Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 31 ERLENT Kristilegir demókratar í Þýskalandi fylkja liði um nýja forystu á flokksþingi í Essen Schauble eftirlætur Merkel sviðsljósið Undir einkunnarorðunum „að kjarnanum“ (Zur Sache) hófst á sunnudag 13. flokksþing Kristilegra demókrata í Þýskalandi. Auð- unn Arnórsson fylgdist með er þessi áhrifa- mesti flokkur þýskra stjórnmála eftir stríð reyndi að fylkja liði upp á nýtt eftir fjár- málahneykslið sem skekið hefur flokkinn. WOLFGANG Sehauble sem lét af flokksformennsku CDU í gær eftir aðeins 16 mánuði í embætti, hvatti í kveðjuræðu sinni flokksmeðlimi til að hika ekki við endurnýjun eftir fjármálahneyksli síðustu mánaða. Nauðsynlegt væri að reyna slíka nýja byrjun ekki aðeins í nafni CDU heldur í nafni lýðræðisins í Þýska- landi. Þegar Schauble hafði lokið um klukkustundar langri ræðu sinni stóðu hinir tæplega 1.000 þingfull- trúar upp og klöppuðu formanninum fráfarandi lof í lófa í þrjár mínútur. Þótti viðmælendum Morgunblaðsins á staðnum ræðan þó heldur dauf, svo virtist sem Schauble ætlaði sér ekki að vera í meira en aukahlutverki á þessu flokksþingi. Hann vildi eftir- láta Angelu Merkel sviðið, þetta ætti að vera hennar dagur. Þykir þetta mjög í stíl við feril Schaubles, sem hefur á þrjátíu árum ávallt látið flokkinn ganga fyrir. Schauble, sem vegna eigin tengsla við anga fjármálahneykslisins lét í febrúar undan þrýstingi um að láta af flokksformennskunni, hafði í að- draganda flokksþingsins látið hörð orð frá sér fara í garð fyrirrennara síns, Helmuts Kohls, og kvartaði undan því að unnið hefði verið gegn sér innan flokksins er fjármála- hneykslið var í hámarki. En í ræðu sinni í gær beindi hann sjónum fram á veginn. „Ekki líta til baka í reiði,“ tjáði hann flokksþingfulltrúum. Scháuble sagði að erfiðleikar flokksins væru þó alls ekki að baki, en hann væri á réttri leið. Hann yrði líka að draga lærdóm af fjármála- hneykslinu, meðal annars með breytingum á flokkslögum í því skyni að annað eins gæti ekki endur- tekið sig. Scháuble varaði við því að flokkurinn „reyndi að halda áfram eins og í gamla daga“. Scháuble nefndi Kohl hvergi á nafn í ræðunni, en hann sagði: „Tímar baktjalda- makks eru á enda.“ Margir þingfull- trúar brugðust með lófataki við þess- um orðum. Með augljósri tilvísun til brota Kohls á lögum til fjármögnun- ar stjórnmálaflokka sagði Scháuble: „Lögin gilda jafnt um alla.“ Kohl hefur margítrekað neitað að gefa upp hverjir standi að baki ólöglegum fjárframlögum sem hann tók við í nafni flokksins á síðustu valdaárum sínum. Kohl, sem varð sjötugur í byrjun mánaðarins, var að eigin ósk ekki viðstaddur flokksþingið í Essen, og gerði með því flokkssystkinum sínum ekki enn erfiðara fyrir að gera upp þau mál sem nauðsynlegt var að gera upp og snúa sjónum fram á við. Þetta var fyrsta flokksþing CDU sem Kohl var ekki viðstaddur síðan 1951. Merkel réttir sáttahönd Ólíkt Scháuble rétti Merkel í sinni ræðu út sáttahönd til Kohls. Hún óskaði Kohl aftur til hamingju með sjötugsafmælið í nafni flokksþings- Þingkosningarnar í Grikklandi Naumur sigur sósíalista Aþena. AP, AFP. COSTAS Simitis, forsætisráðherra Grikklands, hefur lýst yfir sigri flokks síns, Sósíalistahreyfingar Grikklands (PA- SOK), í þingkosn- ingum sem fram fóru í landinu í gær. Mjög mjótt var á munum milli Sósíalistahreyf- ingarinnar og Nýja lýðræðis- flokksins, munaði aðeins einu prós- enti, og hafa úrslitin verið túlkuð sem áfall fyrir þá fyrrnefndu sem stýrt hafa landinu í 16 ár. PASOK hlaut 43,8% atkvæða, eða 158 af 300 þingsætum á gríska þinginu, og Nýi lýðræðisflokkurinn 42,7% atkvæða sem veitir honum 125 þingsæti. A þvi þingi sem nú situr eiga sósíalistar 160 þingmenn en Nýi lýðræðisflokk- urinn 103. „Þessi erfiða kosningabarátta hef- ur nú gefið okkur mikilvægan sigur,“ sagði Simitis í gær. „Mikilvægi sig- ursins er meira en tölumar gefa til kynna. Eg skora á alla Grikki að hlýða herkvaðningu okkar, láta af flokkadráttum og berjast fyrir sam- eiginlegu markmiði okkar um sterkt, nútímalegt og réttlátt Grikkland.