Morgunblaðið - 14.03.2000, Side 56
Tilboð mtz
og # BllfM
koupouki
vetrarvörur
MORGUNBLAÐIÐ
ÍDAG
VELVAKAIVDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Metrafárið í
veðurfréttunum
EG er alveg sammála þeim
sem vilja afnema metrafár-
ið í veðurfréttunum. Ég vii
að aftur verði notast við hin
gömlu orðtök, svo sem
logn, golu og kalda, stinn-
ingskalda, rok og ofsarok.
Ég þekki fólk sem segist
vera hætt að hlusta á veð-
urfréttimar síðan nýja
kerfinu var komið á. Ég er
ekki frá því að þeir sem
voru fastir í bílunumá Hell-
isheiðinni nú á dögunum
hafi ruglast á metrunum.
Eldri borgari.
Oskudagssælgætið
BJÖRG hafði samband við
Velvakanda og vildi koma á
framfæri óánægju sinni
með sælgætið sem börnin
hennar fengu á öskudag-
inn. Þau fóru fjögur saman
út að syngja og fengu fullt
af sælgæti. Þau vom látin
bíða með að borða sælgætið
fram á laugardag. Þegar
átti að fara að gæða sér á
gottinu, kom í ljós að það
var allt meira og minna út-
mnnið í desember 1999.
Finnst henni þetta afar lé-
legt hjá verslunum, það
mætti frekar hafa sælgætið
minna fyrir hvern og einn,
en hafa það nýtt.
Strætisvagnar
Reykjavíkur
ÉG er rosalega óhress með
breytingarnar hjá Strætis-
vögnum Reykjavíkur. Það
er alltaf verið að breyta
strætisvagnaleiðunum og
númerunum á vögnunum.
Það er til dæmis nýbúið að
breyta leið 6 sem keyrir hjá
Arnarbakka. Þetta er sér-
staklega bagalegt fyrir fólk
sem notar mikið strætis-
vagnana og eldra fólk.
Sigríður Johnsen.
GSM-sími týndist
NOKIA 5110 GSM-sími
týndist aðfaranótt sunnu-
dagsins 12. mars sl. Kona,
sem var að koma frá
skemmtistaðnum Catalínu í
Kópavogi, fékk far með
rauðum station-bíl inn í
Nökkvavog. Hún heldur
jafnvel að síminn hafi getað
orðið eftir í bflnum. Skilvís
finnandi er vinsamlegast
beðinn að hafa samband við
Maríu í síma 555-3962 eða
552-2077.
Nokia 6110 týndist
GSM-simi af gerðinni Nok-
ia 6110, týndist um hádeg-
isbilið föstudaginn 3. mars
sl. annaðhvort við Grettis-
götu eða við Laugaveg.
Skilvís finnandi vinsam-
legast hringi í síma 552-
0587.
GSM-sími týndist
GSM-SÍMI, Nokia 6110,
týndist á Wunderbar, laug-
ardagskvöldið 11. mars sl.
Finnandi vinsamlegast hafi
samband við Jóhönnu í
síma 567-6097 eða 863-
3282.
Apwtekið
Nýskráð fyrirtæki
— mikil sala
1. Frábær sólbaðstofa á einstaklega góðum stað í borginni. Nýlegir
bekkir og flest nýendurnýjað í fyrirtækinu. Besta verð á sólbað-
stofu sem við höfum séð í langan tíma. Mikil og góð viðskipti sem
má auka.
2. Gömul og þekkt prentsmiðja, einstaklega vel tækjum búin, sem
Ijósritar, er með tölvuvinnslu, leiser-útprentanir og vinnur mest
í smærri verkum. Flytur hráefni inn sjálf. Vel staðsett í borginni.
Traust fyrirtæki með mikið af föstum og góðum viðskiptavinum.
3. Tölvuskóli á stórhöfuðborgarsvæðinu. Leggur mikla áherslu á
hönnunarvinnu. Mjög góð aðstaða og tæki. Námskeið í gangi.
Einnig tilvalið sem útibú frá stærri tölvuskóla. í tölvunum er fram-
tíðin.
