Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 *------------------------ MORGUNBLAÐIÐ FOLKI FRETTUM John Milius, við tökur á Dillinger, og Warren Oates sem var í titilhlutverkinu, afburðaleikari sem dó langt um aldur fram. Milius og handritshöfundurinn Dennis Aaberg, við tökur á Big Wednesday. Arnold Schwarzenegger við dyr frægðarinnar í titilhlutverki Konans villimanns. Hreint ekki árennilegur. SNILLIGÁFAN sem menn þóttust greina í verkum Johns Miliusar fyrir hálfum öðrum áratug í fjölda úrvals handrita og nokkrum kraft- miklum kvikmyndum, hefur ekki enn skilað sér fyllilega. Flest bend- ir hins vegar til að hans blómatími sé liðinn, hafi einmitt verið áttundi og fyrri hluti níunda áratugarins. Þegar Milius fékk það orð á sig að þar færi ofsafengnasti og klókasti einstaklingurinn í nýrri kynslóð leikstjóra, sem voru að fara ham- förum í kvikmyndaheiminum. “ Persónulegar skoðanir hans voru óvenju hægrisinnaðar, ekki síst þegar tekið er tillit til viðloðandi vinstragaufs í tækifærissinnuðum kvikmyndageiranum, sem var al- mennt á móti vopnaskakinu í Víetnam. Ást hans á skotvopnum, ofbeldi og gamaldags karl- mennskudáðum, var viðbrugðið. Sjálfum sér lýsti hann á áttunda áratugnum sem „Zen-stjórnleys- ingja“. Hafði jafnvel áhrif á John Huston, sem hann vann fyrir sem handritshöfundur og leikstýrði, en - ‘"g-oðsögnin lét svo ummælt: „John Milius er ekki af þessu tímaskeiði heldur afturhvarf til liðinna alda, þegar víkingar réðu eða samúræj- ar...“ Milius sýndi óumdeilanlega hæfni í að koma fyrir sérviskuleg- um og hápólitískum skoðunum si'n- um í fjölda kraftmikilla handrita og kvikmynda á öndverðum átt- unda áratugnum. Nánustu vinir hans frá þessum tíma, ekki síst Spielberg, hefur þó gengið mun betur að viðhalda neistanum. Þrátt fyrir að vera stór og gild- JOHN MILIUS ur, þá var Milius (f. ’44), mikill brimbrettakappi á sínum tánings- árum og þótti villtur og ofbeldis- fullur. Enda voru það átaka- og spennumyndir Kurosawa og Johns Ford sem öðru fremur vöktu áhuga hans á kvikmyndagerð. Mil- ius var vinur og bekkjarbróðir George Lucas við USC, þeir stofn- uðu siðan, ásamt Francis Ford Coppola, framleiðslufyrirtækið American Zoetrope, síðla á sjöunda áratugnum. Á þessum ár- um sömdu þeir vinirnir, Coppola og Milius, í sameningu handritið snjalla, Apocalypse Now, sem færði Miliusi sína einu óskar- sverðlaunatilnefningu til þessa dags. Fyrsta vinnan sem Milius fékk í kvikmyndageiranum var handrit AIP myndarinnar The Devil’s Eight (’68), svar B-myndafyrirtæk- isins við ofurvinsældum. 12 rudda (The Dirty Dozen). Átti síðan stór- an þátt í handritsgerð tímamóta- myndarinnar Dirty Harry (’71), þó hann nyti þess ekki á kreditlistan- um. Milius var hins vegar skrifað- ur (ásamt Michael Cimino), fyrir Magnum Force (’73), fyrstu fram- haldsmyndinni um harðjaxlinn Harry Callaghan. Þá hafði hann lokið við handrit Jeremiah John- son (’72), eins besta vestra síðari Beint flug til Þrándheims £ í Noregi ÍSLANDSFLUG Flugverð 23.900, Ef greítt er fyrir 31. mars Afsláttur fyrir börn kr. 4.000 Flogið verður með glæsilegri Boeing-þotu (slandsflugs. Aukagjöld: Flugvallargjöld kr.4.500 bætast við. Þú getur fengið sumarbækling TERRA N0VA í verslunum Nóatúns, Netto