Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 27 ið nokk að nú eru hinir sígildu miðlar orðnir að framúrstefnu sem á mjög í vök að verjast innan listaskóla en nýmiðlamir að múgsefjun. A stundum hefur verið líkast því sem norrænar þjóðir hafí gleymt hlutverki sínu og metnaðarfullri sér- stöðu í hópi þjóðanna, fornri og ein- stæðri menningararfleifð ásamt for- ystu í nýsköpun á liðnum öldum. Framsæknar myndlistarspírur frá Þýskalandi og víðar leituðu til að mynda til Kaupmannahafnar til að hefja nám við listakademíuna við Kóngsins nýjatorg, vegna þess að skólinn hafði orð á sér fyrir að vera frjálslyndari öðrum í Evrópu. Þar á meðal voru ekki minni bógar í evrópskri málaralist en Caspar Da- vid Friedrich og Philipp Otto Runge, sem stigu þar sín fyrstu skref 1794 og 1799. Höfðu að kennurum þá Jens Juel og Nicolai Abraham Abildgaard, föður danska nýklassísmans, enn- fremur kennarar þeirra C.W. Eckersbergs og Bertels Thorvalds- ens. Þessu má ekki gleyma né hlut gullaldarmálaranna dönsku, Norð- mannsins Munchs og Svíans Strind- bergs, mörgum fleiri og svo þeim sem eru nær okkur eins og Cobra. Engin ástæða hér að leggjast alfarið á spena hjá stórþjóðunum til að fá viðurkenn- andi klapp á öxlina fyrir þokkalegar eftirgerðir, öllu frekar lyfta eina- rðlega og af metnaði undir það sem fyrir er og ber í sér safarík einkenni norðursins, hina sérsöku djúphygli og hin tæru birtumögn. Skýtur þá skökku við varðandi þessa upphafningu málverksins, að nær allir meðlimir dómnefndar eru forstöðumenn núlistasafna, sem eru þekktari fyrir að halda öðru fram en málverkinu, þó í mismiklum mæli sé. I dómnefndinni er enginn fulltrúi málara en hins vegar lyft ótæpilega undir vald fræðinga og sýningar- stjóra, sem um þessar mundir hafa meiri ítök en í annan tíma varðandi þróun mála á myndlistarvettvangi. Of langt mál er að telja upp alla þá sérfræðinga sem völdu úrtakið, en þar eru meðal annars mættir til leiks þrír gagnrýnendur og einn óskil- greindur listamaður. Af f slands hálfu voru það hins vegar Pétur Arason, kaupmaður í Faco, Gunnar J. Ama- son listheimspekingur og Hrafnhild- ur Sehram, listsögufræðingur og for- stöðumaður Listasafns Einars Jónssonar, hinir tveir fyrmefndu þekktari fyrir flest annað en ást á málverki og norrænni málaralist, þannig stór orð að titla þá sérfræð- inga í norrænu málverki. Og þótt maður beri fulla virðingu fyrir sér- skoðunum dómnefndar og sérfræð- inganna svonefndu, ber val þeirra í sumum tilvikum svip af því að heym- arlausir séu valdir í dómnefndir tón- listarverðlauna. Þá er nafnleynd á þeim málurum sem ekki völdust á farandsýningamar sem má vera um- deilanlegt, því hér á allt að vera gal- opið, hlýtur eiga að teljast nokkur sómi að komast yfírhöfuð á blað, upp- lýsti að auk betur vinnubrögð dóm- nefndar. Sóminn er þó tvíbentur í ljósi þess að í hópi dómnefndar og hinna 27 nefndarmanna er sem fyrr segir jafnframt fólk sem vel að merkja er mun þekktara fyrir að ganga framhjá málverkinu og ómerkja það, sumir lýst það úrelt með öUu. Það er líka áberandi að þau verk koma helst til álita tU verðlauna er falla að hugmyndum þeirra og sér- skoðunum varðandi aðra geira nú- Usta, einkum hvimndeginum og til- brigðum við hann. Hið hreina upphafna og ómengaða málverk á hér þannig óhjákvæmUega mun síður upp á pallborðið eins og berlega kem- ur íram, þótt