4. Frábært leiktækjafyrirtæki til sölu sem er staður fyrir börn á aldrin-
um 2ja til 12 ára. Veitingaaðstaða fylgir með. Geysimiklir möguleik-
ar. Mikið um afmælisveislur og hópsamkomur. Svona staðir eru
mjög vinsælir erlendis og verða hér einnig.
5. Sérstakur söluturn sem er með bílalúgu og hefur verið mikið end-
urnýjaður. Myndbandaleiga ervaxandi. Spilakassasr gefa góðan
pening. Mjög góð afkoma, sérstaklega lág húsaleiga. Gott verð
fyrir gott fyrirtæki.
6. Skyndibita- og matsölustaður er selur mikið af mexíkóskum mat
sem er mjög vinsæll í dag. Heimsendingarþjónusta. Frábært eldhús
og mjög snyrtilegur matsalur og bar. Hlaðborð um helgar.
7. Fataverslun fyrir konur á heitasta stað á Laugaveginum. Sami
eigandi í 15 ár. Góð sambönd fylgja með. Þekkt fyrirtæki með
ágæta verslun og góða afkomu. Laus strax. Sanngjarnt verð.
8. Söluturn með mjög mikla veltu, sem selur sælgæti, nýlenduvörur
og leigir út myndbönd. Lottó á staðnum og spilakassi. Mjög vinsæl
hverfismiðstöð í miðborginni, þar sem íbúarnir koma til að spjalla
og versla. Verðið er ótrúlega hagstætt miðað við veltu.
9. Einkaklúbbur með billjarðborðum, gufu, heitum potti, búningsher-
bergi, fundarherbergi, eldhúsi, veislusal, setustofu með þægilegum
stólum og sófum, stóru sjónvarpi, vínveitingaleyfi, matsal og plássi
fyrir súlur. Húsnæðið getur einnig verið til sölu.
10. Frábær sérverslun á einstaklega góðum stað við Laugaveginn.
Selur gjafavörur og búsáhöld sem er eigin innflutningur og enginn
annar er með. Mjög fallegar og seljanlegarvörur. Vel þekkt ver-
slun þó hún sé ekki gömul að árum. Öðruvísi verslun fyrirfram-
sækið, smekklegt fólk.
Mikið af stórum fyrirtækjum á skrá.
Upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
umnnimEtjinn
SUOURVE R I
SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON.
Fjárfestar athugið!
Öll almenn verðbréfaviðskipti með
skráð og óskráð verðbréf.
IVerðbréfamiðlunin
hf -Verðbréf
Löggilt óháð fyrirtæki í verðbréfaþjónustu
• Aðili að Verðbréfaþingi íslands •
Suðurlandsbraut 46 • Sími: 568 10 20
Maður og kona á göngu.
Morgunblaðið/Kristinn
Víkverji skrifar...
AÐ er ekki ofsögum sagt að Vík-
verji sé ósáttur við viðskipti sín
við fyrirtækið Landssímann, sem er
í einkaeigu rfldsins. Hann hefur oft
kvartað undan samskiptum sínum
við þetta fyrirtæki og forvera þess
Póst og síma og haft til þess ærna
ástæðu. Nú hefur reyndar að mati
Víkverja keyrt um þverbak. Heima-
sími hans hefur verið bilaður frá því
um miðjan febrúar og hafa stöðugar
kvartanir engan árangur borið.
