Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 55
UMRÆÐAN '
Þjónusta við aldr
aða á nvrri öld
FRAMTIÐAR-
SPÁR gera ráð fyrir
mikilli fjölgun eldri
borgara á komandi ár-
um og um leið að þeir
hinir sömu geti verið
heima hjá sér eins lengi
og heilsa og aðstæður
leyfa. Það er ávinning-
ur fyrir einstaklinginn
og þjóðarbúið.
En hvað þarf til að
svo geti orðið? Því velti
ég fyrir mér og bið
menn sem láta sig mál-
ið skipta að hugleiða.
Margt hefur verið
vel gert í heimaþjón-
ustu og m.a. hafa verið
haldin launatengd námskeið fyrir
fólk sem þar starfar. ímynd starfsins
og lág laun verða þó til þess að starf-
ið er ekki eins eftirsóknarvert og
vera þyrfti. Á þessu er brýn nauðsyn
að ráða bót. Móta þarf heildarstefnu
um menntun, starfsréttindi og kjör
stéttar sem fjöldi fólks þarf á að
halda og hefja starfið til vegs og virð-
ingar.
Höfum í huga að það þarf viður-
kennd réttindi til að veita heima-
hjúkrun, aðhlynningu og félagslega
aðstoð. Það sama hlýtur að eiga að
gilda um alla heimaþjónustu.
Bryndís
Steinþórsdóttir
Hvað er félagsleg
heimaþj ónusta?
„Samkvæmt upplýs-
ingum frá Félagsþjón-
ustunni í Reykjavík
byggir félagsleg
heimaþjónusta á hjálp
til sjálfshjálpar.
Markmiðið er að stuðla
að vellíðan og styrkja
aldraða svo að þeir geti
búið við eðlilegt heimil-
islíf svo lengi sem
verða má. Starfsfólk í
heimaþjónustu á að
geta annast almenn
heimilisstörf. Einnig á
það að leitast við að
mæta persónulegum þörfum ein-
staklinga. Félagslegur stuðningur,
hvatning og samvera eru mikillvægir
þættir í starfinu."
Nú á tímum eru starfsréttindi
mikilvæg og því er nauðsynlegt að
Bókhaldskerfi
Tl KERFISÞRÓUN HF.
-Sj http://www.kerfisthroun.is/
’iuóiá
Urval fermingargjafa
DEMANTAHUSIÐ
Nýju Kringlunni, sími 588 9944
Notaðu
lofthœðina
með
hillukerfi
UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN
S&ajmar
SUNDABORG 1 SÍMI: 568 3300
I www.straumur.is
Léttar í spori
v I'
Aldraðir
Nauðsynlegt er, segir
Bryndís Steinþórsdótt-
ir, að skipulagðar verði
stuttar áhugaverðar
starfsnámsbrautir í
heimaþjónustu fyrir fólk
á öllum aldri.
skipulagðar verði stuttar áhugaverð-
ar starfsnámsbrautir í heimaþjón-
ustu fyrir fólk á öllum aldri. Náms-
leiðir sem stefna að sama markmiði
og veita sömu réttindi. Þeir ungu og
óreyndu ættu að eiga þess kost að
stunda námið í dagskóla sem sérnám
eða með öðru tengdu námi t.d. á hús-
stjómar-, heilbrigðis- eða félags-
fræðibrautum. Ég nefni það vegna
þess að margt skólafólk sækist eftir
að vinna við heimaþjónustu með
námi. Þeir eldri og reyndari ættu að
geta fengið reynslu og fyrra nám
metið og stundað kvöldnám til við-
bótar og ef til vill fjarnám a.m.k. að
hluta til. Það gæti einnig hentað
ýmsum sem fara snemma á eftirlaun
eða missa vinnuna og vilja afla sér
viðbótarmenntunar sem leiðir til
starfsréttinda.