Akureyri og www.ten-anova.is. - TERRA N0VA - áður Ferðamiðstöð Austurlands %ÁTE RRA Stangarhyl 3A ■ 110 Reykjavik Sími: 587 1919 & 567 8545 JWNOVA Fax: 587 0038 ■ www.terranova.is -Spennandi valkostur- ára. Um svipað leyti vonaðist hann til að fá að stýra sjálfur The Life and Time Of Judge Roy Bean (’72), sinni fyrstu mynd, eftir krassandi handriti um kunna bófa og klækja- refi villta vestursins. Varð að láta handritsgerðina duga og sætti sig fyllilega við að John Huston, eitt átrúnaðargoðanna, tók við leik- - stjórnarhlutverkinu. Hans tími var þó kominn því AIP fékk hinn vörpulega handritshöfund til að heyja frumraun sína sem leiksfjóri Dillinger (’73). ódýrrar gangster- myndar, sem spruttu upp einsog gorkúlur í kjölfar Bonnie and Clyde (’67). Óllum á óvart var myndin svo mögnuð að hún gaf forvera sinum Iítið eftir og skildi áhorfendur eftir agndofa, í Skúla- götubragganum sem annars stað- ar. Einn snilldarþáttur hennar var stórkostlegt leikaraval - sem flest- ir voru lítt eða ekkert þekktir á þeim tíma en áttu heldur betur eft- ir að gera garðinn frægan. Meist- ari var fæddur, álitu flestir, en raunin er samt sú að Dillinger er besta mynd Miliusar, fyrr og síðar. Milius fylgdi fyrstu myndinni trúverðuglega eftir með The Wind and the Lion (’75), munurinn sá að nú hafði hann úr nógum peningum að moða og stórstjörnum. Þriðja myndin var persónulegt uppgjör leikstjórans við þann frjálslega hluta ævi sinnar þegar hann gat leikið sér á hvítfextum ölduföldun- um undan ströndum Kalifornfu. Óvenjulegt hliðarskref hjá átaka- manninum, sem fór aftur í gamla farveginn í ævintýramyndinni Con- an villimaður - Conan The Barb- arian (’82), þar sem sverðaglamur og særingamenn og villimaðurinn sjálfur vöknuðu hressilega til lífs- ins af síðum teiknimyndaseríunn- ar. Þökk þeim Miliusi og Arnold Schwarzenegger í titilhlutverkinu. Handritshöfundurinn og leiksfjór- inn lét heldur ekki deigan síga í næstu mynd, The Red Dawn (’84), þar sem pólitískar skoðanir mannsins fá byr undir báða vængi í pottþéttri spennumynd. Síðan hefur hallað undan fæti eða staðið í stað hjá þessum sér- stæða kvikmyndagerðarmanni sem á löngu tímabili virtist vera að komast í hóp útvalinna. Mynd hans, Farewell to the King (’89), um hermann (Nick Nolte), sem gerist liðhlaupi í Kyrrahafsátökum síðari heimsstyrjaldarinnar og kóngur meðal frumbyggja á Born- eó, var efnislega forvitnileg en lít- ið meira. The Flight Of the Intrud- er (’90), er einfaldlega gleymd og grafin í samsafni lítt minnisstæðra Víetnammynda. Sem fyrr hefur Miliusi vegnað betur síðari árin sem hand- ritshöfundur og sækir í þau sitt lifibrauð. Fékk mjög góða dóma fyrir kvikmyndagerð The Hunt For Red October (’90), sem hefur örugglega ekki verið auðveld í flutningi. Hann var því fengin til að sjá um handritsgerð Clear and Present Danger (’94), annarrar bólar eftir Tom Clancy. Ekki alls fyrir löngu lauk hann við Þræla- stríðsvestrann Texas Ranger, sem væntanleg er siðar á árinu. Þar skyldi maður að Milius sé í essinu sínu, í stríði í villta vestrinu. Sígild myndbönd DILLINGER 1973 ★ ★★’/2 Sögufræg, lítil stórmynd, sem sýnir augljóslega hvers vegna þeir Coppola og Lucas álitu Milius risa við hliðina á sér. Kom Miliusi