Morgunblaðið - 22.02.2000, Side 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
H
*
FÓLK í FRÉTTUM
Bandaríska kvikmyndin „Magnolia“ bar
sigur úr býtum á kvikmyndahátíðinni í
*Berlín. Annars deildu bandarískar og þýsk-
ar myndir með sér helstu verðlaununum.
Pétur Blöndal fylgdist með verðlauna-
afhendingunni og gerir upp hátíðina.
KJÓLL og hvítt. Rauður dregill. 3.
hæð. Þrjár hæðir í einum og sama
bíósalnum! Níu manna hljómsveit
nagar á sér neglurnar. Húrrahróp.
Kvikmyndastjörnur. Það vantar enn
tölu á frakkann minn. En smókings-
kyrtan og slaufan standa fyrir sínu.
Rautt. Sætin, tjöldin og sálirnar.
Aftur húrrahróp. Gong Li. Og hin í
dómnefndinni. En þó aðallega Gong
Li. Þama er Marisa Paredes, Walt-
er Salles, Maria Schrader. Og svo
auðvitað Gong Li. Tónlistarmenn
rauðir í framan blása í lúðra og
trompeta. Sviðið ullar á áhorfendur
rauðum dregli. Og fyllingarnar eru
gylltir og silfraðir birnir.
Gong Li talar kínversku. Sem bet-
ur fer er túlkur. Annars hefðu fáir
hugmynd um það í Evrópu hvaða
mynd hreppti gullbjörninn. Hún
segist hafa haft áhyggjur af því í
upphafi að dómnefndin myndi ekki
1"*'Tiá saman þar sem meðlimirnir væru
frá mörgum heimshornum, töluðu
mismunandi tungumál og hefðu ólík-
an menningarbakgrunn. „En það
gekk fljótt fyrir sig að komast að
niðurstöðu," segir hún og brosir.
„Enda var dómnefndin eins og ein
stór fjölskylda.“ Hún bætir við að
þetta hafi verið mikil vinnutörn:
„Þegar mig langaði út undh- beran
himin hjálpaði til að hann var alltaf
grár og það rigndi. Við gátum sem
betur fer leitað skjóls í bíóinu á
hveijum degi.“
Hver er þessi Lepetit?
Þá byrjar að rigna björnum. Jean
Rousselot fær gullbjörninn fyrir
kostulega stuttmynd Til heiðurs
Leptetit eða „Hommage a Alfred
Lepetit“. Þetta er heimildarmynd
um Lepetit sem er tilbúningur og á
meðal þeirra sem fram koma í
myndinni eru Charlotte Rampling
og Roman Polanski. Allir dásama
Lepetit og segist Polanski heldur
vilja hafa Lepetit í tökuliðinu en
Tom Cruise. Og hver er Lepetit? Jú,
hann er vikadrengur á tökustað; sér
um að hella upp á fyrir leikarana og
fara sendiferðir. Stuttmyndin
„Média“ eftir Pavel Koutský fær
silfurbjörninn.
I fyrsta skipti er veittur silfur-
björn fyrir fyrstu mynd leikstjóra.
Leikstjórinn Wim Wenders fékk verðlaun dómnefndar fyrir
mynd sína Milljón dollara hótelið.
Norman Jewison."
Tvær þýskar leikkonur fá silfur-
björninn fyrir besta leik í kvenhlut-
verki. Það sama gerðist í fyrra. Þá
voru það aðalleikonur Aimee og
Jaguar. Nú eru Bibiana Beglau og
Nadja Uhl verðlaunaðar fyrir
frammistöðu sína í Goðsögnum Ritu.
Einnig fá allar leikkonurnar í þýsku
myndinni Paradiso - sjö dagar með
sjö konum silfurbjörninn. Þá er
komið að leikstjórnai'verðlaununum.
Það þarf ekki að koma neinum á
óvart að þau falla í skaut tékkneska
leikstjórans Milosar Foremans fyrir
myndina Karlinn í tunglinu eða
„Man on the Moon“. „Það var mikið
um hlátrasköll á tökustað," segir
hann. ,Án Jims [Carreys] stæði ég
ekki hér; hann gaf sig allan í mynd-
ina.“
Léttir gagnrýneiula
Enn fáum við að heyra kínversku.
Að þessu sinni er það Zhang Yimou
sem tekur við aðalverðlaunum
dómnefndarinnar fyrir myndina
Leiðin heim. Hann mætir með hina
nýju Gong Li upp á svið. Hún heitir
Zhang Ziyi. Hann gefur henni stytt-
una. Síðan þakkar hann dómnefnd-
spretti úr þýskri menningu.