Upplýsingaþjónusta og fræðsla
Oft heyrast raddir meðal eldri
borgara um að erfitt sé að rata í kerf-
inu og finna út hvert á að hringja til
að fá aðstoð eða upplýsingar. Sem
dæmi um þá þjónustu má nefna að
Félag eldri borgara í Reykjavík
starfrækir Silfurlínuna, upplýsinga-
þjónustu, þar sem félagsmenn geta
m.a. fengið aðstoð við að útvega iðn-
aðarmenn. Hjá félaginu er einnig
hægt að fá lögfræðiaðstoð og aðstoð
viðskiptafræðinga. Rauði krossinn
starfrækir Vinalínu og þar eru einn-
ig sjúkravinir að störfum. Kirkjufé-
lögin veita öldruðum aðstoð á mis-
munandi vegu. Securitas sér um
öryggismál og Tryggingastofnun
ríkisins veitir upplýsingar um eftir-
laun og bætur. Gera má kerfið ein-
faldara með því að starfrækja upp-
lýsinga- og fræðsluþjónustu fyrir
aldraða, sem mætti t.d. nefna
„Grænu línuna", í tengslum við fé-
lagsþjónustu sveitarfélaga. Þar
gætu aldraðir fengið upplýsingar og
fræðslu um hvert á að leita og hvað
er til ráða. Með því gefst tækifæri opj
gagnkvæmt upplýsingastreymi fyrir'-
þau félög og aðra sem vilja liðsinna
öldruðum.
Auk þess má veita ýmiss konar
fræðslu með vel unnum fræðsluþátt-
um í útvarpi og sjónvarpi, á Netinu
og með stuttum greinargóðum
fréttabréfum.
Aðalatriði er markviss, vel skipu-
lögð, sveigjanleg og fjölþætt heima-
þjónusta, eftir þörfum hvers og eins,
þar sem aldraðir eru hafðir með í
ráðum.
Þjónustu þar sem lögð er áhersla á
samvinnu þeirra eldri og yngri,
gagnkvæmt traust og áreiðanleika.
Það skapar öryggi og ánægju fyrir
báða aðila.
Ég skora á stjórnendur mennta-
mála ogfélagsþjónustu sveitarfélaga
að hefja sem fyrst markvissar um-
ræður um það hvernig auka má og
bæta menntun starfsfólks í heima-
þjónustu og efla upplýsinga- og
fræðsluþjónustu fyrir aldraða, til að
skapa þeim öryggi og vellíðan á efri
árum.
Hofumiur cr hússljórimrkennari og
er í frnmkvæmdastjóm FEB í
Reykjavfk.
OROBLU
oroblu@sokkar.is www.sokkar.is
KYNNING
skrefi f
á fermingarsokkabuxum í dag kl. 14-18.
20% afsláttur
af öllum OROBLU sokkabuxum.
ÁRBÆJAMPÓTEK |A
Hraunbæ 102b, sími 567 4200.
yymtmiM
Heimilistæki
SÆTÚNI 8 SlMI 569 1500
umboðsmenn um land allt
Ora-sarJínur. Tvœr nýjar og spennandi brag&tegundir.
Tak tu eftir nýju umbúdunum!
Fjárgjóáur
úr hafinu
Ovenjuhátt ka Ihhlutfall
f ORA-sardínum kemur beinunum til góða!
Vissir þú að í 100 g af sardínum úr dós væru yfir 400 mg
af kalki, sem er helmingurinn af ráðlögðum dagskammti
fullorðinna?*
Þetta mikla kalk ásamt próteinum, omega-3 fitusýrum og
vftamínum gera sardínur að áhugaverðum og æskilegum
kosti fyrir unga sem aldna.
Ora-sardínur fást í vatni, salsasósu, tómatsósu eða olíu
Ora-sardínur eru lostæti með góðu brauði og harðsoðnu
eggi, í eggjaköku, hvers kyns pastarétti, salöt og sem liður
f góðum morgunverði eða kvöldsnarli.
Niðursuðuaðferðin gerir notkun rotvarnarefna óþarfa.
fíTEV
• Samkvæmt upplýsingum frá Manneldisráði (slands er ráðlagður dagskammtur af kalki, fyrir 19 ára og eldri, 800 mg.
Fyrir unglinga, vanfærar konur og konur með böm á brjósti er ráðlagður dagskammtur 1200 mg.