Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Morgunblaðið/Kristinn Utgáfa skuldabréfa íslandsbanka á EMTN-markadi Markmiðum um aukna dreifíngu náð ÚTGÁFA íslandsbanka á skulda- bréfum á EMTN-markaðinn hófst nýlega. í Evrópuútgáfu Wall Street Journal er frétt um útgáfu íslands- banka inn á hinn rólega markað og haft er eftir bandarískum verðbréfa- sérfræðingi að seljanleiki bréfanna verði ekki mikill á eftirmarkaði, þrátt fyrir gott verð. Skuldabréf Islandsbanka sem nú voru sett á markaðinn voru til þriggja ára að fjárhæð 75 milljónir evra eða rúmlega 5 milljarðar ís- lenskra króna. Islandsbanki býður 32 punkta umfram liborvexti og í samtali við Morgunblaðið segir Ólaf- ur Asgeirsson, forstöðumaður fjár- stýringar hjá Islandsbanka, það í samræmi við verð sem íslensku bankarnir hafa þurft að greiða í sam- bærilegum útgáfum. Allt fyrirfram selt Hann segir tímasetningu ekki iyk- ilatriði í þessari útgáfu þar sem markmiðum um góða dreifingu hafi verið náð. „Söluaðilinn, Deutsche Bank, var búinn að gera forkönnun á markaðnum og taldi enga þörf á því að bíða eftir að meiri stöðugleiki myndaðist. Væntingar þeirra gengu eftir og salan á skuldabréfunum tókst mjög vel,“ segir Ólafur. Að hans sögn var ekki búist við viðskipt- um með bréfin á eftirmarkaði vegna þess hve upphæðin er lág og telja forsvarsmenn Islandsbanka það já- kvætt. Varðandi seljanleikann segir Ólaf- ur að upphæðin þyki lág og markað- urinn nái ekki mikilli dýpt fyrr en upphæðin er farin að skipta hundr- uðum milljóna evra. Hins vegar var öll útgáfan fyrirfram seld, að sögn Ólafs. „Við náðum þeim markmiðum okkar að kynna bankann fyrir stærri hópi fjárfesta og ná inn á annan markað en hinn hefðbundna banka- markað. Með þessari útgáfu náðum við t.d. til fjárfesta utan þeirra landa sem Island hefur sótt fjármagn til, m.a. á Spáni, í Portúgal og Bret- landi,“ segir Ólafur. I lok mars sl. tilkynnti Islands- banki um samning um útgáfu skuldabréfanna á EMTN-markað- inn (European medium term note) að fjárhæð allt að 750 milljónum evra. Samningurinn felur ekki í sér neinar skuldbindingar fyrir bankann en opnar honum aðgang að þessum markaði, að sögn Ólafs. Útgáfan nú er sú fyrsta undir formerkjum EMTN-samningsins og eru vonir við það bundnar að þessi samningur stækki hóp fjárfesta í skuldabréfum bankans og muni leiða til lægri kostnaðar við fjármögnun bankans erlendis, að sögn Ólafs. Tengsl við óróleika á hlutabréfamarkaði í WSJ kemur einnig fram að sér- fræðingar telja að hlutabréfamark- aðurinn muni áfram hafa áhrif á veltu á evrópska skuldabréfamark- aðnum á næstunni. í samtali við Morgunblaðið segir Ólafur að óróleiki á hlutabréfamark- aði, ásamt væntingum um vaxta- hækkanir, hafi leitt til hærra verðs á skuldabréfamarkaði og skýri það ró- leg viðskipti og litla veltu á evrópska skuldabréfamarkaðnum. „Gagnvart stóru bönkunum skipta markaðsað- stæður meira máli en fyrir okkur. ís- lensku bankamir eru enn að kynna sig fyrir fjárfestum og þurfa að greiða viðbótarálag vegna þess. Fyrir okkur skiptir mestu máli að stækka þann hóp fjárfesta sem er tilbúinn til að kaupa skuldabréf bankanna eða veita þeim lán. Þessi skuldabréfaút- gáfa er liður í því,“ segir Ólafur. „Islenskir bankar eru um þessar mundir að greiða nálægt 10 punkt- um hærri vexti af skuldabréfum en erlendir bankar með sambærilegt lánshæfismat. Aukin kynning meðal erlendra fjárfesta gæti breytt því,“ segir Ólafur. Lánshæfi sameinaðs Islan- dsbanka-FBA verður endurmetið í kjölfar sameiningarinnar. Talið er að lánshæfi geti hækkað um flokk og orðið A2 í stað A3 nú. Aðspurður segir Ólafur að það myndi tvímæla- laust auka eftirspurnina og gæti auk þess skilað sér í þó nokkurri lækkun á þeim vöxtum sem bankinn þyrfti að greiða. 'V> Aðalfundur Aðalfundur íslenskra aðalverktaka hf. verður haldinn þríðjudaginn 18. apríl n.k. á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni 38 og hefst fundurínn kl. 16.