða þjóðfélagshópa hef ég séð í stökustu vandræðum við umræddar aðstæð- ur. Hvað eiga t.d. aldraðir að gera sem era orðnir óökufærir sakir ald- urs og heilsu? Ekki leyfir efnahagm- þeirra þeim að taka sér leigubíl og það er mikil fyrirhöfn að komast í strætisvagn þegar gangstéttimar era ófærar. Ef borgarstjóm vill hvetja til minni mengunar og bílanotkunar, verður hún að bjóða upp á raunvera- legan valkost. Góður vinur minn, sem bjó um tíma í Svíþjóð, tjáði mér að þar væri samstundis hafíst handa við að þrífa gangstéttir, í stað þess að láta þær reka lestina. Væri ekki hægt að koma sömu skipan á í borg- inni, með því að fjölga moksturs- tækjum fyrir gangstéttir? Ef ekkert er gert til að auðvelda öðram en ak- andi vegfarendum að komast leiðar sínar mun bílafloti borgarbúa halda áfram að stækka. Það leiðir síðan til þess að mengunin og umferðarþungi mun aukast ásamt sliti á vegum. Eg auglýsi því hér með eftir hinni marg- lofuðu grænu stefnu borgarstjómar- innar. ÞORKELL ÁGÚST ÓTTARSSON, Skipholti 30, Reykjavík. Eigum fyrirliggjandi Glerperlur - Stálsalla Jákó sf. sími 564 1819 Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.