Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Komu frá N oregi til að kaupa sér efni í bútasaum Rafíðnaðarmenn funda með SA BÚTAS AUMUR er tómstundagam- an sem margir stunda en af mis- mikilli alvöru. Óhætt er að segja að í gær hafi ein mjög svo áhugasöm bútasaumskona verið í búðinni Virku í Mörkinni en hún var komin alla leið frá Noregi til Islands f þeim eina tilgangi að kaupa sér efni í bútasaum. Þegar blaðamaður og Ijósmynd- ari Morgunblaðsins kíktu inn í Virku um klukkan fímm síðdegis var Ástrid Olsvik um það bil að fara að borga en hún þá var þá búinn að eyða öllum deginum í búðinni ásamt vinkonu sinni, Marlenu Bráthen, og taldist henni til að hún væri búin að kaupa um 80 metra af efni. Aðspurð viðurkenndi Astrid fúslega að svona ævintýri væri dýrt, en bætti við: „Þegar maður vill komast til himnaríkis þá spyr maður ekki hvað það kostar. Það eru nokkrar búðir í Noregi sem selja eftii í búta- saum en þetta er sú langstærsta - sú stærsta í Evrópu. Astrid, sem býr í Finnsnes, litlum bæ rétt suður af Tromso, sagðist á sfðasta ári hafa rætt um það við vin- konu að fara til íslands til að kaupa efni í bútasaum en ekkert hefði orð- ið úr. Ákveðið að hefja á ný eftirlit með Iridium-gervihnöttum Eftirlitsstöðin í Morgunblaoio/uolli Ástrid Olsvik (t.h.) kom hingað til lands ásamt vinkonu sinni Marlenu Bráthen í þeim eina tilgangi að kaupa eftii í bútasaum í versluninni Virku, en þær vinkonur búa í litlum bæ rétt fyrir sunnan Tromso. „Ég hringdi sfðan í hana í síðustu viku og spurði hvort hún væri ekki tilbúin að skella sér og hún var til og hér erum við.“ 7 til 8 þúsund mismunandi efni Guðfinna Helgadóttir, eigandi Virku, sagði það ekki vera eins- dæmi að útlendingar kæmu f Virku til að kaupa efni f bútasaum, en að aldrei áður hefðu þeir komið ein- göngu til íslands til að kaupa efni í búðinni. Hún sagði að í Virku væru um 7 til 8 þúsund mismunandi efni og að það kynnu viðskiptavinimir svo sannarlega að meta. Snj óholti opnuð aftur NOKKUR óvissa ríkir um starf- semi gervihnattasímafyrirtækisins Iridium sem á í miklum fjárhagserf- iðleikum. Bandaríska fjarskiptafyr- irtækið Motorola, sem á stóran hlut í Iridium, hefur sent frá sér tilkynn- ingu þess efnis að hafi ekki fundist kaupandi að Iridium fyrir 17. mars verði kerfinu lokað á miðnætti þess dags, en hefur á sama tíma ákveðið að opna aftur gervihnattaeftirlits- stöð sína að Snjóholti í Eiðaþinghá eftir tveggja mánaða lokun. Allt að 80 notendur eru skráðir hér á landi í Iridium-kerfinu og er þar einkum um að ræða íslenskar útgerðir sem hafa að margs konar öðrum fjarskiptamöguleikum að hverfa þótt Iridium-kerfinu verði lokað. Motorola á eftirlitsstöð fyrir Iridium-gervihnetti sem staðsett er að Snjóholti, Eiðaþinghá á Austur- Héraði. I gildi er samningur Landssím- ans og Motorola um rekstur stöðv- arinnar og er rúmlega eitt stöðug- ildi við stöðina þar sem greitt er fyrir 56 tíma viðveru starfsmanns á viku. Um síðustu áramót var tekin ákvörðun um að slökkva á tækjum stöðvarinriar og leggja niður vaktir starfsmanna sem skipta með sér vöktunum, vegna slæmrar fjárhags- stöðu Iridium-fyrirtækisins. í síð- ustu viku ákvað Motorola hins veg- ar að stöðin skyldi opnuð á ný og vaktimar mannaðar sem fyrr. Að sögn Ólafs Þ. Stephensen for- stöðumanns upplýsinga- og kynn- ingarmála Landssímans, hafa ekki verið gefnar skýringar á ákvörðun Motorola, sem hljóta að vekja spurningar um hvort betri tíð sé í vændum hjá Iridium þrátt fyrir allt. Þótt eftirlitsstöðin hafi verið lokuð frá áramótum til þessa dags hafa laun starfsmanna engu að síður ver- ið greidd allan tímann. Jóhann H. Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Radíómiðunar ehf., þjónustuaðila Iridium-kerfisins á Islandi, telur að þótt svo líti út að Iridium-kerfinu verði lokað eins og Motorola hefur gefið í skyn, sé hugsanlegt að þaðverði opnað aftur fljótlega og styður þá skoðun sína eftirfarandi rökum. „Iridium-kerfið hefur sýnt fram á tæknilega yfirburði og sannað ágæti sitt, enda er ekkert annað kerfi í heiminum sem nær að þekja allan hnöttinn," segir Jóhann. „Talgæði eru einnig meiri í Irid- ium-kerfinu en í sambærilegum kerfum því gervihnettirnir eru mun nær jörðu en hnettir annarra kerfa. Það er því mín skoðun að nýir fjár- festar sjái sér hag í því að koma að íyrirtækinu og það verði opnað aft- ur nokkrum dögum eða í versta falli nokkrum vikum eftir lokun. Hins vegar tel ég að lokunin verði varan- leg ef ekki hefur ræst úr hjá fyrir- tækinu innan mánaðar frá lokun kerfisins." SAMNINGANEFND Rafiðnaðar- sambands íslands, RSÍ, fundaði með fulltrúum SA í húsnæði sátta- semjara í gær. Áætlað er að við- ræðurnar haldi áfram í dag. Guðmundur Gunnarsson, for- maður RSÍ, sagði við Morgunblaðið í gær, að ágætur gangur væri í við- ræðunum og þeim yrði haldið áfram eitthvað fram eftir vikunni. „Gangi ekki saman fyrir helgi er ljóst að viðræðunum verður skotið form- lega til sáttasemjara," sagði Guð- mundur. Hann mat ágætar líkur á samn- ingum, „sjötíu á móti þrjátíu,“ eins og hann orðaði það. „Helst getur brotið á kröfum okkar um hver eigi að vera lágmarkslaun í stærri fram- kvæmdum. Við höfum í auknum mæli horft upp á erlend fyrirtæki fljóta inn í landið á s.k. lágmarks- töxtum og íslensk rafverktakafyrir- tæki horft gjörsamlega bjargarlaus á. Við viljum taka inn í samninga nú með hvaða hætti eigi að finna út meðallágmarkslaun í stærri fram- kvæmdum, svo erlendir verktakar geti ekki komið inn í landið í skjóli undirborgana, heldur verði þeir að taka mið af því sem gengur og ger- ist á vinnumarkaðnum. Þetta er nýjung sem við leggjum mikið kapp á eftir miklar deilur í Búrfellslínu og við Sultartangavirkjun. Við munum láta brjóta á þessu ef þarf,“ sagði Guðmundur. Arnar HU slær enn eitt metið FRYSTITOGARINN Arnar HU kemur til heimahafnar á Skaga- strönd síðdegis í dag með metafla- verðmæti, um 140 milljónir, eftir 33 daga veiðiferð. Ætla má að há- setahluturinn eftir túrinn nemi ríflega 1.300 þúsund krónum. Arnar HU var að veiðum fyrir Suðausturlandi í veiðiferðinni og er aflinn upp úr sjó um 670 tonn. Uppistaða aflans er þorskur, um 500 tonn, en einnig eru í aflanum um 150 tonn af grálúðu og um 20 tonn af ýsu. Verðmæti aflans er um 140 milljónir króna, eða um 4,4 milljónir að meðaltali á dag, sem er íslandsmet, en eftir því sem næst verður komist var metið áður um 126 milljónir króna. Að sögn Ama Sigurðssonar skipstjóra var jöfn og góð veiði alla veiðiferðina. „Það koma nú ekki margir svona túrar á ári en við erum engu að síður tiltölulega vel settir því Skagstrendingur hf. er með góðan þorskkvóta. Núna er uppistaða aflans frem- ur verðmætur fiskur, auk þess sem aflabrögðin voru góð allan tí- mann. Þó að veðrið hafi verið leið- inlegt allan tímann misstum við aðeins einn dag úr veiðum vegna brælu. Það hefur líka sitt að segja að hér er góð og samhent áhöfn þar sem allir leggja mikið á sig til að ná góðum árangri. Flestir skip- verja hafa verið hér lengi og það vita því allir hvað þeir eru að gera,“ segir Ami. 250 milljónir í tveimur veiðiferðum Aflaverðmæti Amars HU fór á síðasta ári yfir 1 milljarð króna, var meðalaflaverðmæti á dag þá um 3,5 milljónir króna. Þá fór aflaverðmætið fjómm sinnum yfir 100 milljónir króna. Amar HU er nú að koma úr sinni annarri veiði- ferð á þessu ári og var aflaverð- mætið í þeirri fyrri nærri 110 milljónir króna. Ingólfur Arnarson nemur land á ný FYRSTI landnámsmaður íslands, Ingólfur Amarson, hefur numið land á Árbæjarsafni ásamt konu sinni Hallveigu Fróðadóttur. Sem kunnugt er hefur lítið borið á Ing- ólfi í Reykjavík siðustu 1100 árin, en hann hefur nú verið endur- vakinn til lífsins og geta Reykvík- ingar og aðrir landsmenn skoðað hann á sýningu um sögu Reykjavík- ur sem verið er að setja upp á Ár- bæjarsafni. Sýningin verður opnuð um næstu mánaðamót. Á myndinni eru safnverðimir Iris Sigurjóns- dóttir og Helgi M. Sigurðsson að koma Ingólfi og Hallveigu fyrir í skála þeirra, sem endurbyggður hefur verið á safninu. TVÆR NYJAR TÖLVUORÐABÆKUR A GEISLAÐISKUM Tölvuorðabókin er mjög hentug námsmönnum, fyrirtækjum og öðrum, t.d. tit þýðinga, glósusöfnunar, villulestrar í Word 97 og aðstoðar við beygingu orða. Verð aðeins 5.980 kr. hvor Mál og menning malogmenning.is m 09 Morgunblaðið/Golli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.