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 14. gr. samþykkta félagsins 2. Tillaga um kaup félagsins á eigin hlutum samkvæmt 55. gr. hlutafélagalaga 3. Önnur mál, löglega upp borin Dagskrá, endanlegar tillögur og reikningar félagsins munu Liggja frammi á skrifstofum félagsins á Keflavíkurflugvelli og í Hátúni 6a, Reykjavík, hluthöfum til sýnis, viku fyrir aðalfund. Aðgöngumiðar og fundargögn verða afhent á fundarstað í fundarbyrjun. Stjórn íslenskra aðalverktaka hf. / Moody’s endur- skoðar lánshæf- ismat FBA og Islandsbanka BANDARÍSKA matsfyrirtækið Moody’s Investors Serviee til- kynnti í gær að fyrirtækið hefði tekið mat sitt á lánshæfi Islandsbanka og FBA til endur- skoðunar, með hugsanlega hækkun í huga. Tekur endur- skoðunin til lánshæfiseinkunna á langtímaskuldbindingum og skammtímaskuldbindingum, sem og fjárhagslegs styrkleika. Endurskoðun á lánshæfismati fyrirtækjanna kemur í kjölfar samnings þeirra um samruna. I tilkynningu til Verðbréfa- þings Islands kemur fram að Moody’s segi að fyrirhugaður samruni muni mynda stærsta fjármálafyrirtæki á Islandi með leiðandi markaðsstöðu á öllum viðskiptasviðum. Búist sé við að samruninn muni leiða af sér sterkari fjárhagsstöðu og nokkra hagræðingu. Moody’s sjái tækifæri til fjárhagslegs ávinnings af samlegð sérþekk- ingar á sviði fjármála. Hagræð- ingin felist í samruna fyrir- tækjaþjónustu og einkabanka- þjónustu, auk stoðdeilda. Þar sem starfsemi fyrirtækjanna skarist ekki mjög mikið sé hins vegar ekki búist við að kostnað- ur dragist mikið saman. Moodýs vekur athygli á góðri reynslu af fyrri sameiningarferl- um þegar Islandsbanki var stofnaður árið 1990 með sam- runa fjögurra banka og þegar FBA var stofnaður árið 1998 eft- ir samruna fjögurra fjárfest- ingalánasjóða í eigu ríkisins. Núverandi lánshæfiseinkunnir íslandsbanka og FBA fyrir lang- tímaskuldbindingar eru A3 og fyrir skammtímaskuldbindingar Prime-2. Moody’s gefur fjár- hagslegum styrkleika FBA ein- kunnina D, en Islandsbanka ein- kunnina D +. Framkvæmdastjóri Atlantsskipa Farmgjöld til Am- eríku hafa lækkað GJÖLD vegna sjóflutninga til Am- eríku hafa lækkað verulega í kjölfar siglinga Atlantsskipa á flutninga- leiðinni milli Bandaríkjanna og Is- lands, að sögn Stefáns Kærnested, framkvæmdastjóra Atlantsskipa. Hann sagði að almennt samn- ingsverð fyrir flutning á 40 feta gámi miðað við 50 gámaeiningar á ári hefði verið 2.800 dollarar áður, en samkvæmt verðskrá þeirra kosti flutningurinn í dag 1.900 dollara, en það jafngildi um 32% lækkun. „Það er veruleg verðsamkeppni og það var engin verðsamkeppni áður,“ sagði Stefán. Hann sagði að þeir treystu sér fyllilega til að bjóða þetta verð. Þeir ætluðu sér að bjóða besta verðið og væru auk þess að bjóða sambæri- lega þjónustu en þeir væru með skip í flutningum á tólf daga fresti. Stefán sagði að Atlantsskip hefðu verið lægst í útboði vegna flutninga á tóbaki fyrir ÁTVR, samkvæmt til- boðum sem opnuð voru í liðinni viku. Þar væri um að ræða flutning upp á 150 gámaeiningar á næstu tveimur árum. Líka spurning um þjónustu Ólafur Ólafsson, forstjóri Sam- skipa, sagði aðspurður hvort sam- keppni hefði farið harðnandi í Am- eríkusiglingum ekki sjá það. Hann vissi til þess að Atlantsskip hefðu boðið lægri verð en Samskip hefðu verið með, en flutningar á þessari leið væru ekki bara spurning um verð heldur einnig um þjónustu, áreiðanleika, tíðni og fleira. Við- skiptavinir hefðu þannig ekki farið til þeirra í stórum stíl þrátt fyrir verðlagninguna. „Við bjóðum beinar siglingar í gegnum Evrópu frá einum sjö höfn- um, alveg frá Halifax og niður til Suðurríkjanna,“ sagði Ólafur. Hann sagði að þeir legðu áherslu á tíðnina og þjónustuna, þannig að viðskiptavinir gætu lækkað innan- landsflutningskostnað sinn og þyrftu ekki að flytja vöruna langar leiðir til að koma henni um borð í skip til Islands. Ólafur sagðist fagna samkeppni á þessari siglingaleið. Hún yrði bara til þess að brýna menn til að standa sig eins vel og nokkur kostur væri. Ekki meiri samkeppni en annars staðar Þórður Sverrisson, fram- kvæmdastjóri hjá Eimskip, sagði aðspurður að samkeppni í Ámeríku- flutningum væri hvorki meiri né minni en samkeppni á öðrum flutn- ingaleiðum. Ef eitthvað væri væri samkeppnin harðari á siglingaleið- um til Evrópu. Hann benti á að Atlantsskip væri að bjóða upp á allt aðra þjónustu en Eimskip og Samskip á flutningum til Ameríku. Það væri ekki bara verðið sem skipti máli heldur einnig þjónustustigið. INNRÖMMUNW FÁKAFENI 11 • S: 553 1788
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.