Morgunblaðið - 11.04.2000, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 2000 33
J ór daníukonungur
sækir Noreg heim
HARALDUR Noregskonungur og
Abdullah, konungur Jórdaníu,
kanna hér heiðursvörð við kon-
ungshöllina í Ósló við upphaf
þriggja daga opinberrar heimsókn-
ar Jórdaníukonungs til Noregs,
sem hófst í gær.
Norðmenn hafa veitt Jórdaníu
um 300 milljón króna fjárhagsað-
stoð á þessu ári og ávarpaði Abdull-
ah norska þingið í gær og minntist
þar m.a. Óslósamkomulagsins.
Á meðan ræddi Abdul Uah, utan-
ríkisráðherra Jórdaníu, við Thor-
bjorn Jagland, utanríkisráðherra
Noregs, um framgang friðar-
viðræðna í Miðausturlöndum, en
Abdullah mun í dag ræða við yf-
irmenn Norsk Hydro og Jens Stolt-
enberg, forsætisráðherra Noregs.
Fjármál Living-
stone skyggja
á kosninga-
baráttuna
Vika bókarinnar 11.-17. apríl
Glæpasögur, alda-
mótaljóð og bókaball
GLÆPASAGAN verður í hávegum
höfð í Viku bókarinnar, sem hefst í
dag og stendur til mánudagsins 17.
apríl. Því þótti skipuleggjendum vik-
unnar við hæfi að kalla fulltrúa fjöl-
miðla fyrir og gefa þeim færi á að yf-
irheyra fulltrúa Félags íslenskra
bókaútgefenda. Fundai-staðurinn var
ekki af verri endanum; Hegningar-
húsið við Skólavörðustíg.
Þetta er í annað sinn sem Vika bók-
arinnar er haldin hér á landi. Tilgang-
urinn er að draga athygli að bókum
og hvetja til bóklestrar og bókaum-
fjöllunar árið um kring en ekki ein-
göngu í jólabókaflóðinu. Alþjóðadag-
ur bókarinnar er svo 23. apríl, sem að
þessu sinni ber upp á páskadag.
Bókatíðindum vorsins var dreift í
70.000 eintökum um helgina en þar
era kynntar um 70 bækur sem komið
hafa út frá áramótum. í tilefni af
bókavikunni hafa skáldin Þórarinn
Eldjárn, Ingibjörg Haraldsdóttir og
Sjón samið aldamótaljóð, sem prent-
uð hafa verið á sérstaka plastpoka.
Hvert tímametið á
fætur öðru slegið
Allir þeir viðskiptavinir íslenskra
bókaverslana sem kaupa bækur fyrir
meira en þúsund krónur í bókavik-
unni fá nýstárlega glæpasögu í kaup-
bæti. Hún heitir Leyndardómar
Reykjavíkur 2000 og er skrifuð af
átta höfundum. Þeh- eru: Viktor Ai-n-
ar Ingólfsson, Hrafn Jökulsson, Birg-
itta Halldórsdóttir, Amaldur Indr-
iðason, Stella Blómkvist, Ámi
Þórarinsson, Gunnar Gunnarsson og
Kristinn Kristjánsson. Sá síðast-
nefndi er foringi Hins íslenska
glæpafélags, félagsskapar höfunda
og áhugamanna um glæpasögur.
Hann segir að undirtektir hafi strax
verið gífurlega góðar þegar sú hug-
mynd kom upp að skrifa sameigin-
lega glæpasögu. „Það myndaðist
undir eins mikill keppnisandi. Eftir
aðeins tvær vikur vom fjórir fyrstu
rithöfundarnir búnir að skrifa helm-
ing bókarinnar og svo var hvert tíma-
metið á fætur öðru slegið. Við köllum
þetta raðsögu," segir hann - með til-
vísun til raðmorðingja.
„Bókin er skrifuð á einum og hálf-
um mánuði og það hafa ekki jafn-
margir verið drepnir í íslenskri bók
síðan íslendingasögumar vom
skráðar,“ segir Kristinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Frá blaðamannafundi í Hegningarhúsinu. Lengst til vinstri situr foringi Hins íslenska glæpafélags, Kristinn
Kristjánsson, þá Benedikt Kristjánsson, framkvæmdastjóri Viku bókarinnar, Sigurður Svavarsson, formaður
Félags íslenskra bókaótgefenda, og Pétur Már Ólafsson, varaformaður.
Dagskrá viku bókarinnar
London. Morgunblaðið.