xxx
AÐ VAR um miðja þriðju viku
síðastliðins febrúarmánaðar, að
ólag komst á heimasímann. Við
skötuhjúin héldum að það væri
vegna rafmagnstruflana og skiptum
um rafhlöður í síma og símanúmera-
birti, en ekkert lagaðist. Við gátum
hvorki hringt úr símanum né svarað
símtölum. I ofanálag fór símanúm-
erabirtirinn að tala við okkur á
dönsku, í þau örfáu skipti, sem hann
var með lífsmarki. Laugardaginn
19. febrúar var hringt í bilanir þar
var staðfest að síminn væri ekki í
lagi, en ekki væri ljóst hver mein-
semdin væri. Hófst svo gangan milli
Heródesar og Pílatusar. Eftir helg-
ina kom í ljós að það var bilun ein-
hvers staðar í jörðinni og úrbótum
lofað eins fljótt og unnt væri. En úr-
bæturnar létu á sér standa þó kvart-
að væri reglulega. Það var vont veð-
ur, erfitt að fara að grafa ofan í
jörðina til að lagfæra einn einka-
síma, það var svo mikið að gera,
veðrið vont og kassamir fullir af
snjó og svo voru þeir líka orðnir lé-
legir. Svona gekk dælan í hvert
skipti sem kvartað var, en í flestum
tilfellum voru starfsmenn kvörtun-
ardeildar og annarra deilda, sem
málið kom, við kurteisir, en árang-
urinn var enginn. Síðastliðinn föstu-
dag, nota bene, þann 10. marz, datt
starfsmönnum Landssímans svo
loks í hug að lána okkur farsíma,
okkur að kostnaðarlausu, svo við
gætum verið í sambandi við um-
heiminn. Það var þegið og jafnframt
var heimanúmerið stillt í „gems-
ann“, svo þeir sem þangað hringdu
gátu nú loks eftir þrjár vikur náð
sambandi við okkur með þeim hætti.
Að vísu verðum við að borga sím-
talaflutninginn úr heimanúmerinu í
lánsgemsann. Víkverji vinnur tölu-
vert á einkatölvu sína og þarf vegna
þess að vera í sambandi við Netið.
Það er óþarfi að taka það fram að
um slíkt samband hefur ekki verið
að ræða frá því síminn bilaði og
lánsgemsinn breytir engu um það.
Þá var okkur á föstudaginn enn
einu sinni lofað að síminn kæmist í
lag eftir helgina. Það hefur reyndar
aldrei verið tekið fram eftir hvaða
helgi það ætti að gerast. Víkverji
skrifar þetta á mánudeginum 13.
marz og bíður hann í ofvæni eftir því
hvort þetta var helgin, sem um var
talað.
XXX
SVONA þjónusta er náttúrlega
fyrir neðan allar hellur og
skelfileg til afspurnar fyrir fyrir-
tæki, sem er að keppa á frjálsum
markaði, þrátt fyrir að vera í eign
ríkisins. Sjálfsagt hefur þetta lítil
áhrif á verðmæti Landssímans á al-
mennum markaði, þegar þar að
kemur, hvort sem hann verður seld-
ur í einu lagi eða einhverjum hlut-
um. En hitt er nokkuð víst að um
leið og annað fyrirtæki getur boðið
sambærilega þjónustu, mun Vík-
verji ekki hugsa sig tvisar um áður
en hann kveður Landssímann.
Það er að mati Víkverja mjög al-
varlegt mál að svona lagað skuli eiga
sér stað. Síminn er nauðsynlegt ör-
yggistæki hverjum og einum og get-
ur það skipt sköpum að hann sé í
lagi, komi eitthvað fyrir. Víkverja
hefur verið tjáð að í smáa letrinu í
samningum við Landssímann um
notkun síma, sé það tekið fram að
líða megi fjórir dagar án þess að
gert sé við bilanir og án þess að not-
andi símans geti farið að vera með
uppsteit. Gott og vel, en það stendur
ábyggilega ekki fjórar vikur í smáa
letrinu.
xxx
ÍKVERJI bíður nú spenntur
eftir símareikningi fyrir þetta
tímabil. Honum kæmi ekki á óvart
að þurfa að borga fullt afnotagjald,
en hann hefur í hyggju að fá útskrift
af símtölum sínum úr heimasíman-
um þetta tímabil. Það verður vafalít-
ið fróðleg lesning. Víkverji hefur
búið í núverandi húsnæði sínu í rúm
þrjú ár. Þetta er í annað skiptið á
þeim tíma, sem síminn bilar, en í
fyrra skiptið tók það „bara“ fáeina
daga að gera við. Það þótti Víkverja
ekki boðlegt og nú tekur það aðeins
fáeinar vikur. Víkverji getur ekki
ímyndað sér að nokkrum þyki það
boðlegt.