Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 62. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Bandaríkin harðorð við Kosovo-Albana Sprengjuárás í Teheran Rússar hafa náð eiinim helsta foringja tsjetsjneskra skæruliða Djakovica. AP, Reuters. BANDARÍSK stjórnvöld hafa sett harðlega ofan í við leiðtoga Kosovo- Albana og í gær sagði bandarískur embættismaður að hættu ekki Al- banar árásum sínum á Serba og aðra minnihlutahópa í héraðinu myndi draga verulega úr alþjóðlegum stuðningi við þá. „Þið eruð laus við kúgun Belgrad- stjórnarinnar," sagði James P. Rub- in, talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins, á fundi í Kosovo í gær. „Frelsinu íylgir þó ábyrgð. I hvert sinn, sem fréttir fara af því, að Kos- ovo-AIbanar hafi ráðist á einhvern minnihlutahóp í héraðinu, dregur úr vilja annarra ríkja til að styðja þá.“ Madeleine Albright, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sendi Rubin til Kosovo til að vara hvoratveggju við, Aibana og Serba, og sérstaklega þá fyrrnefndu. Á fréttamannafundi við komuna á sunnudag varaði hann leiðtoga Albana við áframhaldandi ofbeldisverkum en ekki er talið víst að þeir hafi meðtekið boðskapinn. Vilja alla Serba burt Hashim Thaei, einn helsti leiðtogi Kosovo-Aibana, sagði, að Rubin væri „vinur Kosovo" en hét engu um að stöðva ofbeldið. Talið er, að það séu einkum fyrrverandi samherjar Thacis í Frelsisher Kosovo, sem standi fyrir flestum ofbeldisverkum og árásum á Serba í héraðinu. Þeir og margir aðrir vilja reka alla Serba burt úr héraðinu og stofna nýtt, alb- anskt ríki. Ekkert erlent ríki styður það. Ofbeldið eyði- leggur stuðning Evrópuráðið sakar hvora- tveggju um stríðsglæpi Astandinu í Tsjetsjníu verður ekki með orðum lýst, segir Lára Margrét Ragnarsdóttir þingmaður Moskvu. AP, AFP, Reuters. EVRÓPURÁÐIÐ sakaði í gær jafnt Rússa sem Tsjetsjena um stríðsglæpi og skoraði á rússnesk stjórnvöld að hefja strax viðræður við tsjetsjneska leiðtoga. Sendinefnd frá Evrópuráðinu, þar á meðal Lára Margrét Ragnarsdóttir al- þingismaður, hefur verið í Tsjetsjníu síðustu daga. Rússar tilkynntu í gær að einn helsti leiðtogi skæruliða hefði fallið þeim í hendur. AP Vetrarstríðsins minnst TIU sprengjum var skotið á íbúðar- hverfi við herstöð í Teheran, höfuð- borg Irans, í gær. Slösuðust a.m.k. fjórir. Samtökin Mujahedeen Khalq, sem berjast gegn Irans- stjórn, lýstu tilræðinu á hendur sér og sögðu að skotmarkið hefði verið Rahim Safavi, yfirmaður íranska byltingarvarðarins. Tvísýnt var í gær urn líf Saeed Hajjarians, blaða- manns og eins helsta hugmynda- smiðs umbótasinna, en reynt var að ráða hann af dögum á sunnudag. Eru harðlínumenn grunaðir um verknaðinn. Á myndinni er verið að fjarlægja brunninn bfl eftir sprengjuárásina í gær. ---------------- Kosningarnar á Spáni Sósíalistar í vanda Madríd. AFP. SPÆNSKIR sósíalistar eru í mikl- um vanda eftir að hafa goldið af- hroð í þingkosningunum á sunnu- dag og leiðtogi flokksins, Joaquín Almunia, ætlar að segja af sér. Sósíalistar fengu aðeins 34,1% atkvæðanna og tíu prósentustiga minna fylgi en Þjóðarflokkurinn sem fékk meirihluta þingsætanna. Þetta er í fyrsta sinn sem hægri- menn ná meirihluta frá dauða Francos fyrir 25 árum. Sósíalistar töpuðu 16 þingsætum og misstu tvær millj. atkvæða frá kosningum árið 1996. Vinstra- bandalagið, undir forystu komm- únista, fékk enn verri útreið, tap- aði 13 sætum og hefur aðeins átta. Almunia tilkynnti um leið og úr- slitin lágu fyrir að hann hygðist segja af sér og sagði að flokkurinn þyrfti að hefja 21. öldina „með nýj- um forystumönnum og hugsjón- um“. Ólíklegt er þó talið að hægt verði að stokka upp í forystu