Morgunblaðið - 11.04.2000, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Heilsársvegur milli Sauðárkróks og
Skagastrandar boðinn út
Lægsta tilboð
100 milljónum
undir áætlun
LÆGSTA tilboð í fyrsta áfanga
heilsársvegar um Þverárfjallsveg
mílli Skagastrandar og Sauðárkróks
var rúmum 100 milljónum undir
kostnaðaráætlun. Framkvæmdir
hefjast senn.
Tilboð voru opnuð hjá Vegagerð-
inni í gær. Boðinn var út fyrsti
áfangi; 12 km af um 22,5 km fjallvegi,
sem byggja þarf upp frá grunni, að
sögn Rögnvalds Gunnarssonar, for-
stöðumanns tæknideildar Vegagerð-
arinnar.
Kostnaðaráætlun Vegagerðarinn-
ar var 297,3 m.kr.
Lægsta tilboð barst írá Norður-
taki ehf., Sauðárkróki, og var það
195,1 m.kr. Næstlægsta boð var frá
Arnarfelli á Akureyri, 197 m.kr.
Héraðsverk ehf., Egilsstöðum, bauð
208,8 m.kr., Fjörður sf., Sauðár-
króki, 211 m.kr., Klæðning ehf.,
Garðabæ, 218,1 m.kr., Miðvangur,
Reykjavík, 221,7 m.kr., G. Hjálmars-
son hf., Akureyri, 240 m.kr., Völur
hf., Reykjavík, bauð 254 m.kr. og
Borgarverk ehf., Borgarnesi, bauð
275.2 m. kr.
Áætlað er að framkvæmdir hefjist
á þessu ári og þeim ljúki árið 2003.
Þá voru í gær opnuð tilboð í efnis-
vinnslu á Austurlandi 2000-2001.
Kostnaðaráætlun verkkaupa var
156.2 m.kr. en lægsta boð var frá
Amarfelli ehf., Akureyri, 95,3 m.kr.
Myllan ehf., Egilsstöðum, bauð 98
m.kr., Suðurverk, Reykjavík, bauð
122,5 m.kr. og Króksverk ehf., Sauð-
árkróki, bauð 122,8 m.kr. Þá buðu
S.G. Vélar ehf., Djúpavogi, 128,2
m.kr. og Vélaleiga Sig. Þórarinsson-
ar, Egilsstöðum, bauð 156,8 m.kr.
Að sögn Rögnvalds Gunnarssonar
er efnisvinnslan boðin út í tengslum
við ýmsar framkvæmdir á Austur-
landi næstu tvö ár.
Lundinn kominn
SKIPVERJAR á bátn-
um Óla Bjamasyni EA
tilkynntu Siglufjarð-
arradíói að þeir hefðu
séð lunda á flugi.
Sigurgeir Jónsson
ljósmyndari í Vest-
mannaeyjum, sem hef-
ur fylgst grannt með
komu lundans um ára-
bil, kveðst ekki hafa
orðið var við fuglinn
enn sem komið er.
Hann hafði hins vegar
haft fregnir af sjómönnum sem
höfðu séð hann við úteyjarnar.
Sigurgeir spáir því að þegar breyt-
Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson
ir um átt og það blási af suðaustan
geri lundinn sig heimakominn í
Vestmannaeyjum.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Boði Stefánsson ásamt bróðurdóttur sinni, Katrínu Mjöll Halldórsdótt-
ur, með kindumar sem heimtust úr Kaldárgilinu á dögunum.
Heimtust af
fjalli á einmánuði
Norður-Héraði. Morgunblaðið.
BOÐI Stefánsson bóndi á Hrafna-
björgum heimti nú á einmánuði á
með lambi sem gengið hafði úti
til þessa í vetur. Kindurnar sem
voru tvævetla með lambi frá í
fyrra voru vel á sig komnar mið-
að við aðstæður, en þær hafa
þurft að þreyja nokkur þung veð-
ur í vetur og þar af eitt skaða-
veður.
Það var Guðleifur Þórarinsson
bóndi í Másseli sem fann kindurn-
ar á Hrossamýrum við Kaldárgil í
Smjörfjöllum um fjórum kíló-
metrum innaf Másseli. Það voru
síðan Surtsstaðafeðgar Björn Sig-
urðsson og Sigbjörn Nökkvi
Björnsson sem náðu í kindurnar í
Kaldárgilið. Björn náði ánni þeg-
ar hún stökk á hann í rák í gilinu
og ekki mátti miklu muna að þau
hröpuðu bæði. Það þurfti síðan
hjálp til að ná lambinu.
Það tókst þegar Guðleifur í
Másseli kom við annan mann til
hjálpar og tókst að króa lambið
af þegar þeir voru orðnir fjórir
saman.
