Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.03.2000, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 11 FRÉTTIR Brunamála- stjóri biðst lausnar frá næstu ára- mótum BERGSTEINN Gizurarson, brunamálastjóri ríkisins, hefur beðist lausnar úr starfi sínu frá og með næstu áramótum. Fyrir liggur að gerðar verða viðamiklar breyt- ingar á Brunamálastofnun, sam- kvæmt frumvarpi sem umhverfis- ráðherra kynnti í ríkisstjórninni sl. föstudag. Ráðgert er að frumvarp- ið verði að lögum í vor og taki gildi um næstu áramót. Brunamálastjóri hefur óskað eftir því að hætta störfum þegar breytingarnar taka gildi. Magnús Jóhannesson, ráðuneyt- isstjóri í umhverfisráðuneytinu, segir að breytingarnar felist í því að styrkja framkvæmd eldvarnar- eftirlits í landinu, skýra betur hlut- verkaskipti ríkis og sveitarfélaga og styrkja menntun og þjálfun slökkviliðsmanna í Brunamálaskól- anum. Hann segir að slökkviliðun- um verði jafnframt faldar með formlegum hætti hreinsunarað- gerðir vegna mengunaróhappa úti á landi. Brunamálastofnun verður einkum ætlað að hafa eftirlit með því að framkvæmd brunamála sé alls staðar með sama hætti í land- inu. Stofnunin sinnir hins vegar minna beinum úttektum eins og verið hefur. Bergsteinn segir að sér þyki rétt að hætta um áramótin eftir tæp- lega fimmtán ár sem brunamála- stjóri. „Eg verð orðinn 64 ára þeg- ar ég læt af störfum. Það er ýmislegt annað sem mig langar til að gera,“ segir hann. Hann kveðst vera mjög sáttur við frumvarp um breytingar á brunavörnum. „Það er helst það sem ég öfunda eftirmann minn af hve hann fær góð lög til að starfa eftir,“ sagði Bergsteinn. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson SAMTÖKIN Ungir jafnaðarmenn voru stofnuð á laugardag og þar með varð til formlegt félag ungs fólks innan Sam- fylkingarinnar. Bráðabirgða- stjórn var skipuð til sex mánaða, í henni sitja Vil- hjálmur H. Vil- hjálmsson for- maður, Katrín Júlíusdóttir vara- formaður, Hjalti Már Þórisson, Guðrún Halla Sveinsdóttir, Fríða Rós Valdimars- dóttir, Gestur Páll Reynisson, Hólmfríður Anna Baldursdóttir, Ágúst Ágústsson, Einar Einarsson, Gerður Magnúsdóttir og Björgvin G. Sigurðsson. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson segir í samtali við Morgunblaðið að með stofnun samtakanna rætist lang- þráður draumur. „Ungt fólk hefur lengi haft forgöngu um sameiningu vinstrimanna og nú þegar verið er að fara að stofna stóran jafnaðar- mannaflokk er unga kynslóðin enn á ný á undan þeim sem eldri eru.“ Nafnið verði Jafnaðarflokkur eða Jafnaðarmannaflokkur Vilhjálmur segir tvö meginstef ríkjandi í hugmyndafræði ungra jafnaðarmanna, félagslegt réttlæti og frelsi einstaklingsins, en þetta tvennt þurfi ekki að vera andstæðir pólar. Virkja þurfi krafta einstakl- ingsins til að drífa markaðinn áfram en jafnframt eigi skattkerfið að út- deila gæðum og tryggja þeim sem ekki spjara sig í markaðskerfinu viðunandi framfærslu. „Einstaklingar eiga að keppa á markaði, en þar eiga líka að gilda mjög skýrar og ákveðnar sam- Morgunblaðið/Asdís Ungt fólk innan Samfylkingarinnar stofnaði á laugardag samtökin Ungir jafnaðarmenn á fundi í Iðnd. keppnisreglur. Sum svið mannlífs- ins eru líka það mikilvæg að ekki er hægt að láta óheft