og stefnu flokksins án mikilla átaka. ■ Sigri Aznars/24 GÖMUL kona leggur hér túlfpana á gröf finnsks hermanns í Hietan- iemi-kirkjugarðinum í Helsingfors í gær. Finnar minntust þess með ýmsu móti að rétt 60 ár voru í gær liðin frá því að samið var um frið í Vetrarstríðinu við Sovétríkin. „Um gervallt Finnland var flaggað í hálfa stöng þegar friðar- skilmálarnir eftir Vetrarstríðið lágu fyrir, hinn 13. marz 1940,“ rifjar Hufvudstadsbladet upp. Samkvæmt drögum að friðar- samningi, sem fulltrúar rfkis- stjórna bæði Finnlands og Ráð- stjórnarrfkjanna undirrituðu f Moskvu aðfaranótt þessa dags, bar Finnlandi að láta af hendi austur- hluta Kirjálahéraðanna auk N-Ishafsborgarinnar Petsamo og sneiðar af Salla-héraði í austri. Um einn af hverjum tíu íbúum Finnlands var með þessum samn- ingum sviptur heimkynnum sínum. Vetrarstríðið hófst með innrás Rauða hersins f Finnland hinn 30. nóvember 1939. Á þeim 105 dög- um sem strfðið stóð yfir féllu 21.396 finnskir hermenn og á að gizka 85.000 liðsmenn Rauða hers- ins féllu, auk um 10.000 sem urðu úti. Sendinefndin frá Evrópuráðinu var í Grosní, höfuðstað Tsjetsjníu, í tvo daga og kynnti sér m.a. ástandið í fangabúðum Rússa og í tjaldbúðum flóttafólksins. Sagði formaður henn- ar, Judd lávarður, að rætt hefði verið við vitni, sem annars vegar hefðu lýst manndrápum Rússa og ógnunum og hins vegar gi-immd og ofbeldi Tsjet- sjena, hinum ómannúðlegu sharia- lögum múslíma og gíslatökum. Judd lávarður skoraði á Rússa að taka upp viðræður við Aslan Maskha- dov, forseta Tsjetsjníu, en Víktor Kalamanov, mannréttindafulltrúi Rússlandsstjórnar, sagði, að Rússar létu vestræn ríki ekki segja sér fyrir verkum. Þá væru hótanir um að reka Rússa úr Evrópuráðinu móðgun við þá enda myndi slíkur brottrekstur hafa „ófyrirsjáanlegar afleiðingar." Land í rústum Lára Margrét sagði í viðtali við Morgunblaðið í gær að ástandið í Tsetsjníu væri skelfílegt og eiginlega ólýsanlegt. Þorp og bæir væru rústir einar og fólkið, sem hefðist þar enn við, t.d. í Grosní, hefði lítið sem ekk- ert haft fyrir sig að leggja dögum og jafnvel vikum saman. „Ég ræddi við konu í Grosní, sem hafði ekki haft neitt sér til viðurværis í hálfan mánuð, og ömurleikanum, harminum og óttanum, sem lýstu sér úr augum hennar, verður ekki með orðum lýst,“ sagði Lára Margrét. Sagði hún, að nefndin hefði einnig skoðað sjúkrahús þar sem flest lyf vantaði, flóttamannabúðir í Ingúsetíu og búðir þar sem þeim er haldið, sem grunaðir eru um samstarf við skæru- liða. Heíúr aðbúnaður þar nokkuð verið bættur vegna mikillar gagnrýni. Vladímír Pútín, settur forseti Rússlands, sagði í gær að Salman Radújev, einn helsti foringi tsjet- sjneskra skæruliða, hefði verið hand- tekinn og fluttur til Moskvu. Sagði Níkolaj Patrúshev, yfirmaður rúss- nesku öryggisþjónustunnar, að Rad- újev hefði verið handtekinn í tsjet- sjneska bænum Novogroznínskí þar sem hann hefði verið í felum. Hafa Rússar ekki áður náð jafn háttsettum skæruliðaforingja. Enskar krár alltaf opnar London. Morgunblaðið. Brezka ríkisstjórnin hyggst leyfa kráareigendum að hafa opið lengur en nú er og reyndar allan sólarhringinn ef þeir vilja. The Times segir að þetta eigi að koma til framkvæmda sum- arið 2001. The Times segist hafa komizt yfir plögg þar sem fram komi að ríkisstjórnin ætli síðar í mánuðinum að kynna breyting- arnar, sem ná til Englands og Wales, en Skotar hafa fyrir all- löngu liðkað um sínar reglur. Þar mega krár vera opnar til kl. þrjú að nóttu. Nú er krám í Englandi og Wales lokað klukkan ellefu á kvöldin og má ekki opna þær fyrr en á hádegi. MORGUNBLAÐK) 14. MARS 2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.