Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Ráðstefna Norrænu ráðherranefndarinnar um fjármögnun háskólamenntunar Háskólar leita í auknum mæli til einkageirans Morgunblaðið/Sverrir Ráðstefna Norrænu ráðherranefndarinnar um fjármögnun háskólastigsins var vel sótt. Ekki hefur komið til tals annars staðar á Norður- löndum að innheimta skólagjöld til að standa að fjármögnun háskóla- stigsins. Þetta er meðal þess sem fram kom á ráðstefnu Norrænu ráð- herranefndarinnar um fjármögnun háskóla- stigsins, sem haldin var í Reykjavík. í UMRÆÐUM um fjármögnun há- skólastigsins í ólíkum heimshlutum standa stjórnendur menntamála andspænis sömu spurningum: Hvað er til ráða þegar eftirspurn eftir há- skólamenntun heldur stöðugt áfram að aukast samtímis því sem lagt er að stjórnvöldum að sýna verulegt aðhald í útgjöldum sínum? Hvemig er unnt að ná endum saman með sí- vaxandi nemendafjölda og tregðu til að auka opinber útgjöld? Og hver á að brúa bilið og hvernig? Þessar spurningar voru lagðar fram af Birni Bjarnasyni mennta- málaráðherra í upphafi ráðstefnu Norrænu ráðherranefndarinnar um fjármögnun háskólastigsins, sem fram fór á Hótel Sögu nýlega. Þær og fleiri spurningar þeim tengdar voru ræddar á ráðstefnunni enda eitt af markmiðum hennar að leita svara við spurningum af þessu tagi. „Er brýnt að ræða þær í alþjóðlegu samhengi því að einangrun í menntamálum er algjörlega úr sög- unni, hafi hún einhvern tíma verið við lýði. Hér gefst tæki- færi til að fá nýjustu upplýsingar um þróun þessa máls á alþjóða- vettvangi, miðla reynslu og skiptast á skoðunum. Sjónarhorn okkar er mismunandi ög misjafnt hvaða leiðir stjórnvöld í hverju landi velja, en viðfangsefnið er hið sama hvert sem litið er,“ sagði ráðherra í setningarávarpi sínu. Á ráðstefnunni fluttu erindi þeir Michael Shattock, prófessor í Eng- landi, Peter Maassen frá Hollandi og Terry Falconer frá Kanada en auk þeirra fluttu erindi Ingjaldur Hannibalsson, prófessor við Há- skóla íslands, og Sigrun Aasland, fulltrúi Landssamtaka stúdenta í Noregi. Einn af útgangspunktum ráð- stefnunnar var sú staðreynd, sem m.a. kom fram í einstökum fyrir- lestrum, að háskólastigið - m.a. sú menntun og þær rannsóknir sem þar fara fram, á Norðurlöndum sem og í öðrum löndum Evrópu - væri að mestu leyti fjármagnað af hinu opin- bera enda væri það krafa samfélags- ins að allir ættu að hafa jafnan möguleika til náms á háskólastiginu. Vandinn væri hins vegar sá, eins og fram kom í upphafsorðum Björns Bjarnasonar, að æ fleiri námsmenn sæktu í há- skólanám, sem gerði það illmögulegt fyrir hið op- inbera að standa eitt að fjármögnun háskóla- stigsins. Dr. Peter Maassen frá háskólan- um í Twente í Hollandi sagði frá skýrslu um fjármögnun háskóla- stigsins í sjö löndum; Danmörku, Flæmingjalandi, Frakklandi, Þýskalandi, Hollandi, Svíþjóð og Bretlandi. Greindi hann frá því að stuðningur ríkisins við skóla á há- skólastiginu í þessum löndum væri á bilinu 60 til allt að 100% af heildar- fjárþörf skólans, þ.e. fjárþörf til að mæta kennslukostnaði annars vegar og rannsóknarkostnaði hins vegar. Tók hann skýrt fram að stærsti hluti rekstrarkostnaðar háskólanna færi í laun og launatengd gjöld og að í flestum löndum væri gerður grein- armunur á framlagi til kennslu og rekstrarkostnaðar háskólanna ann- ars vegar og rannsóknarstarfs hins vegar. Framlag til kennslu væri gjarnan metið eftir fjölda nemenda og kennara, þótt Svíþjóð og nú