Framboðsfrestur til
borgarstjóraembætt-
isins í London er nú
runninn út og þótt allt
virðist stefna í sigur
Ken Livingstone
bættust þrír nýir
frambjóðendur við á
lokasprettinum og eru
þeir nú ellefu talsins.
Um leið og framboðs-
fresturinn rann út var
Livingstone vikið úr
Verkamannaflokkn-
um, en hins vegar
virðist flokksforystan
ætla að snúa blinda
auganu að stuðnings-
mönnum hans. Fjármálin halda
áfram að vefjast fyrir Livingstone,
sem segir kokhraustur að allar at-
hugasemdir þar um séu óhróður
runninn undan rifjum fyrrverandi
flokksbræðra hans.
Þótt hin formlega kosningabar-
átta sé nýhafin, má heita að hún
hafi byrjað daginn sem Tony Blair
tók við forsætisráðherraembætt-
inu. Þar með var ljóst, að embætti
borgarstjórans í London yrði end-
urreist og um leið varð ljóst, að
Ken Livingstone myndi falast eftir
því og að flokksforystan gæti ekki
hugsað sér hann sem frambjóð-
anda Verkamannaflokksins. Síðan
hefur allt það vatn, sem runnið
hefur til sjávar, og átti að skola
Livingstone út í hafsauga, þvert á
móti fleytt honum í sjálfstætt
framboð, þar sem hann stendur
með pálmann í höndunum gagn-
vart frambjóðanda flokksins,
Frank Dobson, og öðrum fram-
bjóðendum.
Umdeilt lán
Fyrir nokkru voru gerðar at-
hugasemdir við fjármál Ken Liv-
ingstone og varð hann
að biðja þingið afsök-
unar á því að hafa
vantalið tekjur sínar í
skýrslu til þingsins.
Það mál virtist engin
áhrif hafa á fylgi hans
í borgarstjórastólinn.
Nú eru fjármál hans
aftur komin upp á
borðið í sambandi við
frétt The Times af 40
þúsund punda láni,
sem hann hefur tekið
hjá fyrirtæki, sem
hann stofnaði utan um
sjálfan sig sem verk-
taka. Þetta vilja sumir
meina að sé ólöglegt, en Living-
stone segir það af og frá; hann hafi
gert þetta að ráðum endurskoð-
anda síns og öll gagnrýni sé runnin
undan rifjum hælbítanna í herbúð-
um flokksins. Til viðbótar gerði
blaðið það svo að umtalsefni, að
Livingstone hefur fest kaup á hús-
næði í Brighton ásamt sambýlis-
konu sinni, Kate Allen, sem bendi
til þess að hann sé ekki á flæðiskeri
staddur fjárhagslega. Þau húsa-
kaup eru þó að sögn blaðsins langt-
um smærri í sniðum en 465 þúsund
punda húsið, sem hrakti Peter
Mandelson úrstjórninni um tíma.
Meðan Livingstone er í fréttun-
um reyna hinir frambjóðendurnir
að halda uppi einhverri kosninga-
baráttu. Eins fjarstæðukennt og
það nú er virðast möguleikar þeirra
þó ekki liggja í málefnunum, heldur
miklu frekar í þeim málum, sem
þyrlað er upp til höfuðs Living-
stone. Ennþá vill almenningur sjá í
gegnum moldviðrið og ekkert hrín
á vinsældum hans. En jafnvel Ken
Livingstone mun veitast erfitt að
vinna London, ef einhver hans mál
þola ekki dagsins ljós.
Borgarbókasafn Reykjavíkur
Steinunn Sigurðardóttir skrifar
upphaf smásögu á heimasíðu Borg-
arbókasafnsins, www.borgar-
bokasafn.is. Gestir eru hvattir til að
botna söguna.
Bústaðasafn,
Gerðuberg og Sólheimasafn
Smásögur í brennidepli. Sýning á
smásögum og brotum úr þeim.
Aðalsafn og
Foldasafn v/Fjörgyn
Vakin athygli á ævisögum, dag-
bókum og ævibrotum. í Foldasafni
verður brugðið upp myndum úr ævi
barns sem hefur alist upp í hverfinu
og er jafngamalt því. Einnig verða
sýndar myndir úr „ævi“ húss í hverf-
inu. Fulltrúar fjögurra æviskeiða
mynda dag í lífi sínu. Afraksturinn
verður sýndur í aðalsafni, Þingholts-
stræti 29a, í vikunni. í sýningarskáp
aðalsafns: Viðburðir úr ævi þjóðar.