“ Skýrendur segja að Simitis hafi reynt að færa Sósíalistahreyfinguna nær miðju á undanfömum árum. Til marks um það er nefnt að PASOK hafi í raun fylgt svipaðri stefnu í efnahagsmálum og hinn hægri sinn- aði Nýi lýðræðisflokkur boðar. I stjórnartíð Simitis hefur farið fram niðurskurður í ríkisrekstri og ýmsar aðhaldsaðgerðir verið ft-amkvæmdar sem hafa gert það að verkum að verðbólga hefur minnkað úr tveggja stafa prósentutölu í 3%. Með þessu hefur ríkisstjórnin viljað búa svo um hnúta að Grikkland uppfylli skilyrði aðildar að EMU. Margir samflokksmenn Simitis hafa gagnrýnt stjórnina fyrir einmitt þetta. Að þehra mati hafa ráðstafan- ir stjórnarinnar bitnað um of á al- menningi í landinu. Er talið að erfitt muni verða fyrir Simitis að fá vinstri arm flokksins til að samþykkja frek- ari breytingar í anda efnahagsstefnu síðustu ára. Annars eru úrslit þingkosning- anna túlkuð sem ósigur fyrir vinstri arm Sósíalistahreyfingarinnar. Margir af eldri frambjóðendum flokksins, sem enn eru trúir hugsjón- um sósíalisma, náðu ekki endurkjöri til þings í kosningunum í gær. ins. Þykir þýskum stjórnmálaskýr- endum það hafa verið klókur leikur hjá henni að beina jákvæðum orðum til Kohls snemma í ræðunni. Kans- larinn fyri-verandi, sem var í heilan aldarfjórðung flokksfonnaður, nýtur enn mikillar persónulegrar hylli meðal almennra flokksfélaga. En Merkel, sem var sú fyrsta í flokks- forystunni sem opinberlega hvatti til þess að flokkurinn skæri á böndin við Kohl, lét þess að sjálfsögðu ekki ógetið, að flokkurinn gæti ekki ann- að - trúverðugleika síns vegna - en haldið áfram að framfylgja stefnu upplýsingar. „Einmitt þess vegna leyfum við ekki, að vinstri menn taki sér vald til að túlka æviverk Kohls,“ sagði hún, „það gerum við ennþá.“ Sáttaboði sínu til Kohls lauk hún með því að vitna í orð Georgs Wei- denfeld lávarðar um að verk kanslar- ans fyrrverandi „skagaði upp úr í sögunni". Fráfarandi formaður CDU, Wolfgang Schauble, á flokksþinginu i Lýkur lengstu orrustu kalda stríðsins? Ríkin tvö á Kóreu- skaga hafa formlega átt í stríði í fimmtíu ár. Viðræðufundur leiðtoga þeirra gæti haft í för með sér breytingar á því ástandi. Seoul. AP, AFP, The Washington Post. TILKYNNING ríkisstjóma Norður- og Suður-Kóreu um að leiðtogar ríkj- anna muni ræðast við í sumar kom al- mennt nokkuð á óvart þótt ýmislegt hafi að undanförnu bent til þess að slaknað hafi á spennu í samskiptum þeirra. Ef af fundinum verður mun það verða í fyrsta skipti sem leiðtog- ar Norður- og Suður-Kóreu hittast frá því að landinu var skipt árið 1945. Fyrir nokkrum árum lá við að leið- togar landanna hittust en andlát Kims II Sungs, leiðtoga N-Kóreu, kom þá í veg fyrir að af fundinum yrði. Með því að hefja viðræður aukast líkur á því að bundinn verði endi á það sem kalla má lengstu orrustu kalda stríðsins. N- og S-Kórea hafa formlega átt í stríði allt frá árinu 1950, þegar Kóreustríðið svokallaða braust út. Eftir þriggja ára blóðuga styrjöld var samið um vopnahlé og hefur það haldið síðan þótt oft hafi legið við að átök hæfust að nýju. Samkvæmt sameiginlegri tilkynn- ingu ríkjanna verður fundur þeirra Kims Dae-Jungs, forseta S-Kóreu, og Kim Jong-Il, leiðtoga N-Kóreu, haldinn í Pyongyang, höfuðborg N- Kóreu, 12. til 14. júní í sumar. Síðustu þijár vikur hafa farið fram leynilegar viðræður milli fulltrúa stjómvalda ríkjanna í Kína