síð- ast ísland væru þar undantekning, en framlag til rannsókna væri hins vegar metið eftir árangri eða gæð- um rannsóknanna. Þá tók hann fram að hið opinbera legði æ meiri áherslu á sjálfstæði háskólanna með því að veita þeim ákveðna upphæð á ári hverju sem þeir gætu síðan ráð- stafað að vild innan skólans. Undan- tekning á þessu væri þó Þýskaland en þar væri framlag ríkisins eyrna- merkt ákveðnum deildum eða verk- efnum innan háskólanna. Skólagjöld koma ekki til greina Michael Shattock, prófessor í Englandi, benti í sínu erindi á þann vanda sem stjórnvöld í Bretlandi ættu við að glíma um þessar mundir í menntamálum en hann fælist í því að vilja gera tveimur markmiðum hátt undir höfði, sem bæði krefðust mikils fjármagns. Annað markmiðið væri að bjóða upp á samkeppnis- færa háskóla á sviði rannsókna og vísinda á alþjóðlegum vettvangi en hitt það grundvallarmarkmið að all- ir ættu að hafa jafna möguleika til náms á háskólastiginu, óháð þáttum á borð við þjóðfélagsstöðu. Prófess- orinn taldi bæði markmiðin af hinu góða en sagði ljóst að ríkið gæti ekki staðið undir slíkum skuldbinding- um. Ekki væri til nægilegt fjármagn til þess, ekki síst vegna þess að stjórnvöld legðu æ meira fé til heilbrigðis- mála á kostnað mennta- mála og annarra mál- efna. Shattock sagði að ein- staka háskólar og háskólamenn hefðu að undanförnu rætt um mögu- leika þess að hækka skólagjöldin í Bretlandi úr þúsund pundum til að mæta umræddum vanda, en benti sjálfur á að slíkt myndi auka hætt- una á mismunun ríkra og fátækra námsmanna, jafnvel þótt þeir efna- minni hlytu styrki til náms. Nefndi Shattock því þrjár leiðir sem Bret- land þyrfti að velja á milli á næstu árum. Sú fyrsta væri að gera minni kröfur til menntunar á háskólastigi. Onnur leiðin væri að auka styrki ríkisins til háskólamenntunar; ann- að hvort með hækkun skatta eða með því að draga úr framlögum til annarra þátta samfélagsins. Og sú þriðja væri að koma á eins konar „elítu“-háskólakerfi, sem væri óháð ríkisstyrkjum, en á sama tíma öðru háskólakerfi sem væri minna að gæðum en tæki á móti öllum þeim sem á annað borð hefðu aðgang að háskólanámi. I umræðum á ráðstefnunni kom fram að háskólar á Norðurlöndum ættu að mörgu leyti við sama vanda að stríða og fram kom í erindi Shatt- ocks, þ.e. að vegna ört vaxandi að- sóknar að menntun á háskólastigi væri æ erfiðara fyrir ríkið að fjár- magna menntunina og þar með fyrir skólana að láta enda ná saman. I framsögu fulltrúa stjórnvalda á ráð- stefnunni kom þó fram að skólagjöld væru úrræði sem alls ekki kæmi til greina á hinum Norðurlöndunum til að standa undir menntun stúdent- anna. I þessu sambandi benti Sig- run Aasland, fulltrúi stúdenta í Nor- egi, þó á að ekki væri þar með sagt að nám væri ókeypis fyrir náms- menn á Norðurlöndum því á náms- tímanum þyrftu þeir að taka náms- lán, jafnhliða því að fá styrki, til þess að geta framfleytt sér og jafn- vel fjölskyldu sinni. Með þetta í huga væri því mikilægt fyrir ráða- menn að gera sér grein fyrir því að jg nám á háskólastigi þyrfti að vera | vandað og markvisst. fsland tekur upp sænska módelið Ingjaldur Hannibalsson, prófess- or við Háskóla íslands, gerði í erindi sínu grein fyrjr fjármögnun háskólastigsins á Islandi en hér á landi eins og í löndunum í kring er framlag ríkisins stærsti tekjuliður skólans. Til að mynda kæmu 60% af g tekjum Háskóla íslands frá ríkinu og um 12% kæmu frá Happdrætti I Háskóla