Seljasafn
Þriðjudag 11. apríl kl. 10. Helga
Arnalds segir söguna um Gosa.
Bústaðasafn
Miðvikudag 12. apríl kl. 10. Leik-
húsið Tíu fingur sýnir Sólarsögu.
Sólheimasafn
Miðvikudag 12. apríl kl. 17. Elín
Ebba Gunnarsdóttir og Agúst Borg-
þór Sverrisson lesa framsamdar
smásögur. Þorvaldur Már Guð-
mundsson leikur á klassískan gítar.
Málþing um kristni
á Islandi
Oddfellowhúsið við Sjafnarstíg,
Akureyri. Laugardag 15. apríl kl. 13.
Málþing í tilefni af útgáfu Kristni á
Islandi.
Iðunn og Kristín lesa
Iðunn og Kristín Steinsdætur
heimsækja Austurland í Viku bókar-
innar og lesa fyrir börnin í grunn-
skólunum. í dag, þriðjudaginn 11.
apríl: Vopnafjörður kl. 9, Bakka-
fjörður kl. 11.30. Miðvikudag 12.
apríl: Hallormsstaður kl. 9, Seyðis-
fjörður kl. 11. Kynning í Bókasafni
Seyðisfjarðar síðdegis.
Námsefni á nýrri öld
Ráðstefna á vegum Hagþenkis -
félags höfunda fræðirita og kenns-
lugagna. Námsefni á nýrri öld -
Hvert stefnir? Kennai'aháskóli ís-
land. Föstudagur 14. apríl kl. 14-18.
Ljóðalestur í Garðabæ
Bókasafn Garðabæjar, mánudag
17. apríl kl. 17.30. Jóhanna Vigdís
Arnardóttir leikkona les upp Ijóð.
Sektarlaus vika í bókasafninu.
Glæpafélagsfundur
Aðalfundur Hins íslenska glæpa-
félags, miðvikudag 12. apríl kl. 20.30.
Bókaball
Versalir, veislusalur, Hallveigar-
stíg, föstudag 14. apríl kl. 19.30
Bókaverslun á nýrri öld
Morgunverðarfundur bóksala og
bókaútgefenda, Háteigi, Grand Hót-
el Reykjavík, föstudag 14. apríl kl.
8.30-10. Rætt um framtíðarsýn.
Bókmenntadagskrár
á Súfistanum
Þriðjudag 11. apn'l kl. 20. Sótt og
dauði íslenskunnar. Dagskrá í tilefni
af útgáfu Stórbókar með úrvali ís-
lenskra texta frá 18. öld. Fimmtudag
13. aprfl kl. 20. Dagskrá í tilefni af
útgáfu heildarsafns ljóða Stefáns
Harðar Grímssonar.
Glæpasögur og
afþreyingarbókmenntir
Komhlaðan við Bankastræti.
Laugardag 15. apríl kl. 14. Bóka-
samband Islands efnir til um-
ræðufundar um afþreyingarbók-
menntir.
Spennusagnaandi yfir vötnum
Spennusagnaandi ríkir í Bóka-
safni Kópavogs í bókavikunni og
verða útstillingar í samræmi við það.
Bókasafnið hefur gefið út lista yfir
íslenskar spennubækur sem til eru á
safninu. Allir fá ljóð í bókapokann
sinn. Þriðjudag 11. apríl kl. 14. Börn
úr Smáraskóla í Kópavogi lesa úr
uppáhaldsbókunum sínum. Miðviku-
dag 12. apríl kl.10 og kl.14. í sögu-
stund fyrir 3 til 6 ára verða lesnar
spennusögur fyrir börn. Föstudag
14. apríl kl. 16-17. Birgir Svan Sím-
onarson og Unnur Sólrún Braga-
dóttir lesa sögur og ljóð.
Ný Kristnisaga
Fimmtudag 13. apríl, Al-
þingishúsið. Athöfn vegna útgáfu
nýrrar Kristnisögu.
Kvikmynduð bókmenntaverk
Háskólabíó. Föstudag 14. aprfl.
Framsýning myndarinnar Fellur
mjöll í Sedrusskógi eftir samnefndri
sögu David Guterson sem kom út á
íslensku fyrir tveimur áram og er nú
nýkomin út í kilju. Föstudag 28. apr-
fl. Aska Angelu frumsýnd. Æsku-
minningar FrankMcCourt hafa ver-
ið á metsölulistum um allan heim og
eru nú komnar út á íslensku.
Ken Livingstone