Morgunblaðið - 14.03.2000, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
URVERINU
ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000 23
ERLENT
Morgunblaðið/Ásdís
Skipt var um brúarglugga á Jónu Eðvalds SF í gær, auk þess sem hugað var að öðrum skemmdum.
„Hvellurinn eins
og fallbyssuskot“
Morgunblaðið/Ásdís
Ný rúða komin í og að loknum viðgerðum var skipið tilbúið til veiða.
Jóna Eðvalds SF
fékk á sig brotsjó
LOÐNUSKIPIÐ Jóna Eðvalds SF
fékk á sig brotsjó í fyrrakvöld þegar
skipið var á siglingu í Faxaflóa, um 25
mílur suður af Snæfellsnesi. Rúða í
brú skipsins brotnaði en engan sak-
aði. Minniháttar skemmdir urðu á
tækjum.
Jóna Eðvalds SF var á leið á loðnu-
miðin við Snæfellsnes í fyrrakvöld en
þá var haugasjór og vonskuveður á
Faxaflóa, að sögn Ingólfs Ásgríms-
sonar skipstjóra. „Brotið lenti á bak-
borðshlið skipsins og við það brotnaði
brúargluggi og sjórinn fossaði inn.
Krafturinn var ógurlegur og hvellur-
inn þegar brotið skall á rúðunni eins
og fallbyssuskot. Við vorum tveir
uppi í brú en vorum báðir stjóm-
borðsmegin í brúnni og mildi að eng-
inn skyldi slasast.“
Ingólfur segir að skemmdir af völd-
um brotsins séu óverulegar. Þó hafi
sjórinn líklega eyðilagt siglingatölvu
skipsins og skemmt dýptarmæli.
Engar skemmdir urðu á skipinu að
öðru leyti. Svo vel vildi til að skipverj-
ar höfðu í fórum sínum aukaglugga og
var hann settur í umsvifalaust og
stefnan var tekin til Reykjavíkur til
að huga þar að frekari skemmdum.
Öhreint mjöl
í pokahorninu
FRAMKVÆMDASTJÓRI
danska fyrirtækisins Scanmills
a/s á yfir höfði sér allt að fjögurra
ára fangelsi eftir að hafa játað að
hafa falsað útflutningsvottorð á
fóðurmjöli. Þetta fyrirtæki er
einn af stærstu kaupendu af fiski-
mjöli frá íslandi. ,
Danska blaðið Politiken
greindi frá þessu á mánudag og
kemur þar fram að í 800 tilfellum
hafi vottorðum frá dönskum yfir-
völdum verið breytt við útflutn-
ing á fiskimjöli til Rússlands,
Hvíta-Rússlands, Tékklands,
Rúmeníu, Eistlands, Lettlands
og Bangladesh á árunum 1994 til
1999. Samkvæmt yfirlýsingum
var þarna um að ræða fiskimjöl,
en í rauninni var um að ræða mjöl
framleitt úr kjúklingaúrgangi,
fiðri og slíku, en í það blandað lít-
ilsháttar af fiskimjöli eða lýsi.
Málið varð uppvíst þegar kaup-
endur frá Rússlandi og Tékklandi
sneru sér til danskra yfirvalda til
að fá staðfest að mjölið væri rétt
vottað. Svo reyndist ekki vera.
Fiskafurðir eru eitt þeirra fyr-
irtækja, sem selt hafa danska fyr-
irtækinu mjöl. Jón Guðlaugsson,
sem sér um sölu á fískimjöli hjá
fyrirtækinu, segist lítið vita um
þetta mál og gerir ekki ráð fyrir
því að það hafi áhrif á viðskiptin
við Danina. Hann segist hafa vit-
að að þeir væru að selja blandað
mjöl til Austur-Evrópu en vissi
ekki til þess að það hefði venð
gert með ólöglegum hætti. „Ég
talaði við þá, þegar fréttin birtist
og þeir gerðu mjög lítið úr þessu
svo við erum alveg rólegir," segir
Jón Guðlaugsson.