og Richard Dreyfuss (sem gerir mikið gott úr litlu hlutverki Pretty Boy Floyd) á landakort kvikmyndanna. Handrit og leik- stjórn Milius eru magnaðir þættir sem sýna hvað hægt er að gera úr litlum efnum með hæfileikum. Leikaraliðið aldeilis stórkostlegt með öndvegisleikar- ann Warren Oates, sem dó langt fyrir aldur fram, í fararbroddi. Af öðrum valmönnum úr leikarastétt sem koma við sögu þessarar perlu eru Ben Johnson, John Ford, leikarinn góði Harry Dean Stanton og Cloris Leachman. RED DAWN 1984 ★★★ Margir helstu kvikmyndaleikarar Bandaríkjanna af yngri kynslóðinni; Patrick Swayze, Charlie Sheen, C. Thomas Howell og Lea Thompson, taka til fótanna og halda til fjalla eftir innrás Rauða hersins í Bandaríkin og taka m.a. smábæinn þeirra. Gefur kommúnisman- um og Sovét langt nef, skemmtilega skilyrðislaust. Fullt af rómantískri ættjarðarást í bland við góðan hasar en kringumstæðurnar verða aldrei sannfærandi og leikararnir ekki heldur. Minnir, þótt skrítið sé, á vísindahrollvekjur kalda stríðsins, en hér eru rauðlið- arnir ekki lengur dulbúnir sem skrímsli eða veirur heldur koma fram eins og þeir eru klæddir. Harry Dean Stanton og Powers Boothe styrkja hópinn. THE WIND AND THE LION 1975 ★ ★★ Handritshöfundurinn/leikstjórinn leikur sér að staðreyndum úr hernaðarátökum í Norður-Afríku á fyrsta tug tuttugustu aldarinnar. Arabískur sjeik (Sean Connery) rænir amerískri ekkju (Candice Berg- en) og börnum hennar. Sjálfur Teddy Roosevelt (Brian Keith) verður að blanda sér í málið, sem verður að alþjóðlegu deilumáli. Góð ævintýramynd af gamla skólanum, vel sögð og skrifuð af Miliusi og stjörnurn- ar, ásamt John Huston, Geoffrey Lewis o.fl., skína undir eyðimerkurmánanum. V/SA VAKORT Eftirlýst kort nr. 4543-3700-0029-4648 4543-3700-0036-1934 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Islandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 fyrir að klófesta kort og vísa á vágest VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. Keppni í rúmlegu FJÖGUR pör ætla að feta í fótspor söngvarans Johns Lennons og konu hans Yoko Ono og liggja í rúminu um hríð í tilefni af því að sextugasti afmælis- dagur Lennons er einmitt um þessar mundir. Pörin munu hoppa upp í rúm í Yoko búðarglugga einum og keppast um það hver hefur þolinmæði til að dvelja þar lengst. Ono og Lennon áttu eftirminnilegar stundir í rúm- inu fyrír allra augum fyrir 31 ári meðan Víetnamstríðið var í al- gleymingi. Gestir og gangandi geta líka fylgst með pörunum fjór- um í gegnum búðarglugga Cavern-verslunarmiðstöðvarinnar sem er ekki mjög langt frá Cavern- klúbbnum þar sem Bítlarn- ir hófu feril sinn. Þeir sem ekki eru staddir í Liverpool geta fylgst með gangi mála á Netinu á www.yourliver- pool.com. Þeir sem skipu- leggja viðburðinn segja að pörin megi aðeins fara fram Ono úr rúminu í tíu mínútur i senn á tveggja tíma fresti og hafa aðeins útvarp, auk hvors annars sér til skemmtunar. Það par sem vinnur keppnina og eyðir lengstum tíma í rúminu vinn- ur rúma eina milljón króna og ferð til Montreal þar sem þeim býðst að dvelja á sama stað og Ono og Lennon létu mynda sig í bak og fyrir í rúminu fyrir rúmum þremur áratugum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.