Hann talar líka um kulda og
rigningu. „Það blés að vest-
an,“ segir hann. „En nú hef-
ur borist til mín hlýtt loft
frá Kína, Póllandi, Spáni og
fleiri löndum,“ bætir hann
við og horfir þakklátur til
dómnefndarinnar.
Heimurinn ástfanginn
Denzel Washington fékk silfurbjörninn
fyrir besta leik í aðalhlutverki og er það
fyrir myndina „Hurricane".
Er það Drengjakóiinn eða „Dokur-
itsu Shonen Gasshoudan eftir Akira
Ogata“. „Ég er snortinn af þeim
þróttmiklu myndum sem ég sá hér í
Berlín og mun beisla þann kraft í
myndum mínum þegar ég sný aftur
til Japans," segir Ogata. Þýski leik-
stjórinn Volker Schlöndorff fær
Bláa engilinn fyrir Goðsagnir Ritu
eða „Die stille nach dem Schuss“
sem valin er besta evrópska mynd.
Jafnframt fær hann 2 milljónir sem
hann gefur kvikmyndaháskólanum í
Potsdam og Berlín í þeirri von að
nemendurnir geri myndir sem
Milljón dollara hótelið
fær verðlaun dómnefndar-
innar. Leikstjórinn Wim
Wenders þakkar handrits-
höfundinum Bono fyrir að
treysta sér fyrir afsprengi sínu og
fyrir yndislega tónlist. Þá þakkar
hann Jeremy Davies og Millu Jov-
ovich. „Vonandi verða kvikmynda-
unnendur um allan heim ástfangnir
af ykkur,“ segh- hann. Denzel Wash-
ington er næstur á svið. Hann fær
silfurbjörninn fyrir besta leik í karl-
hlutverki og er það fyrii' myndina
„Hurricane". „Ég hef aldrei upplifað
aðrar eins viðtökur eins og á
frumsýningarkvöldinu," segir hann
þakklátur. „Það verður mér ógleym-
anlegt og ég naut þess að deila því
með vini mínum og leikstjóranum
Kvikmyndahátíðinni í Berlín lokið
Magnolia hreppti
gullbjörninn
Þýskar myndir sigursælar á kvikmyndahátíðinni í Berlín
Schlöndorff heiðraður fyrir
bestu evrópsku myndina
Kvikmyndir þriggja þýskra leikstjóra voru
í samkeppnisflokki kvikmyndahátíðarinnar
í Berlín og unnu þær allar til verðlauna.
Goðsagnir Ritu í ieikstjórn Volkers Schlön-
dorff var valin besta evrópska kvikmyndin.
Rósa Erlingsdóttir var á blaðamannafundi
þar sem Schlöndorff sat fyrir svörum.
Þýska leikkonan Bibiana Beglau með tvo silfurbirni en hún og Nadja
Uhl, sem mætti ekki á verðlaunaafhendinguna, fengu verðlaun fyrir
besta leik í kvenhlutverki fyrir leik sinn í myndinni Goðsagnir Ritu.
■n„DIE Stille nach dem Schuss“, eða
Goðsagnir Ritu í leikstjórn Volker
Schlöndorff valin besta evrópska
kvikmyndin á hátíðinni í Berlín en
auk þess fengu leikkonur myndar-
innar, Bibiana Beglau og Nadja Uhl
silfurbirni sem bestu leikkonur í að-
alhlutverki. Myndin vakti mikla at-
hygli á hátíðinni, ekki síst vegna
þess að Inge Viett, fyrrverandi
meðlimur Rauðu herdeildarinnar,
hefur kært aðstandendur myndar-
innar fyrir stuld á ævisögu sinni. Að
hennar mati byggist saga aðalpers-
ónunnar á hennar eigin ævisögu, en
fhún samþykkti aldrei að persóna
hennar yrði notuð við gerð myndar-
innar.
