Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ 64 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 HASKOLABIO Hagatorgi, simi 530 1919 Sýnd kl. 6. Æ ** Í! ■: mm 990 PUNKTA FfífíÐU í BÍÓ Álfabakks 8, eírras 58 DENZEL WASHINGTON THE HURRSCANE Denzel Washington fékk Golden Globe verðlaunin fyrir bestan leik og er tilnefndur til Óskarsverðlauna Frá leikstjóra Shawshank redemption T“MrK5 ma OJ Bylgjan Kvikmyndir.ís y Paul Edgecomb TRÚÐI EKKI Á KRAFTAVERK... ...ÞAR TIL HANN KYNNTIST J°HN SV IVIbl M Tilnefningar til MI, r ZL ÓSKARSVERÐLAUNA re „Trainspotting" Spennutryllirínn með lo DiCaprío sem allir hafa beðið eftirl www.samfilm.is Sýnd kl. 5.30 og 10.10. Sýnd kl. 8. bj. „. Morgunblaðið/Dagur Gunnarsson Vigdís Finnbogadóttir, Brynja Baldursdóttir skartgripahönnuður, sem framleiðir undir vörumerkinu do, Björg Ingadóttir og Vala Torfadóttir hönnuðir og eigendur Spaksmannsspjara. Islensk hátíska markaðssett Fyrirsætur í hönnun Ingibjargar Hönnu sem er framleidd undir merkinu hanna-70. Sigríður Sunncva hönnuður og Pálína Jónsdóttir leikkona í fatnaði frá Sunnevu Design. íLondon ► / A meðan á tískuviku stendur iðar London af glamúr og helstu hönnuðir og gúrúar hátískunnar keppa um athygli heimspressunnar og kaupenda. Dagur Gunnarsson fylgdist með hópi íslenskra hönnuða í London. I KENSINGTON-hverfi verður vart þverfótað fyrir hálfnökt- um ofurfyrirsætum, Ijósmynd- ^_____ urum, hönnuðum og glans- blaðaskríbentum meðan á tískuvik- unni stendur. í ár líkt og undanfarin ár fara aðalsýningarnar fram í stór- um tjöldum fyrir utan Náttúru- gripasafnið á Bromton Road, en tískusýningamar fara víðar fram, ungu bresku hönnuðurnir hamast við að sýna í frumlegu húsnæði. Elsbeth Gibson sýndi í Floral Hall anddyrinu á nýuppgerðu Óperuhúsinu í Covent Garden og Julien Mcdonald sýndi í hinum umdeilda aldamótakúpli (Mill- ennium Dome). Nú hafa þau tíðindi gerst að ís- -jýyndingar áttu smásneið af glans- kökunni því Útflutningsráð hafði með styrk frá Nýsköpunarsjóði skipulagt samsýningu okkar helstu frammá- manna og -kvenna innan hátískunn- ar. Það eru Sigrún Lilja Guðbjarts- dóttir og Helga Valfells hjá Útflutningsráði sem áttu veg og vanda af þessu verkefni, þar sem sex -íijta- og skartgripahönnuðir tóku þátt í sýningum í salarkynnum sem heita Mission (45 Hereford Road, London W2) í hinu ákaf- lega vinsæla Notting Hill- hverfi, einnig var „gestahom“ þar sem sýnt var úrval bæði af skartgripum og fatnaði frá fleiri íslenskum hönnuðum. Glæsileg opnunarhátíð Það var haldin glæsileg opnunarhátíð í íslensku höf- uðstöðvunum þar sem hönnuðumir spjölluðu við gesti og gangandi, Jón Ás- bergsson, framkvæmda- stjóri Útflutningsráðs, opnaði íslensku tískuvik- una í London og kynnti síðan Vigdísi Finnboga- dóttur sem hélt ræðu þar sem hún dásamaði fi'am- takssemi hinnar ís- lensku þjóðar og gerði Páll Óskar Hjálmtýsson skemmti gestum. um leið létt grín að okkur íslending- um sem tökum nafla alheimsins með okkur hvert sem við föram og endaði á að því að skora á hönnuðina að hanna hentugt veski fyrir konur sem þurfa að halda ræður. Næstur steig Páll Óskar á stokk og skemmti veislugest- um með ástarsöng í tilefni valentínusar- dagsins. Sýningin var tímasett þannig að gestir gætu skoðað ís- lensku sýning- una áður en aðal- sýningarnar byrjuðu í eftirmiðdaginn. Sigrún Lilja sagði að fyrir marga hátísku- hönnuði væri þetta eina leiðin til að hitta fjöld- ann allan af kaupendum fyrir tískuverslanir jafnt sem stærri verslunar- keðjur. „Kaupendurnir koma langar leiðir til að sjá það nýjasta og besta í tískuhönnun og ísland þykir spennandi þessa dagana, það er margt að gerast bæði í tísku-, kvik- mynda- og tónlistarheim- inum, Island er ofarlega á baugi og því er um að gera að nota tækifærið.