Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 50
 50 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 MORGUNBLAÐIÐ J KONFEKTMOT PÁSKA- 'GGJAMÓT, MATARLITIR Póstsendum PIPAROGSALT Klapparstfg 44 * Sími 562 3614 I BÆTT HEILSA - BETRI LÍÐAN! BÆTT AFKÖST! Vara sem allstaðar slær í gegn 300 kr. á dag! Uppi. í s. 698 3600. r Tanaka LIMGERÐISKUPPUR Garðyrkjumenn landsins nota Tanaka klippur THT 1800 fyrir garð- og sumarbústaðaeigandann •j^v THT 262 fyrir atvinnumanninn VETRARSÓL Hamraborg 1-3, norðanmegin S. 564 1864 ehl ÁRSFUNDUR RANNSOKNARRÁÐS ÍSLANDS Leiðin til þekkingarþjóðfélagsins ' miðvikudaginn 12. apríl, 2000 í ráðstefnusal Hótels Loftleiða Fundurinn verður settur stundvíslega kl. 13:15 að viðstöddum forseta (slands Vinsamlegast tilkynnið þátttöku i síma 562 1320 eigi síðar en 11. apríl n.k. Dagskrá Fundarstjóri: Dr. Pétur Reimarsson 12:45-13:15 Afhending fundargagna og dagskrár 13:15-13:30 Setningarræða formanns Próf. Þorsteinn Ingi Sigfússon 13:30-13:50 Ræða menntamálaráðherra Björn Bjarnason 13:50-14:10 Rannsóknir á íslandi - Samstarf til sóknar Dr. Vilhjálmur Lúðviksson, framkvæmdastjóri RANNÍS 14:10-14:40 Öndvegissetur i Finnlandi - Samvinna háskóla og atvinnulífs N. Tapani Saarinen, framkvæmdastjóri, Turku Technology Center Ltd. 14:40-15:00 Hvatningarverðlaun Rannsóknarráðs 2000 Afhent af forseta Islands, hr. Ólafi Ragnarí Grímssyni 15:00-15:30 Kaffihlé 15:30-16:00 Þekkingarþjóðfélagið - Framtíðarviðhorf ungs vísindafólks á íslandi Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, efnaverkfræðingur, Rannsóknast. byggingariðnaðarins Dr. Ingibjörg Harðardóttir dósent, Háskóla Islands 16:15-17:00 Pallborðsumræður - „Leiðin til þekkingarþjóðfélagsins" Stjórnandi: Próf. Anna Soffia Hauksdóttir Þátttakendur: Hallgrímur Jónasson, forstjóri, ITÍ Dr. Hörður Arnarson, forstjóri, Marel h.f. Dr. Ingibjörg Harðardóttir, matvælafræðingur, Hl Dr. Kári Stefánsson, forstjóri, ÍE Kristrún Heimisdóttir, framkvæmdastjórí, ReykjavíkurAkademíu Ragnheiður I. Þórarínsdóttir, efnaverkfræðingur, RB Úlfar Steindórsson, framkvæmdstjórí, Nýsköpunarsjóðs Dr. Þorsteinn Gunnarsson, rektor, Háskólanum á Akureyri Móttaka í boði RANNÍS RANIUIS Rannsóknarráö Islsnds • Laugavsgi 13 • 101 Rsykjsvlk Sími 562 1320 • Bréfsími 552 9814 •www.rannis.is UMRÆÐAN Dagur Parkin- sonssjúklinga Parkinsonsveiki hefur eflaust fylgt mannkyninu alla tíð. í þúsund ára gömlum indverskum handrit- um má finna sjúk- dómslýsingar sem líkjast parkinsons- veiki. Þar sem al- gengast er að sjúk- dómurinn greinist ekki fyrr en eftir fimmtugt hefur lágur meðalaldur forfeðra okkar valdið því að sjúkdómstilfelli voru færri. Með auknu langlífi í kjölfar al- mennrar velmegunar hefur sjúkdómurinn orðið sýni- legri. Fyrstur til þess að lýsa parkinsonsveiki á fræðilegan hátt var enski læknirinn James Parkin- son í riti sínu „An Essay on the Shaking Palsy“ (Ritgerð um skjálftalömun) árið 1817. Parkin- son fæddist 11. apríl árið 1755 og hefur Evrópusamband parkinsons- samtaka gert fæðingardag hans að degi parkinsonssjúklinga í Evrópu. Þróun lækninga Parkinson lýsti tveimur megin- einkennum sjúkdómsins, þ.e. skjálfta og hægum hreyfingum. Það var svo J.M. Charcot sem hálfri öld síðar gaf sjúkdómnum nafnið parkinsonsveiki. Hann bætti einnig einu einkenni við lýs- ingu á sjúkdómnum, þ.e. vöðvastirðleikanum. Framþróun rannsókna á sjúk- dómnum var framan af afar hæg og það var ekki fyrr en árið 1919 að það tókst að sýna fram á að fækkun á frumum í heilastofni sortuvefsins (substantia nigra) væri einkennandi fyrir sjúkdóm- inn. Það var svo fyrst á sjötta ára- tug 20. aldarinnar að uppgötvaðist að sjúkdómurinn stafaði af skorti á boðefninu dópamíni. Seint á sjöunda áratugnum varð svo bylt- ing í meðhöndlun parkinsonsveik- innar þegar fram komu hin svo- nefndu levódópalyf, sem enn í dag eru algengustu lyf sem notuð eru til að meðhöndla sjúkdóminn. Síðustu áratugina hefur skurð- aðgerðum í auknum mæli verið beitt í meðferð taugasjúkdóma. Slíkar aðgerðir