Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
BRIDS
Umsjón Guðmiindnr
Páll Arnarson
ÞAÐ er sjaldgæft að fá upp
dæmigerð „bókarspil" í
keppni, en eitt slíkt kom upp
í undanúrslitum íslands-
mótsins, í fjórðu umferð:
Suður gefur; allir á hættu.
Norður
* A6
v K832
* K54
* A742
Vestur Austur
+ DG10982 * K43
v G7 V D94
♦ Á82 ♦ G1076
* 103 + D98
Suður
* 75
y Á1075
* D93
* KG65
Oftast nær var lokasögnin
ijögur hjörtu í suður, gjam-
an eftir þessar sagnir:
Vcstar Norður Austur Suður
“ Pass
2spaðar Ðobl 3spaðar 4 hjörtu
Pass Pass Pass
Þetta er spegilskipting,
sem er yfirleitt slæmt í
trompsamningi, enda nýtist
þá trompið ekki sem skyldi.
En oft er hægt að kalla vöm-
ina til hjálpar og svo er í
þetta sinn. Utspilið er spaða-
drottning, sem sagnhafi tek-
ur strax, spilar tveimur efstu
í trompi og fer svo í laufið,
tekur ásinn og svínar gosan-
um. Þegar það heppnast,
tekur hann laufkóng og send-
ir vörnina svo inn á spaða.
Hvor vamarspilarinn um
sig getur tekið spaðaslaginn
og sótt að tíglinum. En samt
er ein staða í tígullitnum þai'
sem vörnin kemst ekki hjá
því að gefa slag og hún er hér
til staðar - ásinn í vestur og
GIO í austur. Ef vestur tekur
slaginn og spilar frá tígulásn-
um, hleypir sagnhafi heim á
drottningu og spilar svo að
kóng. Og ef austur tekur
spaðaslaginn og spilar tágli,
vaknar nía suðurs til h'fsins.
Spilið stendur því einfaidlega
í þessari góðu legu.
SKAK
l]m$jón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik
MEÐFYLGJANDI staða
kom upp á milli búlgarska al-
þjóðlega meistarans Vladim-
ir Georgiev, hvítt, (2.508) og
rússneska alþjóðlega meist-
arans V. Lazarev (2.493) á
lokuðu alþjóðlegu móti í Elg-
oibar á Spáni sem haldið var
undir lok síðasta árs.
26. Dxa6! Hf8! Eina leiðin
til að halda taflinu gangandi.
26. ... Hxa6 27. He8 er mát.
27. Bxf7+! Kh8 Besti leikur-
inn þar sem eftir 27. ... Hxf7
vinnur hvítur með 28. He8+
og jafnframt er 27. ... Dxf7
ekki gott sökum 28. Dxd3.
28. Dd6 Dxc5 29. Dxd3 29.
Dxc5 Rxc5 30. He8 var einn-
ig sannfærandi vinningsleið.
29.... Hxf7 30. He8+ Hf8 31.
De3! Notfærir sér stefið um
mát á áttundaröð, en það sem
eftir lifir skákarinnar not-
færir hvítur sér það með
markvissum hætti. 31.... Df5
32. b4 Dbl+ Að öðrum kosti
verður frípeðið óstöðvandi.
33. Kh2 Dxb4 34. Dd4! Da3
35. Dd8 Kg8 36. Dd5+ Kh8
37. Df7! Lokastefið. 37.
... Dd6+ 38. f4 Dh6+ 39. Kg3
og svartur gafst upp enda
skammt í mátið.
ÍDAG
Árnað heilla
Q /A ÁRA afmæli. í dag,
O v/ þriðjudaginn 11.
apríi, er áttatíu ára
Vilhelmína Sigurjónsdótt-
ir, hjúkrunarheimilinu
Eir. Vilhelmína verður
með kaffi á könnunni kl.
15-17.
/\ÁRA afmæli. í gær,
O vl mánudaginn 10.
apríl, varð fimmtugur
Magnús Kolbeinsson,
Eyjavöllum 13, Keflavík.
Kolbeinn tekur á móti
gestum í félagsheimili
Karlakórs Keflavíkur,
Vesturbraut 17, Keflavík,
föstudaginn 14. apríl frá
kl. 20.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu kr. 1.391 til styrktar Rauða
krossi íslands. Þær heita Eydís Sigrún Jónsdóttir og Svein-
björg Karlsdóttir.
Með morgunkaffinu
ai 7é/yH
Ef þú lætur mig sitja eftir
hefur þú á samviskunni
að hænsnahópur fær ekk-
ert að éta, litlir grísir ekki
heldur og einmana hund-
ur fær ekki reglubundinn
göngutúr og samvistir við
eiganda sinn.
Mamma tók umsagnir
kennaranna allar úr sam-
hengi.
LJOÐABROT
VORVÍSUR
Þegar líður gamla góa,
góðs er von um land og flóa,
vorið bræðir vetrarsnjóa,
verpa fuglar einherjans
út um sveitir ísalands;
ungum leggur eins hún tóa,
úr því fer að hlýna.
Enga langar út um heim að blína.
Tjaldar syngja um tún og móa,
tildrar stelkur, gaukur, lóa
endar hörkur hljóðið spóa,
hreiðrin byggir þessi fans
út um sveitir ísalands;
æðarfuglinn angra kjóar,
eru þeir að hvína.