Fyrir mynd sína Blikktrommuna,
sem byggist á samnefndri skáldsögu
Gúnters Grass, hlaut Volker Schlön-
dorff Óskarsverðlaun og verðlaun í
Cannes árið 1979. Áður hafði hann
unnið til verðlauna með frumraun
sinni „Der junge Törless" þegar hún
fékk verðlaun alþjóða samtaka kvik-
myndagagm-ýnenda í Cannes árið
1966. Með mynd sinni Heiðursmiss-
ir Katharina Blum „The Lost Honor
of Katharina Blum“ eftir sam-
nefndri skáldsögu Heinrichs Bölls
hlaut Schlöndorff heimsathygli og
er enn þann dag í dag talinn einn
fremsti kvikmyndagerðarmaður
Þýskalands. Vegna myndar hans
um Katarínu Blum og almennum af-
skiptum af þýskum stjórnmálum
hefur hann margsinnis verið sagður
hliðhollur kommúnisma. I kjölfar al-
þjóðlegrar velgengni sinni vann
hann í Bandaríkjunum á sjöunda og
áttunda áratuginum þar sem hann
gerði meðal annars myndina „The
Death of a Salesman" með Dustin
Hoffman og John Malkovitch í aðal-
hlutverkum. Fall Berlínarmúrsins
dró Schlöndorff aftur til síns heima
þar sem hann einsetti sér að byggja
upp gömlu kvikmyndaver UFA/
DÉFA í Babelsberg í útjaðri Berlín-
arborgar sem á millistríðsárunum
voru vagga kvikmyndaiðnaðar í
Þýskalandi. Árin 1992-1995 lagði
hann allt sitt fjármagn svo og tíma
sinn í fyrrnefnt verkefni. „Kvik-
myndir mínar eru litaðar af lífs-
hlaupi mínu. Hlykkjóttur vegur með
óteljandi sigrum og vonbrigðum, en
það sem mestu máli skiptir er að ég
sný mér aftur og aftur að þýskri
sögu,“ segir Schlöndorff.
Hvað varðar persónu Ingu Viett
viðurkennir Schlöndorff að myndin
hefði aldrei orðið að veruleika hefði
hann ekki þekkt sögu hennar. Hins
vegar segir hann allar persónur
myndarinnar vera uppspuna sem þó
eigi sér fyrirmyndir í ákveðnu fólki.
Á blaðamannafundinum var hann
ekki tilbúinn að tjá sig nánar um
lögsókn Ingu Viett þar sem hann
vilji bíða málalykta.
Hluti af þýskri sögu
Hugmyndin að myndinni kviknaði
árið 1990 þegar austur-þýska ríkis-
stjómin fyrirskipaði handtöku fyrr-
verandi vestur-þýskra hryðjuverka-
manna sem áður höfðu hlotið
pólitískt skjól í Austur-Þýskalandi.
Fjölmiðlar áttu greiðan aðgang að
upplýsingum um fólkið sem áður
hafði undir verndarvæng austur-
þýskra einræðisflokksins SED hlot-
ið ný nöfn og vernd lögreglunnar
þar í landi. Innan örfárra vikna voru
um tíu manns handteknir að frum-
kvæði austur-þýskra yfirvalda, en
þau reyndu að láta líta út fyrir að
fólk þetta hefði á sínum tíma kosið
að hefja nýtt líf í Austur-Þýskalandi
án vitundar flokksins. Mörg þeirra
voru eftirlýst af vestur-þýskum yfir-
völdum enda átti hreyfingin fjölda
morða, meðal annars á háttsettum
embættismönnum, að baki.
Þanning er bakgrunnur myndar-
innar, annars vegar pólitískar erjur
Austur- og Vestur-Þýskalands og
hins vegar persónuleg örlög þeirra
ungmenna sem á örfáum árum
breyttust úr rótækum friðarsinnum
í vopnaða bankaræningja og seinna
hættulega hryðjuverkamenn sem
fórnuðu ófáum mannlífum í leit að
betri og réttlátari heimi. Þau gáfu
skít í auðvaldið og sögðu kapítal-
isma Vesturlanda vera beint fram-
hald af nasima þriðja ríkisins sem
hefði skilað hásettum embættis-
mönnum völdum og áhrifum. Kerfi
sem að þeirra mati byggðist á arð-
ráni hins almenna verkamanns og
þróunarlandanna. Schlöndorff og
handritshöfundurinn Wolfgang
Kohlhaase sem báðir voru viðriðnir
stúdentahreyfinguna í Þýskalandi
vildu segja sögu þessara ungmenna
þar sem hún er allt í senn persónu-
leg saga gamallra félaga þeirra og
hluti af þýskri sögu. Þeir segja sög-
una í raun og veru borna upp á
löngu liðnum atburðum. Sögu þriðja
ríkisins, heimsstyrjaldarinnar, ósig-
urs og skiptingu Þýskalands og síð-
ast en ekki síst kalda stríðsins sem
Berlínarmúrinn var tákngerving
fyrir. Þessi atburðarás þýskrar sögu
er bakgrunnur hryðjuverkamann-
anna, sem gerði Schlöndorff og
Kohlhaase mögulegt að segja hluta
af þýskri sögu með afdrifaríkum ör-
lögum einstaklinga. Myndin er sam-
vinna fólks af ólíkum uppruna þar
sem Schlöndorff er Vestur-Þjóð-
verji en Kohlhaase Austur-Þjóðverji
og leikararnir ólust ýmist upp i