Morgunblaðið - 14.03.2000, Qupperneq 54
MORGUNB LAÐIÐ
.54 ÞRIÐJUDAGUR 14. MARS 2000
Hundalíf
EISUM Vlf) /tf> &ANGA TIÍ. BAKA
YFIR HÆÖINA ?
FÖRUM HELDUR í SESN UM
S/tRfilNN, PAD ER EKfCT
,EINS LAN6T~^
KOMÖU NU. PETTA ER
B/tR/t ÖRLÍTTÐ LENSR/t
ÉS VEITÞAÐ, EN ÉS
NENNI EKKI AB 6AN6A
SVOLAN6T
|-iq
Ljóska
Smáfólk
ACTUALLV, CHARLES, I HATE
BA5EBALL..I'M ONLY PLAYIN6
ON YOUR TEAM BECAUSE l'VE
ALWAY5 BEEN FONP OF YOU..
UJELL, ONCE I U)A5 FONP OF
YOU, BUT THEN I WA5N'T..BUT
THENIWAS A6AIN ...THERE
MU5T BE A UJORP FOR IT...
Kalli, í raun þykir mér homabolti Nú, einu sinni þótti mér vænt um þig,
hundleiðinlegur. Ég leik bara með svo ekki og svo aftur. Það hlýtur
af því að mér hefúr alltaf að vera til orð yfír þetta.
þótt vænt um þig.
Endurvæntumþykja.
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Ný sjávar-
útvegsstefna
Frá Kristjáni Péturssyni:
í TILLÖGU til þingsályktunar um
grundvöll nýrrar fiskveiðistjórnun-
ar, sem þingmenn Frjálslynda
flokksins og Vinstrihreyfingarinnar
- græns framboð hafa lagt fram,
kemur fram skýr stefnumörkun um
gjörbreyttar leiðir í sjávarútvegs-
málum.
Agallar núverandi fiskveiðistjóm-
unar ættu að vera öllum ljósar, enda
búnir að vera deilumál þjóðarinnar
um áraráðir. Fyrst og síðast verður
löggjafarvaldið að uppfylla jafnræð-
isákvæði stjómarskrárinnar með
þeim hætti að tryggja jafnan at-
vinnurétt fólksins í landinu.
Þjóðin hefur búið við ólögmæta
fiskveiðistjómun á annan áratug,
sem ætti að vera alvarleg áminning
fyrir löggjafarvaldið og þó sérstak-
lega fyrir núverandi stjómarfl.
Taumlaust brask og sérhagsmunir
hafa fylgt þessu fiskveiðistjórnunar-
kerfi, sem leitt hefur til mestu
eignatilfærslu Islandssögunnar og
málaferli og dómar um sjálfan
grandvöll þess er í algjöru uppnámi
eins og kunnugt er.
Ríkisstjómin er úrræðalaus og
gerir ekki neitt, þótt hún viti mæta-
vel að kvótakerfið er hranið.
Ríkisstjórnin hefur litið framhjá
ágöllum fiskveiðistjórnunarinnar
þótt hún hafi alla tíð haft þá fyrir
augum sér eins og ójöfnun á sam-
kepnnisaðstöðu stærri útgerðarfyr-
irtækja gagnvart hinum minni, lok-
un kerfisins á nýliðun í útgerð,
öryggisleysi og nánast auðn íbúa í
fámennari sjávarbyggðum hömlu-
laust brottkast á fiski sem kerfið
býður uppá, gífurlegt flæði fjár-
magns úr greininni þegar kvóti
(sameign þjóðarinnar) er seldur og
aukinnar skuldsetningar sem út-
gerðir verða að bera af þeim sökum
og síðast en ekki síst hið hömluiausa
brask á fiskveiðiheimildum. Þessu
er öllu fórnað fyrir sérhagsmuni
(hundmð milljarða) svonefndra
sægreifa og fylgifiska þeirra með
dyggilegri aðstoð beggja stjómar-
flokka.
Stjórnarskráin er þverbrotin
samk. tveimur dómum um ákvæði
fiskveiðistjómunar um jafnræði og
atvinnufrelsi og því full ástæða að
rannsaka hvort hér sé um að ræða
verknaði að yfirlögðu ráði, sem m.a.
tekur til undirritunar drengskapar-
heita þingmanna varðandi vemdun
stj órnarskrárinnar.
Urræði o.fl.
Ég er í megindráttum sammála
tillögum þingmanna Frjálslynda
flokksins um að skipta fiskveiðiflot-
anum í þrjá útgerðaríiokka, þar sem
mörkuð er skýr stefna í afla- og
veiðistýringu sem hentar hverjum
fyrir sig.
1. Frysti-, nóta- og togveiðiskip
2. Stærri togveiðiskip, sem landa
ísvörðum fiski
3. Strandveiðiflotinn (grannslóð)
smábátar og önnur dagróðraskip
með kyrrstæð veiðarfæri sem veiði
innan ákveðinna grannslóðamarka
samkvæmt sóknarmarki.
Með auknu frelsi smábáta til fisk-
veiða væri strax hægt að hjálpa
kvótalausum byggðalögum. Ef
ásókn smábáta yrði of mikil og
þyrfti að setja kvóta á heildarveiði
þeirra, þá væri skynsamlegast að
byggðatengja hann og bjóða hann
upp innan viðkomandi byggðarlaga.
Framsal og leiga veiðiheimilda væri
óheimil.
Breytingar varðandi 1. og 2. út-
gerðarflokk yrðu m.a. að allt framsal
og leiga á veiðiheimildum yrði bönn-
uð og kvótasetning þeirra yrði lryst
er tekur til magns og afnumin í jafn-
stóram skrefum á næstu fimm ár-
um. Uppboð á kvóta þessara útgerð-
arflokka væri ekki byggðatengdur.
Um skiptingu heddarmagns milli
útgerðarflokkanna verður að rann-
saka vel með hagsmuni allra í huga
s.s. fisktegunda, veiðislóða og fisk-
vinnslu. Utboð fari fram a.m.k. 4
sinnum á ári og leiga fiskveiðiheim-
ilda gildi til eins árs í senn.
I þessari grein hefur aðeins verið
fjallað um nokkur atriði þingsálykt-
unartillögu Frjálslynda flokksins og
Vinstrihreyfingarinnar - græns
framboð um áherslur í sjávarútvegs-
málum. Með þessum tillögum er
verið að tryggja að auðlindir sjávar
verði í reynd sameign þjóðarinnar
og byggðarlögum tryggður réttlátur
hluti veiðiheimilda, sem efli atvinnu í
landinu. Mest um vert er að sjávar-
útvegsstefnan stuðli að réttlátri og
jafnri skiptingu lífskjara þeirra sem
vinna við starfsgreinina og efli at-
vinnu og nýtingu auðlindarinnar.
KRISTJÁN PÉTURSSON,
fv. deildarstjóri.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
SLIM-LINE
dömubuxur frá
gardeur
OÓUtltU
tískuverslun
v/Nesveg, Seltj., s. 561 1680
Verkbókhald
B
KERFISÞROUN HF.
Fákafeni 11 • Sími 568 8055
http://www.kerfisthroun.is/