Enga langar út um heim að blína.
Sæt og fógur grösin gróa,
gleðja kindur, naut og jóa,
engjar, tún og auðnir glóa
eftir boði skaparans
út um sveitir Isalands;
að stekkjarfénu stúlkur hóa
og stökkva úr því við kvína.
Enga langar út um heim að blína.
Eggert Ólafsson.
STJÖRIVrSPÁ
eftir Franees Drake
HRIJTUR
Afmælisbarn dagsins:
Þú ert framtakssamur
með a fbrigðum og þarft
stundum að halda aftur
af þér annarra vegna.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Það hefur ekkert upp á sig að
skjóta málum á frest, heldur
skaltu bara afgreiða þau
strax í dag. Þér líður miklu
betur á eftir, sannaðu til.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er nauðsynlegt að þekkja
vel þann, sem maður deilir
sínum innstu skoðunum með.
Fljótfærni í þeim efnum get-
ur reynst hai’la afdrifarík.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní) nA
Það eru svo margir mögu-
leikar í stöðunni að þér fall-
ast hendur og þú vilt helst
ekkert gera. En það er þó
versti kosturinn svo gerðu
eitthvað.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú stendur frammi fyrir vali
sem getur haft mjög örlaga-
ríkar afleiðingar í framtíð-
inni. Gefðu þér því góðan
tíma svo allt fari nú á bezta
veg.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Þú þarft að finna leið til þess
að vinna hugmyndum þínum
brautargengi. Varastu flók-
inn málatiibúnað því einfald-
leikinn er oft áhrifamestur.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) vtmL
Þú hefur iátið margt reka á
reiðanum en nú verður ekki
hjá því komist að taka málin
fóstum tökum. Láttu alla
sjálfsmeðaumkun lönd og
leið.
Vo£ 'tC'TX
(23. sept. - 22. október)4* A
Þótt þú viljir helst vera einn
um hituna kemstu ekki hjá
því að taka höndum saman
við samstarfsmenn þína. Það
eitt tryggh- framgang mála.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.) '•tlí
Það er margt sem bendir til
breytinga hjá þér og þótt
kvíða gæti máttu ekki láta
hann ná tökum á þér því um-
skiptin geta reynst þér mikil
gæfa.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.) mO
Þér mun reynast auðveldara
að koma hugmyndum þínum
á framfæri en þú hugðir. Það
þýðir þó ekki að eftirleikur-
inn verði sá sem þú ætlaðir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Gættu þess að stökkva ekki
upp á nef þér af minnsta til-
efni. Sýndu eðlilegri við-
brögð. Þau tryggja að mark
verði tekið á orðum þínum.
Vatnsberi
(20. jan. -18. febr.)
Þú þarft að verja sjálfan þig
betur og hætta að hafa svona
miklar áhyggjur af öðru fólki.
Haltu bara þínu striki eins og
það sé ekki til.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Orðatiltæki og málshættir
eru uppistaðan í leik sem þú
skalt bjóða vinum þínum til.
Þetta er saklaust gaman og
skemmtilegt og fræðandi í
senn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreymda.
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 65
Sumir velja sér
tvo lMjrunaiita
ura ævina
er aiinar þeirra
i Hjóloglínur
Flugustangir meö
lífstíðarábyrgð
Útsölustaöir: s
Útilíf |
Veiðibúð Lalla
Vesturröst
Höfum opnað
á nýjum stað Garðatorgi 7
Nýjar vörur fyrir konur á öllum aldri
T~~f 1 /7 A ''f / Opið í dag sunnud. frá 12 - 16
J (j (y(_/ f L lÆ °pið das,esa frá 10 -18
Kvenfataverslun, Garðatorgi 7, Garðabæ, sími 565 9996.
Hörskyrtur Hvítar, svartar, grænar. Stæröir 36-46.
Hörbuxur stsr's“""'a“-46'
LJ I |» Svartir og grænir. Stærðir 36-46.
I IUI fVJUICII Verðkr. 8.900
POLARN O. PYRET
Kringlunni — s. 568 1822
Léttu
hjartanu
lífið!
Hjartað púlar fyrir þig allan
sólarhringirm, allt þitt líf.
Þú gctur styrkt hjartað
og auðveldað því puðið:
Taktu til fótanna. Rösk ganga í samtals 30 mínútur á dag dregur úr
blóðfitumyndun, lækkar blóðþrýsting og styrkir hjartað og æðakerfið.
Hreyfðu þig reglulega og taktu fjölskylduna með.
Borðaðu góðan og hollan mat; litríka ávexti, ferskt grænmeti, fitulítið
kjöt, ferskan fisk, léttar mjókurvörur og pasta. Njóttu matarinns í
næði.
Mundu að reykingar orsaka hjartasjúkdóma. Reykingamaður er í
tvöfalt meiri hættu á að fá kransæðastíflu.
Er blóðþrýstingur þinn í lagi? Eftir fimmtugt ætti að mæla hann <\
annað hvert ár. :
Léttu hjartanu iífið og líf þitt verður betra.
Landlæknisembættið
Nánari upplýsingar á www.landlaeknir.is
Fræðsluauglýsing frá Landlæknisembættinu www.landlaeknir.is