og er yfirlýsingin af- rakstur þeiiTa. Upplýsingaráðhen-a S-Kóreu, Park Jie-Won, sagði í gær að viðræðurnar myndu fyrst og fremst snúast um hugsanlega efna- hagssamvinnu þjóðanna og leiðir til að sameina að nýju fjölskyldur sem verið hafa sundraðar vegna skipting- ar landsins. Hann sagði að yfirvöld í N-Kóreu hefðu ekki sett það sem skilyrði fyrir því að hefja viðræður að S-Kóreumenn létu aukið fé af hendi rakna til að lina þjáningar sveltandi íbúa í N-Kóreu. Þar hefur hungurs- neyð geisað vegna flóða og uppskeru- brests síðustu ár og er talið að allt að 2 milljónir manna hafi látist. Hör- Reuters Vegfarendur f Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, fylgjast með sjónvarps- fréttum þar sem sagt er frá væntanlegum fundi leiðtoganna í gær. mungarnar era taldar skýring þess að N-Kóreumenn hafa að undanförnu reynt að íjúfa einangrun ríkisins á al- þjóðavettvangi og er sögð ein skýiing þess að stjómvöld þar hafa nú fallist á viðræður við S-Kóreumenn. Skýrendui- telja að í viðræðunum verði einnig komið inn á öryggismál og hugsanlega rætt um eldflaugai' N- Kóreumanna sem geta borið kjarn- orkuvopn. Vitað er að yfirvöld í N- Kóreu hafa lengi unnið að smíði kjamorkuvopna og hefur það valdið áhyggjum í nágrannaríkjunum, þ.á m. Japan. Sérfræðingar sem dag- blaðið Washington Post vitnar til, telja óvíst hvort nokkur árangur verði af viðræðunum. Er sérstaklega bent á að vera 37.000 bandarískra hermanna á landamærum ríkjanna sunnan megin sé N-Kóreumönnum þymir í augum og geti komið í veg fýrir að samkomulag náist um önnur atriði. Talið er að tilkynningin um fund leiðtoganna komi á góðum tíma fyrir Kim Dae-Jung og flokk hans á s-kór- eska þinginu. Þingkosningai’ eru í Suður-Kóreu í þessari viku og hafa skoðanakannanir ekki verið flokkn- um hagstæðar. Tilkynningin gæti orðið til þess að auka fylgi flokksins á nýjan leik. Margar misheppnaðar sáttatilraunir Frá lokum seinni heimsstyrjaldar hafa ríkisstjómir á Kóreu-skaga ítrekað lýst yíir vilja til að sameina norður og suðurhluta hans en fram til ársins 1971 höfðu ríkin tvö engin tengsl sín á milli. Eftir nokkra fundi árið 1972 tilkynntu stjómvöld N- og S-Kóreu að þau hygðust binda enda á átök ríkjanna og stefna að samein- ingu þeirra. Hins vegar lauk öllum sáttaumleitunum þegar S-Kóreu- menn sóttu um aðild að Sameinuðu þjóðunum. A níunda áratugnum óx spenna mjög í samskiptum ríkjanna eftir að n-kóreskir leyniþjónustumenn reyndu að ráða Chun Doo Hwan, for- seta S-Kóreu, af dögum. Talið er að legið hafi við stríði milli þeirra árið 1987 í kjölfar þess að N-Kóreumenn förguðu s-kóreskri farþegaþotu með 115 manns innanborðs. Árið 1988 hvatti þáverandi forseti S-Kóreu, Roh Tae Woo, til þess að reynt yrði að bæta samskipti ríkj- anna og upp úr því hófust viðskipti með vörur í nokkrum mæli milli þeirra. Skömmu síðar undirrituðu þjóðirnar sameiginlega yfirlýsingu um kjamorkuafvopnun en ákvæðum hennar var aldrei framfylgt. Um miðjan tíunda áratuginn versnaði sambúðin enn á ný eftir að ekkert varð úr leiðtogafundi ríkjanna árið 1994. Fyrir milligöngu Kínveija og Bandaríkjamanna hófust viðræð- ur milli N- og S-Kóreu árið 1997. Markmiðið var að leita leiða til að binda formlega enda á Kóreustríðið en lítill árangur varð af þessum til- raunum. Andstaða N-Kóreumanna við vera bandaríska hersins í S-Kór- eu er sögð meginástæða þess að upp úr slitnaði. í júní 1999 lenti s-kóreskt strand- gæsluskip í átökum við n-kóreskan kalbát en atvikið varð ekki til að magna spennu milli ríkjanna að ráði. Mjög slæmt efnahagsástand í N-Kór- eu er talið hafa ráðið mestu um að stjómvöld þar hafa síðustu misserin sýnt aukin merki um sáttavilja.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.