íslands. Afgangurinn kæmi 1 annars staðar frá, svo sem frá fyrir- tækjum. Ingjaldur greindi frá því að undanfarin ár hefði verið unnið að gerð reiknilíkans, m.a. að fyrirmynd sænsks módels, fyrir Háskólann en með því væri hægt að reikna út fjár- þörf skólans, og í október á síðasta ári hefðu Háskólinn og menntamálaráðuneytið gert með sér samning á grundvelli slíks líkans til næstu þriggja ára. Sagði hann að með því líkani væri ekki aðeins mið- að við fjölda námsmanna og kennara við Háskólann heldur kæmu þar einnig inn gæði menntunar og fleiri þættir sem meta bæri þegar rætt væri um fjárframlag ríkisins. í erindi sínu velti Ingjaldur fyrir sér stöðu æðri menntunar í Evrópu samanborið við æðri menntun í Bandaríkjunum og Japan. Taldi hann augljóst að Bandaríkin og Jap- j an stæðu skólunum í Evrópu framar á mörgum sviðum. Benti hann á að margir háskólar í Bandaríkjunum stæðu vel fjárhagslega og að nokkr- ir bandarískir háskólar sæju sér hag í þvi að vera með útibú í Evrópu og reyndar víðar um heim. í þá háskóla sæktu evrópskir stúdentar og þeir virtust meira en viljugir til þess að greiða há skólagjöld til að geta stundað nám. í framhaldi af þessu velti Ingjaldur því fyrir sér hvort ekki væri nauðsynlegt fyrir evrópska háskóla að taka upp skóla- gjöld til þess að geta aukið gæðin og þar með verið samkeppnishæfari við skóla í Bandaríkjunum og Japan. Vitnaði Ingjaldur í nóbelsverð- launahafann Robert M. Solow, sem sagði að 25- 50% af hagvexti mætti rekja til rannsókna og þróunar á vettvangi stofnana á háskólastiginu. Sagði Ingjaldur að ef Evrópa ætlaði að stuðla að hagvexti á borð við þann sem gerðist á öðrum svæðum heimsins yrði hún að auka gæði og virkni menntunar á háskólastiginu. I lokin má geta erindis dr. Terrys Falconers en hann skýrði frá því að skólar á háskólastigi væru einkum fjármagnaðir með framlögum frá hinu opinbera, þ.e. fylkjunum sjálf- ; um, en einnig kæmi stór hluti tekn- anna frá nemendum í formi skóla- gjalda. Falconer varð hins vegar tíðrætt um að styrkir hins opinbera til háskólastigsins hefðu farið minnkandi hin síðustu ár en á sama tíma hefði hluti skólagjalda í heild- artekjulind skólanna aukist. Það skapaði á hinn bóginn vanda fyrir efnaminni námsmenn þar sem þeim væri með hærri skólagjöldum gert erfiðara fyrir að stunda nám. Falconer benti á að skólar nýttu hluta þeirra tekna sem næðust með skólagjöldum til að styrkja efna- minni stúdenta og sagði slíkt að vissu leyti ýta undir jöfnuð, en á hinn bóginn velti hann því fyrir sér hvort þetta væri kerfi sem ætti að nota til að halda uppi jöfnum mögu- leikum til náms. í umræðunum um mögulega fjár- mögnun háskólastigsins kom fram að háskólar væru í æ meiri mæli farnir að leita að fjárstuðningi hjá einkageiranum, einkum til þess að fjármagna rannsóknir. Töldu marg- ir fundargestir þá þróun vera af hinu góða. Mftele uppþvottavélin - einstök hnífaparagrind efst: i vélinni. - htjó>látari en flú hef>ir flora> a> vona. - afkastar 20% meira en sambærilegar vétar Miele í tilefni af 100 ára afmæli Miele hafa Eirvík og Miele ákveðið að efna tíl happadrættís. í verðlaun er hinn glæsilegi Mercedes- Benz A-lína frá Ræsi. Htmda-B*nz A-lfnO ftr til htppins kaupanda Hitlt Mmllistxkií. ©100 Míele EIRVIK, Suðurlandsbraut 20 - 108 Reykjavík - Sími 588 0200 - www.eirvik.is Háskólar leita meira til einkageirans Æ fleiri sækja í menntun á háskólastigi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.