Fyrsta
kolmunn-
anum
landað
HOFFELL SU landaði 1.000 tonn-
um af kolmunna á Fáskrúðsfirði um
helgina og hélt aftur út eftir hádegið
í gær. Þetta var fyrsti kolmunnaafli
Islendinga á vertíðinni en áhafnir
fleiri skipa eru að búa sig undir að
fara á kolmunnaveiðar á næstunni.
Skipið var níu daga í túrnum og að
sögn Bergs Einarssonar, skipstjóra,
fékkst kolmunninn um 250 mílm-
vestur af Irlandi, en þangað er um
tveggja og hálfs sólarhringa sigling.
Fá skip voru á miðunum þegar Hof-
fell kom á svæðið en þegar það fór
voru þar um 20 norsk, rússnesk og
færeysk skip.
Bræla var á miðunum nær allan
tímann en skipverjamir á Hoffellinu
fengu nær fullfermi í fimm holum.
„Trollið var 76 mínútur í lóði með
þessi 1.000 tonn,“ sagði Bergur.
„Það var rétt dýft í og svo híft.“
Bræla hamlar veiðum á loðnumiðunum við Snæfellsnes
Tvísýnt hvort kvót-
inn næst á vertíðinni
LOÐNUSKIPIN lágu flest í vari
norðan við Snæfellsnes í gær og hafa
lítið getað aðhafst á miðunum síðan á
sunnudag vegna veðurs. Nú eru um
137 þúsund tonn eftir af loðnukvót-
anum og tvísýnt um að hann náist á
vertíðinni.
Agæt veiði var á loðnumiðunum
við Snæfellsnes á fostudag og laug-
ardag og lönduðu skipin samtals um
45 þúsund tonnum af loðnu um helg-
ina, samkvæmt upplýsingum frá
Samtökum fiskvinnslustöðva. Þá eru
samtals um 137 þúsund tonn eftir af
loðnukvótanum. Mjög styttist nú í að
loðnan hrygni og hefur fengist
hrygnd loðna í nokki-um köstum.
Allt útlit er fyrir að skipin hætti veið-
um eftir að loðnan hrygnir og sögð-
ust skipstjórnarmenn, sem Morgun-
blaðið ræddi við í gær, þakka fyrir
hvem dag sem enn er veiði. Þeir von-
uðust til að geta haldið áfram veiðum
út þessa viku og þá væri að öllum lík-
indum hægt að fara langt með kvót-
ann. Nú væri það aðeins veðrið sem
hamlaði veiðunum. Loðna hefur ver-
ið undanþegin viðskiptum á Kvóta-
þingi til að liðka fyrir viðskiptunum í
þeirri von að kvótinn náist.
Heimsókn forseta Alþingis til Litháen
Sérstakur
vináttuvottur
við Island
HALLDÓR Blöndal, forseti Alþing-
is, tók um helgina þátt í því er Lithá-
ar minntust þess með hátíðlegum
hætti að réttur áratugur er liðinn frá
því litháíska þingið lýsti yfir sjálf-
stæði landsins frá Sovétríkjunum.
„Ég fann hvarvetna mikinn
hlýhug í garð okkar íslendinga,“
sagði Halldór í samtali við Morgun-
blaðið eftir heimkomuna. Halldór
var ásamt þingforsetum Lettlands
og Eistlands sérstakur heiðursgest-
ur á aukafundi litháíska þingsins á
laugardag, sem helgaður var afmæli
sj álfstæðisyfirlýsingarinnar.
Segir Halldór Litháa hafa viljað
sýna Islandi sérstakan vináttuvott
með því að bjóða sér að vera við-
staddur þessar hátíðlegu minningar-
athafnir. Litháar séu þakklátir ís-
lendingum fyrir að þeir voru fyrstir
til að viðurkenna formlega endurnýj-
að sjálfstæði Litháens. Kemur þetta
þakklæti meðal annars fram í því, að
við þinghúsið, í næsta nágrenni við
minnismerkið um þá sem létu lífið er
sovézk yfirvöld reyndu að brjóta
sjálfstæðisvilja Litháa á bak aftur
með valdi, er annað minnismerki
með áletruninni „Guð blessi ísland“
álitháísku.
