Morgunblaðið - 14.03.2000, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 1 7
Fulltrúi í áfengis- og vímuvarnanefnd
Fíkniefni fundust
á heimili hans
TVÖ fíkniefnamál komu upp á Akur-
eyri um helgina og gerði rannsókn-
ardeild lögreglunnar á Akureyri
nokkurt magn fíkniefna upptækt.
Einn þeirra, sem koma við sögu í
þessum málum, á sæti í áfengis- og
vímuvarnanefnd Akureyrar.
Síðdegis á laugardag voru fjórir
ungir menn handteknir í bíl á Akur-
eyri grunaðir um fíkniefnaneyslu.
Einn þeirra er á þrítugsaldri en þrír
17 ára gamlir.
Við húsleit heima hjá þeim elsta
fundust 9 gi’ömm af amfetamíni og 4
grömm af hassi auk nokkurs magns
af tækjum og tólum til neyslu fíkni-
efna. Maðurinn viðurkenndi að eiga
fíkniefnin og sagði við yfii-heyrslur
hjá rannsóknardeild lögreglunnar á
Akureyri að þau væru ætluð til eigin
nota.
Samkvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins á viðkomandi maður sæti í
áfengis- og vímuvamanefnd Akur-
eyrar. Manninum var sleppt úr haldi
eftir hádegi á sunnudag en piltunum
þremur var sleppt fljótlega.
Málið telst upplýst samkvæmt
upplýsingum frá rannsóknardeild
lögreglunnar.
Fyrra málið kom upp aðfaranótt
sunnudags þegar lögregla handtók
mann á veitingastaðnum Club 13.
Hann reyndist hafa í fórum sínum
amfetamín og viðurkenndi að eiga
efnið en kvað það ætlað til eigin nota.
Tillaga um að bænd-
ur kaupi mjólkur-
vinnslu KEA felld
TILLAGA um að væntanlegt fram-
leiðenda-samvinnufélag bænda í
Eyjafirði myndi kaupa Mjólkursam-
lag KEA og MSKÞ á Húsavík á 1,3
milljarða var felld á deildarfundi í
Hrafnagils-, Saurbæjar- og Öng-
ulsstaðadeildum Kaupfélags Eyfirð-
inga fyrr í vikunni. Benedikt Hjalta-
son á Hrafnagili bar tillöguna upp á
fundinum, en auk hans stóðu að
henni Aðalsteinn Hallgi’ímsson í
Garði, Sigurgeir Pálsson í Sigtúnum
og Finnur Sigurgeirsson á Staðar-
hóii.
I tillögunni kemur fram að með í
sölunni ættu að vera eignarhlutar
KEA í fyrirtækjum tengdum mjólk-
uriðnaði, t.d. Rannsóknarstofu
mjólkuriðnaðarins og Osta- og
smjörsölunni, sem og t.d. tankbif-
reiðar og fleira tengt rekstri sam-
laganna.
Verðmæti félaganna er annars
vegar fengið með því verðmætamati
sem viðhaft var síðasta sumar þegar
KEA tók við rekstri mjólkursam-
lags KÞ á Húsavík og hins vegar úr
tölum úr efnahagsreikningi.
I greinargerð með tillögunni seg-
ir að framleiðendur mjólkur á Norð-
urlandi beri kvíðboga fyrir framtíð
sinni í breyttu umhverfi sem hluta-
félagavæðing KEA hefði í för með
sér og vilji þeir að mjólkurvinnsla á
svæðinu verði áfram í höndum sam-
vinnufélags, „þai’ sem ekki sé höfð
að leiðarljósi sú fjármagnsdýrkun
sem tröllríður nú íslensku þjóðfé-
lagi heldur reki framleiðendur
mjólkuriðnaðinn á eigin ábyrgð þar
sem samvinnuhugsjónin ráði ríkj-
um“, segir í greinargerðinni.
MMWMMMNWMMM
? «► e> r
Plastprent hf.
AÐALFUNDUR
Aðalfundur Plastprents hf.
verður haldinn miðvikudaginn 22.mars 2000
kl.: 16.00 í húsnæði félagsins að
Fosshálsi 17-25, Reykjavík.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 18 gr. samþykkta
félagsins.
2. Breytingar á samþykktum vegna
forkaupsréttartímabils.
3. Tillaga um heimild til stjórnar til kaupa á eigin
hlutabréfum félagsins skv 55. grein hlutafélagalaga.
4. Önnur mál, löglega upp borin.
Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins
munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, hluthöfum
til sýnis, viku fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Stjórn Plastprents hf.
Nokia 3210
Snotur og tæknilegur VIT simi
Styður „Dual Band" 900 og 1800 mhz
GSM kerfin • Rafhlaða endist I 50-250
klst. í bið og 2-4 klst. I notkun
• Upplýstur skjár með allt að fimm
Knum fyrir texta og graftk
• 250 nöfn og númer f símaskrá
• 40 mismunandi hringingar
• SMS skilaboðasendlngar
og móttaka, 160 tákn
• VIT simi
21.900 kr.
með 500 kr. Frelsisinneign
Ihnú
Með Frelsisáskrift Símans GSM greiðirðu fyrirfram fyrir tiltekna notkun,
engin mánaðargjöld og þarft ekki að hafa áhyggjur af símreikningum.
Og nú eru Ericsson A1018s, Nokia 5110 og Nokia 3210 simar á sérstöku
FrelsistiIboði. Þú færð símann á frábæru tilboðsverði, greiðir ekkert stofn-
gjald og færð 500 kr. inneign á Frelsiskortinu.
Sannkölluð freisting fyrir hagsýna símnotendur.
Ericsson A1018s með Chatboard
Nettur VIT sími sem fer vel í hendi
Styður „Dual Band" 900 og 1800 mhz GSM kerfin
Rafhlaða endist i allt að 85 klst. I bið
4 klst. ( notkun • 13 sm hár,
4,9 sm breiður og 2,7 sm
þykkur • Graffskur
skjár fyrir allt að 3
linur fyrir texta og
graffk • SMS skilaboða-
sendingar og móttaka
Hægt að skipta um framhlið á
simanum • Hægt að semja eigin
ingingu • Öll sérþjónusta í GSM kerfinu möguleg
Vekjaraklukka með „Snooze" • VIT sfmi
Nokia 5110
Traustur sími með lífseiga rafhlöðu
• Styður 900 mhz GSM kerfið •
Rafhlaða endist í 50-270 klst. i bið
og 2-4 klst. f notkun • Upplýstur
skjár sem býður upp á fullkomna
grafík • 250 nöfn og númer í
símaskrá • SMS skilaboða-
sendingar og móttaka, 160 tákn
• 35 mismunandi hringingar
12.980 kr.
með 500 kr. Frelsisinneign
14.980 kr.
með 500 kr. Frelsisinneign
FÆST í VERSLUNUM SÍMANS
WWW.VEFVERSLUN.IS
SIHINN<3SM
FÆRIR ÞÉR FRAMTÍÐINA