markaðslögmál ráða þar. Þar er helst að nefna menntakerfið, heilbrigðiskerfið og einnig verður að vera til félagslegt öryggisnet." Aðpurður segir Vilhjálmur nafn nýstofnaðra samtaka gefa til kynna þá skoðun þeirra að breyta þurfi nafni Samfylkingarinnar. „Því er ekki að neita að ástæða þess að við köllum okkur Unga jafn- aðarmenn er sú að við viljum að hinn nýstofnaði flokkur heiti Jafn- aðarflokkurinn eða Jafnaðarmanna- flokkurinn. Hugtakið Samfylkingin var ágætt á meðan þetta var kosn- ingabandalag, en segir í sjálfu sér ekki mikið og hefur ekki gildi í sjálfu sér.“ I stjórnmálayfirlýsingu stofn- fundar er tekin skýr afstaða í ýms- um málaflokkum og til dæmis er lýst yfir vilja til að sækja um aðild að Evrópusambandinu. Vilhjálmur segir samtökin treysta sér fullkom- lega til þess að taka skýra afstöðu þrátt fyrir að Samfylkingin sem heild hafi ekki gert það, en eitt af vandamálum Samfylkingarinnar sé að hún hafi ekki talað nógu skýrt. Aðspurður segir Vilhjálmur að félagar Ungra jafnaðarmanna muni sækjast eftir áhrifum á landsfundi Samfylkingarinnar í maí, en ekki sé tímabært að nefna að hvaða leyti sóst verður eftir formlegri þátttöku. Hann segir nýskipaða stjórn ekki lýsa yfir stuðningi við neitt for- mannsefna, en segist sjálfur ekki fara í launkofa með stuðning sinn við Össur Skarphéðinsson. „Eg tel að Össur sé heppilegasti maðurinn og að hann hafi þær skoðanir sem þarf til þess að flokkurinn fái þann sess í stjórnmálaflórunni sem hann á skilið.“ Yilhjálmur H. Vilhjálmsson, formaður nýrra samtaka ungrajafnaðarmanna Ungt fólk hefur lengi haft for- göngu um vinstri sameiningu Allsherjarkosn- ing í stjórn SFR Samkomulag um sölu á húseign Sjónvarpsins Að mestu nýr tækja- búnaður í Efstaleiti Morgunblaðið/Ásdís Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri og Sigurjon Sighvatsson handsala samninginn. Á milli þeirra stendur Magnús Leopoldsson, fasteignasali. SIGURJÓN Sighvatsson, kvik- myndaframleiðandi í Bandaríkjun- um, og fyrirtækið Ofanleiti ehf., hafa komist að samkomulagi við Sjónvarpið um kaup á húseign Sjónvarpsins á Laugavegi 176. Kaupverðið er 280 milljónir kr. sem greiðast við afhendingu 1. septem- ber næstkomandi. Húsið var auglýst til sölu í desember sl. og bárust sex tilboð í það sem voru metin of lág en hæsta boð var 220 milljónir kr. Markús Örn Antonsson útvarps- stjóri segir að sýnilegt sé að áætlan- ir um að flutningur Sjónvarpsins í Efstaleiti júlí-ágúst eigi að geta staðist. „Það gengur allt samkvæmt verkáætlun við innréttingar hér í húsinu og gengið hefur verið frá samningum við framleiðendur tækjabúnaðar sem við þurfum að fá í húsið.“ Markús Örn segir að megninu til verði nýr tækjabúnaður í nýja hús- inu. Lítið hafi verið endurnýjað á síðustu árum því lengi hafi staðið til að flytja starfsemina og kaupa ný tæki. Markús Örn segir að stefnt verði að því að ná sem mestri hag- ræðingu með flutningunum í Efsta- leiti, þar á meðal með meiri sam- ræmingu í verkefnum útvarps og sjónvarps. Talið er að sparnaður við ýmsa rekstrarþætti við að flytja Sjónvarpið í nýja húsið verði um 60 milljónir kr. á ári. Hann segir að til umræðu sé náin samvinna frétta- stofa útvarps og sjónvarps og það geti leitt til samruna vissra