“ Þær stöllur sögðust hafa kannað markaðinn og athug- að þarfir íslensku hönnuð- anna og komist að þeirri nið- urstöðu að hátískan ætti greinilega betur heima á tískuvikunum en hefð- bundnum vörasýningum. „Við kynntum okkur tískuviku í París og London í haust. Að lokinni þeirri skoðun var ákveðið að taka stefnuna á tískuviku í London til að kynna haust- og vetrarlínuna. í framhaldi af því sóttum við um styrk til Nýsköp- unarsjóðs og þeir tóku vel í það, enda hefur sjóðurinn verið að fjárfesta í þessum geira.“ Sigrún sagði að draumurinn væri að komast á „cat- walk“ í einni af þeim borgum sem halda tískuviku, þótt það væri ekki nema með einn hönnuð, í von um að það myndi skila sér margfalt til baka fyrir alla íslenska hönnun. „Við sótt- um um það hjá dómnefndinni hjá British Fashion Council, en það gekk ekki í ár, þannig að þetta er eiginlega „underground" eða skærahemaðar- sýning hjá okkur. Það er kominn tími til að við íslendingar sýnum okkar hönnun meiri virðingu og áttum okk- ur á að hér er um nýja atvinnugrein með útflutningsmöguleika að ræða.“ Fjöldi íslenskra hönnuða Þeir íslensku hönnuðir sem vora á tískuvikunni í London vora: Hanna Pétursdóttir sem er með bækistóð í Hollandi en notar einungis íslenska ull í sinn litríka fatnað sem er seldur undir merkinu Hanna-70. Sigríður Sunneva Vigfúsdóttir sýndi línu und- ir merkinu Sunneva Design. Sigríður Sunneva leggur milda áherslu á vinnslu úr náttúralegum efnum og leikur að fiskroði, lamba- og geita- skinni era hennar aðalsmerki. Vala Torfadóttir og Björg Ingadóttir hjá Spaksmannsspjöram sem era líkleg- ast með mestu og bestu dreifinguna á sínum flíkum því að fyrir utan sína eigin verslun í Þingholtsstræti fást vörur þeirra í Kaupmannahöfn, Stokkhólmi, Múnchen, London og Þórshöfn í Færeyjum. Linda Árna- dóttir og Vala Melstad era með ákaf- lega framúrstefnulegan fatnað með hreinum, nánast klmískum línum, þær klæddu Björk og hundraðmanna alþjóðlegan kór (Voices of Europe) á tónleikum í Reykjavík um síðustu áramót. Þeirra vöramerki er SVO. Brynja Baldursdóttir skartgripa- hönnuður sýnir hér ákaflega stóra og sláandi skartgripi sem vöktu mikla athygli gestanna, silfurbelti sem minna á skírlífisbelti og langa silfur- snáka sem hlykkjast um allan líkam- ann, hennar vöramerki er do. Annað vörumerki sem sýnir skartgripi er S.m.a.k. iceland. Það era gripir sem era hannaðir af Michael Young og Katrínu Pétursdóttur auk annarra evrópskra iðnhönnuða en smíðaðir hérlendis af Snorra Sigurðssyni. Þau sýna skartgripi sem heilla með sígild- um einfaldleika og hreinum línum sem virðast vísa á glettinn hátt í framtíðarsýn sem er í ætt við vísinda- skáldsögur. Þeir hönnuðir sem komust ekki sjálfir á íslensku tískuvikuna í Lond- on en vora með gripi og fatnað til sýn- is í gestahominu era: Sigurður Sigur- jóns (skartgripir), Hulda B. Ágústsdóttir (skartgripir), Brynja Sverrisdóttir (skartgripir), Ragna Fróða (fatnaður), ELM (fatnaður), Aftur (fatnaður). „Talsverður árangur náðist í Lundúnum. Allir þátttakendur kom- ust í góð viðskiptasambönd og gerðir voru sölusamningar við verslanir á borð við Selfridges. Fjöldi blaða- manna heimsótti sýningarsalinn m.a. frá New York Times, Sunday Times, bandaríska Vogue, japanska Elle og Loaded,“ sögðu þær Helga og Sigrún að lokum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.