verða stöðugt al- gengari á parkinsonsjúklingum og getur hjálpað hluta þeirra til betra lífs. Fyrir nokkru voru tæki til slíkra aðgerða keypt til landsins og þessa dagana munu fyrstu sjúklingarnir gangast undir að- gerðir. Parkinsonssjúkdómurinn Um hálft fimmta hundrað park- insonssjúklinga eru á íslandi. Flestir greinast á aldrinum 50 til 70 ára eða um 75 % og þar af meirihlutinn eftir sextugt. Nýlegar kannanir hafa sýnt fram á að með- göngutími sjúkdómsins getur verið sex til tíu ár áður en sjúkdómurinn greinist. Eins og áður hefur komið fram eru helstu sjúkdómseinkenn- in vöðvastirðleiki, skjálfti í hönd- um og hægar hreyfingar. Sjúkling- urinn á erfitt með allar finhreyfingar, göngulag verður sérkennilegt og andlit oft svip- brigðalaust. Raddstyrkur minnkar og oft á sjúklingurinn í erfiðleikum með að kyngja. Þegar fram í sækir eiga sjúklingarnir erfitt með að matast og tjá sig á eðilegan hátt. Öll þessi einkenni aukast við geðs- hræringu. Sjúklingar hafa því oft tilhneig- ingu til þess að forðast aðstæður sem þeim fínnast óþægilegar og einangra sig. Þunglyndi er algeng- ur fylgikvilli parkinsonsveikinnar og sjúklingurinn þarf mikla örvun og tillitssemi. Fleiri ungir sjúklingar Með fjölgun landsmanna hefur þeim sjúklingum fjölgað sem greinast með sjúkdóminn til- tölulega ungir. Talið er að um tíundi hluti sjúklinga greinist inn- an við fimmtugt og dæmi eru um að fólk greinist á þrítugs- aldri. Það er öllum mikið áfall að greinast með ólæknandi sjúk- dóm og því ætti sjúkl- ingnum í upphafi að standa til boða ráð- gjöf félagsráðgjafa og sálfræðings. Þó að ís- lenskt heilbrigðiskerfi sé að mörgu leyti full- Parkinsonsveiki Með fjölgun lands- manna, segir Árni Arn- arson, hefur þeim sjúkl- ingum fjölgað sem greinast með sjúkdóm- inn tiltölulega ungir. komið, þá hefur þessi þáttur setið á hakanum. Afleiðingin verður gjarnan sú að sjúklingurinn dreg- ur sig til baka, einangrast og reyn- ir jafnvel að fela sjúkdóminn. Er- lendar kannanir hafa sýnt fram á að það hvernig staðið er að því að kynna sjúklingnum sjúkdóminn í upphafi getur haft afgerandi áhrif á þróun hans og kallað fram nei- kvæð viðhorf, sem erfitt getur ver- ið að vinna bug á seinna meir. Víða erlendis hafa verið starf- andi sérstakar deildir yngri sjúkl- inga innan viðkomandi parkinson- samtaka og síðastliðið haust var myndaður slíkur hópur hér á landi. Hefur hópurinn komið saman ásamt aðstandendum einu sinni í mánuði í þeim tilgangi að deila reynslu sinni og veita hver öðrum stuðning. Þetta starf hefur tekist framúrskarandi vel og eru nýir fé- lagar velkomnir og geta þeir haft samband við skrifstofu Park- insonssamtakanna sem veitir allar upplýsingar. Parkinsonssamtökin Parkinsonssamtökin á Islandi voru stofnuð 3. desember árið 1983 og var fyrsti formaður þeirra Jón Óttar Ragnarsson. Markmið sam- takanna er að aðstoða parkinson- sjúklinga og aðstandendur þeirra við að leysa þann vanda sem sjúk- dómnum fylgir, að afla og dreifa upplýsingum og styðja við rann- sóknir á parkinsonsveikinni. Haldnir eru fundir til fræðslu og skemmtunar og til að ræða sam- eiginleg vandamál félagsmanna. Gefnir hafa verið út bæklingar sem dreift hefur verið á heilsu- gæslustöðvar, bókasöfn og víðar. Einnig hefur verið gefið út fræðslurit um parkinsonsveiki, þar sem fjallað er um sjúkdóminn, meðhöndlun parkinsonsveiki, lyfja- meðferð, lyf, aðgerðir, mataræði og annað sem að gagni má koma. Samtökin gefa út fréttabréf sem kemur út fjórum til fimm sinnum á ári. Þar er leitast við að birta greinar um sjúkdóminn, nýjungar í lækingum og upplýsingar um fé- lagsstarfið. Þeir parkinsonsjúklingar og aðstandendur þeirra sem ekki hafa gerst félagsmenn eru hvattir til þess að skrá sig í samtökin. Þjón- ustumiðstöð Parkinsonsamtakanna er á Tryggvagötu 26 og er opin miðvikudaga milli klukkan 17 og 19. Símanúmer samtakanna er 552-4440. Höfundur er parkinsonsqjiiklingur og stjdmammður ( Parkinsons- sa mtökunum. Árni Arnarson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.