Frumvarp um viðskipti við varnarliðið afgreitt af utanríkismálanefnd
Meirihlutinn vill sam-
þykkja frumvarpið
MEIRIHLUTI utanríkismálanefndar leggur til að
stjómarfrumvarp um framkvæmd tiltekinna þátta í
vamarsamstarfí íslands og Bandaríkjanna verði
samþykkt með orðalagsbreytingum. Fulltrúar
Samfylkingarinnar boða breytingartillögu sem
miðar að því að gefa Atlantsskipum tíma til að laga
sig að þeim breytingum sem í frumvarpinu felast.
f frumvarpi utanríkisráðherra um framkvæmd
tiltekinna þátta í vamarsamstarfi íslands og
Bandaríkjanna er meðal annars kveðið á um það
hvaða skilyrði fyrirtæki þarf að uppfylla til að geta
talist íslenskt í skilningi laganna. Fram hefur komið
að það snertir hagsmuni Atlantsskipa ehf. sem ann-
ast sjóflutninga fyiir varnarliðið og hefur komið
fram gagnrýni á þann þátt.
Frumvarpið var afgreitt út úr utanríkismála-
nefnd í gær og lögðu fulltrúar stjómarflokkanna til
að frumvarpið yrði samþykkt með fáeinum breyt-
ingum sem lítið snerta helsta deiluefnið, það er að
segja sjóflutningana. Þó er lagt til að bráðabirgða-
ákvæði II verði umorðað svo merking þess verði
skýr. í ákvæðinu er kveðið á um að áður en samn-
ingar við vamarliðið, sem gerðir hafa verið fyrir
gildistöku laganna og ekki sætt forvalsmeðferð,
komi til framlengingar sé heimilt, að tillögu for-
valsnefndar, að ákveða að fram skuli fara forval og
hæfir aðilar samkvæmt lögunum tilnefndir. Sé
heimildin nýtt gildi ákvæði laganna um það.
Alit minnihluta utanríkisnefndar vom ekki kom-
in fram í gærkvöldi. Sighvatur Björgvinsson, annar
fulltrúa Samfylkingarinnar, boðaði þó í gær breyt-
ingar á umræddu bráðabirgðaákvæði. Segir hann
að tillaga sín miði að því að breytingamar taki ekki
gildi fyrr en í upphafi næsta árs. Segist hann líta á
hana sem málamiðlun þannig að Atlantsskipum gef-
ist kostur á að laga sig að umræddum breytingum.
Ný íslensk
leitarvél
tengist
mbl.is
NÝ íslensk leitarvél hefur verið
opnuð á Netinu. Leitarvélin,
sem nefnist ha.is, byggist á
nýrri tækni frá breska há-
tæknifyrirtækinu Autonomy
en hún býður notendum upp á
að skrifa leitarskilyrði á hefð-
bundnu eða „venjulegu“ máli
og era engar hömlur á notkun
stafa eða tákna. Hægt verður
að nálgast leitarvélina frá
þremur vefjum Morgunblaðs-
ins á Netinu: frá forsíðu mbl.is,
forsíðu Fréttavefjarins og frá
Fasteignavef Morgunblaðsins.
Á ha.is er að finna yfir 600
þúsund íslenskar vefsíður sem
auðvelt er að fletta upp á með
einföldum spumingum en áætl-
að er að ríflega 700 þúsund ís-
lenskar vefsíður séu á Netinu.
Einnig er að finna á ha.is
lista yfir efnisflokka sem veita
beinan aðgang inn á þær síður
sem notandinn sækist eftir.
Slóð leitarvélarinnar er
www.ha.is.
Gæsir flugu á
glæsivagn
AFLÍFA þurfti tvær gæsir úr
stóram gæsahóp, sem flaug á
glæsisvagn af Audi-gerð sem
ekið var um Skothúsveg á laug-
ardagskvöld.
Ökumaður bifreiðarinnar var
á leið yfir brúna yfir Reykjavík-
urtjörn er gæsahópurinn kom í
lágflugi í átt að bifreiðinni með
þeim afleiðingum að nokkrar
gæsanna skullu á henni.
Nokkrar skemmdir urðu á bif-
reiðinni og voru tvær gæsanna
það illa farnar eftir höggið að
lögregla þurfti að aflífa þær.
Hannes Hlífar
í efsta sætið
HANNES Hlífar Stefánsson
vann enska undrabarnið Luke
MacShane í æsispennandi skák
í sjöttu umferð Reykjavíkur-
skákmótsins í gær.
Hannes er því kominn í 1.-3.
sæti ásamt Korchnoi og Nigel
Short, en Short, Korchnoi og
Timman gerðu jafntefli, svo og
De Firmian og Christiansen.
Stefán Kristjánsson sigraði
norska alþjóðlega skákmeistar-
ann Leif Erlend Johannsson og
er kominn með 4 vinninga og er
næstefstur íslendinganna, í
10.-14. sæti. í 4.-9. sæti á mót-
inu eru þeir Timman, De
Firmian, Wojtkiewicz, Bu,
Christiansen og Miles með
fjóra og hálfan vinning.
Guðmundur Kjartansson,
sem aðeins er 12 ára, sigraði
Róbert Harðarson og hefur
Guðmundur nú hlotið 3,5 vinn-
inga.
■ Skákþáttur/46
Sérblöð í dag
.....
Á ÞRIÐJUDÖGUM
HeimUi
Stórsigur Islands á Tyrkjum
á HM í íshokkí/B3
Fram lagði KA í
framlengdum leik/B2
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.is