A föstudagskvöld sat Halldór
ásamt hinum heiðursgestunum
kvöldverð í boði Vytautas Lands-
bergis, forseta litháíska þingsins,
Seimas. A laugardag voru þingfor-
setarnir allir viðstaddir opnun á sýn-
ingu í þinghúsinu í Vilnius um þjóð-
þing Islands, Noregs, Svíþjóðar,
Finnlands og Eistlands.
Vilji til nánari samskipta
Halldór afhenti Landsbergis gjöf
frá Alþingi til litháíska þingsins. Að
sögn Halldórs var þetta fallegt lista-
verk eftir Jón Snorra hjá Jens ehf.,
blóm smíðað úr silfri, sem tákn lýð-
ræðisins; blómknappurinn sjálfur er
hraunmoli frá Þingvöllum.
Á laugardeginum hitti Halldór
einnig Valdas Adamkus, forseta Lit-
háens, og var viðstaddur opnun sýn-
ingar um atburðarás sjálfstæðis-
málsins í þjóðminjasafni Litháens í
Vilnius. Á sunnudag átti Halldór
tvíhliða viðræður við Landsbergis í
þinghúsinu.
„Við ræddum saman um ánægju-
leg samskipti þjóðanna og hann
sagði okkur frá þeim atburðum sem
áttu sér stað í þinghúsinu fyrir tíu
árum,“ sagði Halldór um viðræður
sínar við Landsbergis. „Við lýstum
yfir vilja okkar til þess að eiga nánari
samskipti í framtíðinni. Við töluðum
sérstaklega um það að rækta vináttu
þjóðanna og efla samskipti milli
þeirra og ég vonast til að Landsberg-
is geti komið og heimsótt okkur á
Þingvöllum í sumar ásamt fulltrúum
þjóðþinga hinna Eystrasaltsland-
anna,“ sagði hann.
Ljósmynd/ INNA/Dzoja G Barysaite
Halldór Blöndal, forseti Alþingis, heilsar Valdas Adamkus, forseta
Litháens, í opinberri heimsókn sinni til Vilnius um helgina.
Aukið fé í sjóði
V erkamanna-
flokksins
London. Morgunblaðið.
TONY BLAIR hefur að sögn The
Sunday Times tekizt að fá verka-
lýðsfélögin til þess að stórauka
framlög til kosningasjóðs Verka-
mannaflokksins. Munu þau leggja
flokknum til 13 milljónir punda af
þeim 20 sem hann má lögum sam-
kvæmt verja til kosningabaráttunn-
ar á næsta ári. Auk þess munu þau
greiða 2 milljónir punda í flokks-
gjöld frá næstu áramótum sem er
helmingshækkun.
Við kosningarnar 1997 lögðu
verkalýðsfélögin flokknum til 9 af
þeim 26 milljónum punda, sem kosn-
ingabaráttan kostaði. Blaðið hefur
eftir talsmönnum verkalýðsfélaga,
að allt tal um vinslit milli félaganna
og flokksins sé nú úr sögunni og
Tony Blair geri sér ljóst, að flokkur-
inn þarfnist stuðnings verkalýðs-
hreyfingarinnai-. Hins vegar komi
samkomulag þetta sér vel fyrir Bla-
tr, sem hefur sætt gagnrýni flokks-
manna sinna fyrir að þiggja stuðn-
ing viðskiptajöfra og
fjölmiðlakónga.
Blaðið hefur eftir talsmanni
íhaldsflokksins að með þessu sam-
komulagi séu Verkamannaflokkm--
inn ogverkalýðshreyfingin að fallast
í faðma á ný, sem veki spurningar
um það til hvers verkalýðshreyfing-
in ætlaðist af Tony Blafr.