Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Akureyrarbær Slökkvilið Akureyrar Slökkvilið Akureyrar vantar fólk til sumarafl- eysinga tímabilið maí til september 2000. Starfið felst í vaktavinnu vegna slökkvi- og sjúkraflutningaþjónustu, aukýmissa starfa sem þessu tvennu fylgir. Útkallsskylda er utan vinnutíma. Æskilegt er að umsækjendur uppfylli skilyrði reglugerðar um réttindi, menntun og skyldur ' slökkviliðsmanna auk samþykktarfyrir Slökkvi- lið Akureyrar. Helstu atriði þeirra eru: • Vera á aldrinum 20—28 ára, reglusamir og háttvísir. • Hafa góða líkamsburði, gott andlegt og líkamlegt heilbrigði, hafa góða sjón og heyrn, rétta litaskynjun og vera ekki haldnir lofthræðslu eða innilokunarkennd. • Hafa iðnmenntun, sem nýtist í starfi slökkvi- liðsmanna eða sambærilega menntun og reynslu. • Hafa ökuréttindi til að stjórna a) vörubifreið og b) leigubifreið. • Hafa góða almenna þekkingu, þ.m.t. nokkra tungumálakunnáttu og gott vald á íslenskri réttritun. Laun samkvæmt kjarasamningi Landssam- bands slökkviliðsmanna eða STAK og launa- nefndar sveitarfélaganna. Upplýsingar um starfið gefa slökkviliðsstjórar á slökkvistöðinni, Árstíg 2, sími 461 4200 og ' upplýsingar um kaup og kjör gefur starfs- mannastjóri í síma 460 1060. Umsóknum skal skila í upplýsingaanddyri Akureyrarbæjar, Geislagötu 9, á umsóknar- eyðublöðum sem þar fást. Umsóknarfrestur er til 24. mars 2000. Slökkviliðsstjóri. Radisson S4S SAGA HOTEL REYKjAVIK The difference is genuine. Matreiðslumaður Radisson SAS Hótel Saga óskar eftir að ráða matreiðslumann til starfa. Aðeins reglusamur, traustur og hugmyndaríkur matreiðslumaður kemur til greina. Framreiðslunemar Getum bætt við okkur nemum í framreiðslu. Námið tekur 3 ár og þar af eru 3 annir bóklegt nám í Hótel- og matvælaskólanum. Fagleg kennsla ferfram á vinnustað undir leið- sögn meistara. Áhugasamir vinsamlegast leggi inn umsóknir hjá starfsmannastjóra, sem veitir nánari upp- lýsingar á staðnum eða í síma 525 9900 virka daga mijli kl. 13.00—16.00. s Radisson SAS Hótel Saga er reyklaus vinnu- staður. Hótel Saga er frá og með 1. janúar 1999 hluti af Radisson SAS, alþjóðlegu hótelkeðjunni. Radisson SAS hoteis leggja áherslu á velferð starfsmanna, að ávallt sé hæfasta fólkið í hverju starfi og er allt starfsfólk þjálfað samkvæmt því. Innan Radisson SAS- hótelkeðjunnar eru rúmlega 100 hótel í Evrópu, Asíu og N-Afríku. Aðalsmerki keðjunnar eru stöðluð þjónustuhugtök og miða öll að því að gera gesti sína 100% ánægða. RÍKISLÖGREGLUSTJÓRINN Sumarafleysingar í lögreglu árið 2000 Eins og verið hefur þarf í sumar að ráða í nokkrar stöður lögreglumanna. Afleysinga- menn verða ráðnir hjá embætti lögreglustjór- ans í Reykjavík og embættum flestra lögreglu- stjóra á landinu. Lögreglumannsefni skulu fullnægja eftirtöld- um almennum skilyrðum samkvæmt 2. mgr. 38. gr. lögreglulaganna sem eru eftirfarandi: A. Vera íslenskir ríkisborgarar, 20 til 35 ára og ekki hafa hlotið dóm fyrir refsi- verdan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum. B. Vera andlega og líkamlega heilbrigð og standast læknisskoðun trúnaðar- læknis. C. Hafa lokið a.m.k. tveggja ára almennu framhaldsnámi eða öðru sambærilegu námi með fullnægjandi árangri. Þau skulu hafa gott vald á íslensku, einu IMorðurlandamáli auk ensku eða þýsku. Þau skulu hafa almenn ökuréttindi til bifreiðaaksturs. Lögreglumannsefni skulu synd. D. Standast inntökupróf samkvæmt kröf- um skólanefndar með áherslu á íslensku og þrek. Umsækjendur, sem ekki hafa próf frá lögreglu- skólanum, þurfa að standast inntökupróf, hafi þeir ekki þegar lokið því, eða starfað áður í lög- reglu. Inntökupróf verða haldin í byrjun maí nk. Áður er afleysingamenn hefja störf, þurfa þeir að sitja undirbúningsnámskeið, hafi þeir ekki starfað áður í lögreglu. Námskeið fyrir sumarafleysingamenn verða haldin í lögregluskólanum dagana 28.