verk- þátta. Svæðisstöðvar úti á landi hafi verið að fikra sig í þessa átt og í auknum mæli munu þingfréttaritar- ar og fréttaritarar í útlöndum í auknum mæli vinna fyrir báða miðl- ana. Ekki sé þó um það að ræða að skornai' verði niður fjárveitingar til frétta heldur sé fremur verið að ræða um að hægt verði að vinna hlutina betur og með markvissari hætti t.d. með því að nýta betur sérfræðiþekkingu einstakra frétta- manna sem hingað til hafa ýmist unnið í útvarpi eða sjónvarpi. NÚ stendur yfir allsherjarkosning í stjórn Starfsmannafélags ríkis- stofnana (SFR) og er gert ráð fyrir því að niðurstöður verði kynntar á aðalfundi félagsins hinn 25. mars nk. Ellefu manns gefa kost á sér í stjórnina til næstu tveggja ára en hana skipa tíu manns auk formanns félagsins. Fjögur ár eru síðan síðast fóru fram kosningar í stjórn félagsins en fyrir tveimur árum var sjálfkjörið í stjórnina eftir að uppstillingarnefnd hafði lagt fram tillögu um skipan stjórnar til trúnaðarmannaráðs fé- lagsins. Alls um 4.700 manns, hvað- anæva af landinu, eru í félaginu. Uppstillingarnefnd lagði fram til- lögu um nöfn tíu manna í stjórn fé- lagsins á fundi trúnaðarmannaráðs félagsins hinn 22. febrúar sl. en áð- ur en til samþykktar á þeim lista kom til eins og formaður uppstill- ingarnefndar, Ingibjörg Óskars- dóttir, hafði búist við var stungið upp á Valdimar Leó Friðrikssyni stuðningsfulltrúa í stjórnina. Vegna þessa þurfti að efna til at- kvæðagreiðslu á fundi trúnaðar- mannaráðs og í henni hlaut Valdi- mar Leó 50% atkvæða sem nægði honum ekki til að komast inn á lista trúnaðarmannaráðs. Ákvað hann þá að safna ákveðnum fjölda undir- skrifta félagsmanna sér til stuðn- ings og gat hann þar með kallað til allsherjarkosningu í félaginu um fulltrúa í stjórn félagsins. Valdimar Leó ritaði um aðdrag- anda allsherjarkosningarinnar í Morgunblaðið í síðustu viku og greindi hann þar m.a. frá því að for- maður uppstillingarnefndar sem jafnframt er varaformaður núver- andi stjórnar hefði á fyrrgreindum trúnaðarmannaráðsfundi lagst gegn því að hann byði sig fram í stjórn félagsins þar sem listi uppstillingar- nefndar lægi þegar fyrir. Sagði hann því m.a. að það gæti ekki talist lýðræði né félaginu til framdráttar ef fyrirfram væri ákveðið hverjir mættu gefa kost á sér í stjórn og hverjir ekki. Reynt að hafa stjórnina fjölbreytta Ingibjörg Óskarsdóttir, formaður uppstillingarnefndar, sagði í sam- tali við Morgunblaðið það ekki rétt að ekki gætti lýðræðis í félaginu og benti á að kosning hefði farið fram á fundi trúnaðarmannaráðs eins og fyrr var greint frá en að í þeim hefði Valdimar Leó ekki hlotið nægilegt fylgi til þess að ná inn á títtnefndan lista. Ingibjörg greindi frá því að hún hefði ekkert á móti Valdimar pers- ónulega en skýrði frá því að á fund- inum hefði hún sett sig upp á móti því að hann færi inn á listann vegna þess að þar væri fyrir annar félags- maður sem væri stuðningsfulltrúi. Hún teldi með öðrum orðum æski- legt að í stjórn félagsins kæmi fram þverskurður af félagsmönnum og að í henni sætu fulltrúar sem flestra starfstétta innan félagsins. Það næði hins vegar ekki fram að ganga væru í stjórninni tveir fulltrúar stuðningsfulltrúa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.