margur er hjá stendur kunni að greina í sumum þeirra ferska nýstrauma, safa og vaxtar- mögn. Það er barasta ekki „in“ hjá sýningarstjórunum á augnablikinu né í takt við hinn alþjóðlega gæsa- gang, og gjalda íslenzku þátttakend- umir þess óneitanlega. En einmitt vegna viðtekinna stefnumarka getur það ekki talist neinn vansi að vera hér afskiptur og fyrir utan sjálfa dóm- nefndina tel ég fáa greina meinta yf- irburði verðlaunaverkanna, þau hefðu alveg eins getað faUið í skaut flestra sýnendanna einkum með full- tingi orðafimleika. Sömuleiðis má bera brigður á að þetta sé þverskurð- ur þess ágætasta sem gert er í nor- rænni myndUst nú um stundir. Það má þó segja nefndarmönnum til hróss, að nokkur fjölbreytni ríkir í vaU myndverka og að þeir hafa bersýnilega gengið heilir tU leiks út frá eigin forsendum, eru trúir upp- lagi sínu og skoðunum. En eigi sýn- ingin að gefa hugmynd um hvar landamæri málaraUstarinnar liggja megnar hún naumast að svara því, sem betur fer. Að málverkin mega ekki vera eldri en tveggja ára kemur manni einnig spánskt fyrir sjónir, sýnu nær væri að hafa þau fimm sem gæfi öUu meira svigrúm. Frábærilega er vandað til allra umbúða framkvæmdarinnar svo sem sýningarskrár/bókar, geisladisks fyrir blaðamenn og annarra upplýs- inga, þannig að vart verður betur né skUvirkar staðið að verki. Bragi Asgeirsson Tónakvöld fjölskyld- unnar í Kópavogi TONAKVOLD fjölskyldunnar verð- ur í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20, í félagsheimilinu Gullsmára, Gull- smára 13, í Kópavogi. Hátíðin er á vegum Tónlistarklúbbs Hana-nú. I fréttatilkynningu segir m.a.: „Gestir að þessu sinni er „tónafjöl- skylda" með ættföðurinn Vilhjálm S.V. Sigurjónsson, fyrrverandi leigubílstjóra og söngvara, í farar- broddi ásamt eiginkonu sinni, Erlu Bergmann. Einnig koma fram söngvarar með margra ára nám og þjálfun að baki svo og fólk sem við- heldur alþýðusönglistinni. Barna- börn Vilhjálms og Erlu, þau Berg- lind og Hanna Soffía Sverrisdætur, Rakel Pálmadóttir og Hreimur Heimisson munu syngja nokkur lög með afa sínum og ömmu og mömmu, Soffíu Guðmundsdóttur, við undirleik Sverris Bergmanns, sem er sonur Erlu og Vilhjálms. Einnig munu krakkamir syngja einsöng og dúetta m.a. lög við ljóð eftir afa sinn. Þá mun Soffía, sem er söngkona og söngkennari, syngja nokkur lög með tengdaföður sínum, Vilhjálmi. 75 ára aldursmunur er á flytjendunum sem er í samræmi við yfirskrift árs aldraðra; „Þjóðfélag fyrir fólk á öllum aldri“. Að lokum verður fjöldasöngur." Aðgangur er ókeypis. Gleraugnasalan, Laugavegi 65. adidas VÖRN FYRIR AUGUN Gleraugu fyrir unga fólkið BEACOCK barna úlpa/nísfóoruo með ondunarfilmu 1.990 áður 7.400 Stærðir: 8-12 ára Litir: 2 0TTER barnaflís 1.990 áður 7.900 Stærðir: 4-12 ára Litir: 2 FJ0RD fullorð.flís 2.990 áður 8.600 Stærðir: S-XL Litir: 5 DENVER fullorð.jakhi 3.990 áður 11.200 Stærðir: S-XL Litir: 6 með öndunarfilmu Helstu sölustaðir: Borgarsport, Borgamesi - Heimahornið, Stykkishólmi - Kaupfélag Húnvetninga, Blönduósi Blómsturvellir, Hellissandi - Kaupfélag Skagfirðinga, Sauðárkróki - Siglósport, Siglurfirði Söluaðili á Akuregri HÖLDUR hf. Illlíil l- töppurCn*v u M'a/íát n i SKEIFUNNI 6 • Sími 53 3 4450 stofnuö 5.júnf 1998 5T SEGLAQERÐIN ÆGIR Eyjarslóð 7 Reykjavík Sími 511 2200 Stofnað 1913
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.