—31. maí nk. Umsóknum skal skila til þess embættis, sem sótt er um starf hjá, í síðasta lagi 30. mars nk., á sérstökum eyðublöðum sem fást hjá öllum lögreglustjórum, ann- ars vegar fyrir þá sem lokið hafa prófi frá lögregluskólanum og hins vegar fyrir þá, sem ekki hafa próf frá lögregluskóla. Hvert og eitt lögregluembætti gefur nán- ari upplýsingar. Umsækjandi um stöðu í lögreglu ríkisins skal hafa lokið prófi frá Lögregluskóla rikisins. Umsóknir skulu vera skriflegar. í umsókn skulu koma fram upplýsingar um menntun og starfsferil umsækjanda auk almennra persónulegra upplýsinga. Samkvæmt heimild í 4. mgr. 28. gr. lögreglulaganna er heimilt að ráða mann án prófs frá lögreglu- skólanum, enda fullnægi hann skilyrðum 2. mgr. 38 gr. laganna og enginn með próf frá Lögregluskóla ríkisins er tiltækur í stöðuna. Konur jafnt sem karlar eru hvattar til að sækja um. Kópavogi, 11. mars 2000. Ríkislögreglustjórinn. Mosfellsbær Frædslu- og menningarsvid Leikskólinn Hladhamrar Lausar stöður Lausar eru stöður ieikskólakennara nú þegar og/eða eftir nánara samkomulagi. Um er að ræða 100% stöðu og 50% stöðu eftir hádegi. Óskað er eftir leikskólakennurum og áhugasömum leiðbeinendum. Kjör leikskólakennara eru samkvæmt kjarasamningi FÍL og Sambands ís- lenskra sveitarfélaga ásamt sérsamningi leikskólakennara í Mosfellsbæ og bæjar- yfirvalda. Kjör leiðbeinenda í leikskólum eru sam- kvæmt kjarasamningi STAMOS og Sam- bands íslenskra sveitarféalga. Uppl. veitir undirrituð í síma 566 6351. Netfang: hlad@mosfellsbaer.is. Leikskólastjóri. Sveitarfélagið ÁRBORG íþ rótta ke n n a r a r Vegna forfalla kennara við Sandvíkurskóla er laus staða íþróttakennara. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst. Um framtíðarstarf við grunnskóla í Árborg gæti verið að ræða. Nánari upplýsingar veita Páll Leó Jónsson, skól- astjóri, í síma 482 1500 og Þorlákur H. Helgason, fræðslustjóri, í síma 480 1900. Við þurfum áhugasamtfólktil starfa í grósku- miklu sveitarfélagi og munum ráða fleiri grunnskólakennara fyrir næsta skólaár. Sérstakir kjarasamningar við kennara eru í gildi. Kynnið ykkur málefni Árborgar á vefsíð- um sveitarfélagsins; www.arborg.is. Fræðslustjóri. Félagsþjónustan Ræsting Starfsmann vantar í ræstingu við félags- og þjónustumiðstöð aldraðra í Furugerði 1. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Bene- diktsdóttir, forstöðumaður, í síma 553 6040. Félagsþjónustan er tjölmennur vinnustaöur sem veitir borgarbúum á öllum aldri fjölbreytta þjónustu. Stofnunin leggur mikla áherslu á fræðslu og símenntun fyrir starfsfólk sitt, að upplýsa það um stefnu stofnunarinnar og Reykjavíkurborgar í málefnum starfsmanna og að kynna markmið þeirrar þjónustu sem veitt er. Allir nýir starfsmenn fá sérstaka fræðslu og kynningu um Félagsþjónustuna og borgarkerfið og fréttabréf reglulega um starfsemi stofnunarinnar. SMÁAUGLÝSINGAR KENNSLA □ Hamar 6000031419 1 Barnfóstrunámskeið 3. 15., 16., 20. og 21. mars. 4. 22., 23., 27. og 28. mars. 5. 29., 30. mars, 3. og 4. apríl. 6. 5., 6., 10. og 11. apríl. 7. 26., 27. apríl, 3. og 4. maí. 8. 5., 6., 7. og 8. júní. Námskeiðin fara fram frá kl. 18 til 21 ofangreinda daga og eru ætluð börnum fæddum 1986-1988. Upplýsingar/skráning á milli kl. 8—16 ■ síma 568 8188. □ HLÍN 6000031419 IVA/ I.O.O.F. Rb. 1 = 1493148-9.0* □ FJÖLNIR 6000031419 III Aðaldeild KFUK, Holtavegi Fundur í kvöld kl. 20.30. Umræðufundur fyrir aðalfund. Allar konur velkomnar. FÉLA6SLÍF □EDDA 6000031419 I innsetning Stm. FERÐAFÉLAC ® ÍSLANDS MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533 Félagsvist í Risinu í kvöld, 14. mars, kl. 20:00. Bakpokanámskeið í Risinu mánudaginn 20. mars kl. 20:00. Innihald, stillingar og burðartækni. Ekkert þátttöku- gjald fyrir félagsmenn F.Í., en 1000 kr. fyrir aðra. Skráið ykkur á skrifstofu. Leiðbeinandi: Dag- björt Gunnarsdóttir. Arshátíð Hornstrandafara 18. mars. Miðar fást á skrifstofu F.í. Helgarferðir 18.—19. mars: 1. Jeppadeildarferð: Setrið suðaustan Kerlingarfjalla. Verð 4.900 kr. fyrir félaga (tveir í jeppa), 5.900 kr. fyrir aðra. 2. Skíðaganga: Þingvellir - Laugarvatn. Gist í skála. Undirbúningsfundir miðviku- dagskvöldið 15. mars á Hall- veigarstig 1, kl. 20.00 (skíðaferð), kl. 20.30 (jeppaferð). Upplýsingar um næstu ferðir á netinu eða skrifstofu. Aðalfundur Útivistar verður haldinn fimmtudaginn 23. mars kl. 20.00 í Versölum, Hallveigar- stíg 1. Hefðbundin aðalfundar- störf. http://www.utivist.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.